Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 17

Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 17
MORGUNBLAjfflÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 17 áhrifum en þeim sem verið er að prófa. Lítum nú aðeins á töflu þá sem minnst var á áðan og birtist með viðtali við Davíð Gunnarsson í Morgunblaðinu þann 18. mars síðastliðinn. SJÁ MYND 11 Þarna er gert ráð fyrir því, að allir legudagar Landspítalans, 137.127 fengjust greiddir á sama verði og legudagar Borgarspítal- ans. Með þessum útreikningi hefði síðan orðið rekstrarafgangur upp á 467,6 milljónir. Lítum nú aðeins nánar á dæmið. Á þessari mynd SJÁ MYND III sést hvernig dæmið kemur út ef legudagar Hátúns eru reiknaðir sambærilegir við legudaga ann- arra hliðstæðra stofnana. Á gjaldahliðina vantar skrifstofu- kostnað. Meðan daggjöld voru notuð voru 40% af kostnaði við rekstur skrifstofu ríkisspítalanna reiknaðar Landspítalanum, þann- ig að þarna bætast við 112 millj- ónir og rekstrarkostnaður yrði því 8.125 milljónir. Tekjumegin eru sértekjur óbreyttar. Legudagar í Hátúni eru samvkæmt upplýsing- um Sigurðar Þórðarsonar 24% dýrari en legudagar á Sólvangi í Hafnarfirði. Samkvæmt því hefði meðallegudagskostnaður á Há- túnsdeild átt að vera 22.578 kr. árið 1979 og legudagarnir 23.389 þannig að tekjur af legudeild Hátúns hefðu átt að vera 528,1 milljón. Dagdeild er með 4.710 daga og samkvæmt nýlegri ákvörðun daggjaldnefndar um slíka þjónustu í Hafnarbúðum, umreiknað til verðlags ársins 1979 hef ég áætlað kostnað 6.600 kr. og tekjur þess vegna 31,1 milljón. Landspítalinn hefði síðan haft sömu tekjur og Borgarspítalinn þ.e.a.s. 56.941 kr. á dag og það margfaldað með legudögum hans hefðu tekjurnar orðið 6.028,2 milljónir. Samtals eru þetta því 7.444,4 milljónir og vantar þvi upp á 685,1 milljón er hefði þá orðið rekstrarhalli ársins 1979. Mismunurinn í þessu dæmi er einfaldlega 1150 milljónir króna. Daggjald Landspítalans hefði samkvæmt þessu orðið að vera 63.225 kr. á móti daggjaldi Borg- arspítalans sem var 56.941 kr. Lítum enn á töflu sem Sigurður Þórðarson birti með grein sinni í Morgunblaðinu 29. maí sl. SJÁ MYND IV Þar er greint frá sjúklinga- fjölda, meðallegudögum og kostn- aði per legudag sjúkrahúsanna þriggja og er fróðlegt að líta aðeins nánar á þá töflu. Ef þessar tölur eru athugaðar, kemur í ljós að sjúklingajöldi og meðallegutími áranna 1977 og 1979 er fenginn með því að draga frá sjúklinga- fjölda Hátúnsdeildar og legudaga- fjölda og þar með meðallegutíma. Þar stendur sem sagt Landspítal- inn sjálfur án Hátúns eftir. En þegar kemur að kostnaðarhliðinni, þá er Hátúnsdeildin allt í einu komin inn í dæmið og skýringin á þessari glæsilegu útkomu er ein- faldlega sú, að lækkun legudags- kostnaðar hefur orðið til við það, að legudagar Hátúnsdeildar eru teknir með þannig að meðaldag- kostnaður hlýtur að lækka veru- lega. SJÁ MYND V Ef við lítum síðan á sömu töflu eftir að hún hefur verið leiðrétt þannig að annars vegar stendur Landspítalinn með Hátúni og hins vegar Landspítalinn án Hátúns, sjáum við hvernig dæmið kemur út. Á þessu sjáum við að kerfi hinna föstu fjárlaga hefur ekki á neinn hátt stuðlað að lækkun rekstrarkostnaðr Landspítalans. Það er röng fullyrðing að rekstr- arkostnaður Landspítalans hafi hækkað minna en rekstrarkostn- aður t.d. Borgarspítala. Það er skoðun mín, að fjár- mögnun sjúkrahúsa hvort heldur er með daggjaldakerfi eða föstum fjárlögum, hefur sáralítil eða eng- in áhrif á rekstrarkostnað sjúkra- húsa. Hjálparsveit skáta held- ur áttavita- námskeið EINS og undanfarin 14 ár gengst Iljálparsveit skáta i Reykjavik fyrir námskeiði i meðferð átta- vita og landabréfa fyrir ferða- menn. Á námskeiðunum verða einnig veittar upplýsingar um ferðafatnað og ferðabúnað al- mennt. Ætlunin er að halda 2 nám- skeið. ef næg þátttaka fæst. Hið fyrra verður 22. og 23. október nk. en hið síðara 29. og 30. október. Hvort námskeið er tvö kvöld. Fyrra kvöldið er meðferð áttavita og landabréfa kennd og notkun æfð innandyra. Síðara kvöldið er veitt tilsögn í ferðabúnaði og síðan farið í stutta verklega æfingu rétt út fyrir bæinn. Þátttakendum verður ekið til og frá æfingar- svæðinu í bifreiðum HSSR. Nám- skeiðin verða haldin i húsnæði hjálparsveitarinnar í kjallara Ármúlaskóla, Ármúla 10—12, og hefjast kl. 20.00 bæði kvöld. Þátt- tökugjald er kr. 2.000. Nánari uppiýsingar er að fá í Skátabúð- inni við Snorrabraut, sími 12045. Þar liggur einnig frammi þátt- tökulisti fyrir þá, sem ætla að taka þátt í námskeiðinu. Á þessi námskeið eru allir velkomnir, sem áhuga hafa á að læra notkun áttavita og landa- bréfa, eða vilja hressa upp á og bæta við kunnáttu sína. Er athygli vélsleðamanna, skíðagöngumanna og annarra ferðamanna, sem ferð- ast um fjöll og firnindi, sérstak- lega vakin á þessum námskeiðum. Undanfarin ár hafa námskeið þessi verið fjölsótt og fer það von Hjálparsveitar skáta að svo verði einnig nú. Því það orkar ekki tvímælis að góð kunnátta í með- ferð áttavita og landabréfs, ásamt réttum útbúnaði, getur ráðið úr- slitum um afdrif ferðamanns, ef veðrabrigði verða snögg. (Fréttatilkynning frá HSSR.) Farandverka- fólk mót- mælir sam- þykkt VSÍ BARÁTTUHÓPUR farandverka- fólks lýsir i fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu barst i gær, furðu sinni á þeirri samþykkt 60 manna sambandsstjórnar VSÍ, að það geti ekki gengið að umra'ðu- grundvelli sáttasemjara, vegna þess að hann geri ráð fyrir, _að farandverkafólk fái meira en heimafólk“, eins og það er orðað i fréttatilkynningunni. Síðan segir: „í örvæntingar- fullri tilraun sinni til að viðhalda stríði á vinnumarkaðinum, reynir VSI nú að kljúfa samstöðu verka- fólks með því að koma af stað deiium á milli farandverkafólks og heimafólks." Gleymum ekki geðsjúkum: K-lykillinn seldur í dag í DAG, laugardag. mun Kiwanis- hreyfingin á íslandi gangast fyrir fjársöfnun undir kjörorðinu „Gleymum ckki geðsjúkum“ með sölu á K-Iyklinum. Verður gengið með lykilinn í hús um allt land ug hann einnig seldur á götum úti. Vonast Kiwanismenn eftir góðum undirtektum almennings en að þessu sinni safna þeir fyrir endur- hæfingarheimili handa geðsjúkum sem er að sögn geðlækna mjög aðkailandi verkefni. í tilefni af söfnuninni gengu Guðmundur Óli Ólafsson, umdæmisstjúri Kiwanis- hreyfingarinnar í Reykjavik, og Jón K. ólafsson, formaður K-nefndarinnar. á fund forseta íslands, Vigdisar Finnbogadúttur, og afhentu forsetanum fyrsta K-lykilinn. Námskeiöin er fyrir konur og karla og standa í: 24 vikur. jan.—júní 20 vikur: ágúst— des. 40 vikur: ágúst — maí. • Hússtjórnarfræöi • Fjölskylduráögjöf • Innanhússarkitektúr • Valfög t.d. leikfimi, polstulrnsálning, vélrit- un, danska, reikningur, tungumál. Góöir atvinnumöguleikar. Sandiö eflir bæklingi. HUSHOLDNINGSSKOLE HOLBERGSVE J 7.4180 SOR0 03 63 01 02 • Kiraten Jensen Sýning á lömpum 16. okt. til 8. nóv að Síðumúla 20. Hönnuður Poul Henningsen PH 4/3 Þ\rrm*l 40 »m h*ð l*J cm HUr. hvitur. rauðgulur \W\ lOt' w*tt louis poulsen «pol hf. Siöumúla 20 Rvk. S. 36677 Strandgötu 19 Akureyri S. 24069 Viljum vekja athygli á að við getum afgreitt af lager togvíra frá „Halls Barton“, 3'/2“ rétt og rangsnúna. Ennfremur eigum við flestar gerðir og sverleika af kranavírum sem við afgreiðum af öllum lengdum. Loks minnum við á að við eigum á lager tugi kílómetra af vinnuvírum í öllum sverleikum á bilinu 3 mm — 29 mm þvermál, sem við hand- eða vélsplæsum eftir óskum viðskiptavina okkar. Símar 27055 — 27059 INGVAR & ARI sf. Hólmsgötu 8a, Örfirisey, Reykjavík K0SNINGASKRIFST0FA stuöningsmanna sr. Árna Bergs Sigur- björnssonar er í Þróttheimum viö Holta- veg. Upplýsingar og bílar í síma 82817. SAMEINUMST UM LÖGMÆTA KOSNINGU SR. ÁRNA BERGS SIGURBJÖRNSSONAR Studningsmenn. Gleymum ekki geðsjúkum Kaupið lykil 18. október

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.