Morgunblaðið - 07.12.1980, Síða 20

Morgunblaðið - 07.12.1980, Síða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980 Höfum til afgreiðslu strax SUZUKI TS50 og GT50E létt vélhjól. Hagstætt verð. — Hagstæöir greiðsluskilmálar. Suzuki-umboöiö Ólafur Kr. Slgurösson. Tranavogi 1. sími83499. GOLFDUKA-OG TEPPALÍM Laybond 1371 VI6 tilraunir okkar til framleiöslu á alhliða gólfdúka- og teppalimi höfum viö haft sam- vlnnu viö framleiöendur gólfdúka- og teppa. Árangurinn er Laybond 1371, sem hefur þegar getiö sér gott orö og staöist þær kröfur sem geröar eru i dag. Olíufélagið Skeljungur hf Verslunin Suöurlandsbraut 4, Simi 38100 og 38125. Birgöastöð viö Skerjafjörö, Simi 11425. i VAMPYR 4004 ryksugunni sameinast allir þeir kostir sem góð ryksuga þarf aö vera gædd, og meira til. Þessi nýja gerð er hljóölátari, auk þess sem sogkraftur hefur verið stóraukinn. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 verkstæðum litunarmeist- arans, var eftir þetta kall- aður gobelin. Jean Gobelin lést árið 1476, en synir hans héldu starfinu áfram. Um tvö hundruð árum síðar, í tíð Lúðvíks 14., varð mikil þörf fyrir gobelin til skreytinga í höllinni, og varð það til þess, að Col- bert, ráðherra konungs, keypti verksmiðju þá fyrir ríkið, sem Jean Gobelin hafði lagt grundvöllinn að. Þannig hefur hún svo verið rekin allar götur síðan. Aðrar verksmiðjur, sem einnig voru í opinberri eign, í Róm, Flórens, Munchen, Madrid og Brússel voru allar aflagðar. Það er ekki mikið vitað um líf litun- armeistarans Gobelins, en engu að síður hefur nafn hans svo sannarlega fengið fastan sess í sögunni. Þegar ,gobelin“ fékk nafn Kartöflugratin meö osti 750 gr af hráum kartöflum skornar í sneiðar. 125 gr bragðmikill ostur rifinn á járni. Þetta er síðan sett í lög í vel smurða ofnfasta skál, salti og pipar stráð yfir hvert lag. Síðan er hellt yfir einum dl af rjóma og tveimur af mjólk, álpappír settur yfir og bakað í ofni í ca. 20 mín. Þá er álpappír- inn tekinn af, osti stráð yfir og bakað áfram í 20 mín. eða þar til kartöflurnar eru orðnar meyrar. Rifnar kart- öflur í gratini 8 stórar kartöflur, hýðislausar, hráar, rifnar á járni. Saman við er blandað: einum smátt brytjuð- um lauk, einu smátt brytjuðu hvítlauksrifi, salti, pipar, tveim matsk. jurtaolíu, V4 tsk. rósmarín, 2V4 dl af rifnum osti. Sett í smurt ofnfast fat, brauðmylsnu stráð yfir ásamt smjörbitum, bakað í ofni við meðalhita í 30—40 mín. Sérréttur með hrásalati eða með- læti með kjöti eða fiski. Flestir þeir, sem til vits og ára eru komnir, þekkja vefnað, sem gengur undir nafninu „gobelin". Teppi með gobelin-vefn- aði eru þekkt frá fyrri öldum, í Egyptalandi, Grikklandi og Rússlandi hafa fundist ævagömul veggteppi handofin á þenn- an hátt. Á 13. og 14. öld voru miðstöðvar slíks vefn- aðar í borginni Arras í Frakklandi og síðar í Brúss- el. En þessi vefnaður varð eiginlega fyrst þekktur eftir að hann fékk nafnið „gobel- in“ um miðja 15. öld. Árið 1450, eða þar um bil, stofnaði litunarmeistarinn Jean Gobelin verkstæði í París, og þar var í fyrsta skipti ofið með lituðu ullar- garni, myndir eftir for- skrift Gobelins. Þessi fyrstu veggteppi þóttu svo óvenjulega falleg, að sá vefnaður, sem unninn var á Jean Gobelin wm - Borgljót Ingólfadóttir Kartöflur í matinn Ekki veit sú, er þetta ritar, hvort almennt er hafður léttari matur á heimilum, þegar líða fer á jólamánuðinn. Það er áreiðanlega gott að gera ráð fyrir slíku, svona til mótvægis við mikinn og þungan mat, sem yfirleitt tíðkast hérlendis á stórhátíðum. Menn geta orðið vel mettir af kartöfluréttum og öðrum jarðávöxtum og grænmeti og tilvalið að notfæra sér slíkan mat meðan fáanlegur er, jafn góður og raun ber vitni. Rifnar gulrætur og kartöflur V4 kg gulrætur, V4 kg kartöflur, 2 matsk. smjörlíki, ein eggja- rauða, 2 dl rifinn ostur, rjómi eða rjómabland. Gulrætur og kartöflur rifnar gróft á rifjárni og soðnar í litlu vatni þar til meyrar. Settar í smurt ofnfast fat. Hrært er saman mjúku smjörlíki, eggja- rauðu og osti, þynnt með græn- metissoði og rjóma, og hellt yfir grænmetið. Patið sett í ofninn í 10—15 mín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.