Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 38

Morgunblaðið - 18.10.1980, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980 Minning um mœðg- ur frá Skuld í Vestmannaegjum Margrét Jónsdóttir Fædd 4. nóvember 1885. Dáin 29. september 1980. Guðriður EyKÍó Stefánsdóttir Fædd 4. aiíúst 1911. Dáin 10. október 1980. Allt lýtur tímans rás í lífi manna, en misjafnan sjó siglir hver ok einn og með ólíku hugar- fari. Þeir sem búa yfir styrku hugarfari og lífsglöðu eiga betur með en aðrir að sigla særokin í sólstafavindi, finna sér bjarta bletti í tilverunni og þannig var Eygló Stefánsdóttir, Skólavegi 13 í Vestmannaeyjum. Eygló fylgdi reisn og tvinnuðust þar saman margar gáfur, snilligáfa lista- mannsins og þess sem virðir það mannlega og gerir gott úr. Litið til baka yfir liðlega þrjátíu ár sér maður fyrir sér konu sem ávallt hlúði að, en æðraðist aldrei, sama hvað gekk á. Það lýsir ef til vill bezt yfirburðum Eyglóar að aldrei sagði hún styggðaryrði við peyja sem létu illum látum á Skólaveginum og Stakkó, ekki einu sinni þótt fyrirferðin á þeim væri eins og allt væri í hershönd- um. Hún hallaði aldreí orði á nokkurn mann, en byggði mál sitt rökum sem allir lutu. Gamansemi Eyglóar kom ekki með neinum látum, hún var sífelld og jöfn eins og eilífðin. Hún var nösk að finna broslega fleti og naut þess að gera góðlátlegt grín, bæði að sjálfri sér og öðrum. Það var því alltaf gott að hitta Eygló og maður fór betri maður til vegar. Spjallstundir í eldhúsinu hjá Eygló, nikk á götu, búðingssmakk á heimsins besta búðingi um áramótin, stundir í stofu hennar þar sem hún lék við píanóið svo að tign þess naut sín fulls, allt er þetta veganesti þeim sem eftir lifa. Veganesti sem unnt er að grípa í þegar tómarúm þess nei- + Eiginmaöur minn, ANDRÉSANDRESSON 'j vélstjóri, Flókagötu 16, er látinn. Rannveig Erlendsdóttir. t Hjartkær móðir okkar og tengdamóöir, GUÐBJÖRG HELGA JENSDÓTTIR, Bergþórugötu 43 B, andaöist í Hátúni 10 B, 16. október. Ólöf Gissurardóttir, Eiríkur Björnsson, Ragnar F. Guðmundsson, Bergljót Sveinsdóttir, Gústaf M. Guömundsson, Karitas Jónsdóttir, Dagmar Andersen. + Móöir okkar, ELÍSABET EGGERTSDOTTIR, Langeyrarvegi 2, Hafnarfiröi, andaöist í Borgarspítaianum aöfaranótt fimmtudagsins 16. október. Guðfinna Nikulásdóttir, ída Nikulásdóttir, Magnús Nikulásson, Ragnhildur Nikulásdóttir, Eggert Nikulásson. + Eiginkona mín, móðir og tengdamóöir, DAGMAR HELGADÓTTIR, Hamrahlíö 35, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 20. október kl. 1.30. Jón Haukur Guöjónsson, Guöjón Hauksson, Marlene og Helgi Tómasson. + Innilegt þakklæti færum viö öllum þeim, nær og fjær, er sýndu okkur samúö og vinarhug, sendu blóm og kansa, viö andlát og jaröarför mannsins míns, GUNNARS NÍELSSONAR, Hauganesi. Guö blessi ykkur öll. Helga Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir til allra, er auösýndu okkur vinarhug og samúö viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR frá Króki. Börn, tengdabörn og barnabörn kvæða ber að eins og gengur og gerist í mannanna lífi. Eygló og Ólafur Björnsson voru samhent hjón, en hann lézt fyrir aldur fram fyrir liðlegum tug ára, mannkostafólk þótt þau hefðu ólíka skaphöfn. Það var skemmti- legt að sjá Óla Björns smíða kommóður upp á danska vísu með fíngerðasta bróderíi í tré á verk- stæðinu niðri, en uppi á iofti,vann Eygló sínar stílhreinu og fáguðu hannyrðir. Marga spýtuna fengum við peyjarnir hjá Óla, en við urðum að færa rök fyrir því til hvers við ætluðum að nota hana, við urðum að hugsa, til þess að vinna okkur inn spýtuna. Þannig uppeldi veittu þau bæði. Ekkert var svo ómerkilegt að það mætti ekki vinna það upp í heild sem skipti máli, skildi eftir þroska í fari sínu. Síðasta áratuginn dvaldi móðir Eyglóar, Margrét Jónsdóttir, meira og minna hjá henni, háöldr- uð merkiskona. Tveimur dögum eftir að hún var til moldar borin í Landakirkjugarði var Eygló öll, í einu vetfangi svipt á braut. Það má því í orðsins fyllstu merkingu segja að þær hafi átt samleið til hins síðasta. Þær mæðgur voru mjög samrýndar og líkar að mörgu leyti. Margrét, sem var á nítugasta og fimmta aldursári þegar hún lézt, var mikil merkis- kona. Hún var hinn aflasæli skip- stjóri í stjórn síns heimilis, bóndi hennar aflakló til sjávar. Margrét stjórnaði lengst ævi sinnar óvenju stóru heimili af mikilli reisn. Hún var ekki langskólagengin en hrikalegur skóli hefur sú reynsla verið að missa þrjú barna sinn á einni og sömu vikunni. En skóli lífsins hefur lengst skilað ís- lenzkri þjóð og því býr þessi þjóð hvað bezt í heiminum í dag. Með Ijúfu geði sínu og fasi var Margrét ávallt eins og sólskinsbros. Það er flóð og fjara í öllu og nú er fjara við Skólaveginn, fjara í ranni Eyjanna við fráfall vinar. En þótt líf sé tekið með rótum, er ankerisfesti hugsunarinnar heil og hún hlúir að sárum trega til svipmikillar konu, því minningin um Eygló er eitt af því óhaggan- lega, Heimaklettur mannlífsins. Megi góður Guð styrkja þá sem eftir lifa. Dóra og Árni Johnsen Þau eru stundum skörp, skilin milli lífs og dauða. í gömlum ævintýrum er mannsævinni oft- sinnis líkt við kerti og endar maðurinn ævi sína, þegar kertið er útbrunnið. Önnur líking er sú um manninn með ljáinn, sem reiðir til höggs og leggur að velli hið lifandi gras. Báðar þessar samlíkingar eiga við þær mæðgur, Margréti Jónsdóttur frá Skuld í Vest- mannaeyjum og Eygló Stefáns- dóttur. Margrét lést hinn 29. sept sl. í hárri elli á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja.en Eygló dóttir hennar var kvödd héðan skyndilega og óvænt 11 dögum síðar eða hinn 10. þessa mánaðar. Verður nú rakinn í fáum orðum lífsferiil þeirra beggja. Margrét Jónsdóttir fæddist hinn 4. nóvember árið 1885 og voru foreldrar hennar Jón Ólafs- son og Guðfinna Egilsdóttir. Þar sem leiðir foreldra Margrétar lágu ekki saman ólst hún úpp hjá frændkonu sinni og manni henn- ar, þeim Guðrúnu Magnúsdóttur og Vigfúsi Guðmundssyni, fyrst * U 1 J 4 C IMJIOI 1' 1 to l.tUUK l. t. - austur í Þykkvabæ, en fluttist síðan með þeim til Reykjavíkur. Hinn 20. október árið 1906 giftist hún Stefáni Björnssyni frá Bryggjum í Landeyjum. Fyrstu tvö búskaparár sín bjuggu þau í Reykjavík, en héldu síðan til Vestmannaeyja, þar sem Stefán hafði reist íbúðarhúsið Skuld í félagi við Sigurð Oddsson. Stund- aði Stefán skipstjórn og útgerð frá Vestmannaeyjum um áratuga skeið. Hann lést árið 1957. Þau Margrét og Stefán eignuð- ust 7 börn og komust 4 þeirra á legg. Árið 1919 misstu þau þrjú barna sinna í sömu vikunni og má nærri geta, að það hefur verið þeim þungbær raun. Verða nú talin þau börn þeirra, sem náðu fullorðins aldri: Guðrún, fædd 1908, Guðríður Eygló, fædd 1911, Guðfinna, fædd 1923 og Kolbeinn, fæddur 1914, en hann lést fyrir nokkrum árum. Heimilin í Vestmannaeyjum, þaðan sem útgerð var stunduð, voru fjölmenn, því að á vegum útvegsbænda dvöldu oft skipverj- ar þeirra og aðrir þeir, sem sóttu til Vestmannaeyja á vertíðum. Reyndi því ekki síður á stjórn- kænsku húsmæðranna en eigin- manna þeirra á hafi úti. Heimilið í Skuld var enda mikið rausnar- heimili, sem orð fór af og annaðist Margrét það um 60 ára skeið eða fram til ársins 1970. Einn af skipverjum Stefáns, Magnús Þ. Jakobsson, vestur-skaftfellskur maður, ílentist í Skuld og dvaldist þar áfram eftir að Stefán Iést. En við lát Magnúsar árið 1970 brá Margrét búi og flutti til dætra sinna. Dvaldi hún hjá þeim til skiptis, en þó lengst hjá Eygló. Guðríður Eygló, eins og hún hét fullu nafni, fæddist hinn 4. ágúst árið 1911. í æsku nam hún ljós- myndun og starfaði nokkuð við þá ■ iðn á sínum yngri árum, en stundaði þar að auki verslunar- rekstur um nokkurra ára skeið í Vestmannaeyjum. Hinn 31. desember árið 1937 giftist hún ólafi R. Björnssyni húsgagnasmið frá Kirkjulandi í Vestmannaeyjum. Bjuggu þau Eygló fyrst þar hjá foreldrum Ólafs, en fluttust síðar að Kirkju- bóli. Skömmu fyrir 1950 hafði Ólafur reist þeim íbúðarhús við Skólaveg 13, þar sem einnig var verkstæði hans og verslunarhús- næði, og bjó Eygló þar síðan til dauðadags. Mann sinn missti hún eftir langvinn veikindi árið 1969. Þau Ólafur og Eygló eignuðust fjóra syni og eru þeir þessir: Stefán Björn, fæddur 1938, Guð- jón Bergur, fæddur 1945, Ólafur Örn, fæddur 1946 og Lárus Grétar, fæddur 1952. Þeir Stefán Björn og Ólafur Örn eru búsettir í Vest- mannaeyjum, en Guðjón Bergur og Lárus Grétar settust að í Hafnarfirði. Árið 1973 urðu þær mæðgur, Margrét og Eygló, að hrekjast undan jarðeldunum á Heimaey til meginlandsins og opnuðu þá hjón- in, Óskar Friðbjörnsson og Torf- hildur Sigurðardóttir, frænka þeirra, heimili 3Ítt fyrir þeim og settust þær þar að um stundarsak- ir. En hvert áfallið af öðru reið yfir. Skömmu síðar skemmdist nokkur hluti búslóðar Eyglóar, þegar ofviðri skall yfir vestanvert Suðurland og sjór komst í hús- næði það, sem þær mæðgður höfðu til umráða og yngsti sonur henn- ar, Lárus Grétar, stórslasaðist, er hann var við björgunarstörf í . X tvM 'U i J i i J J t/>, |i 4 4 i lii i u Vestmannaeyjum. Enginn sá Eygló bregða við þessi ótíðindi. Hún hélt æðruleysi sínu og glað- lyndi og ræddi fátt um. Hugur Eyglóar stefndi á ný heim til Eyja og þá um sumarið hófst hún handa við lagfæringar á húsi sínu. Um haustið hélt hún til Danmerkur á fund sonar síns, Guðjóns Bergs, sem þar var við nám. Skömmu eftir komuna þang- að tók hún að kenna sjúkleika, sem olli því, að hún varð að liggja rúmföst svo að mánuðum skipti. Þessi sjúkdómur varð ekki greind- ur fyrir víst, en Eygló náði aldrei sínum fyrri kröftum. Síðustu árin bjó Eygló í Vest- mannaeyjum og Margrét móðir hennar hjá henni, eða þar til heilsu hennar var tekið svo að hnigna á útmánuðum 1979, að ekki þótti annað fært en fela hana umsjón hjúkrunarliðs á Sjúkra- húsi Vestmannaeyja. Þar dvaldi hún síðan þar til hún lést hinn 29. fyrra mánaðar eins og áður segir, tæpra 95 ára að aldri. Margrét hlýtur þau eftirmæli, að hún hafi verið hljóðlát kona og ljúf í elli sinni og kvartaði aldrei, þótt henni tapaðist að mestu heyrn og líkamskraftar þyrru. Milli þeirra systra, Guðrúnar, Eygióar og Guðfinnu, var ætíð náið samband og höfðu þær styrk og gleði hver af annarri. Notuðu þær gjarnan samfundi sína til þess að rifja upp æskuminningar og var þá hlegið dátt að ýmsu því, sem á dagana hafði drifið. Svo var enn eftir útför Margrétar hinn 8. þessa mánaðar, að systurnar hitt- ust ásamt vinum og frændum og bar þá margt á góma. Eygló hafði þá fyrir nokkru kennt lasleika fyrir brjósti, og á greftrunardag móður hennar féll sá úrskurður lækna, að hér væri um að ræða kransæðastíflu á allháu stigi. Þó gekk Eygló glöð um beina á heimili sínu, þegar drukkið var erfi Margrétar, og grunaði víst engan, þegar gestir héldu þaðan um kvöldið, að þar hefði hún haldið kveðjusamsæti sitt. Daginn eftir hélt Eygló á Sjúkrahús Vestmannaeyja til rannsóknar og var henni þá létt í skapi. Líkti hún dvöl sinni þar við hótelvist, en Eygló hafði þá fyrr um sumarið farið til Ítalíu með Guðrúnu systur sinni og skemmtu þær sér eftir föngum og urðu ungár í annað sinn. En dauðinn kvaddi dyra fyrr en nokkurn varði. Eygló veiktist þá um kvöldið, eftir að hún kom inn á Sjúkrahús Vestmannaeyja og var hún flutt á gjörgæsludeild um miðjan næsta dag, þar sem hún lést skömmu síðar. í íslensku velferðarþjóðfélagi teljast 69 ár ekki hár aldur og enginn, sem þekkti Eygló, á létt með að sætta sig við brotthvarf hennar héðan. En minningin um skapfestu hennar, örlæti og ljúfa lund mun verða afkomendum hennar, vinum og vandamönnum styrkur og leið- arljós og þannig lifir hún áfram á meðal þeirra. Blessuð sé minning þeirra mæðgna, Margrétar og Eyglóar. Arnþór Helgason Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast i síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.