Morgunblaðið - 10.09.1980, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
vlfp
MOBöJK/.. v
KArriNu v r®
GRANI GÖSLARI
Ég veit ekki hvað ég á að gera.
— Ilann verður latari og latari
með hverjum deginum?
Fyljfdarmaður yðar mun vera tilhúinn til fararinnar um leið or
leitin að honum hefur borið árangur.
Ég Ket ekki matbúið eins ok
hún mamma þín, en drukkið
Ket ég eins og hann pabbi þinn!
Svolítið hissa
og svolítið sár
Svar við bréfi Sigríðar
Sveinsdóttur 6. sept.
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Vörnin var góð í spili dálksins.
En sagnhafi kom ekki auga á
möguleika, sem hefði breytt úr-
siitum spilsins honum í hag.
Norður gaf, allir utan hættu.
Norður
S. Á
H. G852
T. DG6
L. ÁD1084
Vestur
S. K62
H. 963
T. K107542
L. 6
Austur
S. 4
H. ÁD1074
T. Á983
L. K93
Suður
S. DG1098753
H. K
T. -
L. G752
Norður opnaði á 1 laufi, austur
sagði 1 hjarta og suður stökk í 4
spaða. Þrjú pöss fylgdu og vestur
spilaði út laufsexi.
Sagnhafi þóttist viss um, að
laufsexið væri einspil og hugðist
gera ráðstafanir til að vestur
fengi ekki að trompa. Hann tók
með laufás, trompás, trompaði
tígul heima og spilaði trompsjöu.
En vestur lét ekki plata sig,
hoppaði upp með kónginn og
austur kallaði með hjartasjöu.
Vestur spilaði þá hjarta á ásinn og
því fylgdi laufkóngur og lauf á
tromp, einn niður.
Hofuðmálið var að sjá til þess,
að austur kæmist ekki að fyrr en
búið var að ná trompum vesturs.
Þetta mátti gera með því að nýta
tígla blinds. Eftir laufásinn í
fyrsta slag er best að spila tígul-
drottningunni frá blindum. Láti
austur þá lágt, hendir suður
hjartakóngnum og vestur fær
slaginn Hann getur ekkert gert,
því húið er að rjúfa samband hans
við makker. Og við fyrstu hentug-
leika tekur suður á trompás,
trompar tígul eða hjarta og rekur
út trompkónginn með öryggi.
En af austur leggur á þegar
tíguldrottningunni er spilað frá
blindum. þá trompar suður og
spilar trompi á ásinn. Næst spilar
hann tígulgosanum og eins og
áður var lýst lætur hann hjarta-
kónginn af hendinni. Sama staða
verður uppi og andstæðingarnir fá
bara 3 slagi.
COSPER
PIB
FM«I«
C03PER
Ég hef aldrei getað skilið hve Michelangelo var lengi að skreyta
Sixtinsku kapelluna!
Hjördis Birgisdóttir skrifar:
„Þegar ég las bréf Sigríðar
Sveinsdóttur í Velvakanda 6. sept.
sl. varð ég bæði svolítið hissa og
svolítið sár. Hissa á að fullorðin
manneskja skuli geta látið sér
detta annað eins í hug og að leggja
til að táragasi verði beitt á
drukkna unglinga. Svolítið sár af
því að ég kenni í brjósti um
manneskju með slíkt hugarfar og
meðbræður hennar.
Alhæfingar
Það er athyglisvert að sjá
hvernig S. Sv. byrjar bréf sitt með
alhæfingum eins og að unglingar
séu: 1. óskammfeilnir, 2. verstu
óþokkar. Einnig tók ég eftir öðru
sem sýndi töluverða þröngsýni og
það sem maður kallar einfaldlega
heimsku. Tek ég mér hér með það
bessaleyfi að vitna í bréf S.Sv. og
skrifar hún á þann veg: „En mér,
og ég held flestum, finnst nú vera
tími til að eitthvað reglulega
raunhæft verði gert í þessum
málum, svo að þessi lýður komist
ekki upp með áframhaldandi
skrílslæti ... Finnst mér ekki úr
vegi að fá einn eða tvo bíla úr
slökkviliði borgarinnr og bleyta
rækilega í lýðnum."
• „Eitthvað reglu-
lega raunhæft“?
Þetta er það sem hún kallar
„reglulega raunhæft" til lausnar
vandanum, en ég held að hún sé
aðeins að fara fram á að vanda-
málunum verði bægt frá um
stundarsakir. Ég sé svo sem fyrir
mér viðbrögð unglinganna ef kom-
ið væri með slökkvibíla niður í bæ
eða beitt yrði táragasi á þá.
• Félagsmiðstöðvar
eina lausnin
Því miður verð ég að tilkynna
S. Sv. að þetta er engin lausn. Það
sem þarf til eru fleiri félagsmið-
stöðvar í borginni, ekki endilega í
sambandi við skólana, en sam-
komustaði, þar sem unglingar
geta „sýnt sig og séð aðra“, eins og
maður segir. Því hver vill ekki
hitta fólk?
• Sama yrði hjá
fullorðnum
Tökum dæmi: Ef engir
skemmtistaðir eða samkomuhús
Framleiðsla hafin
á sérstakri gerð
björgunarneta
NÝLEGA hefur Markús
B. Þorgeirsson kynnt og
hafið framleiðslu á sér-
stakri gerð björgunar-
neta. Net þessi eru ÍVi til
2 metrar á lengd og einn
metri á breidd, en þó eru
þau framleidd í fleiri
stærðum. Sérstök flotholt
eru meðfram sitt hvorri
hliðinni. Flotmajín net-
anna mun vera á við
hjörKunarhring að venju-
lejcri gerð.
Hjálmar R. Bárðarson,
siglingamálastjóri Ríkis-
ins hefur mælt með notk-
un þessara neta um borð í
skipum og telur þau vera
hentug í ýmsum tilfellum,
eins og, til dæmis, þegar
maður dettur fyrir borð
og við fleiri aðstæður.
Alls munu um 30 ís-
lensk skip tekið þessi net
um borð, þar á meðal
Akraborgin og Herjólfur,
en notkun þeirra hefur
ekki verið lögfest. Stærð
þessara neta er ekki meiri
en svo að koma má þeim
fyrir í innkaupapoka af
venjulegri gerð. Auk þess-
ara nota má nota net
þessi sem sjúkrabörur því
sérstök bönd eru á horn-
um þeirra.
Markús B. Þorgeirssun við hliðina á einu neta sinna á sérstakri
kynningu sem haldin var i húsi Slysavarnarfélags íslands fyrir
skömmu. Ljósm. Mbl. RAX.