Morgunblaðið - 24.01.1981, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981
11
Hækkun gatnagerðargjalds
rúm 50% utan Reykjavíkur
Morgunblaðíð hefur haft
samband við bæjarskrifstofur
í nágrenni Reykjavíkur og
úti á iandi til að afla sér
upplýsinga um hækkun
gatnagerðargjalds og hvert
það sé á hverjum stað. Það
kemur fram að hækkun þess-
ara gjalda er bundin bygg-
ingavísitölu og hækkar sam-
kvæmt henni, en hún mun
hafa hækkað um iiðlega 50%
liðið ár. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem blaðið hefur
aflað sér, hefur hvergi verið
um meiri hækkun að ræða á
þeim stöðum, sem samband
var haft við.
í Garðabæ eru gatnagerð-
argjöld reiknuð út eftir hverf-
um og þeim kostnaði sem
verja þarf í gatnagerðina á
hverjum stað. Þar eru gatna-
gerðargjöld á bilinu 80 tl 100
þúsundir nýkróna og fer gjald-
ið eftir stærð lóða og íbúðar-
hverfum. í Hafnarfirði eru
meðaltals gatnagerðargjöld
fyrir einbýlishús rúmar 60.000
nýkrónur, fyrir tvíbýlishús
rúmar 78.000 nýkrónur og í
raðhúsum eru gjöldin fyrir
hverja íbúð tæplega 42.000. í
fjölbýlishúsum eru gjöldin
tæp 10.000 á íbúð. Á Seltjarn-
arnesi eru gatnagerðargjöld
tvenns konar, A-gjöld, það er
að malbikun og frágangi
gangstétta sé ólokið, og B-
gjöld, þegar hvoru tveggja
hefur verið lokið. Fyrir einbýl-
ishús, A-gjöld, sem er um 600
rúmm. skal greiða 52.000 krón-
ur rúmar, A-gjöld af 550
rúmm. íbúðum í raðhúsi eru
rúmlega 36.000 og í fjölbýlis-
húsum eru þessi gjöld af 220
rúmm. íbúðum um 12.000
krónur.
Á Selfossi eru gatnagerð-
argjöld fyrir einbýlishús nú á
bilinu 3.000 til 3.500 nýkrónur.
Á Isafirði eru gjöldin fyrir 500
m2 einbýlishús um 40.000 og
fyrir íbúð í fjölbýlishúsi um
16.000. Á Akureyri eru gjöldin
fyrir meðal einbýlishús um
30.000 og talsvert lægra fyrir
íbúðir í raðhúsum og fjölbýlis-
húsum. í Neskaupstað voru
gjöldin 1. desember tvenns
konar, miðuð við það hvort
frágangi gatna er fyllilega
lokið.
Nú þurfa húsbyggjendur
í Neskaupstað að greiða 12 til
16.000 krónur áður en bygging
hefst og síðar meira er frá-
gangi gatna hefur verið lokið.
Búnaðarsamband
Suðurlands
fær bókagjöf
Búnaðarsamband Suðurlands
hefur borist bókagjöf. Haldur
óskarsson rithöfundur Kaf bæk-
urnar. en fósturforeldrar hans,
Þorsteinn Þorsteinsson og Sigríð-
ur Ólafsdóttir, sem bjuKKu að
Ásmundarstöðum í Holtum
1925—1955, voru eÍKendur bók-
anna.
Þorsteinn gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir sveit sína. Var
m.a. oddviti um árabil og formað-
ur búnaðarfélagsins.
Bækur þessar eru búnaðarblað-
ið Freyr, V—L árgangur, Búnað-
arrit, XLV—LXXVI árgangur og
allmargar fræðibækur aðrar um
landbúnaðarmálefni. Auk þess er
ritgerð eftir Þorstein um Búnað-
arfélag Holtamanna, segir m.a. í
fréttatilkynningu.
Glæsfleg
Toyota
Toyota
ÚRVAL
1981!
Opið í dag
kl. 13 -17.
Opið sunnudag
frá kl. 10 -17.
Nýja Cressidan
er sýnd á
Bílasýningunni.
Starlet
Tercel
Corolla
Landcruiser jeppi
Hi Lux 4x4
Bflar dagsins í dag
og á morgun...
Toyota bílar eru ekki bara sparneytnir
— þeir eru meö viðhaldsléttustu og
traustustu bílum í heimi.
— Auk þess aö vera sannkallaðir
lúxusbílar í ytra sem innra frágangi.
BILAR TIL REYNSLUAKSTURS
WTOYOTA
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SÍMI 44144