Morgunblaðið - 10.09.1980, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
SlKfí
Hitamælar
Vesturgötu 16,
sími 13280.
KIENZLE
Úr og klukkur
hjá fagmanninum.
Sjónvarp kl. 21.30:
Heimtir úr helju
4. þáttur myndaflokksins Helförin (Holocaust)
Á DAGSKRÁ sjónvarps kl. 21.30
er 4. þáttur myndaflokksins
Helförin (Holocaust) og nefnist
hann Heimtir úr helju. Þýðandi
texta er Kristmann Eiðsson.
Ofsóknir nasistanna verða æ
glórulausari. Þúsundir Gyðinga
enda líf sitt í gasklefunum í
Auschwitz á degi hverjum. Að-
eins 50 þús. af mörgum hundruð-
um þúsunda eru eftir í gyðinga-
hverfinu í Varsjá. Uppreisn er
gerð undir stjórn Móse Weiss.
Þjóðverjar reyna árangurs-
laust að pína listamennina, Karl
og samfanga hans, til sagna.
Þegar þeir hafa gengið af tveim-
ur þeirra dauðum, er ákveðið að
senda Karl til Auschwitz. Hann
kveður Ingu og þykist viss um
endalokin.
Rudi og Helena berjast áfram
með skæruliðum Gyðinga í
Rússlandi.
Dorf gengur ötullega fram í að
auka afköst morðsveitanna.
Hann fer fram á það við Kalten-
brunner að vera færður til Berl-
ínar vegna veikinda konu sinnar,
en yfirmaður hans er ósveigjan-
legur og segir honum fyrir bestu
að gæta þess að vel lifi í
ofnunum í Póllandi og Rúss-
landi.
Sjónvarp kl. 23.20:
Umræðuþáttur
um Helförina
Á DAGSKRÁ sjónvarps kl. 23.20
er umræðuþáttur undir stjórn
Ögmundar Jónassonar frétta-
manns. Rætt verður um banda-
ríska myndaflokkinn Helförina,
tímabilið sem myndin fjallar um
og efni hennar í víðari samhengi,
— Ég fæ til þessara umræðna
fjóra menn, sagði Ögmundur, —
þá Gísla Ágúst Gunnlaugsson
sagnfræðing, sem sérstaklega
hefur kynnt sér þýska sögu;
Stefán Edelstein skólastjóra,
sem fluttist frá Þýskalandi
skömmu fyrir stríð; Ottó A.
Michelsen, sem dvaldist um tíma
í Þýskalandi á stríðsárunum, og
Þóri Kr. Þórðarson, prófessor í
guðfræðideild Háskóla íslands.
„Milli himins og jarðar“ kl. 22.35
Á dagskrá hljóðvarps 22.35
er þátturinn „MiIIi himins og
jarðar“ í umsjá Ara Trausta
Guðmundssonar. í þessum
þætti, sem er hinn fjórði í
röðinni um sama efni, verður
fjallað um sólirnar i vetrar-
brautinni, geimþokur og rætt
um líf utan jarðarinnar.
— Nú bregðum við okkur í
ferð út úr okkar sólkerfi og
skoðum hinar sólirnar í Vetrar-
brautinni. Þær eru af ýmsum
Ari Trausti Guðmundsson.
Er líf utan
jarðarinnar?
gerðum, bæði eins og okkar sól,
minni — þar sem hver efnisein-
ing getur vegið hundruð þúsunda
tonna þó að hún sé ekki stærri
en örfáir rúmsentimetrar en
þessar sólir hafa „hrunið saman"
sem kallað er — og margfalt
stærri sólir, sem eru að sama
skapi léttari í sér. Þá munum við
skoða innbyrðis tengsl milli
sólna, en komið hefur í ljós að
þau eru fyrir hendi, sólirnar eru
aðeins á mismunandi þróunar-
stigi.
Geimþokur verða og til um-
fjöllunar hjá okkur en þessi
fyrirbæri geimsins eru risastórir
efnismassar sem myndaðir eru
af lofttegundum og geimryki og
eru margfalt stærri en sólkerfi
okkar.
Loks verður rætt frekar um
líkur á lífi í alheimi utan jarðar.
Ólafur Steinn Pálsson nemi í
Menntaskólanum við Sund,
fræðir okkur um þetta efni, en
hann hefur mjög lagt stund á að
kynna sér það. ;
Og svo vil ég minna hlustend-
ur á að þeim gefst kostur á að
leggja fram spurningar og senda
þættinum í pósthólf Ríkisút-
varpsins nr. 120. Þeim verður
svarað í 7. þætti, sem bætt
verður við, ef einhverjar spurn-
ingar berast.
WIKA
Þrýstimælar
Allar staerðir og gerðir.
■Le_L
SöyirOaMuigjiyiir
Vesturgötu 16, sími 13280
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Útvarp Reykjavík
yHIÐMIKUDKGUR
10. september
MORGUNINN_____________________
7. 00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.20 Bæn. 7.25 Tónleikar. Þul-
ur velur og kynnir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Kolur og Kolskeggur“ eft-
ir Barböru Sieigh. Ragnar
Þorsteinsson þýddi. Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir
les (22).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónieikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Kirkjutóniist: Frá tón-
listarhátiðinni i Dubrovnik
1979
Joachim Dalitz leikur
orgelverk eftir Bach;
a. „Heill sé þér, Jesú kæri“
sálmpartíta i g-moll.
b. Tokkata og fúga í d-
moll.
c. Sónata nr. 3 í d-moll.
11.00 Morguntónleikar
Fílharmoníusveitin i Brno
leikur Polka og dansa eftir
Bedrich Smetana; Frantis-
ek Jílek stj./Sinfóní-
uhljómsveitin i Minneapolis
leikur _Ameríkumann i
París“, hljómsveitarverk
eftir George Gershwin; Ant-
al Dorati stj./Luciano Pav-
arotti syngur aríur úr óper-
um eftir Gounod, Verdi o.fl.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Tónlist úr
ýmsum áttum þ.á m. Iétt-
klassísk.
SÍÐDEGID
14.30 Miðdegissagan: _Móri“
eftir Einar H. Kvaran
Ævar R. Kvaran les (3).
15.00 Popp. Dóra Jónsdóttir
kynnir.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
Reykjavíkur Ensemble leik-
ur Þrjú íslenzk þjóðlög i
útsetningu Jóns Ásgeirs-
sonar/Felicja Blumental og
Sinfóníuhljómsveitin i
Salzburg leika Pianókon-
sert nr. 2 í c-moll eftir
Giovanni Platti; Theodore
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og
dagskrá.
20.35 Kate Bush
Tónlistarþáttur með cnsku
söngkonunni Kate Bush.
(Nordvision — Sænska
sjónvarpið).
21.05 Klerkarnir í íran
Bresk heimildamynd.
Klerkastéttin í íran. heíur
löngum verið voldug, og
enn virðast völd hennar og
áhrif fara vaxandi.
Þýðandi og þulur Þórhall-
ur Guttormsson.
21.30 Helförin
Fjórði og siðasti þáttur:
Heimtir úr helju
Efni þriðja þáttar:
Karl Weiss er sendur til
sérstakra fangabúða, sem
Þjóðverjar sýna fulltrúum
Guschlbauer stj./Fílharm-
oniusveitin i Vin leikur Sin-
fóniu nr. 5 i e-moll op. 95
„Frá nýja heiminum" eftir
Antonin Dvorák; Istvan
Kertesz stj.
17.20 Litli barnatiminn
Stjórnandinn, Sigrún Björg
Ingþórsdóttir, talar um
skólann og skólagönguna.
Tveir krakkar koma i heim-
sókn og leika leikrit. Þau
heita Svavar Jóhannsson (8
ára) og Maria Kristin
Björnsdóttir (10 ára).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDID____________________
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
Rauða krossins og hlut-
lausra ríkja.
Erik Dorf þykja gyðinga-
morðin ganga of hægt og
lætur bæta tækjabúnaðinn
í Auschwitz.
Kaltenbrunner, eftirmaður
Heydrichs sýnir Dorf and-
þýskar áróðursmyndir,
sem Karl og samfangar
hans hafa gert. og lista-
mönnunum er harðlega
rcfsað.
Þýska herstjórnin i Varsjá
fyrirskipar, að sex þúsund-
ir manna skuli dag hvern
fluttar úr gyðingahverfinu
til nýrra heimkynna. Gyð-
ingarnir komast brátt að
því, að flutningalestirnar
halda til Auschwitz og
Treblinka.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
23.20 Umræður um „Helför-
ina“
00.00 Dagskrárlok.
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Samleikur i útvarpssal
Helga Þórarinsdóttir og
Anne Taffel leika á víólu og
pianó.
a. Sónata nr. 3 i g-moll
eftir Johann Sebastian
Bach.
b. Ævintýramyndir“ eftir
Robert Schumann.
20.00 Hvað er að frétta?
Umsjónarmenn: Bjarni P.
Magnússon og ólafur Jó-
hannsson.
20.30 „Misræmur“
Tónlistarþáttur i umsjá
Ástráðs Haraldssonar og
Þorvarðs Árnasonar.
21.10 „Maður í myrkri“, smá-
saga eftir Sigrúnu Schneid-
er
Höfundur les.
21.30 Óbó-kvartett í F-dúr
(K370) eftir Mozart
Ándré Lardrot leikur á óbó,
Willi Boskovsky á fiðlu,
Wilhelm Hlibner á víólu og
Robert Scheiwein á selló.
21.45 Útvarpssagan: „Hamr-
aðu járnið“ eftir Saul Bell-
ow
Árni Blandon les þýðingu
sina (3).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 „Milli himins og jarðar“
Fjórði þáttur: Fjallað er um
sólirnar í vetrarbrautinni,
geimþokur og rætt um líf
utan jarðarinnar. Umsjón:
Ari Trausti Guðmundsson.
23.10 Kvöldtónleikar: Sinfóníu-
hljómsveit tslands leikur
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
a. Pólonesa og vals eftir
Tsjaíkovský.
b. „L’Arlesienne“, svíta eft-
ir Bizet.
c. „Blómavalsinn“ eftir
Tsjaikovský.
S 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
MIÐVIKUDAGUR
10. september