Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 33

Morgunblaðið - 06.08.1980, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGURG 6. ÁGÚST 1980 37 Þaö er ekki vist aö allir væru tilbúnir til að sjá á eftir kærustunni sinni í heimssiglingu með öðrum manni. En John Ritchie varð að sætta sig við það. Unnusta hans, Julie Waterman var búin að skipuleggja ferðina ásamt vini sínum Colin Playdon fyrir 14 mánuöum síðan en John og Julie hafa aöeins þekkst í 4 mánuöi. John stóð á bryggjunni í Dartmouth þegar þau lögðu frá landi en ferðin mun taka tvö ár. Tískusýningar fyrir haust og vetrartískuna eru nú aö byrja af fullum krafti. Þessi kjóll er frá Dior og var á sýningu í París nú um daginn. Gullklumpur Gullklumpurinn sem stúlkan heldur á er 14 únsur. Það voru eldri hjón sem fundu hann í Ástralíu. Þau geta gert sér vonir um aö fá u.þ.b. eina milljón dollara fyrir hann. Hún heitir Kelly Collins stúlkan hér á myndinni og þykir hún sláandi lík syst- ur sinni, leikkonunni Bo Derek. En Kelly hefur ekki hugsaö sér aö gerast leikkona. Henni þykir nóg um þann átroðning sem systir hennar veröur fyrir af hálfu ókunnugs fólks. Guöný Jóna Gísla- dóttir — Minning Fædd 8. ágúst 1901. Dáin 26. júlí 1980. Mér verður fyrst fyrir að bregða mér í minningunni næstum sjö áratugi aftur í tímann. En það var einmitt á öðrum tug þessarar aldar, að ég kynntist m.a. ungum manni að nafni Sigurður Bjarna- son. Leiðir okkar lágu saman við allskonar störf, allt sem til féll, bæði á sjó og landi. Einnig við að reyna að afla okkur nokkurrar fræðslu og þekkingar, eftir því sem nokkur tök voru á. Það, sem dró okkur saman, hefir sjálfsagt m.a. verið það, að við vorum báðir ungir einstæðingar, ég úr Árnes- þingi, en hann af fjörðum vestan. Eitt er víst, að okkur féll vel saman, enda báðir upp aldir í þeirri trú og við þeirra tíma lífsvenjur, að allir ungir menn yrðu að vinna sig áfram sem mest og best sjálfir til þess þroska, sem líkamlegir og andlegir möguelikar gáfu framast tilefni til. Eftir nokkur ár skildu leiðir okkar, enda flutti ég þá alfarinn héðan úr bæ. Eftir rúman hálfan fjórða ára- tug lágu svo leiðir okkar saman á ný. Þá var ég ásamt konu minni, Elínu S. Jakobsdóttur, boðinn inn á heimili Sigurðar að Barónsstíg 39 hér í borg. Þar vorum við kynnt fyrir húsfreyju, sem bar nafnið Guðný Jóna Gísladóttir. Varð mér þegar ljóst, að heimilið væri vel stætt á þeirra tíma mælikvarða, enda kom mér það ekki á óvart, þar sem ég hafði þekkt dugnað og atorku Sigurðar frá æskuárum og vissi að nú hafði hann neytt þeirra eiginleika sinna sem mikilvirkur múrari um áratugi. En hið nýja, sem ég kynntist nú, var hin einkar vingjarnlega, glaðlega og geð- þekka húsfreyja Guðný, eiginkona Sigurðar, sem sýnilega hafði ekki látið sinn hlut eftir liggja við að gera heimili þeirra smekklega búið og fagurt. Við kynningu okkar kannaðist ég fljótlega við ættir húsfreyju í Árnessýslu. Ég hafði einmitt sem barn heyrt um þær ættir, sem að henni stóðu, mikilhæft dugnaðarfólk, einnig margt stórbrotið og listrænt. Guð- ný var líka listræn að eðlisfari, spilaði á hljóðfæri og hafði yndi'af fagurri tónlist. Eftir þessa endur- nýjun á kynnum, höfum við haft svo ótal margar ánægjulegar sam- verustundir, bæði á heimilum okkar og í ógleymanlegum smá ferðalögum um landið okkar með- an Sigurðar naut líka við. Á heimili þeirra hjóna var þáttur Guðnýjar svo áberandi í hinni svo látlausu gestrisni, sem er laus við allt prjál Qg tildur, en felur í sér hinn eðlislæga grundvöll að vilja vera heldur veitandi en þiggjandi í þeirra orða bestu merkingu. Ætti ég að skilgreina helstu eðlisþætti hinnar látnu merkis- konu, þá koma mér efst í huga orðin sanngirni og tillitsemi. Gamalt máltæki hljóðar svo: „Fár bregður því betra ef hann veit hið verra." I gegnum okkar löngu og góðu lífskynningu, varð ég æ sannfærð- ari um það, að sterkir þættir í trú hennar og mannkostum, voru í algerri andstöðu við efni þessa þekkta máltækis. Það var einmitt svo áberandi eiginleiki í dagfari hennar, viðmóti og samtali um menn og málefni, að bregða ætíð hinu betra. Leggja hvert mál og athafnir samferðafólksins út á hinn betri veg, en halda sízt á lofti hinu lakara. Slíkur var sá grund- völlur, sem trygglyndi hennar og vinfesta byggðist á. Átti það jafnt við í félagsstörfum hennar sem og í allri daglegri umgengni. Þetta eru aðeins fátækleg kveðjuorð, en umfram allt þakkar- orð fyrir svo fjölda margar ánægjulegar samverustundir, sem ég og kona mín höfum átt með hinni látnu vinkonu okkar, bæði innan og utan hennar heimilis. Ég votta syni hennar, Haraldi kaupmanni, tengdadóttur, öllu skyldfólki og vinum heimilis hennar dýpstu samúð. En þó alveg sérstaklega sonarsonunum ungu og efnilegu, ,sem nú hafa misst sína einlægu, leiðandi, trúföstu og réttvísu ömmu. Guð gefi þeim gæfu til að rata leiðina áfram til manndóms og þroska í hennar kærleiks og fórnaranda. Halldór Guðjónsson. í dag er kvödd hinstu kveðju Guðný Gísladóttir föðursystir mín. Guðný var fædd í Eystra- íragerði á Stokkseyri 8. ágúst 1901, dóttir hjónanna Gísla Gísla- sonar skósmiðs frá Skúmsstöðum á Eyrarbakka, Einarssonar — og konu hans Valgerðar Grímsdótt- ur, Gíslasonar óðalsbónda í Óseyr- arnesi. Guðný ólst upp á Stokkseyri ásamt þrem systkinum, tveim eldri og einu yngra, stundaði kaupamennsku í nágrannasveitum og fluttist til Reykjavíkur um tvítugsaldur að vinna á fiskreit- um, á saumastofu og sem herberg- isþerna á Hótel Island. Giftist 1933 Sigurði Bjarnasyni múrara í Reykjavík. Einkabarn þeirra er Haraldur kaupmaður í Reykjavík. Minningin um Guðnýju er minning um þá sjálfstæðu og duglegu stúlku, sem hleypir heim- draganum strax og færi gefst. Hugrekkið og ef til vill framagirni leiða hana úr hokrinu í sunn- lenska sjávarplássinu til höfuð- staðarins þar sem möguleikar voru flestir, og innan fárra ára er foreldrafjölskyldan öll komin til Reykjavíkur fyrir áeggjan þessa undanfara, sem með heilþrigði sínu og fórnarlund var alla tíð stoð og stytta foreldra sinna og systkina. Mér er kært að minnast dvalar á myndarheimili þeirra Guðnýjar og Sigga á Barónsstíg 39, þegar á bjátaði í mínum heimahögum. En laun heimsins eru kunn. Ég bið um fyrirgefningu á, hversu litla ræktarsemi ég sýndi þeim hjónum og sér í lagi Guðnýju eftir fráfall Sigurðar 1971. Þyngstur harmur er kveðinn að börnum Haraldar og Guðrúnar, sem ekki njóta lengur dýrmætrar umhyggju Guðnýjar ömmu. Megi minningin um þessa heið- urskonu verða okkur hvatning um ókomin ár. Gilli frændi. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.