Morgunblaðið - 10.09.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
Flugleiðamál:
Athugasemd frá
fréttamönnum útvarps
Ummæli Sigurðar IleÍKasonar.
íorstjóra Flugleiða, i Morgun-
blaðinu 9. september, eru þess
eðlis, að fréttamenn útvarpsins,
sem undanfarna daga hafa aðal-
le«a fjallað um málefni Fluj?-
leiða, vilja ekki láta þeim ósvar-
að. I þessum or öðrum biaða-
ummælum slær Sijfurður Helga-
son því föstu. að hann geti skorið
úr um hvernig fjölmiðlar i Lux-
emborg meti fréttir af biaða-
mannafundi forsætisráðherra
landsins. í fréttum útvarpsins
föstudaginn 5/9 sagði: „Werner,
forsætisráðherra Luxemborgar.
sagði á fundi með fréttamönnum
í Luxemborg núna siðdegis, að
viðræður fulitrúa Flugleiða og
flugfélaga í Luxemborg fyrir
nokkrum vikum hefðu strandað á
þvi, að Fiugleiðir hefðu tjáð
fulltrúum hinna félaganna, að
fyrirtækið gæti aðeins lagt fram
flugkost sinn, áhafnir og reynslu
til samstarfsins, en félögin i
Luxemborg yrðu að sjá um fjár-
hagslegu hliðina."
Sigurður Helgason segir í Morg-
unblaðinu: „Enda er það ljóst, að ef
SKÓLAVÖRUR
attttttskótans!
BÓKAHÚSÍÐ
Laugawegi 178, s.86780.
stcmdur sem hæst 20
500 á stórum hljómplötum
Laugavegi 33, Sfrðndgötu 37
Sl N DRA Æ^STÁL HE
Fyrirliggjandi í birgðastöð
svartar og
galvaniseraðar pípur
OQQoooO O °OOo
sverleikar: svart, % — 5“
galv., % — 4“
Borgartúni31 sími27222
forsætisráðherra Luxemborgar
hefði sagt eitthvað á þessa leið,
hefði það verið birt í þarlendum
blöðum, eins og málið er í brenni-
depli þar eins og hér.“
Til viðbótar því að ákveða
fréttamat fjölmiðla í Luxemborg,
staðhæfir hann í Morgunblaðinu að
forsætisráðherra hafi aldrei sagt
þetta og telur sig vita betur. í
Morgunblaðinu segir Sigurður: „Ég
aflaði mér síðan upplýsinga næsta
dag frá Luxemborg og ekkert slíkt
kom fram í ummælum ráðherr-
ans.“ Þær upplýsingar, sem Sigurð-
ur Helgason talar um, eru þýðingar
úr fjölmiðlum í Luxemborg, þar
sem segir frá fundi forsætisráð-
herrans með fréttamönnum.
Fréttamaður Ríkisútvarpsins
ræddi við fréttamenn útvarpsins í
Luxemborg og blaðsins Luxem-
burger Wort. Þeir sátu báðir blaða-
mannafundinn með forsætisráð-
herra og bar algerlega saman um
ummæli hans. Hvað sagt er á fundi
með fréttamönnum og hvað birt er
þarf ekki að vera það sama.
Rétt er þó að minna á viðtal Josy
Barthels, samgönguráðherra, í
Luxemborgarútvarpinu 5. septem-
ber, en þar segir hann orðrétt:
„Flugleiðir hefðu ekki lagt til nýtt
fjármagn, eins og hinir meðeigend-
urnir hefðu gert, en hefðu lagt til
stjórnendur, starfsfólk, flugvélar
og sölukerfi." I lok viðtalsins segir
Barthels um fundi Luxair um
málið: „Eftir fundinn komst stjórn
Luxair að þeirri niðurstöðu að
tillögur Flugleiða væru ekki að-
gengilegar." Ékkert hefur því kom-
ið fram, sem sýnir framá að
fréttamenn útvarpsins hafi „rang-
fært þessar fréttir eða fengið þær
brenglaðar" eins og Sigurður
Helgason kemst að orði í Morgun-
blaðinu. Þá minnist Sigurður ekki
einu orði á það, að þessar sömu
fréttir voru fluttar í sjónvarpinu
sama kvöld og í útvarpinu.
Fréttastofunni er kunnugt um
önnur atriði, sem komu fram á
fundi ráðherra í Luxemborg með
fréttamönnum, sem ekki hafa enn
komið fram, hvorki í fjölmiðlum í
Luxemborg eða hér á landi. Þar á
meðal eru atriði, sem beinlínis
snerta rekstur Flugleiða.
Sigurður Helgason kvartar und-
an því að fréttastofan hafi ekki
viljað taka frá sér leiðréttingar.
Eina leiðréttingin sem verulega
miklu máli skipti var sú þegar
fréttastofan leiðrétti ummæli Sig-
urðar sjálfs sem hann hafði í
hádegisfréttum. í ummælum hans
kom fram að flogið yrði til Chicago
í vetur, og var það leiðrétt um
kvöldið að beiðni Sigurðar sjálfs.
Hvað viðkemur missögn í frétt-
um útvarpsins á laugardagskvöld,
þar sem talað var um „tap vegna
kaupa" á DC-10-flugvél, en átti að
standa „tap vegna reksturs", er það
að segja að Sigurður Helgason var
beðinn afsökunar á þessum mistök-
um í persónulegu samtali á
fréttastofunni, en síðan fórst fyrir
að leiðrétta þetta í fréttum. Sigurð-
ur Helgason er hér með beðinn
velvirðingar á þeim mistökum, en
ástæða er til að taka fram, að þau
urðu ekki að yfiriögðu ráði.
Upplýsingar fréttastofunnar um
afkomu flugfélaga á Norður-
Atlantshafi voru frá heimildum,
sem allar voru nefndar í fréttum.
Þess var getið, að Sigurður Helga-
son væri ekki sammála þessum
upplýsingum, en fyrir þeim standa
okkar heimildarmenn og þekkt
breskt flugmálablað. Flugleiðir
hafa nú sent fréttastofunni grein
úr Business Week, þar sem sagt er
að Northwest Orient hafi tapað
stórfé á árinu, sem lauk 31. mars
síðastliðinn á ferðum yfir Atlants-
haf. Síðar í greininni segir að
Evrópuferðir félagsins séu mjög
óhagstæðar. Hvað sem Business
Week hefur um málið að segja,
segir formælandi Northwest Ori-
ent annað í viðtali við frétta-
stofuna og verður fréttastofa út-
varpsins varla sökuð um falsanir á
þessum upplýsingum. Væntanlega
vilja Flugleiðir líka frekar fá að
veita upplýsingar um sinn rekstur,
en að þær séu veittar í tímaritum.
Þess ber að geta að greinin í
Business Week er mjög almenns
eðlis og fjallar um allan rekstur
Northwest Orient, en ekki aðeins
um Atlantshafsflugið.
Fréttamenn útvarps hafa lagt á
sig mikla vinnu við öflun upplýs-
inga um málefni Flugleiða að
undanförnu, og hverjar framtíðar-
horfur félagsins væru, annaðhvort
eins sér, eða í samvinnu við erlenda
aðila. Undanfarna daga hefur
fréttastofan leitað upplýsinga
utanlands í meira mæli en oft áður
og þeim upplýsingum hefur ekki
alltaf borið saman við þær, sem
látnar eru í té hér á landi.
Við teljum það mikilvægt verk-
efni að fylgjast með málefnum,
sem skipta atvinnu hundraða ís-
lendinga og geta haft varanleg
áhrif á framtíð heilla atvinnu-
greina.
Fréttamönnum útvarpsins kem-
ur það á óvart að starfsbræður
þeirra á Morgunblaðinu skuli ekki
hafa leitað eftir þeirra hlið á
málinu, eins og dagblaðið Vísir
gerði, af sama tilefni.
Helgi Pétursson,
ólafur Sigurðsson.
Stefán Jón Hafstein.
Dale .
Larneeie
námskeiðið
★ Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö:
★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfær-
ingarkrafti í samræöum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU
og VIÐURKENNINGU.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima og á
vinnustaö.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða.
★ Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt í Dale
Carnegie-námskeiöinu. í dag er þitt tækifæri.
★ Upplýsingar í síma
82411
82411
í ( E'nkaleyfi á Isiandi
oai JÓRNUNARSKÓLINN
ll)I.\ Konráð Adolphsson