Morgunblaðið - 24.01.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
5
i
HJÁ OKKUR SKOÐIO ÞIÐ BÍLANA INNI
ur í vor
NÝR TOGARI bætist i flota
landsmanna með vorinu. en þar
er um að ræða togara, sem aðilar
á Raufarhöfn og Þórshöfn hafa
sameinast um að kaupa. Er hann
keyptur notaður frá Norejfi <>K
standa fyrir dyrum nokkrar
breytintrar á honum áður en
hann kemur til landsins. Leitað
hefur verið tilboða í breytinKarn-
ar, sem munu trúlexa laka um 2
mánuði.
Eigandi togarans er IJtgerðarfé-
lag Norður-Þingeyinga og eru eig-
endur þess Þórshafnarhreppur,
Hraðfrystistöðin og Kaupfélagið
þar, útgerðarfyrirtækið Jökull á
Raufarhöfn og Svalbarðshreppur.
Samkvæmt. upplýsingum frétta-
ritara Mbl. á Þórshofn mun togar-
inn gerður út í samvinnu þessara
tveggja staða, en gert er ráð fyrir
að 75% aflans verði lögð upp í
Þórshöfn. Togarinr. cr keyptur af
fyrrgreindum aðilum m.a. með
ríkisábyrgð á norsku láni og
aðstoð byggðasjóðs.
—Þessi togari hefði þurft að
koma hingað strax í Vet'jr,- því hér
er nú atvinnuleysi. Litlu bátarnir
hafa lítið sem ekkert getað róið að
undanförnu vegna tíðarfarsins og
því lítið um vinnu í frystihúsinu,
en þar starfa milli 50 og 60 manns
og eru flestir því á atvinnuleys-
isskrá, sagði fréttaritarinn.
Tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur
nk. mánudagskvöld
ÞRIÐJU áskriftartónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur á
þessu starfsári verða haldnir í
Austurbæjarbíói nk. mánudags-
kvöld, þann 26. janúar kl. 7.15.
A efnisskrá eru tvö öndvegis
kammerverk, sem bæði tvö eru
talin með merkustu tónverkum
tónbókmenntanna. Fyrst verður
fluttur klarinettkvintett op. 115
eftir Johannes Brahms, en það
verk hafa tónlistarfræðingar talið
fullkomnasta kammerverk sem
samið hefur verið fyrr og síðar.
Þótt liðin séu tæp 90 ár síðan
verkið var frumflutt hefur það
einungis heyrst fjórum sinnum
leikið á tónleikum hér á landi.
Síðara vcrkið á tónlcikunum er
Pierrot lunaire eftir Arnold
Schönberg, samið og frumflutt
árið 1912. Pierrot lunaire er tíma-
Þórshafn-
artogar-
inn kem-
mótaverk sem olli miklum
straumhvörfum í tónlistarheimin-
um þegar það var frumflutt. Hafa
fá tónverk haft jafn víðtæk áhrif á
samtíð sína og þetta fræga verk
Schönbergs. Pierrot lunaire er eitt
af erfiðustu kammerverkum í
flutningi sem þekkjast og heyrist
því sjaldan á tónleikum. Kamm-
ersveit Reykjavíkur flutti verkið á
Listahátíð 1980 við fádæma hrifn-
ingu þeirra sem lögðu leið sína í
Þjóðleikhúsið einn fagran sumar-
dag í júní ’sl. Vegna fjölda áskor-
ana þeirra sem þá heyrðu verkið
flutt, svo og þeirra sem fóru á mis
við tónleikana í sumar ákvað
Kammersveitin að flytja verkið
aftur á þessu starfsári. Rut Magn-
ússon fer með lykilhlutverkið í
Pierrot lunaire, en stjórnandi
verksins er bandaríski hljómsveit-
arstjórinn og fiðlusnillingurinn
Paul Zukovsky. Ennfremur mun
Zukovsky leika með í strengja-
kvartettinum í klarinettkvintett
Brahms, en Gunnar Egilsson fer
með klarinetthlutverkið.
(Fréttatilkynning)
Kammersveitin á æfingu. Frá vinstri: Paul Zukovsky, Rut Ingólfsdóttir. Carmel Russill, Rut Magnússon,
Gunnar Egilson og Maria Málfriður Sigurðardóttir.
VIÐ BORANIR i Glerárdalnum i
landi Akureyrarkaupstaðar
fannst i fyrrinótt nokkuð af heitu
vatni og að sögn Helga Bergs
bæjarstjóra er það talið gefa
visbendingu um hvar halda megi
borunum áfram.
I samtali við Mbl. sagði bæjar-
stjórinn að vatnið sem fundist
hefði væri ekki mjög mikið og það
væri heldur kalt, en fundurinn
gæfi til kynna að halda mætti
áfram borunum í von um betri
árangur. Seint á síðasta ári fannst
talsvert af heitu vatni, en ekki
mun takast að tengja það hitaveit-
unni fyrr en á næsta ári.
Stormur á
loðnumiðum
STORMUR var á loðnumiðunum
I gær og fyrrinótt og því ekki
veiðiveður. Á miðvikudag og
fimmtudag fengu 23 skip afla
austnorðaustur af Langanesi og
lönduðu þau flest á Raufarhöfn.
Scyðisfirði, Neskaupstað og Eski-
firði.
Miðvikudagur: Seley 200, Pétur
Jónsson 800, Þþorshamar 520, Hrafn
650, Hilmir II 450, ísleifur 400, Albert
600, Súlan 780, Borkur 1150, Gullberg
580. Alls tilkynntu 10 skip um 6130
tonn til Loðnunefndar.
Fimmtudagur: Skarðsvík 600, Jón
Kjartansson 1150, Bergur 500, Hafrún
640, Víkurberg 500, Heiga II 530,
Cji.T.: 0!afsson 1020, ?igurfari 600,
Svanur 200, Kap II 550, Ársæi! Í99-
Arnames 400 og Dagfari 400. Samtals
13 skip með 7.490 tonn.
Komdu og líttu
á góðan bíl hjá
Bílasölu Guðfinns
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10—6
Armúla 7
Sími 81588.
Heitt vatn finnst í Glerárdal
i
i
.
i
i
í
i
i
i