Morgunblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 23 Sænska blaðamannadeilan: Ekkert miðar í samkomulagsátt Stokkhólmi, 11. íebrúar, frá Guðfinnu Ragnarsdóttur, fréttaritara Mbl. EKKERT miðar enn í samninna- átt hjá sænskum blaðamönnum og samtökum blaðaeigenda. Mánudaginn 10. febrúar hófst yfirvinnubann hjá fimm þúsund blaðamönnum og Ijósmyndurum og næsta mánudag, þann 16. febrúar, hefst verkfall hjá kvöld- blöðunum fjórum, Expressen, Af- tonbladet, Göteborgsposten og Arbetarbladet, sem gefið er ut í Gávle. Og fátt bendir til þess að samningar muni takast í bráð. Þar með er lokið 80 ára vinnu- friði i sögu sænska blaðamanna- félagsins. Yfirvinnubannið hefur nú þegar valdið miklum truflunum á blaða- útgáfu og vissar fréttaútsendingar falla einnig niður í útvarpi vegna yfirvinriubanns á fréttastofum. Mörg blöð hafa minnkað blaðsíðu- fjöldann og hætt útgáfu helgar- blaða. Blaðamenn krefjast nú styttri og betri vinnutíma fyrir þá sem vinna á kvöldin og á nóttunni, og þá fyrst og fremst færri vakta, en nýjar rannsóknir sýna, að vinnu- álag, sálræn pressa, er meiri hjá blaðamönnum en öðrum starfs- hópum. Sömuleiðis krefjast blaðamenn þess að fá aukin höfundarréttindi, en í dag eiga blaðaútgefendur nær allan rétt á texta og myndum blaðamanna og ljósmyndara. Blaðamannafélagið hefur reynt að semja við blaðaútgefndur um rýmri höfundarrétt í meira en 30 ár án árangurs. í flestum öðrum löndum Vestur-Evrópu er höfund- arréttur blaðamanna mun meiri en þeirra sænsku. Ástæðan fyrir því að blaðamenn grípa nú til verkfalls til að koma kröfum sínum í gegn, er að undanfarin tíu ár hafa þeir verið bundnir af friðarsamningum við samtök blaðaútgefenda. Þeir samningar gengu úr gildi 1979, og þeir verða ekki endurnýjaðir fyrr en kröfur félagsins hafa verið uppfylltar, segir stjórn blaða- mannafélagsins. Sáttanefnd hefur verið skipuð og lagði hún fram drög að sam- komulagi í gær, en fátt virðist benda til þess að samningar séu í nánd. „Við erum reiðubúnir að berjast til þrautar," sagði formað- ur blaðamannafélagsins, Östen Johannsson, „allir sjóðir eru fullir eftir 80 ára vinnufrið." Árleg skýrsla Bandaríkjastjórnar um mannréttindamál: Litlar breytingar og fæstar í framfaraátt Washington, 9. febrúar. AP. í ÁRLEGRI skýrslu bandariska utanrikisráðuneytisins um mannréttindamál segir, að yfir- leitt hafi litlar breytingar orðið á síðasta ári á pólitisku og borgaralegu frelsi i heiminum en það, sem mestum vandkvæð- um valdi þó, sé landflótta fólk, sem er talið nema um 15 milljónum manna á fáum árum. Um Sovétríkin segir í skýrsl- unni, að þar hafi ofsóknir á hendur andófsmönnum verið þær mestu um tíu ára skeið auk þess sem Rússar eru sakaðir um grimmdarverk í Afganistan. Sagt er, að stjórnvöld austur þar stjórnist augljóslega af vissunni um, að einræði eins flokks og mannlegt frelsi geti ekki farið saman. Hvað verst er ástandið sagt vera í E1 Salvador þar sem hryðjuverk vinstri og hægri manna hafi kostað 9000 manns lífið á síðasta ári. Sagt er að' mannréttindi hafi verið skert í Suður-Kóreu undir stjórn Chun Doo-Hwan en um Suður-Afríku segir, að þar hafi lítils háttar verið slakað á klónni en að mestu sitji þar allt við það sama. í skýrslunni segir, að frá Tyrklandi berist fregnir um ofbeldisverk lögreglunnar og að þar í landi séu fangelsi einatt yfirfull og ófullkomin. Sagt er, að Víetnamar hafi neytt um eina milljón manna til að flýja land og að Fidel Castro á Kúbu hafi fylgt fordæmi þeirra og losað sig við 125.000 manns. Margra annarra þjóða er getið í skýrslunni og er niðurstaðan jafnan á þá lund, að annaðhvort hafi mannréttindum miðað aftur á bak eða staðið í stað, en þó ekki án undantekninga. Þess er getið, að orkukreppan hafi leikið margar þjóðir grátt og að oft vilji haldast hönd í hönd fátæk- leg og frekleg stjórn. Lögreglumenn i Zimbabwe bera á brott lík háttsetts fulltrúa þjóðernisfylkingarinnar er fórst þegar jarðsprengja sprakk undir bifreið hans. Annar háttsettur fulltrúi slasaðist alvarlega í sprengingunni. Baskar klof na í tvær fylkingar Madrid, 11. febrúar. — AP. Hryðjuverkasamtök Baska. ETA, klofnuðu opinberlega í dag vegna almennrar reiði, sem hefur gripið um sig á Spáni vegna kaldrifjaðs morðs á yfirverkfræð- ingi fyrirtækis er hefur tekið að sér að smiða kjarnorkuver skammt frá Bilbao. Þetta er talinn alvarlegasti klofningur, sem hefur orðið í 13 ára sögu hryðjuverkasamtakanna. En þótt harðir skæruliðar muni ein- angrast er fyrir hendi sú hætta að dómi yfirvalda, að öfgamenn grípi til „örvæntingarfullra" árása gegn ríkisstjórninni. Hinn pólitíski og hófsamari arm- ur ETÁ fordæmdi í einstæðri yfirlýsingu til dagblaða í Baska- Luxemborg, 11. febrúar. — AP. ANWAR Sadat, forseti Egypta- lands, sagði við brottför sina frá Luxemborg til Parisar i dag, að liklega yrðu riki Efnahagsbanda- lags Evrópu beðin að leggja til friðargæzlusveitir ef til allsherj- arsamkomulags milli fsraela og Araba kæmi. Sagðist Sadat biða cftir loforði bandalagsrikjanna um aðstoð af þessu tagi. Sagði Sadat, að hlutur EBE- ríkja í hugsanlegum friðarviðræð- um yrði mikill, og að ríkin yrðu að hafa frumkvæði að því að viðræð- um með friðarsamkomulag að markmiði yrði komið í kring. héruðunum hinn hernaðarlega arm hreyfingarinnar fyrir tilraun til að „leiða okkur út í borgarastríð". Armurinn segist ekki geta orða bundizt vegna stöðugra hryðju- verka sem hernaðarlegi armurinn fremji í nafni byitingar Baska, sem hann sé ekki lengur fulltrúi fyrir. Pólitíski armurinn bar ábyrgð á tilræðinu við Luis Carrero Blanco forsætisráðherra og hefur staðið fyrir einum þriðja þeirra 332 til- ræða, sem framin hafa verið síðan hreyfingin greip til vopna 1968. En pólitíski armurinn kallaði morðið á verkfræðingnum, Jose Maria Ryan, mistök. í helztu borgum Baska, Bilbao, San Sebastian og Vitoria, hafa um 300.000 manns tekið þátt í mót- mælagöngum gegn morðinu á Ryan. Fyrsta skrefið yrði að koma Palestínumönnum og Israelum að samningaborðinu, þar sem mark- miðið yrði að fá hvorn aðila um sig til að viðurkenna tilverurétt hins. Þá hefðu ríkin miklu hlut- verki að gegna við að koma á efnahagslegu jafnvægi í fátækari ríkjum Miðausturlanda. Af hálfu yfirvalda í ísrael var hugmyndum Sadats um allsherj- arfrið í Miðausturlöndum fagnað, en yfirlýsingum hans um sjálfs- ákvörðunarrétt Palestínumanna og að þeir fengju lendur til að vera á útaf fyrir sig, hafnað. r I stuttu máli Innbyrðis átök Bulawayo. 11. frbrúar. AP. KOMIÐ hefur í Ijós að a.m.k. 14 hermenn hafa týnt lífi í innbyröis átökum stríöandi fylkinga í her Zimbabwe í þremur herstöövum. Óttast er aö enn fleiri hafi falliö og aö rétt tala fallinna komi ekki í Ijós fyrr en eftir aö leitað hefur verið á svæðum umhverfis herstöövarnar. Lögreglan hefur skýrt svo frá, aö yfirmenn í hernum hafi stofnaö til illdeilna er leiddu til vígaferlanna. Bílasmiðju lokaö Glasgow. 11. febrúar. AP. TALBOT-bílaverksmiðjunum í Linwood viö Glasgow verður lokaö á árinu, aö því er tilkynnt var í dag, en verksmiðjurnar eru í eigu Peug- eot-Citroen samsteypunnar. Hætt veröur framleiðslu Avenger- og Sunbeam-bifreiöa í júní og verk- smiöjunum lokaö aö fullu fyrir árslok. Mlkiö tap hefur verið á rekstri verksmiöjanna. Alls missa 4.800 manns atvinnu sína við lokun verksmiöjanna. Stálu miklu magni vopna Osló, 11. febrúar, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl. MESTA vopnarán sem framiö hef- ur veriö í Noregi, svo vitað sé um, var framiö í vopnageymslu heima- varnarliðsins rétt fyrir utan Osló um helgina. Ekki uppgötvaöist um innbrotið í vopnageymsluna fyrr en í gær. Taliö er aö sex til sjö manna flokkur hafi framiö rániö. Stoliö var 37 AG-3 rifflum, sjálfvirkri Schmeisser skammbyssu, tveimur Mauser-rifflum og tveimur öðrum rifflum. Einnig var stollö miklu magni af alls kyns búnaöi öörum, svo sem bakpokum, gasgrímum, o.fl. Þjófarnir höföu sprengt upp dyr aö hergagnageymslunni með dýnamiti. (fyrra var fimm milljón- um norskra króna variö til þess aö gera dyrabúnaö hergagna- geymslna víöa um land þjófheld- an. Framin voru a.m.k. þrjú stór vopnarán í No.regi í fyrra og upplýstust þau öll. Friðartilraunir í Miðausturlöndum: Sadat segir hlut EBE-ríkja stjóran mmm® í'iaSre&W'iítVÍS f&æsimmsmi ÍÉif mmnmé mwÉm mm ■atti ifeíkwígii mm mm Stórkostleg skyndisala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.