Morgunblaðið - 23.08.1980, Side 30

Morgunblaðið - 23.08.1980, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1980 Móöir okkar, HERDÍS MÆJA BRYNJÓLFSDÓTTIR, Stuölaaeli 14, Reykjavík lést í Landakotsspítala fimmtudaginn 21. ágúst. Magnúa Ó. Valdimarason, Sveinn Haukur Valdimarsson, Hrafn Valdimarsson, Kolbrún Valdimarsdóttir, Grímur Valdímarsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, BJÖRGVIN SÆMUNDSSON, bsejarstjóri í Kópavogi, lést 20. ágúst. Ásbjörg Guógeirsdóttir, Hildisif Björgvinsdóttir, Kjartan Björgvinsson. t Maöurinn minn, ÓSKAR KRISTJÁNSSON, frá Brautarhóli, Njaróvík, andaöist í Borgarspítalanum miövikudaginn 20. ágúst. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Guórún Þorsteinsdóttir. + Faöir okkar, EMIL ÁSMUNDSSON, Fálkagötu 32, lést aö heimili sinu fimmtudaginn 21. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Emil Emilsson. Helga Emilsdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, DAVÍÐ ÞORGILS BJARNASON, vélgæslumaóur, Vesturbergi 181, lést miövikudaginn 20. ágúst. Ása Skaftadóttir og börn. t Hjartkær faðir minn, tengdafaöir og afi, EINAR ÓLAFUR JÚLÍUSSON, lést aö Heilsuhælinu Hverageröi 22. þ.m. Júlíus Einarsson, Brynja Lárusdóttir, og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auósýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför, GUÐBJARGAR EINARSDÓTTUR, Meöalholti 11. Magnús Einarsson, Leifur Magnússon. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför mannsins míns og fööur okkar, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR, Bifreióaviögeröarmanns, Bólstaöarhlíö 64. Sigriöur Hannesdóttir og synir. Elías Kristjáns- son — Minning Kynni okkar Elíasar urðu því miður ekki löng. Þau hófust fyrir tæpum tveimur árum er staðið var að stofnun Geðhjálpar. Hann var strax kosinn í stjórn þessa unga félagsskapar og starfaði þar ósleitilega allt til dauðadags. Ég dáðist að Elíasi, sem þrátt fyrir áratuga baráttu við sjúkdóm sinn og allt það mótlæti sem honum fylgir, virtist eiga nógan kjark og krafta til að rísa upp til varnar þeim hópi fólks sem hingað til hefur átt sér fáa málssvara. Fólki, sem á ekki aðeins við eigið heilsu- leysi að stríða, heldur og grimmd- arlega fordóma umhverfisins. Sjálfur gerði hann sér engar vonir um að fá nokkurn tíma fulla bót meina sinna, en hann dreymdi um þann dag er hann eygði nokkurt tækifæri til mannsæmandi lífs fyrir fólk í þessari aðstöðu. Metn- aður hans fyrir hönd Geðhjálpar var mikill. Énginn gladdist meira en hann þegar starfsemi nýju geðdeildarinnar við Landspítal- ann virtist loks komin á þurrt land, en enginn var heldur ólatari við að minna okkur hin í félaginu á að þrátt fyrir allt var þessi sigur eins og dropi í hafið. Það var enn svo margt ógert. Sérstaklega lá honum þungt á hjarta hvernig fólk með geðræn vandamál virtist svipt þeim almennu mannréttind- um að fá að vinna sjálft fyrir brauði sínu — eftir eigin getu. Þess vegna fannst honum að næsta baráttumál félagsins hlyti að verða stofnun fleiri verndaðra vinnustaða og öflugri vinnumiðl- un. Hann lagði ríka áherstu á að eina vonin til að koma fólki með þessi vandamál til nokkurrar sjálfsvirðingar á ný, væri að gera þeim kleift að vinna. Sjálfum var honum mikið kappsmál að nota vel þau tímabil sem sjúkdómurinn herjaði ekki á hann. Enda lá hann þar hvergi á liði sínu og var alls staðar vel látinn í þeim störfum sem hann fékk tækifæri til að stunda. Ég ætla ekki að reyna að lýsa því hve mikið áfall það varð mér að frétta lát hans. Reyndar hefði það ekki átt að koma mér svo mjög á óvart eftir líðan hans sl. vor. Hann þráði svo heitt að fá vinnu og gekk svo heilshugar til verks með að leita fyrir sér án þess að víkja nokkurn tíma frá þeirri meginreglu sinni að segja satt og rétt frá heilsubresti sínum. Það var hans framlag í baráttunni gegn fordómum, hann lagði sjálf- an sig að veði — og tapaði. Eftir því sem hann gekk oftar bónleiður til búðar varð honam erfiðara að leyna vonbrigðum sín- um og halda trúnni á að ekki gætu öll sund verið lokuð þrátt fyrir svart útlit. Svo kom vikan sem hann beið eftir svari frá einu ráðuneytinu um sendistarf. Ekk- ert starf hefði getað hentað hon- um betur og hann trúði svo fastlega á að ríkisstofnun mundi fylgja þeirri reglu að láta fólk með skerta vinnugetu ganga fyrir með hentug störf. Neitunin þaðan varð honum mikið reiðarslag. Samt hélt ég að óbilandi kjarkur hans mundi líka nægja í þetta sinn, eins og svo oft áður. En hann sem aldrei hafði látið neinn bilbug á sér finna, stóðst ekki þennan síðasta stóra bylinn. Við í Geðhjálp geymum í minn- ingunni mynd af góðum og traust- um dreng sem þrátt fyrir einhver óblíðustu örlög, sem hugsast getur átti svo mikið baráttuþrek öðrum til handa. Manni, sem þrátt fyrir svo marga góða eiginleika átti sér ekki viðreisnar von í þjóðfélagi sem hafnar öllu manngildi nema því sem reiknað verður út eftir bónuskerfi og framleiðslúgetu. Félagið okkar hefur misst einn af sínum traustustu félögum, ég vona að minningin um hann megi verða okkur, sem eftir erum, enn frekari hvatning til dáða. Elíasi auðnaðist ekki að lifa þann dag að fólki, sem þjáist á sama hátt og hann, sé boðið upp á annað raunverulegt lausnarorð sér til lækningar en dauðann. Kannski auðnast okkur það. Megi algóður Guð styrkja að- standendur hans í sorg þeirra. Lundi 15. ágúst 1980, Jóhanna Þráinsdóttir Minning — Rúnar Ingi Björnsson Fæddur 21. febrúar 1965 Dáinn 16. ágúst 1980 Okkur félagana í Ungmennafé- laginu Tindastóli setti hljóða, þeg- ar við komum heim úr sigursælli keppnisför á fögrum ágústdegi, er okkur barst til eyrna sú harma- fregn, að Rúnar Ingi hefði látist í vinnuslysi þá um daginn. Sá hópur, sem áður gladdist yfir unnum sigri, var niðurbrotinn og fámáll og fékk ei skilið miskunn- arleysi þess máttar, er aðskilur lifendur og látna að hrífa á brautu einn efnilegasta drenginn, er við hlið okkar hafði staðið á vettvangi hins frjálsa leiks, fullan lífsorku og framtíðardrauma. Hugur Rúnars Inga hneigðist fljótt að íþróttum, enda hraustur og tápmikill strákur. Hann gekk snemma í raðir U.M.F. Tindastóls og starfaði þar af krafti. Hæfileik- ar hans komu fljótt í ljós og voru ótvíræðir. Hvort um var að ræða knattspyrnu, körfubolta, skíði eða frjálsar íþróttir, hann var jafnan fremstur. Hann var fyrirliði síns flokks og fyrirmynd. Hann var hvers manns hugljúfi, hjálpsamur og fórnfús. Hann var sá piltur, sem ungmennafélagið batt hvað mestar vonir við, fulltrúi þeirra unglinga, sem eru og verða kallað- ir til starfa fyrir ungmennafélög- in. Við félagarnir í U.M.F. Tinda- stóli þökkum Rúnari Inga samfylgdina og helgum minningu hans drengilegu og heiðarlegu starfi í þágu íþróttanna og ung- mennafélagshreyfingarinnar. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. F.h. U.M.F. Tindastóls Páll Ragnarsson Sjö iðnríki hafa dregið úr olíunotknn W ashinnt'in 22. á«. AP. SJÖ meiriháttar iðnríki. þar á meðal Bandaríkin hafa dregið verulega úr oliunotkun á þessu ári, að þvi er bandariska stofn- unin API, sem fylgist með eldsneytisnotkun greindi frá i dag. Kom þar fram að á fyrsta fjórðungi ársins 1980 hafa Bandaríkjamenn dregið úr olíu- notkun um 10,6 prósent, Japan 5,3 prósent, Vestur-Þýzkaland 8,9 prósent, Frakkland, 12 pró- sent, Kanada 1 prósent, Bretland 15,6 prósent og Ítalía um þrjú prósent. Dráttarbátum sigað á sjómenn Marseiilc. 21. ágúst. AP. FRANSKIR dráttarbátar sigldu í kvöld inn í For-Sur- Merhöfnina. skammt frá Mars- eillc eftir að sjómönnum höfðu verið settir úrslitakostir. Það var Jean Accary, flotafor- ingi sem flutti sjómönnum úr- slitakostina. Sagöi þá hafa sig á brott innan 10 mínútna ellegar yrðu dráttarbátarnir sendir inn í höfnina. Dráttarbátarnir neyddu nokkur fiskiskip til að hverfa frá. Til engra átaka kom. í höfninni bíða olíuskip og flutn- ingaskip þess að komast leiðar sinnar. Fyrr um daginn hafði næst stærsta verkalýðsfélag Frakk- lands hvatt sjómenn til að halda fast við hafnbann sitt og láta hvergi undan ógnunum stjórnar- innar. Raymond Barre, forsætis- ráðherra hótaði í gær að senda flotann gegn sjómönnum. Sprengjuhrina í Manilla Manilia, Filippscyjum 22. ág. AP. ALLMARGAR sprengjur sprungu f Manilla i dag, eink- um í grennd við stjórnarbygg- ingar, en lika við einkahús og nokkrar á auðum svæðum i úthverfi borgarinnar. Lögreglan segir að sprengj- urnar hafi valdið furðu litlu tjóni og ekki sé vitað til að neinn hafi siasast. Tvær sprengjanna sprungu í bönkum og einnig fannst sprengja í Romadahótel- inu í Manilla, en var gerð óvirk í tæka tíð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.