Morgunblaðið - 03.09.1980, Side 16

Morgunblaðið - 03.09.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980 17 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjorn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Tvíær stjórnarstefna Um þessar mundir eru tvö ár síðan ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar fór frá völdum og vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar settist við stjórnvöl þjóðarskútunnar 1. september 1978. Ef undan er skilinn skammtími, er minnihlutastjórn Alþýðuflokksins gisti stjórnarráðið, hafa Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkur mótað stjórnar- stefnuna og framkvæmd hennar þetta tveggja ára tímabil. í núverandi ríkisstjórn sitja 6 af 9 vinstri stjórnarráðherr- um, sem hófu „björgunarstörf" í þjóðarbúskapnum á haustdögum 1978. Hvert er þá orðið þeirra starf í fjögur misseri? Þeir þættir þjóðarbúskaparins, sem mest eru afgerandi í daglegu lífi þjóðarinnar og mótun lífskjara, hafa „þróazt" svo undir tveggja ára vinstri stjórn: 1. Ríkisútgjöldin, sem voru 138 milljarðar króna, samkvæmt fjárlögum 1978, hafa vaxið í 343 milljarða króna, samkvæmt fjárlögum 1980. Vöxtur ríkisútgjalda, mældur í krónum, er 148%. 2. Beinir skattar hafa hækkað um 20 milljarða króna og óbeinir, verðþyngjandi skattar um rúma 30 milljarða króna. — Skattþynging er því samtals milli 50—60 milljarðar króna, eða 12—1400 þúsund krónur á hverja 5 manna fjölskyldu í landinu 1980, miðað við skattareglur ársins 1978. 3. Verðbólga, mæld á mælistiku framfærsluvísitölu, hefur hækkað úr 1162 stigum í ágúst 1978 í 2600 stig í ágúst 1980, eða um 124%. 4. Skuldastaða þjóðarbúsins við útlönd var 134 milljarð- ar króna í lok síðasta heila árs ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar, 1977. Miðað við skuldastöðu ársins 1979 og nettólánsfjáraukningu lánsfjáráætlunar 1980, getur þessi skuldastaða farið í 380 milljarða króna í árslok. Hefði þá summa erlendra skulda, mæld í íslenzkum krónum, hækkað um 180%. 5. Gengisþróun, mæld í verðhækkun á Bandaríkjadollar, er þessi: Sölugengi Bandaríkjadals í lok ágústmánaðar 1978, þ.e. 25. ágúst það ár, var kr. 260.40. í dag er sölugengi rétt rúmar kr. 500.00, hækkun 92%. Ef miðað er við svokallað ferðamannagengi, sem ekki var til 1978, en nú er kr. 550.00, er verðhækkun dollarans 111%. 6. Og loks má nefna kaupmátt kauptaxta, sem mjög var viðraður í kosningabaráttunni 1978. í nýlegu Fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar er kaupmáttur ársins 1971 settur á mælieininguna 100. Er ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar, „kaupránsstjórnin" svokölluð af ofstækisfullum verkalýðs- rekendum og pólitískum handbendum, fór frá í byrjun september 1978, var þessi kaupmáttur kominn í 118,8, og hefur ekki orðið hærri síðan, þrátt fyrir það „að kosningar eru kjarabarátta“ og að „samningar" hafa væntanlega „verið settir í gildi“. Kaupmáttur kauptaxta verkamanns var hinsvegar kominn niður í 103,8 í aprílmánuði sl. Hann fór niður fyrir 100, eða kaupmátt ársins 1971, í maímánuði sl. Eftir kauphækkun í júní fór hann upp í um 108 sem þó er allnokkru undir þeim kaupmætti sem var í endaðan feril ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar á haustdögum 1978, sem Þjóðviljinn kallaði „kaupránsstjórn". Þetta orð, „kaupránsstjórn“, fyrirfinnst nú ekki á síðum Þjóðviljans eða annarra vinstrimálgagna. Ekki heldur slagorðið „kosningar eru kjarabarátta". Og krafan „samningar í gildi“ er í dag kapítalísk villutrú. Vinstri flokkar hafa nú viðrað vinstri stefnu í íslenzkum þjóðarbúskap um tveggja ára bil — með árangri sem hvarvetna blasir við og óþarfi er að fjölyrða frekar um. Öll stóru orðin, sem viðhöfð voru af vinstri sinnum í kosningabaráttunni 1978, hafa orðið sér rækilega til skammar. Öll breytni ráðherra Alþýðubandalagsins á nær tveggja ára stjórnarferli hefur verið ein samfelld, himinhrópandi játning á því, að þeir sögðu þjóðinni ósatt og blekktu kjósendur bæði 1978 og 1979. En þjóðin er reynslunni ríkari. Og lærdómur reynslunnar mun vísa henni veginn. Rætt við Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða um stöðu og stefnu félagsins „Sildin var árviss við ísland í áratugi og svo hvarf hún allt í einu og það skapaði mikinn vanda. Að nokkru má líkja stöðu okkar við þessa þróun og það þýðir ekki að berja höfðinu við steininn í þeim efnum. Það hefur orðið gerbreyting á aðstöðu okkar á Norður-Atlantshafs- flugleiðinni og eins og staðan er getum við ekki veitt þá samkeppni sem þarf. Það verður því að sniða rekstrinum stakk eftir þeim möguleikum sem um er að ræða og það er fjarri því sársaukalaust að gera þær breytingar sem þarf varðandi uppsagnir starfsfólks fyrirtækisins. En að sjálfsögðu stefnum við að endurreisn fyrirtækisins. Þessi samdráttur. sem vonandi verður tímabundinn, þýðir engan veginn að ekki verði áfram leitast við að ná tengifarþegum áfram á leiðinni milli Bandaríkjanna og Evrópu þótt það kunni að verða í smærri stíl og við munum gefa nánar gætur þeim möguleikum sem kunna að myndast þegar jákvæðara og hagstæðara ástand skapast á ný i flugheiminum. Tíminn verður að leiða í ljós hvort hægt verður að hífa seglin upp til fulls á ný, en það verður haft vakandi auga á þeim möguleikum,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða í samtali okkar í gær um stöðu og stefnu Flugleiða. „Það liggur fyrir," hélt Sigurður áfram, „að okkur hefur gengið erfiðlega og satt að segja höfðum við ekki náð þeim mörkum sem við höfum sett okkur. Sem lið í því að viðhalda N-Atlantshafsfluginu drógum við það veru- lega saman með það markmið í huga að skapa grundvöll til áframhaldandi reksturs þótt í minna umfangi væri. Það má segja að öll þróun mála hafi verið okkur óhagstæð og neikvæð. Samdráttur er í öllum flugrekstri hvarvetna í heiminum og er það afleiðing hinnar gífurlegu hækkunar á eldsneyti. Samfara þessu hafa fargjöld farið almennt ört hækkandi, samdráttur hefur orðið í efnahagslífi á Vesturlöndum og þessi þróun hefur leitt til minnkandi ferðamannastraums aðeins einn tíundi af því sem við höfum verið að flytja á þessari leið.“ Ef Flugleiðir leggja niður flug til Luxem- borgar eru þá ekki hugsanlega brotnar brýr að baki varðandi mögulega enduruppbyggingu þessa flugs í framtíðinni?“ „Það hefur orðið grundvallarbreyting á aðstöðu til reksturs Norður-Atlantshafsflugs- ins héðan með þeirri nýskipan sem nú ræður í þessu flugi. Við erum ekki lengur samkeppnis- hæfir og það er útilokað að við getum, án þess að utanaðkomandi hjálp komi til, tekið þátt i miklum taprekstri, áfram upp á von og óvon að hlutir geti síðar færst í jákvæðara horf. Annars vegar er þessi staða vegna gífurlegs umframframboðs á sætum sem hefur leitt til hlutfallslega lækkandi fargjalda undir kostn- Sigurður Helgason forstjóri. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M. þetta og þannig hefur samkeppnisaðstaða íslenzkra fyrirtækja stórversnað á s.l. 6 árum og þetta er eitt af því sem veldur stórversn- andi stöðu Flugleiða." „Samstarfsvandamál milli deilda voru veruleg“ „I sambandi við uppsagnir starfsmanna að undanförnu hefur fólk velt því fyrir sér hvers vegna reyndum yfirmönnum deilda hafi verið sagt upp.“ „Eg vil ekki fjalla um neinar persónur í þeim efnum því uppsagnir eru margslungin mál og óskemmtileg, en líklega eru öll fyrirtæki sem eru rótgróin með meira starfs- lið en þörf er á. Dulbúið atvinnuleysi er það nefnt af sumum. Þessi of mikla yfirbygging átti örugglega við um Flugleiðir þar sem það var markmið við sameiningu flugfélaganna að sjá starfsfólki beggja fyrir störfum áfram. Á meðan vel gengur getur reksturinn borið þetta. Hins vegar er það svo að þegar komið er út í eins harða og skefjalausa samkeppni og um er að ræða verður að neyta allra ráða til þess að halda öllum kostnaði í lágmarki svo að ná megi hámarksafköstum. Þetta tekst aðeins með samstilltu átaki og ég nefni sem dæmi að þú færð aldrei góða tónlist nema að hljómsveitin spili í takt. Sama má segja um knattspyrnulið, áhöfn á fiskiskipi og svo framvegis. Það er engin launung á því að hér voru samstarfsvandamál milli deilda og það voru veruleg vandamál sem ég tel að hafi heft verulega framgang og viðreisn fyrirtækisins. Þar var hæft starfsfólk á sína vísu en það ( vann ekki í takt.“ „Með reynslu af fullri einurð“ „Heyrst hefur hjá fyrrverandi samstarfs- ur í sambandi við uppsagnir og endurráðn- ingar?" „Það mál verður leyst samhliða flugmanna- málinu, en það er á ýmsan hátt erfitt." Aðstoð íslenskra stjórnvalda ekki komin í höfn „Nú hefur ríkisstjórnin beðið ykkur um greinargerð varðandi viðræður um mögulegt samstarf við Luxemborgara þrátt fyrir fundi stjórnvalda með ykkur um rnálið?" „Við höfum tekið saman greinargerð um stöðu mála í Luxemborg og hún fer til ríkisstjórnarinnar á morgun." „Hvað hafa stjórnvöld á íslandi og í Luxemborg gert til aðstoðar í stöðunni?" „Þegar farið var fram á aðstoð við Luxem- borg varðandi niðurfellingu lendingargjalda og farþegaskatts var það algjört skilyrði af þeirra hálfu að lendingargjöld yrðu einnig felld niður á íslandi. Okkur var sagt að þetta næði fram og var það byggt á viðræðum við bæði fyrrverandi ríkisstjórn og núverandi, en málið er ekki komið í höfn. Luxemborgar- menn hafa hins vegar gefið þetta eftir, um 400 millj. ísl. króna á þessu ári og endurgreitt okkur þau gjöld sem við höfðum greitt 1979 upp á um það bil 400 milljónir." Leigusamningur Tíunnar hagstæður Flugleiðum „Hvað er að frétta af DC-10 breiðþotu Flugleiða sem er í leigu í Bandaríkjunum, er sú leiga hagkvæm og hvað verður um þá vél?“ „Við höfum gert leigusamning um Tíuna til marzmánaðar 1982 og þá er um tvennt að ræða, annað hvort kemur vélin til okkar aftur eða þá að um áframhaldandi leigu verður að ræða. Þetta er hagstæður leigusamningur vegar verður flugrekstri Air Bahama beint mieira yfir í leiguflug til ýmissa borga í Evrópu auk Luxemborgar." „Er búið að ganga frá sölu á gömlu Boeing-vélunum til Júgóslavíu?“ „Júgóslavar hafa fengið liðlega viku frest í viðbót til þess að taka ákvörðun í málinu.“ „Er ákveðið að leggja niður flugumsjónar- deildina í Keflavík?" „Nú eru þrjár flugumsjónareiningar hjá Flugleiðum, ein í Keflavík, ein í innanlands- fluginu og flugrekstrardeild með vissan þátt í aðalbyggingunni á Reykjavíkurflugvelli. Með nútíma tækni er mjög auðvelt að koma þessu fyrir á einum stað og það verður í aðalbygg- ingunni, en það breytir ekkert afnotum félagsins af Keflavíkurflugvelli.“ „Algjör samstaða í yfirstjórn fyrirtækisins“ „Hefur verið ágreiningur um stefnu félags- ins í þeim aðgerðum sem nú hafa verið ákveðnar?“ „Það hefur enginn ágreiningur verið í yfirstjórn félagsins í þeim aðgerðum sem nú hafa verið ákveðnar?" „Það hefur enginn ágreiningur verið í yfirstjórn félagsins um þá stefnu sem mörkuð hefur verið, þar er algjör samstaða." „Strönduðu samningaviðræður um hugsan- lega samvinnu við aðila í Luxemborg á því að Flugleiðir vildu ekki fiytja viðhald DC vélanna til Luxemborgar?“ „Slíkt kom ekki til tals, en það er ekkert vandamál að flytja viðhaldið til Luxemborgar ef um það er að ræða og við höfum sagt þeim það. Það er hægt að losna út úr þeim samningum sem við höfum við Seabord ef vill.“ „Ég vil ekki hafa jámenn í kring um mig, þeir leiða mann fyrstir manna í ógöngur“ almennt. Þessi samdráttur er ekki aðeins á Norður-Atlantshafsleiðinni hvað okkur varð- ar, hann er einnig í Evrópufluginu og innanlandsfluginu. Innanlandsflugið er mjög háð erlendum ferðamönnum að sumrinu, en þeir eru færri en áður. Fyrstu sjö mánuði ársins 1979 komu 38 þús. erlendir ferðamenn til landsins, en nú eru þeir 32 þúsund á sama tíma, eða um 15% færri. Á Evrópuleiðum okkar eru 8% færri farþegar og samdráttur- inn í farþegafjölda á innanlandsleiðum er um 6%. „Atlantshafsflugið skal miðast við þarfir íslendinga“ „Hvað munuð þið ganga langt í samdrætt- inum á Norður-Atlantshafsleiðinni?" „Við höfum tekið þá ákvörðun að minnka Ameríkuflugið í algjört lágmark og því munura við fyrst og fremst miða við að þjóna hagsmunum íslendinga til og frá landinu, milli Íslands og Bandaríkjanna. Það er enginn fjárhagslegur rekstrargrundvöllur lengur á Norður-Atlantshafsleiðinni með sama sniði og verið hefur. í dag er allt flug á þessari leið rekið með stórfelldu tapi. 8 ný amerísk flugfélög hafa bæzt í hóp fyrri félaga á þessari leið síðan reglur Bandaríkjamanna breyttust. Félögin voru aðeins fjögur áður.“ „Hvað þyrftu fargjöldin að hækka á þessari leið til þess að jöfnuður næðist?" „Um 15—20% að minnsta kosti. Fargjöld eru hins vegar mikill frumskógur og þótt sum flugfélög bjóði mun lægra verð en við, þá er það aðeins hluti af sætum í flugvélum þeirra sem er á miklu undirboði í verði. Farþega- flutningar hjá Flugleiðum hafa verið tiltölu- lega góðir yfir sumarmánuðina, í júlí og ágúst sérstaklega, en það gerir takmarkað gagn því svo mikið þarf til þess að ná endum saman." Ekki hægt án utan- adkomandi hjálpar „Verður flug til Luxemborgar lagt niður?“ „Við höfum ekki endanlega tekið ákvörðun um að hætta flugi til Luxemborgar, en það fer í lágmark. Áætlun okkar frá 1. nóvember gerði ráð fyrir tveim ferðum til Bandaríkj- anna, en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Ef ekki sýnist grundvöllur á rekstri lámarks- flugs til Luxemborgar þá verður það lagt niður. Það verður algjörlega séð fyrir flutn- ingsþörf íslendinga til Bandaríkjanna, en farþegafjöldinn er talinn 30 þús. á ári. Það er aði og hins vegar vegna þess að nú er farið að fljúga beint til hinna ýmsu borga Evrópu frá fjölda borga í Bandaríkjunum. Áður voru flutningarnir aðallega frá New York og einnig frá Chicago og Los Angeles, en nú er flogið beint til Evrópu frá 10—12 borgum Banda- ríkjanna og það hefur breytt myndinni gífurlega." „Árviss afli ekki lengur fyrir hendi“ „Finnst þér að starfsfólk, stjórnvöld og þeir sem málið snertir, eigi erfitt með að gera sér grein fyrir þessari breytingu?" „Það hefur valdið mér og fleirum hjá Flugleiðum vonbrigðum, hvað illa hefur gengið að gera fólki hér skiljanlegt hve aðstaðan er gerbreytt. Það getur verið erfitt að sætta sig við að árviss afli sé ekki lengur fyrir hendi í þessum efnum, en það þýðir ekki að loka augunum fyrir því. Hér er búið að byggja upp rekstur sem hefur varað í aldarfjórðung og hann hefur skapað þjóðarbúinu gífurleg verðmæti. Ytri aðstæður hafa breyzt og grundvellinum er kippt undan. „Að við séum hinir verstu menn“ Eg hef einnig orðið fyrir miklum vonbrigð- um með það skilningsleysi sem mér virðist gæta um of á þeim ráðstöfunum sem við erum nauðbeygðir til þess að grípa til. Margt af því sem við höfum verið að gera er ekki aðeins rangtúlkað heldur er það einnig fært á verri veg okkur til hnjóðs og lasts. Það er engu líkara en að við séum hinir verstu menn, ég segi ekki sakamenn, fyrir þær sakir einar að við erum tilneyddir til þess að gera þessar ráðstafanir ef takast á að bjarga fyrirtækinu frá voða. Við höfum engan bakhjarl í ríki eða opinberum sjóðum eins og flest stærri Evrópuflugfélaganna. Þetta félag hefur aldrei þegið neinn ríkisstyrk af einu eða neinu tagi, en t.d. í innanlandsflugi í Noregi sem býr við svipaðar aðstæður og hér er beinn ríkisstyrk- ur 3,1 milljarður ísl. króna á ári. Hér fáum við ekki einu sinni að taka gjöld sem eru í samræmi við tilkostnað þótt sannanlega sé um mjög hagkvæman rekstur að ræða. Tap á innanlandsfluginu á þessu ári verour nálægt þrjú hundruð milljónum króna." „Enginn leikur að rífa niður það sem upp hefur verið byggt“ „Áttir þú von á því þegar þú varðst forstjóri Flugleiða, að þetta yrði eins ströng barátta og raun ber vitni þar sem segja má að fyrirtækið hafi á stundum verið í slíku lágflugi að jaðrað hafi við nauðlendingu?" „Eg átti engan veginn von á því að mín biði svo erfitt hlutskipti sem raun hefur orðið á. Eg tók við í maímánuði 1979. Þá voru vissulega blikur á lofti, en það gerði sér enginn grein fyrir því að olíuverð myndi tvöfaldast á tólf mánuðum, en það hafði geigvænlegar afleiðingar þar sem fargjöld gátu ekki hækkað í takt við eldsneytishækk- anirnar. Engan grunaði þá að afkastamesta tæki félagsins, DC-10 þotan, yrði stöðvað um átta vikna skeið á háannatímabilinu, en sú stöðvun kostaði 8 milljón dollara tap eða fjóra milljarða króna íslenzkra og það er áfall af stærri gráðunni. Vissulega var við mörg vandamál að glíma þegar ég tók við og sameining flugfélaganna hafði ekki tekizt fullkomlega. Ég taldi það þá eitt höfuðverkefnið að ljúka því verki og þótt mikið hafi áunnist í þeim efnum er það ekki í höfn ennþá, sérstaklega varðandi flugmenn félagsins sem enn eru í tveimur stéttarfélög- um. „Hagur allra fyrirtækja á íslandi stórversnað“ Ég átti ekki von á því að þróun mála yrði þannig að það þyrfti óhjákvæmilega að grípa til þess óyndisúrræðis að leggja raunverulega niður Norður-Atlantshafsflugið. Ég hafði sjálfur starfað mikið að uppbyggingu þess og það er enginn leikur að rífa niður það sem byggt hefur verið upp með svita, tárum og blóði eins og sagt er og sú starfsemi var ábótasöm um langan aldur. Síðan hafa utanaðkomandi öfl verið að verki og þau höfum við ekki ráðið við. Má þar m.a. nefna verðbólguna á íslandi. Ég tel að hagur allra fyrirtækja á íslandi hafi stórversnað síðan 1974 þegar óðaverðbólgan hóf innreið sína. Miðað við það að launakostnaður hefði hækkað um 10% á ári að meðaltali á árunum 1975—1979 í nágrannalöndum okkar og svipuð þróun hefði verið hér á landi í stað þeirrar óðaverðbólgu sem er staðreynd þá hefði launakostnaður Flugleiða á s.l. ári orðið tveimur milljörðum króna lægri en raun varð á. Skekkjan í okkar efnahagsstjórn kostar mönnum þínum að þú viljir helzt hafa já-menn í kringum þig?“ „Ég vil ekki hafa já-menn í kringum mig, það er ekkert gagn í þeim og þeir eru fyrstu mennirnir sem leiða mann í ógöngur. Já- mennirnir eru ekki mínir menn, en helzt vil ég vinna með mönnum sem sækjast eftir mínu starfi og leggja sig sjálfir fram með sinni reynzlu af fullri einurð. En það gildir sama grundvallaratriðið og ég nefndi áðan. Það verður að ná samstilltum hópi sem keppir að sama marki. Skipstjóri á skipi verður að geta treyst því að stýrimaður og vélstjóri fari eftir hans skipunum og að skipinu sé haldið á stefnu." „Neikvæð afstaða lykilaðila í Luxemborg“ „Það hafa ekki farið saman fréttir hér heima og það álit stjórnvalda í Luxemborg að viðræður við þarlenda um samvinnu í flug- rekstri standi enn yfir. Hvernig stendur þetta mál?“ „Formlegum viðræðum við Luxemborgar- menn hefur á engan hátt verið slitið, en við höfum metið stöðuna þannig að lengra verði ekki komizt að sinni fyrr en aðstæður breytast. Afstaða forystumanna Lux Air, sem er lykilaðili í þessu máli, er það neikvæð í dag að það verður einhver veruleg breyting að verða til þess að hægt sé að taka þráðinn upp að nýju og það frumkvæði þarf að koma þaðan. Við höfum tilkynnt yfirvöldum í Luxemborg að við munum að öllu óbreyttu leggja niður alla starfsemi þar á næstu mánuðum." „Nú hafa stéttarfélög flugliða, annarra en flugmanna, sameinaðan og hefðbundinn starfsaldurslista, en hvers vegna var öllum flugliðum sagt upp störfum?" „Starfsaldurslistamálið á ýmsan hátt erfitt“ „Þar sem sameiginlegur starfsaldurslisti flugmanna var ekki til, var ekki um annað að ræða en segja öllum flugliðum upp störfum og stefna að því að leysa vandamálið fyrir 1. nóvember. Flugmenn hafa haft í hótunum um stöðvun flugs og okkur var því nauðugur einn kostur að segja upp öllu flugliðinu því við höfum ekki möguleika á því að sitja uppi með alla aðra flugliða ef ekki nást samningar við flugmenn." „En verður starfsaldurslisti félaganna virt- fyrir Flugleiðir, en það er erfitt að spá um verðþróun varðandi verðmæti flugvéla, sér- staklega Tíuna, sem varð fyrir miklum álitshnekki á sl. ári þótt sannað sé að það var á engan hátt hægt að kenna vélinni um það sem skeði.“ „Flugmenn hjá Flugleiðum hafa haft á orði opinberlega að þeir geti rekið fyrirtækið betur en stjórnendur þess.“ „Ég get ekki lagt dóm á þá skoðun flugmanna, en ég veit ekki til þess að neinn þeirra hafi stundað flugrekstur. Ég get því ekki metið yfirlýsingar þeirra um eigin hæfni, en það kæmi mér mjög á óvart ef hún væri slík í flugrekstri." „Árangursríkast að hvetja fólk jákvætt“ „Ert þú harður stjórnandi, eins og heyrst hefur hjá sumum starfsmanna þinna?" „Stjórnunarstíll fer eitthvað eftir aðstæð- um hverju sinni, en mér hefur alltaf reynzt affarasælast að hafa vinsamleg samskipti við starfsfólk. Það er sá stjórnunarstíll sem veitir mestan árangur. Það er mun árangursríkara að hvetja fólk til framlags og afkasta með jákvæðum uppörvunum heldur en með skömmum og umvöndunum. En stjórnandi verður að taka á sig margt óvinsælt á erfiðleikatímum. Hvað er til dæmis óvinsælla en að þurfa að segja starfsmönnum upp og það er ekkert sárara en að þurfa að láta starfsfólk fara frá, sérstaklega starfsfólk sem hefur starfað lengi og samvizkusamlega. Það er auðvitað alltaf álitsatriði hvernig stjórnun getur verið manneskjulegust en til dæmis þar sem um eldri starfsmenn er að ræða hefur í flestum tilfellum verið rætt við fólkið áður en til starfsloka kemur og yfirleitt á slíkt sér nokkurn aðdraganda. Búið að semja við Air India „Hvernig standa samningar Flugleiða um leigu á áttum til Indlands og Senegal?“ „Ég tel samninga við Air India koma í gegn, en þar eru um að ræða verkefni fyrir eina áttu og flugið á hana a.m.k. til apríl næsta árs og reiknað er með lengri leigu. Þá hefur verið gerður samningur um leigu á áttu til Senegal en hann hefur ekki verið staðfestur ennþá. Allavega verður ein átta laus til farþegaflugs í vetur á hinum ýmsu leiðum félagsins." „Verður flug Áir Bahama lagt niður?" „Nei, en áætlunarflugið mun minnka. Hins Liðlega 200 manns sagt upp í Evrópu og Bandaríkjunum“ „Er ákveðið hvaða söluskrifstofum erlendis verður lokað?" „Að sjálfsögðu verðum við áfram með söluskrifstofu í New York, en við munum loka skrifstofunum í Cicagó, Washington og Mi- ami. Alls munu vera liðlega 140 starfsmenn Flugleiða í Bandaríkjunum nú en þeim fækkar niður í tæplega 30 og þeir verða í New York. I Evrópu hefur verið ákveðið að loka söluskrifstofum í Hamborg, Dusseldorf, Vín, Milanó, Zurih og Brússel og verður alls nær 100 manns sagt upp þar.“ Misskilningur hjá félagsmálaráðuneytinu „Hvað vilt þú segja um áþreifingar Svavars Gestssonar félagsmálaráðherra um stofnun nýs flugfélags?" „Mér er málið algjörlega ókunnugt nema það sem ég hef séð í Morgunblaðinu. Misskiln- ingurinn er sá að þessi málaflokkur fellur ekki undir félagsmálaráðuneytið, en að öðru leyti þekki ég ekki til þessa máls:“ „Valinn maður í hverju rúmi“ „Hvað er þér í huga varðandi hina nýju stöðu Flugleiða og framtíðina?" „Öll okkar atorka beinist að því að rétta félagið við, koma því á réttan kjöl. Eftir þessa fækkun starfsmanna, sem hefur því miður verið mjög sársaukafull, er valinn maður í hverju rúmi. Þessi samstillti hópur er mjög vel fær um að gegna því hlutverki sem félagið hefur, að sjá um samgöngur Islendinga við umheiminn og innanlandsflugið. Því til við- bótar er verkefnið að efla komu erlendra ferðamanna og það er höfuðmarkmið, því án þeirra er mjög erfitt að viðhalda tilhlýðilegri tíðni í ferðum til og frá landinu vegna smæðar íslensks markaðar. Ég átti von á því að þessum aðgerðum væri mætt af meiri skilningi af almenningi og af vissum fjölmiðlum, en það má kannski segja að mjög óvenjulega standi á þeirri knýjandi nauðsyn sem er í samdrætti fyrirtækisins. Ef til vill er það einnig að einhverju leyti gamla sagan þar sem allir vilja vera vinir manns ef vel gengur en svo kemur annað upp á teninginn þegar á móti blæs.“ —á.j.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.