Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.10.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 27 Krútt- kringlur á markað í Reykjavík KRÚTT-kringlur, sem framleiddar hafa verið um árahil á Blönduósi og verið fáanlegar víða um land, eru nú fáanlegar í fyrsta sinn á höfuðborgarsvæð- inu. Óskar Húnfjörð, hak- arameistari. sagði í sam- tali við Mb!.. að fyrst um sinn yrðu kringlurnar að- eins fáanlegar í Hagkaup. Vörumarkaðinum og ein- staka verzlunum Sláturfé- lagsins, en hann stefndi að fullri dreifingu síðar meir. Óskar sagði, að Krútt- kringlur hefðu verið framleidd- ar allt frá árinu 1968 og þær væru reyndar það eina sem fyrirtækið framleiddi í dag. „Það er mun hagkvæmara, að einbeita sér að einum til tveim- ur hlutum og ná árangri með þá,“ sagði Óskar. „Kringlurnar eru nú boðnar í nýjum endurbættum umbúðum, sem bæði gera það að verkum að kringlurnar brotna ógjarnan í flutningi og óhreinindi komast ekki að þeim,“ sagði Óskar ennfremur. Óskar sagði, að alls hefðu verið framleiddar á aðra milljón kringla á síðasta ári. Þá kom það fram hjá Óskari, að yfir sumartímann vinna hjá fyrirtækinu 15 manns, en fer niður í 10 þegar fæst er. „Það eru engin rotvarnarefni í kringl- unum og þær eru bakaðar úr hveiti, sem ekki er klórþvegið og í því sambandi er vert að geta þess, að klórþvegið hveiti hefur verið bannað í nokkrum lönd- um,“ sagði Óskar ennfremur. Fyrirtækið hefur í samráði við Iðntæknistofnun íslands þróað svokallaðan „tímaliða" sem notaður er til að stýra ullar- þvottavélum. Með tímaliðanum má ráða heildarþvottatímanum og fleiru með mikilli nákvæmni. Örtölvutækni hefur um nokk- urt skeið framleitt olíunotkun- armæla, sem vcru hannaðir í samvinnu við LIU, sem gefa skipstjórnarmönnum tækifæri Olíunotkunarmælir frá Örtölvu- tækni. til að fylgjast mjög nákvæmlega með eldsneytisnotkun á hverjum tíma. Þessum mælum hefur þeg- ar verið komið fyrir í liðlega 30 íslenzkum skipum. Það kom fram að síðustu hjá þeim félögum, að þeir teldu framtíðina nokkuð bjarta hjá fyrirtækinu, enda miklar og örar framfarir á sviði rafeindabúnað- ar, og því mikið starf framund- an. Verðlaunahrúturinn Þorri frá Mávahlið i Fróðárhreppi. sonur Rúts frá Guliberastöðum og dóttursonur Soldáns á Hesti i Borgarfirði. Ljósm.: Ólafur Bjarnasun. Hrútasýning á SnæfelLsnesi: Þorri frá Mávahlíð bar af öðrum hrútum Ólafsvík. 17. október 1980. HÉRAÐSSÝNING var haldin á hrútum i Snæfeilsnes- og Hnappadalssýslum nú nýiega, eins og þegar hefur verið frá skýrt i Morgunblaðinu. Alls fengu tuttugu hrútar heiðurs- verðiaun, og voru i þeim hópi margir glæstir gripir. Einn þótti þó bera af, en það var veturgam- all hrútur frá Mávahlið i Fróð- árhreppi i eigu Þorsteins og Leifs Ágústssonar bænda þar. Hrúturinn heitir Þorri, og er veturgamall sem fyrr segir. Þroski hans og vænleiki er með ólíkind- um. Hann vegur 101 kg, brjóstmál er 115 cm, spjaldbreidd er 28 cm og fótleggur er 125 mm. Að allri byggingu þykir Þorri einnig mjög fáguð kind. Faðir Þorra er Rútur frá Gullberastöðum í Borgarfirði, en móðir er frá Mávahlíð, undan Soldáni frá Hesti. Þeir Þorsteinn og Leifur áttu einnig besta kollótta hrútinn á sýningunni, en þrír hrútar þeirra fengu allir viðurkenningu, auk þess sem þeir eiga tvo eldri hrúta sem áður hafa fengið slík verð- laun. Það kemur engum á óvart að hrútar frá Mávahlíð nái þessum árangri, því fjárbú þeirra bræðra er meðal þeirra bestu sem þekkj- ast og marga ber að garði í Mávahlíð til að sjá fé er gleður augað. Alls hlutu sex hrútar meira en 85 stig á sýningunni, en Þorri varð sem fyrr segir efstur, með 91 stig. Þetta er vissulega glæsilegur ár- angur, sem þakka ber fjárbændum og Leifi Jóhannessyni dýralækni, sem lagt hefur búfjárræktinni mikið lið. - Helgi. Frá lögreglunni: Vitni vantar að ákeyrslum Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að ákeyrslum í borginni. Þeir, sem veitt geta lögreglunni upplýsingar eru beðnir að hafa samband við deildina hið fyrsta i sima 10200. Þann 3. 10. sl. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R- 9308, sem er Volkswagen fólks- bifreið ljósblá að lit. Átti sér stað frá kl. 14.00 til 18.30 þennan dag. Skemmd er á afturhöggvara. Þann 9. 10. sl. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina K-284, sem er Subaru fólksbifreið blá að lit. Átti sér stað frá kl. 17.00 til 18.50 þennan dag við hús nr. 25 við Bergþórugötu. Skemmd er á vinstri hlið og er brún málning í skemmdinni. Trúlega hefur tjón- valdur verið á leið vestur götuna og er hægri hlið þeirrar bifreiðar skemmd. Þann 8. 10. sl. var ekið á bifreiðina G-14344 sem er Datsun fólksbifreið grá að lit á bifreiða- stæði við Landspítalann. Átti sér stað frá kl. 09.30 til 17.30. Skemmd er á vinstra framaurbretti og svunta skemmd. Þann 9.10. sl. varð árekstur með bifreiðum á Rauðarárstíg við Bún- aðarbankann og var annar aðili bifreiðin R-54764 sem er Austin mini en hinn aðilinn var amerísk bifreið blá að lit. Ökumenn ræddu saman og um einhvern misskiln- ing var að ræða og er þess óskað að ökumaður amerísku bifr. gefi sig fram við lögregluna. Þann 14. 10. sl. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R- 68952 sem er Simca sendibifr. ljósbrún að lit. Átti sér stað á bifr.stæði við Fæðingarheimilið við Eiríksgötu, frá kl. 23.30 þann 13. 10. og til 08.00 þann 14. 10. Skemmd er á vinstra afturaur- bretti, afturhöggvara og aftur- ljósi. Þann 3. 10. sl. var ekið á bifreiðina R-72010 sem er Cortina grá að lit. Átti sér stað við hótel Loftleiðir eftir kl. 20.00 þennan dag. Skemmdir á svuntu neðarlega að aftan hægra megin og er rauð málning í skemmd. Þann 10.10. sl. var aftur ekið á þessa sömu bifreið á bifreiðastæðinu við hótel Loft- leiðir. Átti sér stað frá kl. 16.00 til 21.00. Skemmd er á vinstra aftur- aurbretti neðarlega, höggvara- gúmmí er einnig rifið af. í skemmdinni er ljósblá málning. Leiðrétting í VIÐTALI við Helga Kristjáns- son í Leirhöfn, sem birtist í Mbl. þann 12. þessa mánaðar og frá- sögn af bókasafninu í Leirhöfn, kom meðal annars fram að safnið hefði að geyma öll íslensk leikrit fram að 1950. Nokkur eintök mun hinsvegar skorta upp á að svo sé. Ekki munu þau eintök vera nema örfá, en þessu er hér með komið á framfæri. Hafnarfjörður: Umferðarfræðsla í kaupfélaginu Miðvangi DAGANA 20.—30. október gengst Kaupfélag Hafnfirðinga fyrir umferðarviku í verzlunar- miðstöðinni i Miðvangi i sam- vinnu við ýmsa aðila. Margs konar fræðslu- og kynningar- starf verður í verzluninni þennan tíma. Verður þar fjallað um notkun endurskinsmerkja og börnin í umferðinni, vetrarakst- ur, notkun bílbelta, slysahjálp o.fl. Lögreglan í Hafnarfirði, klúbb- urinn Öruggur akstur í Hafnar- firði og Samvinnutryggingar, Slysavarnafélag Islands og Slysa- varnadeildin Fiskaklettur og Hraunprýði í Hafnarfirði standa að kynningunni í kaupfélaginu. Verða fræðsluþættir í verzluninni kl. 16.00 og aftur kl. 17.15 mánu- daginn 20. okt., miðvikudaginn 22., þriðjudaginn 28. okt. og fimmtu- daginn 30. okt. SÉRSTÖK sjávarréttavika hef- ur verið á Esjubergi sl. viku þar sem boðið hefur verið upp á 50 sjávarrétti. Hefur þessari sjáv- arréttakynningu Esjubergs ver- ið vel tekið, en veitingasalurinn er sérstaklega skreyttur ýms- um hlutum tengdum sjónum. Meðal rétta, sem eru á boðstól- um. er lax. silungur, lúða, skötuselur, gellur, skel- fiskréttir, margs konar sildar- réttir og fleira og fleira, en margir réttanna eru matreiddir á nýstárlegan hátt og bornir fram á stóru hlaðborði þar sem matargestir geta sótt föng að vild. Matsveinar Esjubergs eru matargestum til trausts og halds til þess að velja úr hinum fjölmörgu réttum, en konan fremst á myndinni er að velta vöngum yfir sildarréttunum. I.josmynd Mbl. RAX Bessi Bjarnason, Þórhallur Sigurðsson og Guðrún Þ. Stephensen i hlutverkum sinum i Könnusteyprinum pólitiska. Þjóðleikhúsið: Könnusteypirinn pólitíski - fyrsta leikrit Holbergs frumsýnt á fimmtudag ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir nk. fimmtudag, 23. október gaman- leik eftir Ludvig Holberg og nefnist leikurinn Könnusteypir- inn pólitíski og er verkið i þýðingu dr. Jakobs Benedikts- sonar. Þetta er þriðja verk Hol- bergs, sem Þjóðleikhúsið setur upp, en Æðikollurinn var sýndur 1954 og lék þá Haraldur Björns- son tiltilhlutverkið og Jeppi á Fjalli var á fjölunum 1967 og lék Lárus Pálsson Jeppa. Könnusteypirinn pólitíski telst vera fyrsta leikrit Holbergs og var á sínum tíma, 1722, fyrsta frum- samda danska leikritið á dönsku leiksviði. Leikurinn snýst um könnussteypinn Hermann von Bremen, sem Bessi Bjarnason leikur. Eiginkonu hans leikur Guðrún Þ. Stephensen, en með önnur aðalhlutverkin fara Þór- hallur Sigurðsson, Baldvin Hall- dórsson, Sigurður Skúlason, Þrá- inn Karlsson og Viðar Eggertsson, sem leikur sitt fyrsta hlutverk í Þjóðleikhúsinu í þessu verki. Aðr- ir leikarar eru fjölmargir, leik- stjóri sýningarinnar er Hallmar Sigurðsson og er þetta fyrsta verkefni hans fyrir Þjóðleikhúsið. Leikmynd og búningateikningar gerði Björn G. Björnsson, Dóra Einarsdóttir gerir búningana og lýsingu annast Ásmundur Karls- son.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.