Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 10

Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 1 ( BÍTLAÆÐIÐ / Fyrsta grein |Elsta myndin sem vitað er um af Bítlunum. en raunar nefndist hljómsveitin The Quarrymen á þessum tíma. Myndin er tekin árið 1956 á dansleik sem kirkjusöfnuður í Liverpool efndi til. Paul og John eru fremst á myndinni, en George og Ringo komu ekki til sögunnar fyrr en síðar. Frá Liverpool um Hamborg til heimsfrægöar Paul McCartney hefur líklega vegnað best þeirra fjórmenninga eftir að leiðir skildu. Hljómsveit hans, Wings, nýtur gífurlegra vinsælda um allan heim og hljómplötur með lögum hans selj- ast í milljónum eintaka. Ringo Starr hefur einnig gert það gott, sungið inn á nokkrar hljómplötur og fengist við kvikmyndaleik. í einkalífi sínu virðist hann á hinn bóginn ekki hafa verið neinn lukkunnar pamfíll og hefur ýmis- legt orðið til að angra hann. George Harrison hefur einnig sent frá sér ágætar hljómplötur, og hann nýtur enn virðingar sem einn fremsti alþýðutónlistamaður veraldar. John Lennon hefur lík- lega verið mönnum einna meist ráðgáta, allt frá því Bítlarnir slitu samstarfi sínu, og raunar mun lengur. Hann hefur tekið sér ýmislegt furðulegt fyrir hendur, stundum verið í sviðsljósinu dag- lega vikum saman, en stundum horfið gjörsamlega, nú síðast í um það bil fimm ár. Þeim tíma hefur hann varið með fjölskyldu sinni í New York, en nú loks er væntan- leg hljómplata frá honum á ný og er hennar beðið með mikilli eftir- væntingu eins og jafnan er þegar Bítlarnir láta eitthvað frá sér fara. — Virðist þar ekki skipta máli, þótt þeir séu nú ekki lengur nein unglömb. Þeir Lennon og Starr færðust til dæmis báðir yfir á fimmtugsaldurinn á þessu ári! En hverjir eru þeir eiginlega, fjórmenningarnir frá bresku hafnarborginni Liverpool? Hvaða menn eru það sem náðu svo gífurlegum áhrifum í gegnum tónlist sína, að þeir urðu fyrir- mynd æskufólks í öllum heimsálf- um, áhrifavaldar í tísku og lifnað- arháttum, hálfguðir í lifanda lífi? Frá Liverpool Bítlarnir fjórir eru allir fæddir í ensku hafnarborginni Liverpool í síðari heimsstyrjöldinni. John Lennon fæddist hinn 9. október árið 1940, Ringo Starr 7. júlí sama ár, Paul McCartney 18. júní árið 1942 og George Harrison fæddist hinn 25. febrúar 1943. Það var ekki sérlega björgulegt um að litast í enskum hafnarborgum á þessum árum, og stríðið setti mjög svip sinn á allt umhverfið. Fjórmenn- ingarnir voru allir af fremur fátæku fólki komnir, en enginn þeirra leið þó skort í æsku. Upphaf samstarfs þeirra var það, að John Lennon hafði stofnað skólahljómsveit er hann nefndi The Quarrymen. Síðar hitti hann Paul McCartney sem gekk í hljómsveitina, og Paul kynnti John síðar fyrir einum skólafélaga sínum og vini, George Harrison. Er þeir luku skólanum árið 1959 höfðu þeir allir hug á að starfa áfram saman og að halda hljóm- sveitinni saman. Lennon hóf um þetta leyti nám í Tveir táningar, sem síðar urðu átrúnaðargoð unglinga um víða veröld: Ringo Starr og John Lennon. Breska hljómsveitin The Beatles — bresku Bítl- arnir — settu heiminn nálega á annan endann á sjöunda áratugnum er vinsældir þeirra voru hvað mestar. Enn þann dag i dag eru fjórmenningarnir sem skip- uðu hina vinsa lu hljóm- sveit fréttaefni um víða ver- öld. og heita má að fylgst sé með hverju fótmáli þeirra allan sólarhringinn af fréttaþyrstum hlaðamönn- um. I>ó eru nú um þessar mundir tíu ár síðan þeir John Lennon, Ringo Starr. Paul McCartney og George Harrison ha ttu sam- starfi sínu í vinsælustu hljómsveit allra tíma, The Beatles. En þótt hljóm- sveitin leystist upp, var þó ekki þar með sagt að fjórmenn- ingarnir væru sestir í helgan stein. Öðru nær. Þeir hafa allir látið meira og minna til sín taka á hljóm- listarsviðinu hver í sinu lagi. Oftar en einu sinni hafa þeir komið fram opinber- lega á hljómleikum eða á hljómplötum, tveir og jafnvel þrir saman, en aldrei allir i senn. Illjóm- sveitin The Beatles hefur komið saman hinsta sinni segja þeir, og sennilegast er að hún verði aldrei endurreist. The Beatles — eða The Silver Beatles eins og þeir þá kölluðu sig — á hljómleikum árið 1960. Hér eru þeir að „hita upp“ fyrir tónleika söngvarans Johnny Gentle, á tónleikaferð um Skotland.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.