Morgunblaðið - 18.10.1980, Side 2

Morgunblaðið - 18.10.1980, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 Stefnuræöa forsætisráðherra: Verðtryggingu frest- að um hálft til eitt ár RÍKISSTJÓRNIN telur, að lenKja þuríi aðlogunarfrest- inn fyrir verðtryggingu sparifjár og inn- og útlána um hálft til heilt ár. en samkvæmt lögum um stjórn efnahagsmála. Ólafslögum. á verðtryggingin að vera kom- in fyrir árslok 1980. Þetta Framboð Karvels í undirbúningi á ASÍ-þingi FORYSTUMENN á svirti verkalýðs- máia i Sjálfstæðisflokknum ok Al- þýðuflokknum hafa átt með sér fundi til athuitunar á samstarfi um undir- húninK ASÍ-þinKsins. sem haldið verð- uf 24. til 28. nóvemher nk. Þessi hópur stefnir m.a. að því að Karvel Pálma- son Kefi kost á sér sem forsetaefni ok að um framhoð hans verði sköpuð samstaða við framsóknarmenn í verkalýðshreyfinKunni ok þá alþýðu- handalaKsmenn. sem andvÍKÍr eru Asmundi Stefánssyni sem forsetaefni. Erling Aspelund framkvæmda- stjóri stjórnunar- sviðs Flugleiða: „Skilyrði að starfs- fólkið skapi vinnufrið“ MORGUNBLAÐIÐ innti Erling Aspelund fram- kvæmdastjóra stjórnun- arsviðs Flugleiða eftir áliti á umsögn formanns Flug- freyjufélagsins í gær þar sem hún sagði í Mbl. að félagið myndi beita hvaða ráðum sem þyrfti til þess að tryggja endurráðningu eftir starfsaldurslista. „Staðan í málum flugfreyja," sagði Erling, „er sú að það verður ekkert gert fyrr en það liggur fyrir hvort Atlantshafs- flugið heldur áfram, en það var ákveðið að bíða átekta fyrir mörgum vikum. Að öðru leyti er stefna Flugleiða óbreytt í þessum efnum, en það er hins vegar algjört skilyrði, ef félag- ið á að starfa áfram, að verkalýðsfélögin sem tengjast félaginu, og starfsfólkið tryggi vinnufrið, svo unnt verði að ná félaginu upp úr þeirri lægð. Það er því grundvallaratriði að starfsfólkið fari ekki út í ótímabærar aðgerðir sem gætu skaðað starfsvettvang þess og félagið í heild." Þá kvað Erling deilu flug- manna ennþá hjá sáttasemjara og miðaði hægt, en það væri fyrst og fremst flugmanna sjálfra að koma sér saman þótt Flugleiðamenn reyndu eins og kostur væri að aðstoða í þeim efnum. Jeppi valt kemur fram í stefnuræðu Gunnars Thoroddsens, for- sætisráðherra, sem dreift hef- ur verið til alþingismanna. en ræðuna ætlar forsætisráð- herra að flytja á Alþingi fimmtudaginn 23. október. I stefnuræðunni er m.a. fjallað um gjaldmiðilsbreytinguna um áramótin og sagt, að samfara henni hafi ríkisstjórnin í huga margháttaðar efnahagsaðgerðir. Ekki er þess getið, hvaða aðgerðir þetta verða, en sagt: „Gagnger athugun og endurskoðun er nú hafin á þeirri víðtæku sjálfvirkni, sem nú á sér stað, ýmist sam- kvæmt lögum, samningum eða venjum um verðlag, vexti, kaup- gjald, lán og önnur atriði, er verulegu skipta um þróun efna- hagsmála. Þessi sjálfvirkni og víxlhækkanir eiga sinn mikla þátt í verðþenslunni. Um þessi mál verður haft samráð við þau sam- tök, sem hlut eiga að máli. Unnið er að nýjum vísitölu- grundvelli, sem ætti að geta geng- ið í gildi kringum áramótin." Þá er í stefnuræðunni minnzt á nýju verðtryggðu sparireikn- ingana og sagt, að á þeim þremur mánuðum, sem þeir hafa verið, muni um 2 milljarðar króna hafa komið inn á þessa reikninga. „Þetta er lægri fjárhæð en menn höfðu gert sér vonir um. En öll ný viðskiptaform í bönkum þurfa sinn tíma til þess að menn átti sig á þeim og venjist þeim. Ennfrem- ur hefur það dregið úr aðdráttar- afli þessara nýju reikninga, að binditími var hafður tvö ár. Ég ætla, að reynslan hafi fært mönnum heim sanninn um, að binditímann þarf að stytta." Skálaði við gestina á 107 ára afmælinu KVENFÉLAGSKONUR á Blönduósi efndu til afmæl- isveizlu á Héraöshælinu á Blönduósi 14. október, þegar Halldóra Bjarnadóttir varð 107 ára. Kom Halldóra sjálf þar í hjólastól, brosti við gestum sínum, og skálaði við þá, en sagði lítið, enda hætt að heyra það sem við hana er sagt. Henni bárust fjöldi heillaóska víðsvegar að. Þessa mynd tók Sigursteinn Guðmundsson yfirlæknir af Halldóru í afmælishóf- inu. ÞUNGLEGA horfir með sölu á frystri síld og er allt útlit fyrir að mun minna verði fryst af síld á þeirri vertíð, sem nú stendur yfir, heldur en gert var ráð fyrir i sumar. Reiknað var með, að allt að 17.500 tonn af sild færu i frystingu nú, en i fyrra var framleiðslan um 12 þúsund tonn. Er liklegt að nokkru minna verði fryst í ár heldur en þá. Morgunblaðið fékk þær upplýs- ingar hjá Guðmundi H. Garðars- syni, blaðafulltrúa SH, að þegar veiðikvóti var ákveðinn í sumar, hafi verið reiknað með að 15—17 þúsund tonn færu í frystingu. Nú horfði hins vegar þunglega með sölu á frystri síld og markaðir væru ákaflega óvissir. Þessa dag- ana væri verið að athuga alla möguleika og sagði Guðmundur, að reynt yrði til hins ýtrasta. í fyrra seldi SH um 6 þúsund tonn af frystri síld, en til þessa hefur fyrirtækið aðeins gert eina fyrir- framsölu, þ.e. á um 900 tonnum til Tékkóslóvakíu. Ólafur Jónsson hjá Sjávaraf- urðadeild, Sambandsins sagði í gær, að Sambandið hefði í fyrra selt um 400 tonn af síldarflökum og tæplega 3 þúsund tonn af heilfrystri síld. Nú horfði mjög þunglega með sölu á heilfrystu síldinni og verð á henni hefði lækkað. Hins vegar ætti jafnvel að vera hægt að selja 1.000—1.500 tonn af frystum síldarflökum og verð á þeim virtist ætla að halda sér, en síldarfrysting var mjög hagkvæm í fyrra. Ólafur sagðist ætla, að í fyrra hefðu um 12 þúsund tonn af síld farið í frystingu, en sagðist telja, að í ár yrði einhver minnkun, án þess að hann vildi spá um hver framleiðslan yrði. „Framleiðendur hafa gefið viðkomandi aðilum upplýsingar um stöðuna í þessum málum og ef menn reikna enn með því, að 15-17 þúsund tonn fari í frystingu, þá er það rangt mat á stöðunni," sagði Ólafur Jónsson. Fundur bóka- gerðar- manna á mánudag BOÐAÐUR hefur verið félags- fundur i bókagerðarfélögunum þremur á mánudag, en þar verð- ur, samkvæmt upplýsingum Magnúsar Einars Sigurðssonar, talsmanns félaganna, rætt um tilmæli Alþýðusambands íslands um boðun verkfalls hinn 29. október næstkomandi. Jafnframt verður fundurinn upplýsinga- fundur fyrir félaga í félögunum þremur, Hinu ísienzka prentara- félagi, Grafiska sveinafélaginu og Bókbindarafélagi íslands. Stjórn og trúnaðarmannaráð fé- laganna þriggja hafa þegar fengið verkfallsheimild og eru trúnað- armannaráðin boðuð saman til fundar á morgun, sunnudag. Því þurfa félögin í sjálfu sér ekki að leita til félagsfundar um boðun verkfalls til þess að verða við tilmælum ASÍ. Morgunblaðið spurði Magnús Einar að því, hvort fyrirhuguð væru víðtækari verk- föll en þennan eina dag. Hann kvaðst ekkert geta um það sagt, það yrði félagsfundurinn að leiða í Ijós, hann væri boðaður sem upplýsingafundur, en hvaða ákvarðanir hann tæki, kvaðst hann ekki geta spáð í. Útlit fyrir samdrátt í síldarfrystingu í ár Lézt af slys- förum í Afríku Fréttin tvo mánuði á leið til íslands 23 ÁRA íslendingur, Rich- ard Rúnar Thom Oddsson, lézt af slysförum í Afríku- ríkinu Tögo 6. ágúst síð- astliðinn. Fregnir um lát hans bárust ekki hingað til lands fyrr en um tveim- ur mánuðum eftir slysið, en það mun hafa orðið með þeim hætti, að vörubifreið sem hann ferðaðist með valt og létuzt fimm manns i slysinu. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk í utanríkisráðuneytinu í gær, var Richard á leið frá Lome í Togo til Lagos í Nígeríu og fékk far með vörubifreið. Mun hann hafa verið á vörubílspallinum ásamt fleira fólki og er bifreiðin valt af óþekktum orsökum, lézt hann ásamt 4 öðrum farþegum. Richard var jarðsettur í kirkju- garði Evrópumanna í Lome nokkru eftir slysið. Richard Rúnar Thom mun hafa verið mikið á ferðalögum erlendis síðustu ár, hann var búsettur í Evrópu samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins, en hafði m.a. lengi dvalið í Tyrklandi og Kuwait. Fregnir um lát hans bárust til íslands fyrir milligöngu starfsmanns brezka sendiráðsins í Ghana, en hann var á eftirlitsferð í Togo er hann frétti um slysið. Var þá nokkur tími liðinn frá slysinu, en Bretinn kom fréttum áleiðis til íslands og komu þær hingað um tveimur mánuðum eft- ir að slysið varð. Sendiráð Islands í París vinnur nú að því að afla frekari upplýsinga um mál þetta. Saltað í 10.000. tunnuna á Höfn á 10 ára afmælinu JEPPI af Range Rover-gerð valt í gær, um hálftvöleytið, á þjóðveg- inum við Eyri í Kjós. Ökumaður- inn var einn i bílnum og slapp hann ótrúlega vel, skrcið nánast ómeiddur út úr jeppanum.'en hús jeppans lagðist niður að miklu leyti. Slökkviliðsmenn viðs vegar að af landinu hafa verið á námskeiði í Reykjavik undanfarna daga, en námskeið þetta er á vegum Brunamálastofnunarinnar. Tækifærið hefur verið notað til að kveikja i nokkrum húsum á höfuðborgarsvæðinu, sem orðið hafa að vikja, og eru slökkviliðsmennirnir látnii æfa sig við slökkvistörf, reykköfun og annað sem slökkviliðsmenn þurfa að kunna. Myndin var tekin á einni slíkri æfingu i gær, þegar kveikt hafði verið i húsi við Vatnsveituveg. Ljónm. Mbi. as SALTAÐ var i 10 þúsundustu sildartunnuna á vertiðinni hjá Fiskimjölsverksmiðju Horna- fjarðar i gær og svo skemmtilega vildi til, að þessi áfangi náðist einmitt sama dag og 10 ár voru liðin frá þvi að sild var fyrst söltuð í stöðinni. Að sjálfsögðu fagnaði sildarfólkið þessum áföngum með rjómakökuáti og tilheyrandi. Síðan 1974 hefur þessi söltunarstöð verið sú stærsta á landinu og svo gæti einnig orðið i ár þó svo að minna hafi borizt af sild til Hafnar fram að þessu miðað við árin á undan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.