Morgunblaðið - 23.08.1980, Blaðsíða 26
2 6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980
Bíóin um helgina
Tónabíó sýnir nú þriðju mynd-
ina um Inspector Clouseau, með
þá Peter Sellers og Herbert Lom í
aðalhlutverkum, sem nefnist
„Bleiki Pardusinn birtist á ný.“
Laugarásbíó sýnir nú myndina
„The Big Fix“ eða Rothöggið sem
er einkaspæjaramynd í gaman-
sömum tón. Aðalhlutverkið í
myndinni leikur Richard Dreyf-
uss, en hann hefur m.a. leikið í
myndunum „JAWS“ og „American
Graffiti".
t Gamla Bíó er verið að sýna um
þessar mundir stórslysamyndina
„Snjóskriðan" sem tekin er í hinu
hrikalega umhverfi Klettafjali-
anna í vesturhluta Bandaríkj-
anna.
Stjörnubíó sýnir nú myndina
„Hot Stuff“ sem fjallar um nokkuð
óvenjulegar aðferðir lögreglunnar
við að handsama fanga, í léttum
dúr.
Hafnarfjarðarbíó sýnir nú
myndina „Coming Home“ eða
Heimkoman sem fjallar um örlög
uppgjafa hermanns úr Víet-
namstríðinu. Aðalhlutverk mynd-
arinnar leikur Jane Fonda.
Austurbæjarbíó hefur ný hafið
sýningar á myndinni „Æðisleg
nótt með Jackie", sem er frönsk
gamanmynd með Pierre Richard
og Jane Birkin í aðalhlutverkum.
Háskólahíó hefur nýhafið sýn-
ingar á myndinni „Flóttinn frá
Alcatraz" sem lýsir flótta frá hinu
alræmda fangelsi Alcatraz í San
Fransiscoflóa. Með aðalhlutverk
fara Clint Eastwood og Patric
McGoohan, en Donald Siegel
leikstýrir myndinni.
I Regnboganum er „Sólar-
landaferðin" frumsýnd. Er þetta
ný sænsk gamanmynd sem frum-
sýnd er á öllum NorðurJöndunum
samtímis. í sal B er Bruce Lee
myndin „Leikur dauðans" sýnd, og
mun þetta vera síðasta myndin
sem hann lék í. í C-sal Regnbog-
ans er sýnd hin sígilda mynd
„Vesalingarnir", „Les Miserables",
byggð á sögu Victor Hugo. I
D-salnum er sýnd hrollvekjan
„Fæða guðanna" byggð á sögu
H.G. Wells.
ÁSMUNDARSALUR
Hrönn sýna tólf verk
UM síðustu helgi opnuðu Guðjón
Ketilsson «g Guðrún Hrönn
Ragnarsdóttir myndlistarsýn-
ingu í Ásmundarsal við Freyju-
götu.
Á sýningunni eru átta verk sem
flest eru fleiri en ein mynd og eru
allt að tólf myndir í einni seríunni.
Eru þetta ljósmyndir, teikningar
og hlutir.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 16—22 og 14—22 um helgar,
en henni lýkur 25. ágúst n.k.
MYNDLIST
Pólskur listamaður opnar sýn-
ingu í Gallerí Suðurgötu 7
| PÓLSKI farandlistamaðurinn
JACEK TYLISKI sem hefur
starfað á Norðurlöndum und-
anfarin ár opnar sýningu á
verkum sínum í Gallery Suður-
götu 7, laugardaginn 23. ágúst
klukkan 4.
Þetta er önnur einkasýning
Pólverjans í Gallerýinu. Einnig
tók JACEK TYLISKI þátt í
experimental environmental að
Korpúlfsstöðum nú nýverið.
Listamaðurinn notar náttúr-
una í verkum sínum á nýstár-
legan hátt.
JACEK TYLISKI hefur hald-
ið einkasýningar í Svíþjóð,
Danmörku og Póllandi.
!
KJARVALSSTAÐIR
Sýningu Ninu,
og Sigfúsar að
NÚ um helgina lýkur sýningu
þriggja listamanna á Kjarvals-
stöðum, þeirra Nínu Gautadótt-
ur, Sveins Björnssonar og Sig-
fúsar Halldórssonar.
Nina Gautadóttir sýnir nú í
fyrsta sinn hérlendis. Á sýning-
unni eru 14 veggskúlptúrverk
sem gerð eru á árunum 1975—80.
Nína lærði í Listaháskólanum í
París þar sem hún er einnig
búsett nú. í myndir sínar notar
hún aðallega netagarn og hamp.
Verkin eru öll til sölu.
Sveinn Björnssun hefur mál-
að frá árinu 1948 en hann lærði
við Akademíuna í Kaupmanna-
höfn. Hann hefur mikið verið til
sjós en er nú rannsóknarlög-
reglumaður. Sveinn á margar
sýningar að baki, en síðast sýndi
hann í Kaupmannahöfn árið
1978.
Sigfús Halldórsson hóf nám í
málaralist 16 ára gamall og
Sveins
Ijúka
lærði þá hjá Birni Björnssyni og
Margeiri Guðmundssyni. Árið
1944 fór hann til Englands og
lærði leiktjaldagerð, auk þess
sem hann tók húsamálun sem
aukagrein. Þetta er þriðja sýn-
ing Sigfúsar. Alls eru 84 málverk
eftir hann á sýningunni, þar af
52 til sölu.
Sýning listamannanna er opin
frá kl. 14 til 22, en henni lýkur
annað kvöld.
LEIKLIST
Feröa-
leikhúsið
FERÐALEIKHÚSIÐ heldur
áfram sýningum á „Light Nights"
að Fríkirkjuvegi 11. Sýningarnar
eru fjórar í viku fram til 31. ágúst,
það er á fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld-
um og hefjast þær kl. 21 öll
kvöldin.
Sýningar þessar eru einkum
ætlaðar enskumælandi ferða-
mönnum.
MYNDLIST
Málverkasýning
í Gallery Háhól
KRISTINN G. Jóhannsson opnar
málverkasýningu i Gallery Ilá-
hól, í dag. 23. ágúst kl. 16.00.
A sýningunni verða rúmlega 40
verk unnin í krít og olíu. Tólf ár
eru nú liðin frá því Kristinn sýndi
síðast en áður hafði hann haldið
fjöldá sýninga á Akureyri,
Reykjavík og víðar, auk þess sem
hann hefur tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og erlendis.
Kristinn er menntaður hér heima
og hefur auk þess dvalið þrjú ár
við Edinburgh College of Art nú
síðast dvaldi hann þar veturinn
1977—1978. Sýningin stendur til
30. ágúst. Opin um helgar frá 16.00
til 22.00 og virka daga 20.00—
22.00.
■i