Morgunblaðið - 18.10.1980, Side 35

Morgunblaðið - 18.10.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 35 Oafsakanleg pennaleti Á þessu ári, nánar tiltekið 27. júní, voru liöin 50 ár frá stofnun Sambands ungra sjálfstæd- ismanna, sem í daglegu tali er kallaö SUS. Afmælisins var minnst meö veglegu hófi á Þingvöllum, en einmitt þar var sambandiö stofnaö. Nú hefur SUS sent frá sér vandað rit í tilefni hálfrar aldar afmælisins og ber þaö heitið „Hugmyndir ungra manna“. Umsjón með útgáf- unni höföu þeir Björn Hermannsson og Jón Ormur Halldórsson, en handbragö Ástmars Ólafssonar og Jóhannesar Long er á útliti ritsins. Auk ritgeróar um stefnumál og hugmyndir SUS í hálfa öld, ávarpa og afmæliskveðja eru þar áhugaverðar greinar eftir 15 unga sjálfstæó- ismenn, ennfremur skrá um stjórnir sambands- ins 1930—1980. Á bakhlið ritsins eru höfundamyndir, 15 ungir og fallegir piltar — engin ung kona úr röðum sjálfstæóismanna fyllir þann hóp. Engin þeirra virðist hafa haft tíma, tækifæri eða talið tilefni að grípa til beittasta vopns allra tíma, pennans, og setja hugsanir sínar og hugmyndir á blaö til aö hylla þróttmestu samtökin innan Sjálfstæö- isflokksins. Afsökun felst ekki í því, aö samkvæmt stjórnarskrá SUS var ein kona í fyrstu stjórninni Go síðan engin fyrr en 1971. i því felst einmitt brýningin. BjE. gangskör Umsjón: Björg Einarsdóttir RITNEFND Á RÖKSTÓLUM. Frá vinstri Ásdis, Björg, IngibjörK. MarKrét, Bessi (>k Jóna Gróa. Fjölskyldan í frjálsu samfélagi SJÁLFSTÆÐISKONUR Kefa út bók um fjölskylduna. í næstu viku kemur út bókin „Fjöl- skyidan í frjálsu samfélaKÍ" þar sem 24 höfundar rita um mál- efni fjölskyldunnar. Sala hefst á LækjartorKÍ 24. október. I apríl síðastliðnum kom fram sú huKmynd, að Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, gæfi út bók um fjölskyldu- og jafnréttismál. í ritnefnd vöidust Björg Einarsdóttir, formaður Hvatar, Jóna Gróa Sigurðar- dóttir og Ásdís J. Rafnar frá kvenréttindanefnd félagsins og Bessí Jóhannsdóttir og Ingibjörg Rafnar frá jafnréttis- og jafn- stöðunefnd og er Ingibjörg for- maður ritnefndar. Síðar kom Margrét S. Einarsdóttir, for- maður Landsambands sjálfstæð- iskvenna inn í nefndina fyrir þess hönd, enda stendur Land- sambandið ásamt Hvöt að útgáf- unni. Ákveðið var að útgáfudagur bókarinnar yrði 24. október, á 5 ára afmæli Kvennafrídagsins og stenst sú áætlun. Bókin verður kynnt fjölmiðlum í næstu viku og hleypt af stokkunum á Lækj- artorgi föstudaginn 24. október, en þá verða sjálfstæðiskonur með sölubás á torginu. Forsala hefur verið í formi áskrifta og geta þeir, sem það vilja, gerst áskrifendur með því að setja sig í samband við skrifstofuna í Valhöll í síma 82900 eða ein- hvern úr ritnefnd. Áskrifendur fá bókina á sérstöku útgáfuverði og gildir það verð einnig á Lækjartorgi fyrsta söludag. Efni bókarinnar „Fjölskyldan í frjálsu samfélagi" skiptist í 5 aðalkafla, en alls rita 24 ein- staklingar greinar um einstaka málaflokka. Taka hefði mátt á fleiri málum, er fjölskylduna varða, en einhversstaðar varð að setja mörkin eðli málsins sam- kvæmt. Bókin er sett og prentuð hjá ísafoldarprentsmiðju og hefur Kristján Hjaltason séð um útlit hennar. Hvöt mun fylgja útkomu bók- arinnar eftir með félagsfundi mánudaginn 27. okt. og verða þá meðal annars pallborðsumræður um hlutverk fjölskyldunnar í nútímasamfélagi. Konur og stjórnmál Það er víðar Guð en í Görðum — segir orðtakið og víst er um það, að umræðuefnið „Konur og stjórnmál" er í brennidepli víðar en hér á landi, þó verið geti að á okkur brenni eldurinn einna heitast.’ Vestur-þýska kvenréttindafé- lagið Deutscher Frauenking hef- ur gefið út þetta veggklæði, sem hér birtist mynd af og er ekki laust við að í því felist hvatning til kvenna um að hefja nú þátttöku í opinberu lífi fyrir alvöru. - 18156. — Kvenréttindafélagið. Ilallveigarstöðum. Berg- lind hér. — Gangskör leitar frétta hjá félaginu. hvað er helst á döfinni hjá ykkur? — Tvö stórverkefni eru á dagskrá hjá okkur í þessum mánuði. Annars vegar er landsfundur Kvenréttinda- félagsins, sem haldinn er fjórða hvert ár og verður að þessu sinni 23. og 24. október næstkomandi. Þó að líklega sé ekki þörf á að minna á, að þann 24. eru 5 ár liðin frá kvennafrídeginum, þá vil ég nú samt gera það. 25. og 26. október ætlar Kvenréttinda- félagið að gangast fyrir ráðstefnu, sem mun vera einstök sinnar tegundar hér á landi en það er með konum í sveitarstjórnum. Við höf- um sent boð um þátttöku til allra þeirra kvenna sem kjörnar voru í sveitarstjórn í kosningunum 1978. Með þessari ráðstefnu vonumst við til að geta varpað ein- hverju ljósi á ýmis atriði sem varða konur og stjórn- mál. Dagskrá ráðstefnunnar er í stuttu máli sú, að við munum fá tvo sagnfræðinga til að gera grein fyrir að- draganda og þátttöku kvenna í sveitarstjórnar- málum. Þá munu 10 konur skýra frá því hvers vegna og hvernig þær hófu þátttöku í sveitarstjórnarmálum. Tvö aðalviðfangsefni ráðstefn- unnar verða síðan hvernig reynslu konurnar hafa af starfinu í sveitarstjórnum, t.d. hvernig þær skýra þá staðreynd að greinileg kynskipting er varðandi skipan sveitarstjórnar- manna í nefndir. Þá verður fjallað um hvort það sé æskilegt eða nauðsynlegt að hvetja konur til þátttöku í stjórnmálum og ef svo sé, þá hvernig best verði að því staðið. Við höfum boðið stjórn- málaflokkum að senda full- trúa á ráðstefnuna og auk þess ýmsum þeim aðilum sem fjalla um jafnréttis- og sveitarstjórnarmál. Við erum ákaflega bjart- sýnar á að þessi ráðstefna geti orðið árangursrík enda hefur komið í ljós að mikill áhugi virðist vera fyrir henni. Einhverjir kunna að furða sig á því að Kvenréttindafé- Berglind Ásgeirsdóttir, varaformaður KRFÍ. lagið, sem stefnir að jafn- rétti og jafnri stöðu karla og kvenna á öllum sviðum þjóð- lífs, skuli gangast fyrir ráðstefnu með konum ein- göngu. Það er hins vegar mat okkar, að það hljóti að vera alvarlegt áhyggjuefni að aðeins 6,2% sveitar- stjórnarmanna séu konur. Konur virðast vera í sókn á flestum sviðum, nema í stjórnmálunum. Við álitum því vera nauðsynlegt að kalla saman til slíkrar ráðstefnu nú á miðju kjör- tímabili sveitarstjórnar- manna til þess m.a. að fá fram ástæður þess að stjórnmálaleg þátttaka kvenna er jafn lítil og raun ber vitni. Jóhann M. Krístjánsson: Rjúpan Rjúpan er ekki myrt til að seðja svanga heldur átvögl og sælkera, hún er aukaskammtur þeirra söddu. Fækkum slysunum, sem þessi Ijóti verknaður orsakar, með því að taka bráðina frá skyttunum, verstu óvinunum. Spörum kostn- að, fyrirhöfn og hættur, sem einstaklingar og tugir manna í leitar- og björgunarsveitum tak- ast á við, oft upp á líf og dauða, þegar þessir óíánssömu óvitar týnast. Alfriðum rjúpuna allt þetta ár og næsta. Rannsökum þá hvort stofninn er aflögufær. Setjum löggjöf um hvernig drápið skal framkvæmt, eins og þegar hefir verið gjört um slátrun búfjár. Tvísýnt er hvort handahófsskot af byssu eða riffli á svo hvikult mark sem fleygan fugl leiðir til bráðs dauða eða meiðsla, ef skotið er á sama hátt á hópa gætu kannski tveir af tíu steinlegið, en átta slasast, og heyja þannig dauða- stríð, örkumla kannski óralangan tíma. Við slíkum verknaði verður að setja ströngustu viðurlög. Hver getur svo, og það helst á jólum, étið svona fenginn mat? Hér verður siðmenningin að grípa í taumana, vísindin og dýraverndunarfélögin. Áskorun til ábyrgra Með tækninni er hægt að gera rjúpuna að alifugli eins og endur og hænsni. Hér er ekki rúm né tími til skýringa. Allar lífverur með heitt blóð, maðurinn, hvalurinn, selurinn o.fl., hafa líffæri til að geta tjáð sársauka með hljóðum, veini o.s.frv., en lífverur með köldu blóði, eins og fiskurinn, hafa ekki slík líffæri. Ekki er líklegt, að náttúran, svo hög sem hún er á „hönnun" afkvæma sinna, hefði gleymt því, ef hún hefði talið þau þurfa þeirra með í lífsbaráttunni. Siðmenningin plús frú Bardot, sú góða kona, eru komin langleið- ina með að friða hvalinn og selinn. Við Islendingar í gósenlandi kjöts- ins ættum að geta friðað rjúpuna í eigin landi. Það væri löðrungur á siðmenninguna að misþyrma rjúp- unni, þessari hvítu fjalladís meðal fallegustu heimasæta okkar fagra föðurlands. 10/10 1980

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.