Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 5 Tómas ÓIi Jónsson, frá skipulágsnefnd Sambandsins, Magnús Finnson, framkvæmdastjóri Kaupmanna- samtakanna, Georg Ölafsson verðlagsstjóri og Sigriður Haraldsdóttir og Jóhannes Gunnarsson. starfsmenn Verðlagsstofnunar. Ljósmynd Mbi. Kristjén. Verðmerkja skal bæði í nýjum og gömlum krónum Verðlagsstofnun: Á BLAÐAMANNAFUNDI, sem Verðlagsstjóri boðaði til nú fyrir skömmu kom fram, að Verðlagsstofnun hefur sent frá sér 2 tilkynningar til verzlana og kaupmanna um verðmerkingu og afrúnnun vegna fyrirhugaðrar myntbreytingar um áramótin. Er þar aðallega um að ræða, að skylda er að tvímerkja vörur í sýningargluggum, bæði með nýju og gömlu krónunni frá og með 1. nóvember og síðan skulu allar vörur tvímerktar eftir því sem tök eru á og er lögð á það áherzla að allar vörur verði tvímerktar fyrir og eftir áramótin. Verðlagsstofnun og Kaup- mannasamtökin hafa tekið hönd- um saman um framkvæmd þess- ara mála, en ljóst er að tvímerkingin mun hafa í för með sér all nokkra aukavinnu og fyrir- höfn fyrir kaupmenn og hefur verið gizkað á að kostnaðurinn nemi frá 3 upp í 8 dagsverk eftir stærð verzlana. Til að auðvelda neytendum og starfsmönnum verslana öll við- skipti meðan á breytingunni stendur, hefur Verðlagsstofnun gefið út 2 tilkynningar um verð- merkingar og fara helstu atriði þeirra hér á eftir: Verðmerkingar í húðargluggum Verð í nýjum krónum skal vera í rauðu Á tímabilinu frá 1. nóvember 1980 til 1. febrúar 1981 er skylda að verðmerkja bæði í gömlum og nýjum krónum allar vörur, sem eru til sýnis í verslunargluggum eða á annan hátt. Verðið í gömlum krónum á að merkja með svörtu letri á hvítum miðum eins og tíðkast hefur, en verðið í nýjum krónum með rauðu letri eða með svörtu letri á rauðum miðum. Verðmerkingar þessar eiga að vera samhliða og þar með ætti að vera auðvelt að bera saman verð í gömlum og nýjum krónum. Engar verðhækkanir Gjaldmiðilsbreytingin hefur engar verðhækkanir í för með sér, en þar sem 5-eyringur verður lægsta mynteiningin verður heim- ilt að hækka verð í nýjum krónum, sem endar á 3 og 4 aurum í 5 aura og verð sem endar á 8 og 9 aurum í næsta heila tug aura. Hins vegar ber að lækka verð, sem endar á 1 og 2 aurum niður í næsta heila tug aura og verð sem endar á 6 og 7 aurum niður í 5 aura. Ætlast er til, að kaupmenn hefji verðmerkingar í gömlum og nýj- um krónum þegar 1. nóvember, áður en jólasalan byrjar fyrir alvöru. Af tæknilegum ástæðum er þó ekki unnt að tvímerkja allar vörur í 3 mánuði á sama hátt og í búðargluggum, en hins vegar verða allar vörur að vera tví- merktar um áramótin þegar gjald- miðilsbreytingin fer fram. Gamlar krónur með svörtu letri á hvítum eða ljósum grunni og nýjar krónur með rauðu letri eða með svörtu letri á rauðum miða. Eftir 1. febrúar, þegar hinar tímabundnu reglur um tvímerkingar falla úr gildi verður áfram skylt að verð- merkja, en þá má nota hvaða lit sem er. Eftirlit og leiðbeiningar Framkvæmd gjaldmiðilsbreyt- ingarinnar mun að sjálfsögðu mæða mikið á verslunarstéttinni og hefur hún þegar hafið undir- búningsstarf til þess að fram- kvæmdin geti tekist sem best. Jafnframt er nauðsynlegt, að neytendur fylgist vel með breyt- ingunni og notfæri sér þær verð- merkingar sem fyrirhugaðar eru, ekki aðeins til að gera greinarmun á verði í nýjum krónum og göml- um, heldur almennt til þess að örva verðskyn sitt, sem svo mjög hefur slævst í verðbólgu undan- genginna ára. Verðlagsstofnun mun annast nauðsynlegar leiðbeiningar við kaupmenn og neytendur í þessu efni og hafa eftirlit með því, að tilkynningum stofnunarinnar verði framfylgt. Mun stofnunin í því skyni ráða tímabundið viðbót- arstarfsfólk. Prestkosningar í Ásprestakalli: Á kjörskrá eru 2700 manns PRESTSKOSNINGAR fara fram á morgun, sunnudag, í Ásprestakalli. Einungis einn prestur hefur sótt um Ás- prestakall, séra Árni Bergur Sigurbjörnsson, en hann verður að hljóta helming greiddra atkvæða ef kosning hans á að teljast lögmæt samkvæmt reglum í prests- kosningum. Á kjörskrá í Ássöfnuði eru tæplega 2700 manns. Séra Grímur Gríms- son hefur verið prestur í Ásprestakalli undanfarin sautján ár og lætur af störf- um þar þann 1. nóvember næstkomandi. — Eiginkona Árna Bergs Sigurbjörnsson- ar er Lilja Garðarsdóttir og eiga þau þrjú börn, tvær dætur og einn son. Blaða- maður Morgunblaðsins ræddi við Árna og var hann fyrst spurður hvar hann hefði þjónað áður. „Ég hef verið prestur undan- farin átta ár í Ólafsvíkurpresta- kalli en ég gerðist prestur þar stuttu eftir að ég útskrifaðist úr háskóla 1972. Sóknarbörnin í Ólafsvíkurprestakalli eru um 2000 og eru þar þrjár kirkju- sóknir. Úti á landi hlaðast mörg störf á presta, s.s. nefndarstörf varðandi fræðslumál, barna- kennsla, félags- og æskulýðs- störf, áfengisvarnarmál o.fl. Það var anzi mikið starf að annast þessi aukastörf auk prestþjón- ustunnar eins og gefur að skilja." Hvers vegna sækir þú um hér í Reykjavík? „Til þess iiggja ýmsar ástæð- ur, — t.d. er um stærra starfs- svið að ræða og meira áhuga- vekjandi að mér finnst. Nú rekur að því að elzta barnið okkar fari að ganga í skóla og þá eru vegamót hjá ýmsum. Og svo er ég uppalinn hér í Reykjavík. Samt var það nokkuð erfið ákvörðun að sækja frá Óiafsvík, Séra Árni Bergur Sigurbjörnsson — þar hefur okkar fallið ein- staklega vel þessi átta ár sem við höfum verið þar.“ Hvernig líst þér á söfnuðinn í Ásprestakalli? Mjög vel — ég hef ekki getað heimsótt nema brot af sóknar- börnunum þar en mér hefur verið tekið ákaflega vel þar sem ég hef komið. Það er mikill áhugi fyrir kirkjulegu starfi hjá söfnuðinum og ekki síður meðal yngra fólksins en þess eldra. Það hamlar starfi prestsins náttúrulega mjög þarna að söfn- uðurinn hefur ekki kirkju til umráða. Guðsþjónustur hafa farið fram í sal sem Reykjavík- urborg hefur léð söfnuðinum að Norðurbrún 1. Verið er að reisa kirkja fyrir Ásprestakall og er hún um það bil fokheld og vonast er til að einhver hluti hennar verði tilbúinn til notk- unar eftir fáein misseri." Að lokum sagði Árni Bergur: „Eitt helsta áhugamál mitt er að sinna starfi meðal barna og unglinga, sem og aldraðra, en sá þáttur prestþjónustunnar er hvað veigamestur. Fari svo að ég nái kjöri vona ég að hér verði ég í jafn lifandi sambandi við sóknarbörnin og ég var í starfi mínu fyrir vestan." Skólaskákin að heíjast UNDIRBÚNINGUR aö skóla- skákkeppninni er hafinn. Rétt til þátttöku hafa allir nemendur í grunnskólum landsins. Keppninni er skipt í tvo flokka, yngri flokk (nemendur í 1,—6. bekk) og eldri flokk (nemendur í 7.-9. bekk), og hefst hún með skólamótum, sem ljúka skal eigi síðar en 1. feb. ’81. Gögn varðandi keppni þessa verða send á næstunni í alla grunnskóla landsins. Þú getur valið um þrjár mismunandi útfærslur. Komiö, sjáið og sannfærist. Sendibílarnir frá MITSUBISHI eru í algjörum sérflokki, hvaó viókemur verói, gæóum og útliti. [ulHEKIA J Laugavegi 170-172 Sír HF Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.