Morgunblaðið - 03.09.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.09.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980 Hvernig tekst íslandi upp í kvöld? ísland og Rússland leika sinn þriðja landsleik ISLENDINGAR og Sovétmenn leika landsleik i knattspyrnu á LauKardalsvellinum i kvöld og hefst leikurinn klukkan 18.30. Er þetta fyrri leikur liðanna i und- ankeppni HM i knattspyrnu og annar leikur íslands i sömu keppni. Fyrri leikurinn var eins og menn muna landsleikurinn gegn Wales á Laugardalsvellin- um í vor. Þetta er þriðja viðureign ís- lands og Sovétríkjanna. Fyrir fáum árum léku liðin tvívegis í undankeppni Olympíuleikanna. Sigruðu Rússar eins og vænta mátti í báðum leikjunum, en munurinn var ekki eins mikill og ætla hefði mátt og frammistaða íslands var til sóma. Heima tapaði ísland 0—2. Sjálfsmark kom þar til og íslendingar voru óheppnir að skora ekki, áttu m.a. stangar- skot. Síðan bjuggust menn vart við öðru en rótarbursti er þjóðirn- ar mættust á Lenin-Ieikvanginum og ísland án flestra ef ekki allra „erlendu" leikmanna sinna. En Rússar voru í bölvuðu basli með landann og leikurinn endaði 0—1. Lítið vita Islendingar um sov- éska liðið annað en að það er mjög sterkt og hefur verið í sókn. Má minna á, að liðið sigraði Ungverja 4—1 á útivelli fyrir mjög skömmu. Uppistaðan í liðinu eru leikmenn frá Spartak, en samtíning frá öðrum liðum svo sem Kiev, Tblisi og fleirum er þar einnig að finna. Frægasti leikmaður liðsins er auð- vitað Oleg Blochin. Áður hefur verið birtur íslenski landsliðshópurinn og er ekki þörf á endurtekningum. Skal þó enn minnt á breytinguna sem gera þurfti, en Kristján Olgeirsson var valinn í stað Janusar Guðlaugs- sonar sem meiddist í Þýskalandi um helgina. Zagreb býður báða leikina í Reykjavík! «ÞETTA er mikill hvalreki og bókstaflega eins og að vinna i happadrætti“ sagði Halldór Ein- arsson i körfuknattleiksdeild Vals í samtali við Mbl. i gær, er ljóst var að júgóslavneska meist- araliðið Zagreb hafði boðið Vais- mönnum að leika báða leikina i fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða í Reykjavik. „Þeir ætla meira að segja að borga flugmiða sína sjálfir og eina sem Valur þarf að borga er uppihald þeirra hér heima. Þetta er að vísu ekki alveg 100 prósent öruggt enn þá, því alþjóðakörfu- knattleiksráðið á eftir að leggja blessun sína fyrir ráðahaginn. Þá eru dagarnir sem Júgóslavarnir stinga upp á sem keppnisdaga erfiðir, 10. og 11. október. Kín- verska landsliðið verður nefnilega á keppnisferðalagi á íslandi frá 9—13 sama mánaðar. Við ætlum að athuga hvort að þeir hjá Zagreb geti hliðrað eitthvað til dögum" bætti Halldór við. Júgóslavar eru Olympíumeist- arar í körfuknattleik og því má telja Zagreb-liðið með þeim bestu í Evrópu. Hins vegar bendir tilboð þeirra til þess að þeir telji sigur- inn vísan. Hvort sem sigur þeirra er vís eða ekki, þá fá íslenskir körfuknattleiksáhangendur að sjá körfuknattleik eins og hann gerist bestur í Evrópu. -gg- Heimilistölvan Tölvuskóli Borgartúni 29, sími 25400 Töivunámskeið 3. sæti Gísli Sigurbergsson GK 83 högg. 2. fiokkur karla. 1. sæti Jón E. Ragnarsson GK 80 högg. 2. sæti Rafn Sigurðsson GK 81 högg. 3. sæti Kristján R. Hansson GK 82 högg. 3. flokkur karla. 1. sæti Rúnar Gunnarsson GN 85 högg. 2. sæti Magnús Guðmundsson GN 88 högg. Þorbjörn Kjærbo sigraði í Ron Rico keppninni 3. sæti Hannes Ingibergsson GN 90 högg. Kvennaflokkar: Án forgjafar: 1. sæti Kristín Pálsdóttir GK 85 högg. 2. sæti Guðfinna Sigurðardóttir GS 91 högg. ÞORBJÖRN Kjærbo sigraði i meistaraflokki karla á Ron-Rico golfkeppninni sem haldin var á Hvaleyrarholtsvelli um siðustu helgi. Bætti Þorbjörn enn einni rósinni i hnappagatið á löngum golfferli. Bæði Þorbjörn og Sig- urjón R. Gisiason slógu 76 högg, en Þorbirni var dæmdur sigur- inn. Þriðji varð Magnús Hjör- leifsson á 78 höggum. Crslit i öðrum flokkum urðu sem hér segir: 1. flokkur karla. 1. sæti Guðlaugur Kristjánsson GS 82 högg. 2. sæti Ólafur Marteinsson GK 83 högg. Góöur árangur Björns 11 ÁRA piltur úr Breiðabliki, Björn Sveinbjörnsson, náði frá- bærum árangri á Andrésar And- ar leikunum sem fram fóru i Kóngsbergi i Noregi um siöustu helgi. Björn gerði sér lítið fyrir og sigraði með yfirburðum i 800 metra hlaupi. Fékk hann timann 2:36,4 minútur. Nokkrir aðrir keppendur frá Íslandi tóku þátt i mótinu, Sigurður Einarsson UIA, Sigrún Markúsdóttir UMFA og Linda Loftsdóttir úr FH. Náðu þau góðum árangri þó ekki nægði til verðlauna. 3. sæti Þórdís Geirsdóttir GK 96 högg. Með forgjöf: 1. sæti Lóa Sigurbjörnsdóttir GK netto 76 högg. 2. sæti Kristine E. Eide GN netto 76 högg. 3. sæti Hrafnhildur Eysteinsdótt- ir GK netto 95 högg. 76 manns kepptu að þessu sinni, en verðlaun öll gaf fyrirtækið ETH Matthiesen. Námskeiö hefjast 15. september. ■ Viltu skapa þér batri adstödu á vinnumark- aðnum? ■ Viltu lasra að vinna með tölvur? ■ Á tölvunámskeiöum okkar lasrir þú aö faera þér í nyt margvíslega möguleika sam smá- tölvur (microcomputars), sam nú ryöja sér mjög til rúms, hafa upp á aö bjóöa fyrir viöskipta- og atvinnulífiö. ■ Námiö far aö mastu fram maö leiösögn tölvu og námsefniö ar aö sjálfsögöu allt á íslansku. Námsefniö hentar auk þass val fyrir byrjend- ur. ■ Á námskeiöunum ar kannt forritunarmáliö BASIC, an þaö ar lang algengasta tölvumáliö sam notað ar á litlar tölvur. Sími tölvuskólans er 25400. Innritun stendur yfir. Námskeiöskynning sunnudag 7. sept. kl. 14.00 — 18.00. Getrauna- spá M.B.L. 1 JQ C 1 T Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Birmingh. — Liverpool 1 2 X 2 2 2 1 1 4 Coventry — Palace 1 1 X X X 1 3 3 0 Everton — Wolves X X X X 1 X 1 5 0 Ipswich — Aston Villa X 1 1 1 X 1 4 2 0 Leichester — Sunderl. X X 1 X 1 X 2 4 0 Man. City — Arsenal 2 2 2 2 2 X 0 1 5 Middiesbr. — N. Forest 1 X X 2 X 2 1 3 2 Southampt. — Briston X 1 1 1 1 1 5 1 0 Stoke — Leeds 2 2 X X 2 X 0 3 3 Tottenh. — Man. Utd. X X X 1 X 1 2 4 0 MBA — Norwieh 1 X 1 X X X 2 4 0 Chelsea — West Ham 1 X 1 X X 2 2 3 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.