Morgunblaðið - 18.10.1980, Síða 1

Morgunblaðið - 18.10.1980, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 231. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sovézkir læknar grýttir í Kabul Rajai forsætisráðherra Írans, og Kurt Waldheim. framkvæmdastjóri S.þ. á tali í húsakynnum S.þ. í New York í gærkvöldi. • • Nýju Dehli. 17. október. — AP. UNGAR skólastúlkur í Kabul neituðu fyrr í vikunni að láta sovézka lækna og hjúkrunarkonur bólusetja sig. Köstuðu stúlkurnar grjóti að Sovétmönnunum og hröktu þá út úr skólanum. Einn læknir og ein hjúkrunarkona meiddust lítillega. Fjórir kennarar og margir nemendur í skóianum voru handteknir vegna þessa atburðar. Fréttir um þetta bárust frá Afganistan í dag. Stúlkurnar hrópuðu ókvæðis- orð að sovézku læknunum, þegar þeir komu í skólann og kröfðust þess að Sovétmenn fari með her sinn frá Afganistan. Þá voru Brezhnev forseti Sovétríkjanna og Karmal forseti Afganistans úthrópaðir. Frelsissveitir Afgana hafa komið í veg fyrir að sovézki herinn í landinu og stjórnar- hermenn næðu á sitt vald mik- ilvægu fjallaskarði, skv. fréttum sem borizt hafa frá Kabul. Biðu Sovétmenn mikið afhroð í bar- dögum um skarðið, að því er þessar heimildir herma. Heim- ildir í röðum stjórnarerindreka í Kabul hafa ekki staðfest þessa frásögn en greina hins vegar frá hörðum bardögum í Ghorband- dalnum um 100 kílómetra í norðvestur frá Kabul. Er mann- Oryggisráðið ræðir stríð Irans og' Iraks New York, Hagdad. Teheran. 17 október. — AP. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna kom saman i kvöld til þess að ræða stríðið milli Irana og fraka. Muhammed Ali Rajai forsætisráðherra ír- ans, kom til New York í nótt og mun ávarpa Öryggisráðið í kvöld. Áður en fundurinn hófst ræddi Rajai i hálfa aðra klukkustund við Waldheim framkvæmdastjóra S.þ. Tals- maður Waldheims sagði að Íieir hefðu rætt stríð írans og raks og „mörg önnur mál“, en hann vildi ekki segja, hvort rædd hefðu verið örlög banda- rísku gisianna í íran. Ekkert benti í kvöld til þess að Rajai myndi ræða við bandaríska ráðamenn á meðan hann dvelur í New York, en ráðgert mun að hann verði tæpa tvo sólarhringa í Banda- ríkjunum. Vestrænir sendiherrar frá Sam- Waldheim ræðir við Rajai einuðu þjóðunum eru sagðir hafa komið sér saman um drög að friðarsamkomulagi milli írana og Iraka. Má gera ráð fyrir að drögin verði lögð fyrir Öryggisráðið í formi ályktunar á næstu dögum. í drögum þessum er gert ráð fyrir vopnahléi, heimkvaðningu írasks herliðs frá íran, samningaviðræð- um deiluaðila og loks yfirlýsingu beggja stríðsaðila um að þeir muni virða landamæri hvor annars. Zia ul-Haq, forseti Pakistans, skoraði í dag á íraka og írani að gera vopnahlé í vikutíma á meðan á helgidögum múhameðskra píla- gríma stæði. Mjög snarpir bardagar hafa geis- að í Iran í dag, en fregnum af þeim ber ekki saman. íranir sögðust í dag hafa hrakið íraka frá olíuborgunum Abadan og Khorramshahr eftir mikla bardaga í návígi á götum úti. íranska fréttastofan Pars sagði í kvöld, að íranskt herlið hefði einnig Pólland: Stof nskrá verkalýðs- samtakanna samþykkt Varsjá, 17. október. — AP. LECII Walesa leiðtogi frjálsra verkalýðsfélaga i Póllandi og samstarfsmenn hans áttu i dag fundi með embættismönnum stjórnarinnar i Varsjá og þing- mönnum. um nýja löggjöf um verkalýðsfélög. Eru viðræðurnar sagðar hafa gengið erfiðlega. Fregnir herma hins vegar að samkomulag hafi náðst hjá borgarfógeta í Varsjá um stofnskrá hinna nýju sjálf- stæðu verkalýðssamtaka. Verður því unnt að skrá samtökin lögum samkvæmt og mega samtökin starfa alls staðar í Póllandi. Viðræðurnar um nýja verka- lýðsmálalöggjöf í Póllandi eru af hálfu Walesa og félaga taldar hinar mikilvægustu, þar sem lögin munu setja starfsemi hinna nýju verkalýðsfélaga ramma. (Símamynd AP.) Sögulegur fundur Jóhannes Páll páfi 2. og Elísabet 2. Bretadrottning ganga til fundar í Vatíkaninu í gær. Á bak við páfa sést í Filippus prins, eiginmann drottningar. fa.ll sagt mikið hjá báðum aðil- um. Karmal, forseti Afganistans, greindi frá því í Moskvu í dag, að „þúsundir friðsamra borgara" hefðu látið lífið í því „óyfirlýsta stríði", sem nú fer fram í landinu. Karmal er í opinberri heimsókn í Sovétríkjunum. Hann sakaði í dag Bandaríkin og Kína um beina íhlutun í átökin í landinu. gert miklar árásir á stöðvar Iraka á landamærum ríkjanna. Útvarpið í Bagdad sagði í dag, að mörg hundruð íranskir hermenn hefði fallið í bardögum á landa- mærunum, en þar hafi' verið barizt í 12 tíma samfleytt. Frímerki frá 1839? PraK. 17. október. — AP. ALDRAÐUR Tékki hefur fundið gamalt handariskt frí- merki. sem kann að breyta skoðunum manna á því, hve- nær notkun frímerkja hófst i heiminum. Til þessa hefur almennt verið talið að notkun frímerkja hafi hyrjað með útgáfu tveggja hrezkra frí- merkja 1. maí 1840. Tékkinn Jaroslav Skrivan. sem kominn er á eftirlaun. segist hins vegar hafa fundið bandariskt frimerki. sem stimplað sé 8. mai 1839. Frímerki þetta er þriggja centa merki með mynd af Benjamin Franklin og á því er greinilegur póststimpill frá Louisville í Kentucky. Það er gulnað af elii en annars alveg óskemmt. Skrivan segist hafa fundið frímerkið í gömlum kassa, sem öldruð frænka hans hafi erft eftir afa sinn og ömmu, er bæði söfnuðu frí- merkjum. Skrivan fann annað sjaldgæft frímerki fyrr á þessu ári. Er það frá tíma Viktoríu Bretadrottningar og talið yfir 20 milljón króna virði. Skrivan kom með frímerkið, sem hann hefur nú fundið, á skrifstofur AP-fréttastofunnar í Prag. Bretland: Verðbólgan á undanhaldi London. 17. október. — AP. VERÐBÓLGAN í Bretlandi minnkaði i síðasta mánuði úr 16,3% í 15,9% á ársgrundvelli. Hefur verðbiilgan í landinu ekki verið minni frá því i ágúst í fyrra. að því er brezka stjórnin tilkynnti i dag. Engu að síður er verðbólgan í Bretlandi meiri en í flestum öðr- um iðnvæddum ríkjum. Verðbólga í Bandaríkjunum er nú 12,8%, 13,5% í Frakklandi, 5,5% í Vest- ur-Þýzkalandi, 8,7% í Japan og 22% á Ítalíu. Frá því ríkisstjórn Margaretar Thatchers tók við völdum í Bretlandi fyrir 17 mán- uðum varð verðbólgan mest í maímánuði síðastliðnum eða 21,9% á ársgrundvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.