Morgunblaðið - 10.09.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
29
TTT& ^ ~
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
ny (ijjantoi' aa'ii if
Útsala
væru fyrir tvítuga og eldri, mundi
eflaust vera sama „vandamál" hjá
fullorðnum eins og hjá unglingum.
En eins og það er núna í Reykja-
vík, ein félagsmiðstöð fyrir alla
unglinga borgarinnar, er það auð-
séð að það skapast óneitanlega
vandamál.
Ekki veit ég með vissu hvernig
ástandið er úti á landi í öðrum
bæjarfélögum, en ég tel mjög
liklegt að það sé ekki miklu betra
en hér í Reykjavík.
• Til athugunar
Ég bið S. Sv. og annað fólk,
sem er sömu skoðunar og hún að
athuga að það er ekki hver einasti
unglingur drukkinn í miðbænum
um helgar né heldur með skemmd-
arverk í huga.
• Gengur ekki
lengur
Ég vona innilega að fólk geti
tekið sig saman og talað um
hlutina eins og þeir eru og síðast
en ekki síst fundið einhverja lausn
á málunum. Það gengur ekki
iengur að eini samkomustaður
krakkanna sé á Hallærisplaninu."
Þessir hringdu . . .
• Sóðaskapur
við sjoppur
H.P. hafði samband við Vel-
vakanda og setti út á hreinlætis-
mál kvöldsölufólks. — Það er
áberandi meiri sóðaskapur í
kringum þessar sjoppur en al-
mennt gerist hjá okkur hér í borg,
og er þó ekki af miklu að státa. Er
ekki eðlilegt að gera þá aðila
ábyrga fyrir þrifnaði í sínu nán-
asta umhverfi, sem fá starfsleyfi
til þess að reka þessar sjoppur?
Ég bý á Njálsgötunni, ekki langt
frá Frakkastíg. Þar er ein af
þessum kvöldsölusjoppum og af
henni er fádæma ruslarabragur,
fjúkandi bréfadrasl, umbúðir og
ílát. Ég leyfi mér að mótmæla
svona löguðu og finnst að það eigi
að varða sviptingu starfsleyfis að
hafa þetta svona.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
íslenskir bréfskákmenn tefla í
Evrópukeppni landsliða, C-riðli,
sem hófst 1978. Eftirfarandi staða
kom upp í skák þeirra Mario
Fiorito, Hollandi, og Einars
Karlssonar. sem hafði svart og
áttileik.
34. .. H8f3! og hvítur gafst upp.
Ekkert nema stórfellt liðstap
kemur í veg fyrir Dc2—g2+.
• Mótmæli ásökun-
um Sigríðar
Sveinsdóttur
Ásdis skrifar:
„Af hverju eru það alltaf ungl-
ingarnir sem eru ásakaðir um öll
skemmdarverk? Sigríður skrifar
um aðfarirnar við Austurvöll. Ég
var þar og að mínu áliti þá voru
eldri borgararnir í engu betra
ástandi en hinir yngri. Margt var
þarna af fólki á aldrinum 30—50
ára, sem skreið um dauðadrukkið
og ekki voru þeir útlendingar sem
ég sá miklu betri. En auðvitað eru
alltaf einhverjir á öllum aldri sem
vilja eyðileggja og skemma. Svo
mikið var þarna af fólki að
stundum barst maður bara með
straumnum og endaði úti á blóma-
beðum í látunum.
• Hvað gerðist
í S-Afríku?
Það sem Sigríður segir um
vatn og táragas er ég ekki sam-
mála um: Vatn kannski en jafnvel
táragas! Sjáið bara hvað gerðist í
Suður-Afríku þegar blindur
söngvari, blökkumaður, átti að
halda tónleika. Lögreglan var
kölluð út til að dreifa fólkinu sem
hafði safnast saman inni í tón-
leikahöllinni og í nágrenni henn-
ar. Til þess að gera það notaði hún
táragas. Margir voru troðnir undir
þegar þeir flýðu í ofsahræðslu út
úr tónleikahöllinni og burt frá
táragassprengjum lögreglunnar.
Fjölmargir létu lífið og enn fleiri
slösuðust lífshættulega.
• Er það þetta?
Ég spyr bara: Er það þetta
sem Sigríður Sveinsdóttir og fleiri
vilja? Að lokum langar mig svo til
að spyrja: Eru sumir búnir að
gleyma hvernig var að vera ungur
og skemmta sér?“
• Skotgleði
I.A. skrifar:
„Nýlega birtust í dagblaði (Tím-
anum, 22. ágúst sl.) ráðleggingar í
6 liðum til skotveiðimanna frá
Skotveiðifélagi íslands. Þar segir
m.a.: „Skjótið aldrei á heimalandi
án leyfis,“ og í annari ráðleggingu:
„Umgangist land og líf af virðingu
og hófsemd."
Ekki er vanþörf á ráðleggingum
og viðvörunum frá félagsstjórn
hinna skotglöðu manna til félaga
sinna, því á því hefur borið lengi,
að byssumenn vaði yfir allt og
skjóti á allt eða flest sem þeir sjá
lifandi.
• Af virðingu og
hófsemd
Síðari tilvitnunin hér að ofan
er nokkuð hæpin og því erfitt að
fara eftir henni: Hvernig á það að
geta farið saman að umgangast
land og líf af virðingu jafnframt
því að skjóta á og drepa það líf
sem fyrir finnst í skauti landsins.
Aldrei getur fylgt því nein virðing
og hófsemd að skjóta á varnarlaus
dýr úti í náttúrunni. Að mishæfir
og misjafnlega innrættir menn
limlesti og drepi fugla eða önnur
dýr, sjálfum sér til ánægju ein-
göngu, getur aldrei að réttu lagi
kallast virðingarvert eða hógvært.
Hitt er heldur, að hér er um að
ræða ill verk, einkum ef litið er á
málið frá sjónarmiði dýranna
sjálfra, sem fyrir árásunum verða,
en það skyldi jafnan gert.
• Hið eina
virðingarverða
Hið eina, sem virðingarvert
mætti kallast, væri að virða lífs-
rétt dýranna, samlanda okkar og
vina, og hætta að drépa þau og
limlesta að þarflausu með skot-
vopnum veiðiglaðra manna."
HÖGNI HREKKVÍSI
„viljiði kom'c?mum úr tHf"
53? SIGGA V/öGÁ £ 'íiLVtftAM
Kjólar frá 12.000.-. Nýtt og fjölbreytt úrval af
kvöldkjólum í öllum stæröum, hagstætt verö. Trimm-
gallar frá kr. 12.000.-. Dömupeysur frá kr. 2.000.-.
Urval af ódýrum skólapeysum. Mussur frá kr.
8.000.-. Jakkapeysur og vesti í úrvali.
Opiö frá 9—18. Fatasalan, Brautarholti 22,
inngangur frá Nóatúni.
Enska fyrir börn
Beina aöferöin. Börnum er kennd enska á ENSKU.
íslenzka er ekki töluö í tímum. LEIKIR — MVNDIR —
BÆKUR. Skemmtilegt nám.
MÍMIR, Brautarholt 4,
Sími 10004 og 11109 (kl. 2—7 e.h.).
TVerzlunarskóli
Islands
veröur settur í dag kl. 2 e.h. Nemendur veröa skipaö
í bekki viö skólasetningu og aö henni lokinni hefst
almennur kennarafundur.
Verzlunarskóli íslands.
3. leikvika — leikir 6. sept. 1980
Vinningsröó: x11 — 12x — x11 — x12
1. vinningur: 12 réttir — kr. 1.001.000.-
32965 (4/11) 33977 (4/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 57.200.-
2217 30442+ 40543+ 41771
3990 30792 40558+
Kærufrestur er til 29. september kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðal-
skrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkaö, ef kærur veröa
teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) verða aö framvísa stofni eöa senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - Iþróttamíöstöðinni - REYKJAVÍK
Firmakeppni
K.R.
í knattspyrnu utanhúss 1980.
Hin árlega firmakeppni knattspyrnudeildar K.R.
veröur haldin helgina 20.—21. sept.
Keppt verður í riðlum, en úrslitakeppnin verður viku
síðar. Keppt veröur utanhúss. Skulu 7 leikmenn vera
í hverju liði auk 3. skiptimanna. Leiktími er 2x15 mín.
Þátttaka tilkynnist fyrir 18. sept. í síma 22194 á
þriöjud., miövikud. og föstud. milli kl. 2—4 eftir
hádegi og nánari upplýsingar.
Knattspyrnudeild K.R.
/C)<b<bí^\ (YfcWOVl \fBW) fío\ mr\ WJ
\\X\KI V£«\Q )
\aLmpf/ &
Iri