Morgunblaðið - 18.10.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ.LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1980
45
mörgu félagsmanna og nýtist í
þágu þeirra, beint eða óbeint.
Eignir samvinnufélaganna eru á
sama hátt sameign félagsmanna
og auka því ekki auð fárra ein-
staklinga." — Og nú skulu Þ.Þ. og
aðrir spurðir: Hvað er eign? —
Finnst mönnum það burðug
„eign“, sem er raunar einungis
tilkynning um bókhaldsfærslu
sem nefnist á samvinnumáli aukn-
ing reikningsinnstæðu félags-
mann»4 stofnsjóði félagsins, — en
enginn ráðstöfunarréttur fjár-
hæðarinnar fylgir?! — Stað-
reyndin er nefnilega sú að félags-
maður í samvinnufélagi „á“
stofnsjóðinn en ræður ekki yfir
honum. — Samvinnufélagið „á
stofnsjóðinn ekki“ samkvæmt lag-
anna hljóðan, en ræður yfir hon-
um nokkurn veginn óskorað sem
rekstrarfé, sem samkvæmt lögum
er skattfrjálst. Þannig eru þessar
„eignir" félagsmanna í samvinnu-
félögum lögbundnar, að mestu
leyti sem skattfrjálst ráð-
stöfunarfé samvinnufélaganna
sjálfra. — Með hugtakabrellum
má ýmsu til leiðar koma, — en
engar slíkar skattfvilnunarleiðir
eru opnar öðrum rekstrarform-
um en samvinnufélögum.
Einokunartilhneiging
— sunnanvörur/
norðanvörur
Og í beinu framhaldi af þessu
segir Þ.Þ. í leiðara sínum: „Hún
(samvinnuhreyfingin) hefur kom-
ið i veg fyrir að hér mynduðust
einokunarfyrirtæki á ýmsum svið-
um, en oft leiðir samkeppnin til
þess ef einkaaðilar eru einir um
hituna." — Og nú skal Þ.Þ.
spurður: Eigum við að gamni
okkar að fara, í huganum, í
hringferð um Iandið og skoða þau
fyrirtæki sem helzt gætu talizt
hafa á sér einokunarblæ, eða helzt
virðast hafa tilburði til að ná
einokunarmarkinu — og athuga í
leiðinni hver þessara fyrirtækja
kunni að vera samvinnufélög og
hver ekki. — I þessu efni væri
kannski freistandi að taka aftur
til umræðu dæmið margfræga um
alkunnugt stórveldi sem er sam-
vinnufélag í Eyjafirði, og er eig-
andi að mörgum iðnaðarverk-
smiðjum þar og enn fleiri verzlun-
um, — en bannar sölu iðnaðar-
vara í verzlunum. nema þeirra
vara sem eru framleiddar i eigin
verksmiðjum. — Og verður þá
aftur að spyrja: Finnst samskonar
einokunartilhneiging í fjölmörg-
um einkaverzlunum Reykvíkinga
og annarra sunnanmanna? — Eru
norðanvörurnar bannvara þar. á
sama hátt og sunnanvörurnar
eru bannvara fyrir norðan? —
Eða er það kannski ekki einokun
að mati Þ.Þ. og annarra vinnu-
manna ef samvinnufélag nær því
takmarkf sínu „að vera eitt um
hituna"?
Gagnrýni? — Árás?
Undirritaður játar að fram-
angreint má skilja, og á að skilja
sem gagnrýni á forréttindaað-
stöðu og einokunartilhneigingu
samvinnufyrirtækja, og skal nú
vænzt andsvara Þ.Þ., og verður
tekið eftir því hvort enn einu sinni
verður reynt að stimpla slíka
gagnrýni sem „árás á samvinnu-
hreyfinguna“.
Og að endingu þetta: Verður
betra að lifa á íslandi þegar
tilefnið er orðið ótvírætt, að bæta
essinu (S) fyrir framan nafn
landsins? — Þetta síðasta er ekki
gagnrýni.það er ekki árás. — það
er einföld spurning sem hverjum
manni ætti að vera hollt að velta
fyrir sér.
Með beztu kveðjum."
• Strætisvagna-
ferðir í
skíðalöndin
Unnandi skíðaiþróttarinnar
hringdi í Velvakanda og bað um að
þeim tilmælum yrði beint til
borgaryfirvalda að þau stæðu
fyrir reglulegum strætisvagna-
ferðum upp í skiðalönd i nágrenni
borgarinnar, a.m.k. í Bláfjöllin. —
Þetta er orðið knýjandi mál núna,
þegar bensínið er orðið svona dýrt.
Ég skora á borgarstjóra að sjá til
þess að eitthvað verði gert í
málinu. Rútuferðirnar þarna upp
eftir hafa verið bæði strjálar og
dýrar, ég tala nú ekki um þegar
heilu fjölskyldurnar bregða undir
sig betri fætinum. Ég hef kynnst
því erlendis, t.d. í Austurríki, að
ferðir í skíðalönd eru felldar inn í
leiðakerfi strætisvagna og þá er
einfaldlega sett grind aftan á
vagnana, þar sem skíðin eru
tryggilega geymd, og þegar á
staðinn er komið, tekur hver sín
skiði, mér sýndist þetta ekkert
mál þarna. Það er enn þá tími til
að taka þetta til athugunar fyrir
veturinn, borgarstjóri.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Varsjá í
Póllandi fyrr á þessu ári kom
þessi staða upp í skák þeirra
Sznapiks. Póllandi, sem hafði
hvítt og átti leik, og tékkneska
stórmeistarans Pribyl.
18. Bxe7! - Kxe7, 19. e6! - h6
(Ef 19. - fxe6 þá 20. Hxe&+! -
Rxe6, 21. Hxb7+ o.s.frv.) 20. exf7+
— Kf6, 21. Hxb7! og svartur gafst
upp, enda stutt í mátið.
HÖGNI HREKKVlSI
Nýjung í hárrúllum
Bæöi permanents-og lagningarrúllur
Engar spennur, engir pinnr
Þasgilegt, fljótlegt og
auðvelt í notkun
Fæst í verslunum um tand alft
Trésmiðir —
Húsbyggjendur
Spónaplöturnar og krossviöinn, sem þiö kaupið hjá
okkur getiö þiö sagað niöur í plötusöginni okkar og
þaö er ókeypis þjónusta.
Opið í kvöld
Gestir kvöldsins eru Magnús og Jóhann
ásamt Graham Smith (rafmagnsfiöla)
og Jónasi Björnssyni (ásláttarhljóðfæri).