Morgunblaðið - 24.01.1981, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
19. tbl. 69. árg.
LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
David Owen
Breski Verkamanna-
flokkurinn:
Búist við
klofningi
London. 23. jan. — AP.
BRESKI Verkamannaflokkur-
inn efnir til sérstaks auka-
þings á morKun. lauKardaK-
Mikil innbyrðis átök eÍKa sér
nú stað i flokknum ok búast
marKÍr við, að til uppKjors
komi á þinKÍnu <»k jafnvel
klofninKs milli vinstri <>k ha'Kri
manna undir forystu David
Owens. fyrrv. utanrikisráð-
herra.
Helsta umræðuefnið á þing-
inu verður nýjar reglur um
formannskjör en hingað til hafa
þingmenn flokksins kjörið hann
úr sínum hópi. Verkalýðsfélög-
in, sem vinstri menn ráða flest-
um hverjum, vilja „færa valdið
til fólksins" og ráða sjálf mestu
um hver skipar formannsstöð-
una.
Michael Foot, leiðtogi V'erka-
mannaflokksins, hvatti í vik-
unni til sátta og skoraði á hægri
arminn að tryggja flokkslega
einingu. Ekki er búist við að
fulltrúar hinna hægfara innan
ftokksins yfirgefi flokksþingið
strax fyrsta daginn en frétta-
skýrendur telja, að ef sjónarmið
vinstri manna verði endanlega
ofan á muni um 20 af 268
þingmönnum Verkamanna-
flokksins segja sig úr honum.
Sjá nánar bls. 22.
Walesa hvetur til alls-
herjarverkfalls í dag
Varsjá. 23. jan. — AP.
LECIl Walcsa hvatti í dag félaga i
öllum deildum Samstöðu. hins
óháða vcrkalýðssambands. til að
lcggja niður vinnu á morgun, laug-
ardag. þrátt fyrir áskoranir stjórn-
valda um hið gagnstæða. t dag og i
Kter var mjög víða efnt til hálfs
dags verkfalls til að mótmæla
vanefndum stjórnvalda á fyrri
samningum.
Á fundi með félögum sinum í dag
sagði Lech Walesa, að „þar til pólska
stjórnin hefði komist að samkomu-
lagi við verkalýðsfélögin skyldu allir
laugardagar vera frídagar". Enn
sem komið er hafa stjórnvöld aðeins
viljað fallast á frí annan hvern
laugardag þó að samkomulagið frá í
ágúst sl. kveði á um annað.
í morgun var efnt til fjögurra
stunda verkfalls í Varsjá óg er talið,
að það hafi náð til 59 fyrirtækja og
stofnana. Þar á meðal voru starfs-
menn almenningsvagna, skrifstofu-
fólk og prentarar en verkfall þeirra
olli því, að málgagn stjórnarinnar,
stærsta dagblaðið í Varsjá, kom ekki
út í morgun.
Auk verkfallanna í Varsjá var
lögð niður vinna í a.m.k. fimm
öðrum héruðum í dag og í gær og
bændur efndu víða til mótmæla gegn
stjórnvöldum og kröfðust þess að fá
að stofna sín eigin félög.
í forsíðufrétt i Rauðu stjörnunni,
málgagni sovéska hersins, var í dag
sagt frá sameiginlegum „heræfing-
um“ pólskra og rússneskra her-
manna í Póllandi en ekki var tekið
fram hvar eða hvenær þær hefðu
farið fram. Talsmaður varnaráðu-
neytisins pólska tók hins vegar
þverlega fyrir það í dag, að þær
hefðu farið fram eða væru fyrirhug-
aðar. „Það standa engar heræfingar
fyrir dyrum í Póllandi," sagði hann.
Bandarísku gíslarnir:
Sálrænir kvillar og þunglyndi
af völdum einangrunarinnar
Wie«baden, 23. jan. — AP.
LÆKNAR. sem fylgjast mcð liðan
bandarísku gíslanna fyrrverandi.
sögðu dag, að sumir þeirra þjáðust
af sálrænum kvillum af völdum
fangavistarinnar auk þess sem þeir
bæru merki um barsmiðar og van-
næringu. Talsmaður irönsku
stjórnarinnar ug aðalsamninga-
maður hennar i gfsladeilunni, Bah-
zad Nahavi. hefur neitað þcssum
ásökunum og sagt, að gislarnir
væru „vanþakklátir“ menn, sem
„ekki skyldu hvað góðvild væri“.
Dr. Jerome Korcak, sem er yfir-
maður læknaliðsins, sem fylgist með
líðan gíslanna, sagði að sumir ættu
erfitt með svefn og fyndist á stund-
um sem þeir væru enn á valdi
mannræningjanna í Teheran. Marg-
ir hefðu verið barðir og einn gísl-
anna, sem misst hefði meðvitund í
barsmíðunum, væri enn með hellu og
stöðugt suð fyrir eyrum.
Að sögn lækna hafa sumir gísl-
anna ekki enn áttað sig fyllilega á
þeim umskiptum, sem orðið hafa á
högum þeirra eftir margra mánaða
einangrun, eru þunglyndir og halda
FAGNAÐARFUNDUR — Donald Hohman, einn bandarísku gíslánna, sést
hér í faðmlögum við konu sína í sjúkrahúsi bandaríska hersins í Wiesbaden í
fyrrakvöld. Hohman var fenginn nýr einkennisbúningur skömmu eftir
komuna til Wiesbaden, sem var númeri minni en sá sem hann bar fvrir rúmu
ári, og jafnframt hækkaður í tign. AP-símamynd.
sem mest kyrru fyrir á herbergjum
sínum. Dr. Jerome Korcak sagði, að
margir fanganna bæru merki um
vannæringu og vítamínskort enda
hefðu sumir lést um meira en 30 kíló.
I fréttum ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar bandarisku í gærkvöldi sagði,
að það hefði verið vestur-þýska
Snorri Hjartarson hlýtur bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
Miðlar á skýran hátt per-
sónulegri náttúruskynjun
TILKYNNT var i Reykjavik í kht að Snorri Hjartarson, Ijóðskáld
hlyti bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1981. Verðlaunin
verða afhent við athöfn á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmanna-
höfn 3. mars nk.
Nefnd á vegum Norðurlandaráðs sem úthlutar verðlaununum
hélt fund sinn í Reykjavik að þessu sinni. Formaður nefndarinnar,
Norðmaðurinn Leif Maehle, tilkynnti ákvörðun hennar á fundi
með blaðamönnum i gær. Snorri var sjálfur viðstaddur fundinn.
Maehle sagði að nefndin hefði ráðs. Ólafur Jóhann Sigurðsson
orðið sammála um að veita
Snorra Hjartarsyni verðlaunin
fyrir bók hans „Hauströkkrið
yfir mér“ sem kom út árið 1979.
Verðlaunin nema 75.000 dönsk-
um krónum. í ummælum nefnd-
arinnar segir að bókin sýni að
Snorri hafi öruggt vald á að
miðla á skýran hátt persónulegri
náttúruskynjun sem ummyndist
í víða veraldarsýn.
Snorri Hjartarson er annar
Islendingurinn sem hlýtur bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
hlaut verðlaunin fyrir 5 árum.
Maehle kvaðst ánægður yfir því
að íslenskt ljóðskáld fengi verð-
launin að þessu sinni. Þau væru
ekki mörg ljóðskáldin sem þau
hefðu hlotið, en þau væru þeim
mun sérstakari.
Njörður P. Njarðvík er einn
íslensku nefndarmannanna. Á
fundinum sagði hann það vera
sérstaka ánægju fyrir sig og
aðra Islendinga í nefndinni að
Snorri skyldi hljóta verðlaunin.
Hann sagði að bók hans hefði
Snorri Hjartarson.
Lktem. Kristinn.
verið lögð fram með efasemdum,
ekki vegna bókarinnar sjálfrar
heldur vegna þess hve erfitt er
að þýða ljóð yfir á önnur tungu-
mál svo vel fari. Inger Knutson
þýddi bókina á sænsku fyrir
aðra nefndarmenn.
Snorri Hjartarson er fæddur í
Borgarfirði árið 1905 og ólst þar
upp. Hann hélt til Kaupmanna-
hafnar árið 1930 og lagði þar
stund á listfræði. Árið 1931 fór
hann til Óslóar og hélt þar
áfram námi í eitt ár.
Snorri varð bókavörður við
Borgarbókasafnið í Reykjavík
árið 1939. Hann var yfirbóka-
vörður við safnið frá árinu 1943
til 1966.
Snorri hefur skrifað eina
skáldsögu, „Hátt flýgur hrafn-
inn“. Hún var skrifuð og gefin út
á norsku árið 1934. Ljóð Snorra
hafa komið út í 4 bókum. Kvæði
1944, Á Gnitaheiði 1952, Lauf og
stjörnur 1966 og Hauströkkrið
yfir mér 1979. Urval af ljóðum
hans var gefið út í Osló árið 1968
í þýðingu Ivars Orglands. Bar
bókin heitið „Lyng og kraker".
Sama ár var bókin „Lyng og
stjörnur" tilnefnd til bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs.
stjórnin, sem „opnað hefði Banda-
ríkjamönnum leið til að leysa gísl-
ana úr haldi". Að sögn Pierre
Salingers, fréttamanns ABC, var það
í ágúst eða september sl. að vestur-
þýski sendiherrann í Teheran gat
talið Tabbatabbaii, mág sonar
Khomeinis, á að beita áhrifum
sínum við Khomeini og fá hann til að
semja við Bandaríkjamenn.
I fréttum ABC var ennfremur sagt
frá því, að Kurt Waldheim aðalritari
SÞ, hefði „misst kjarkinn“ þegar
hann var staddur í Teheran snemma
á síðasta ári og breytt þeim skila-
boðum sem hann átti að flytja
Irönum frá Bandaríkjastjórn.
Bandaríkjamenn höfðu fallist á
skipan nefndar til að rannsaka
umsvlf þeirra í íran á dögum
keisarans að því tilskildu að gíslarn-
ir fengju fyrst að fara frjálsir ferða
sinna, en Waldheim bauðst til að
senda nefnd á vegum SÞ til Teheran
án nokkurra skilyrða.
Salinger, fréttamaður ABC, sagði,
að Waldheim hefði óttast um öryggi
sitt þegar hann var staddur í
Teheran og með þessu framferði
sínu hefði hann eyðilagt eina tromp
Bandaríkjamanna á þessum tíma. Á
fréttamannafundi í dag neitaði
Waldheim þessum ásökunum og
sagði að tilraunir SÞ hefðu farið út
um þúfur vegna afstöðu írönsku
stjórnarinnar.
Gert er ráð fyrir því að banda-
rísku gíslarnir snúi heim á sunnudag
og þeir muni hitta fjölskyldur sínar í
háskóla bandaríska hersins í West
Point.
Danir mót-
mæla veiðum
Kaupmannahöfn. 23. jan. — AP.
VESTUR-Þjóðverjar virtust 1 dag
ætla að láta undan síga og taka til
Kreina áköf mótmæli dönsku stjórn-
arinnar við þeirri einhliða ákvörð-
un vestur-þýskra stjórnvalda að
leyfa 12 verksmiðjuskipum að fara
á þorskveiðar við Austur-Grænland.
Á blaðamannafundi í Kaupmanna-
höfn í dag sagði Kjeld Olesen, danski
utanríkisráðherrann, að honum
hefðu nú borist þær upplýsingar frá
Bonn, að vestur-þýskir togaraeigend-
ur hefðu skipað skipum sínum að
snúa við, en ekki er vitað hvort þau
voru komin á miðin.
I mótmælum dönsku stjórnarinnar
sagði, að einhliða ákvörðun Vestur-
Þjóðverja væri brot á samningum
EBE-ríkjanna enda hefðu enn ekki
verið gerðir neinir samningar um
fiskveiðar á Grænlandsmiðum. Ole-
sen sagði, að Danir hefðu áskiliö sér
rétt til að gripa til „viðeigandi
ráðstafana".