Morgunblaðið - 06.08.1980, Qupperneq 40
Siminn
á afgreiöslunni er
83033
Jttorjjunblabifc
^Síminn á afgreiðslunm er
83033
]fl«r0<mblnbil>
MIÐVIKUDAGUR 6. AGÚST 1980
LjÓKmynd Mbl. Slgurvln ElnarsNon.
Togarinn Orka á leið út úr landhelginni.
Tveir pólskir
togarar reknir
úr landhelginni
Admiral Arciszewski togar inn.
Ljósmynd Mbl. Sigurvin Einarsson.
Landhelgisgæzluflugvél-
in kom að tveimur pólskum
verksmiðjutogurum um 5
sjómílur innan við 200
mílna mörkin norð-austur
af landinu í fyrradag.
Sigurjón Hannesson, skip-
herra, hafði þegar samband
við togarana og skipaði þeim
út fyrir. Þeir hífðu strax og
fóru út fyrir 200 mílna
mörkin. Viðbárur Pólverj-
anna voru þær, að slæmt
merki væri á dekkastaðsetn-
ingarkerfinu.
Guðmundur Kjærnested,
skipherra í stjórnstöð sagði
að skýrsla um málið yrði
send dómsmálaráðuneytinu,
sem myndi meta hvort kæra
ætti skipstjóra togaranna,
en vonlaust hefði verið að
stöðva þá, því næsta varð-
skip var í um 300 sjómílna
fjarlægð.
Viðræður VSÍ og ASÍ:
Vinnuveitendur leggja
fram nýjar tillögur
Á SAMNINGAFUNDI fulltrúa Vinnuveitendasambandsins og Alþýðu-
sambandsins i gær lögðu fulltrúar vinnuveitenda fram endurskoðaðan
kjarnasamning. en i honum feiast nýjar tillögur um flokkaskipun og
jafnframt er Morgunblaðinu kunnugt um að i þessum tillögum nefna
vinnuveitendur ákveðnar launatölur í hverjum flokki.
Samningaviðræður Alþýðu- | Morgunblaðinu á laugardag hófu
sambands íslands og viðsemjenda
þess tóku óvænta stefnu um helg-
ina. Eins og skýrt var frá í
Samband málm- og skipasmiðja
og Málm- og skipasmiðasamband
íslands sérviðræður um nýja röð-
un í launaflokka og stóðu þær
viðræður um helgina. Þær viðræð-
ur leiddu til þess að málmiðnað-
armenn lýstu því yfir eftir hádegi
á laugardag að þeir drægju sig út
úr samningaviðræðum við Vinnu-
málasambandið og vildu freista
þess að ná samningum við SMS.
Þegar það var ljóst, sagði VMS að
20% verðfall á rækju
á mörkuðum erlendis
ekki væri lengur grundvöllur fyrir
viðræðum milli ASÍ og VMS, þar
sem skilyrði af þeirra hálfu væri
að öll sérsambönd ASI væru
aðilar að samningunum. En eins
og kunnugt er hafði Rafiðnaðar-
sambandið aldrei tekið þátt í
viðræðum vegna ágreinings við
yfirlýsta stefnu ASI í verðbóta-
málum.
Rotterdammarkaður:
Talsverð
lækkun á
bensíni
og gasolíu
TALSVERÐ lækkun hefur orðið
á oliuvörum á Rotterdammarkað-
inum að undanförnu, samkvæmt
þeim upplýsingum, sem Mbl afl-
aði sér í gær.
Hinn 1. ágúst var bensíntonnið
skráð á 322 dollara og hafði
lækkað úr 355,50 dollurum 15. júlí.
Tonnið af gasolíu var skráð á 281
dollar og hafði lækkað úr 309
dollurum 15. júlí. Hins vegar hafði
orðið smávegis hækkun á svart-
olíu, úr 151 í 154,50 dollara tonnið.
Óvenjulegur dagur
í höfuðborginni:
Aðeins eitt
óhapp í um-
ferðinni
FRÍDAGUR verzlunarmanna varð
sórstæður í sögu umferðarmála í
Reykjavík. Ástæðan er sú, að þann
dag varð aðeins eitt umferðaróhapp
í Reykjavík og minnast menn þess
ekki að slákt hafi áður gerst.
Lögreglumenn í höfuðborginni
voru jafnvel farnir að vona að hið
ótrúlega myndi gerast, að dagurinn
yrði alveg óhappalaus. Fyrstu 20
klukkustundirnar varð ekkert óhapp
en klukkan 19,58 varð óhappið.
Bifreið ók á ljósastaur á mótum
Garðastrætis og Túngötu. Slys urðu
engin á fólki en nokkrar skemmdir á
'..'reiðinni. ökumaðurinn var eitt-
hvað að fikta við innsog bifreiðar-
innar. Hann gleymdi sér andartak
og bifreiðin skall á staurnum.
Umferð gekk mjög vel um helgina,
frá laugardegi til mánudags, að
báðum dögum meðtöldum urðu að-
eins 7 óhöpp í umferðinni en ekkert
slys.
1620 millj. kr.
tilboði tekið
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum i gærdag, að taka tilhoði
Böðvars S. Bjarnasonar s.f., i bygg-
ingu hækistöðvar fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavfkur við Suðurlands-
braut.
Tilboð Böðvars S. Bjarnasonar s.f.
hljóðar upp á ríflega 1620 milljónir
króna, sem er um 92,8% af áætluðu
kostnaðarverði.
VERÐ á rækju á mörkuðum hcfur
fallið um 20% frá þvi það var scm
hagstæðast i aprillok á þcssu ári.
að því er óttar Yngvason hjá
fslcnsku útflutningsmiðstöðinni
tjáði hlaðamanni Morgunblaðsins
í gær. í krónum taiið gctur þctta
verðfall þýtt allt að einum millj-
arði króna i minni útflutnings-
vcrðmætum, að sögn óttars.
Skýringar á þessu mikla verðfalli
sagði Óttar vera þær, að mikið
framboð væri nú á rækjumörkuð-
um Evrópu, í kjölfar mikillar veiði
við Grænland og þó einkum við
Noreg. I Noregi kvað hann rækju-
veiðarnar vera mjög mikið styrktar
með útflutningsuppbótum úr ríkis-
sjóði, sem og rækjuvinnsluna.
Sagði Óttar að svo virtist sem
Norðmenn settu sér það takmark
að selja rækjuna, á því verði sem
einhver von væri til að losna við
hana á, ef illa gengi væru niður-
greiðslur auknar, líkt og gerist í
landbúnaði á íslandi. Óttar sagði
Norðmenn búa við lakari tollakjör
en íslendingar, en samt sem áður
væri aðstaða þeirra mun sterkari
en okkar.
Utflutningur íslendinga á rækju
er nú milli 12 og 14 hundruð tonn
af pillaðri og frystri rækju, og auk
þess eru flutt út um það bil 100
tonn af niðursoðinni rækju. Heild-
arverðmæti um 1500 tonna eru um
5 milljarðar króna. Hér á landi
hafa milli 600 og 700 manns vinnu
við rækjuveiðar og vinnslu. Veið-
arnar að undanförnu hafa gengið
vel, og er útlit fyrir meiri veiði í
sumar en áður eru dæmi um, mest
vegna mikillar aukningar á veiðum
á úthafsrækju.
Óttar kvað erfitt að spá fyrir um
hvernig verðlag yrði á rækju á
næstunni, en margt benti þó til að
verðið myndi haldast óbreytt. Þar
gæti þó margt gerst án mikils
fyrirvara, svo sem versnandi veður
er þýddi minnkandi veiði og hærra
verð. Um slíkt væri ekki unnt að
spá.
Ríkissáttasemjari hafði síðan
samband við VSÍ og óskaði eftir
því að það kæmi til viðræðna við
Alþýðusambandið og var fundur
þeirra haldinn á mánudag. Sá
fundur mun að mestu hafa verið
notaður til að kanna með hvaða
hætti hægt væri að standa að
nýjum viðræðum og var annar
fundur boðaður í gær.
Málm- og skipasmiðasambandið
og Samband málm- og skipa-
smiðja tók þátt í þeim fundi og eru
þeir nú orðnir þátttakendur í
heildarviðræðum þessara tveggja
aðila, þar sem að þeirra eigin
sögn, grundvöllur þeirra er sá
sami og verið hefur fyrir sérvið-
ræðum þeirra að undaförnu.
Alþýðusamband íslands hefur
þessar tillögur nú til meðferðar og
hefur annar fundur verið boðaður
kl. 14.00 í dag með þessum aðilum.
Sjá viðtöi við aðila á miðopnu.