Morgunblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 11 AIR FRANCE Lækkar verð og minnkar þjónustu á Evrópuleiðum FLUGFÉLAGIÐ Air France heíur séð sig tilneytt að lækka fargjöld á leiðum sínum í Evróu um 40—60% á grunnverði og hyggst byrja á leiðinni París- London 1. apríl næstkom- andi, en um leið verður dregið úr þjónustunni, að því er segir í franska blað- inu Express. Kemur lækk- unin á 28 leiðir með upphaf í París og 27 leiðir frá öðrum stöðum í landinu, og á þessi breyting að ná til Miðjarðarhafsleiða 1. nóv- ember. Segir blaðið að Air France verði nú að taka þátt i undirboðunum, sem Laker hafi innleitt á Norð- . ur-Atlantshafsleiðinni, en orðið að gefast upp við að koma á milli helztu borga Evrópu í október i haust, þar sem öllum hurðum var skellt á nefið á honum vegna harðrar andstöðu Evrópuflugfélaganna. Segir blaðið, að í kjölfar Air France um ódýru flugfar- gjöldin muni koma British Airways, hollenzka flugfé- lagið KLM og Alltalia. en önnur stór flugfélög, svo sem Lufthansa og Swissair þrjóskist enn við slíka stefnubreytingu. „Guð gerir stundum krafta- verk, flugfélög aldrei", er í þessu sambandi haft eftir forseta Air France á aðalfundi IATA. Flug- félag hans hyggst mæta lækkun- inni með því að fara að fordæmi skipulögðu hópferðanna á Norður-Atlantshafsleiðinni og milli Parísar og London, en helmingurinn af flugumferðinni í Evrópu segir talsmaður félags- ins að sé kominn yfir á leiguflug og skipulagðar hópferðir ferða- skrifstofa. Því séu flugfélögin tilneydd að gera eitthvað til að missa ekki markaðinn. Hjá Air France verður fyrsta farrými. sem nýtur sífellt minni vin- sælda, látið víkja fyrir ódýrara svokölluðu lúxus viðskiptafar- rými. En aftan til í flugvélunum verður einn geimur með meiri sætaþéttingu í svonefndum Air- bus og minnsta þjónusta veitt þar á flugleiðum, svonefnd „bistrot Air France". Þá taka farþegarnir sjálfir veitingar við brottför. Vonast M. Giraudet til þess að flugfélagið geti með þessu móti lækkað tilkostnað og náð til nýs ferðamannahóps. Eru það viðbrögð félagsins við að forðast fyrirsjáanlegt rekstrar- tap á árinu. Segir blaðið að tími sé til kominn í samanburði við Amer- íkuflugið, þar sem fargjaldastríð hefur geysað síðan 1977, þá hafi Evrópa haldið uppi verði með verndaraðgerðum. Flugfélögin þar, sem hafi staðið þétt saman til að verja ríki sitt, hafi þó skolfið við tilhugsunina um að Laker mundi einn góðan veður- dag koma og hirða bróðurpart- inn af kökunni, en fram að þessu ekkert gert til að fjarlægja hættuna. Þau hafi því legið undir sívaxandi gagnrýni, eftir að Ameríkuflugið varð svona ódýrt. Eða eins og breski þing- maðurinn Cecil Moorhouse sagði hneykslaður við þingheim á þingi Evrópuráðsins í árslok 1979: „Hvernig getur verið ódýr- ast að fara um New York, þegar maður ætlar að fljúga milli London og Kaupmannahafnar?" Svipaðar umræður hafa líka orðið hjá Efnahagsbandalaginu. Segir Express að nú sé ten- ingnum kastað. Laker hafi fund- ið framtíðar formúlu flugsins með fjöldaflutningunum. Ekki sé lengur rúm fyrir þann lúxus, sem hafi ríkt á blómatíma far- þegaflugsins. Þetta sé þróun sem krefjist róttækra breytinga. Ekki þó svo að allt eftirlit og lög um flug fari úr skorðum og að hver sem er geti flogið hvert sem er á hvers konar flugvélum. „Skipulögð samkeppni, já. Sam- keppni frumskógarins, nei," seg- ir Pierre Giraudet, forseti Air France. Veður víða um heim Akureyri 1 snjókoma Amsterdam 6 skýjað Aþena 20 heiðskírt Berlín 1 skýjað BrUssel 6 skýjað Chícago 1 skýjað Dyflinní 3 heiöskírt Feneyjar 6 úrkoma Frankfurt 7 snjókoma Færeyjar 4 sútd Genf 3 heiöskírt Helsinki -4 skýjaó Jerúsalem 12 heiöskírt Jóhannesarb. 24 heiöskírt Kaupmannahöfn 2 skýjaö Las Palmas 17 hálfskýjaö Lissabon 13 skýjaö London 6 heiöskírt Los Angeles 20 heiöskírt Madríd 7 skýjaó Malaga 15 heiöskírt Mallorca 11 skýjaö Miami 24 rigning Moskva -2 skýjaö New York 6 rigning Osló -5 heiöskírt Parts 7 skýjaö Reykjavík 1 skýjaö Ríó de Janeiro 35 heiðakirt Rómaborg 16 skýjaó Stokkhólmur 2 skýjað Tel Aviv 17 heiöskírt Tókýó 10 heióskírt Vancouver 2 heiðskírt Vínarborg 6 skýjaö í STUTTU MÁLI Raquel í mál LOS ANGELES — Kvlkmyndaleik- konan Raquel Welch hefur ákveöið að fara í mál við kvikmyndafyrirtæk- iö MGM og krefja þaö um 24,5 mllljónir dollara í skaöabætur fyrir aö svipta hana aöalhlutverkinu I kvikmyndinni .Cannery Row“, sem er gerö eftir bók John Steinbecks. Hlutverkið var fengiö Debra Winger sem fór meö aöalhlutverkiö í .Urban Cowboy". Mikiö mannfall BONN — Afghanskur andspyrnu- leiötogi heldur því fram, aö skæru- liöar hafi fellt aö minnsta kosti 30.000 sovézka hermenn síöan Rauöi herinn hertók Afghanistan í desember 1979. tfgurn nokkurt urvai af sófasettum og önnurá leiðinni. Pöntunarþjónustan gerir okkur kleift að uppfylla óskir um liti, efni og áklæði. Ræðið við okkur um 'greiðsluskilmála. Sérverslun með listræna húsmunl Borgartuni 29 Simi 20640 VIOLA D’A Sófasett í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.