Morgunblaðið - 12.02.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBROAR 1981
Viðræður um
Afghanistan
Nýju Delhi, 11. tebr. AP.
KURT Waldheim, framkvæmda-
stjóri SÞ, hvatti til þess á ráð-
stefnu óháðra ríkja i dag, að
fundin yrði skjót og sanngjorn
pólitísk lausn á Afghanistanmál-
inu, þannig að íhúar landsins
gætu sjálfir ráðið framtið sinni.
án erlendra afskipta eða
íhlutunar.
Waldheim minntist ekki á Sov-
étríkin beint, en vísaði til tveggja
ályktana Allsherjarþingsins, þar
sem hvatt er til brottflutnings
erlends herliðs frá Afghanistan.
Hann sagði, að tilraunir væru
nú gerðar til að greiða fyrir
samningaviðræðum hlutaðeigandi
aðila til að koma á sanngjarnri,
pólitískri lausn.
Waldheim notaði tækifærið til
að tilkynna, að hann hefði skipað
Javier Perez de Cuellar, varafram-
kvæmdastjóra SÞ, „sérstakan full-
trúa“ sinn til að stuðla að viðræð-
um milli Pakistans, írans og
Afghanistans í því skyni að finna
lausn á Afghanistanmálinu.
Þing Spánar
kemur saman
Madríd, 11. febrúar. AP.
NEÐRI deild spænska þingsins
kemur væntanlega saman til
fundar á þriðjudaginn til að taka
þátt í atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu á Leopoldo
Calvo Soteío,
Sósíalistar og kommúnistar
hafa þegar lýst yfir því, að þeir
muni greiða atkvæði gegn Calvo
Sotelo, sem þarf að fá minnst 168
atkvæði af 350. Hann mun fá öll
168 atkvæði Miðflokkasambands-
ins, en að auki munu nógu margir
katalónskir og íhaldssamir þing-
menn styðja hann til þess að hann
fari með sigur af hólmi. Hann
reynir einnig að afla sér fylgis
þjóðernissinnaðra Baska.
Cynthia Dwyer:
Sé ekki ef tir
föriiuii til íran
Cynthia Dwyer. bandaríska
hlaðakonan. sem um niu mán-
aða skeið var i fangelsi i fran,
sést hér á blaðamannafundi,
sem efnt var til á flugvellinum i
Ziirich i gærmorgun. Þar gerði
hún stuttan stans áður en hún
hélt áfram förinni til Banda-
ríkjanna. AP-simamynd
Zurích, Svíhm, 11. febrúar. — AP.
BANDARÍSKI blaðamaður-
inn Cynthia Dwyer var á
þriðjudaginn sleppt úr haldi í
Iran. Hún var stundum nefnd
53. bandariski gíslinn en
stjórnvöld í íran ásökuðu
hana um að hafa stundað
njósnir. Kathy Bishtawi.
fréttamaður AP, ræddi við
Cynthiu um borð i flugvélinni
á ieiðinni til Ziirich i Sviss frá
Dubai. Hér á eftir fara hlutar
úr þessu viðtali.
Færi aftur
Þrátt fyrir níu mánaða prís-
und í Iran sagðist Cynthia
Dwyer ekki sjá eftir för sinni
til Iran. „Iranir eru ákaflega
geðugir og ef ég ætti þess
nokkurn kost, þá myndi ég
fara aftur til Iran.
Með þessu er ég ekki að
halda því fram, að dvöl mín í
Iran hafi verið dans á rósum,
en ég var ekki beitt harðræði.
En ég hef séð hinar slæmu
hliðar á írönsku byltingunni,"
sagði Cynthia.
„Ég fór til íran af forvitni.
Ég vildi öðlast skilning á hvað
væri að gerast í íran. Mér
fannst allt of mikil áherzla
vera lögð á gíslana í Banda-
ríkjunum og óttaðist að íran
yrði að nýju Víetnam. Þar
fyrir utan — þá fór ég til íran
til að fá góða fréttasögu. Og ég
hélt dagbók um prísundina í
íran — hana mun ég birta og
það er „góða fréttin" mín þó
tilgangur ferðarinnar hafi ver-
ið allt annar en að lenda í
fangelsi."
Cynthia virtist þreytt þar
sem hún ræddi við blaðamenn
um borð í flugvélinni á leið til
Zúrich. Hún hins vegar svaraði
spurningum blaðamanna
greiðlega og án hiks. Þó var
augljóst að hún var mjög
þreytt enda hafði hún beðið
lengi á flugvellinum í Teheran.
„Ég gat ekkert sofið þar — ég
var of spennt," sagði Cynthia,
en hún var tekin föst þann 5.
maí síðastliðinn.
Hún var ákærð fyrir njósnir
og ásökuð um að hafa reynt að
koma á sambandi við stjórnar-
andstöðuöfl í íran og hafa haft
samband og samráð við þessi
öfl. Um réttarhöldin sagði
Cynthia. „Ég sá aldrei kærur
gegn mér. Samkvæmt írönsku
stjórnarskránni þá ber að bera
fram kæru 48 klukkustundum
eftir handtöku. Þetta var aldr-
ei gert. Ég sagði þeim hvað ég
hefði gert — og reyndi að beita
hófsemi. Þannig vildi ég ekki
verjanda. Óttaðist að það
kynni að lengja dvöl mína í
landinu." En réttarhöldin —
þau stóðu raunar yfir í aðeins
1 dag, fóru fram í Erwinfang-
elsinu í Teheran.
Cynthia sagði, að þar væru
pólitískir fangar í haldi. Hún
sagðist hafa verið um tíma í
klefa með Jean Waddell, trú-
boða ensku biskupakirkjunnar
en nú eru 4 Bretar hafðir í
haldi í landinu. Þá sagði hún
að íranir hefðu verið í klefa
með sér og örlög þeirra væru
óráðin. „Enginn reynir að ná
þeim út,“ sagði hún. Hún var
spurð hvort fangar væru pynt-
aðir en vildi ekki tjá sig. „Vinir
mínir dveljast enn í fangels-
um,“ sagði hún. Að lokum
sagðist Cynthia hlakka til að
komast heim til fjölskyldu
sinnar. „Ég fer beint í eldhúsið
og matreiði manni mínum
góðan rétt. Ég bíð full eftir-
væntingar að sjá börn mín á
ný,“ sagði Cynthia Dwyer —
síðasti bandaríski gíslinn í
íran.
Eldur öðru sinni í
hóteli í Las Vegas
Las VegaK, 11. febrúar. — AP.
ATTA biðu hana og að minnsta
kosti 242 siösuðust i eldsvoða i
Hilton-hótelinu í Las Vegas i nótt
og eldsupptnkin eru talin grunsam-
leg. Tveir menn eru í yfirheyrslu
vegna brunans. Fyrir aðeins þrem-
ur mánuðum fórust 84 og 700
slösuðust i eldsvoða i Grand Hotel
sem er skammt frá.
Hundruð gesta flúðu úr bygging-
unni, sem er 30 hæða og með 2.783
herbergjum. Þetta mun vera stærsta
hótel í Bandaríkjunum og annað
stærsta hótel í heiminum.
Sumir hótelgestir klifruðu upp á
þak byggingarinar, þar sem þeim
var bjargað í þyrlur. Aðrir hrópuðu
á hjálp út um glugga með brotnum
rúðym eða notuðu lök til þess að
klifra niður. Eldtungurnar teygðu
si'; þrjátíu metra í loft upp og
eldurinn barst hratt út gegnum
Kosningar í
Suður-Kóreu
Seoul. 11. febrúar. AP.
KJÖRSÓKN var dræm framan af i
Suður-Kóreu í morgun. þegar kosn-
ing hófst til kjörmannasamkundu,
sem kýs nýjan forseta. Yfirvöld
sögðu þó, að kjörsókn mundi
aukast þegar liði á daginn.
Chun Doo-Hwan, forseti, var í
hópi hinna fyrstu, sem mættu á
kjörstað. Því er spáð að flokkur hans
fái 70% sæta á kjörmannasamkund-
unni sem er skipuð 5.278 f'lUtruum.
Samkundan ur saman 2s! Vebrú-
til að velja forsetann, sem er
kjörinn til sjö ára.
Önnur kjörmannasamkunda til-
nefndi Chun forseta í ágúst í fyrra
og hann segir að muni aðeins sitja
eitt kjörtímabil. Þrír aðrir flokkar
bjóða fram, aðeins til málamynda,
að talið er.
gluggana, frá áttundu hæð upp á
efstu hæð. Mikill reykjarmökkur
lagðist yfir svæðið sem hótelið
stendur á.
Um 450 slökkviliðsmenn reyndu að
ráða niðurlögum eldsins og_ skipu-
lögð var leit herbergi úr herbergi til
þess að finna hugsanleg fórnarlömb
eldsvoðans. Nokkur þeirra höfðu
fengið reykeitrun og lík þriggja
manna fundust við lyftuna á áttundu
hæð. Maður, sem fannst á lífi í
herbergi sínu á 24. hæð, lézt skömmu
síðar.
Barron Hilton, stjórnarformaður
Hilton-hótela-samsteypunnar, sagði
að ef rétt væri, eins og gefið væri í
skyn, að kveikt hefði verið vísvitandi
í hótelinu mundi fyrirtækið gera allt
sem í þess valdi stæði til að sá eða
þeir, sem bæru ábyrgðina, yrðu
leiddir fyrir rétt. Svo virðist sem um
eld á þremur stöðum hafi verið að
ræða.
Hussein kveður
heim sendiherra
Amman, 11. febrúar. AP. ,
SENDIHERRA Husseins Jórd-
aníukonungs í Sýrlandi, IIuss-
ein Hamami, sneri aftur til
Amman i dag vegna þeirra
breytinga sem hafa orðið til
hins verra í sambúð rikjanna
vegna ránsins á jórdanska
sendifulltrúanum Ilisham
Muhaissen i Libanon, og sendi-
herra Sýrlands i Jórdaniu,
Abdul-Karin Sabagh, mun fara
til Sýrlands á morgun.
Heimkvaðning sendiherranna
getur verið fyrsta skrefið í átt
til algers stjórnmálafQf" aö
sögn sérf^^’mga( ef Muhaissen
verður ekki sleppt heilum á húfi.
Maður nokkur tilkynnti líb-
anska útvarpinu í síma að sam-
tökin „Ernir byltingarinnar",
sem fylgja Sýrlendingum að
málum, hefðu tekið Muhaissen
af lífi, en opinberir talsmenn
samtakanna í Beirút og Dam-
askus vísuðu því á bug. Sýrlend-
ingar neita staðhæfingum Jórd-
aníumanna um að leyniþjónusta
þeirra hafi staðið fyrir ráninu.
, AP-slmamynd.
HEIMT UR HELJU. Hjónin á myndinni sluppu naumlega
lífs af úr hótelbrunanum í Las Vegas í Bandaríkjunum í fyrrinótt og hér
leita þau huggunar og styrks hvort hjá öðru þegar hættan var afstaðin.
í brunanum fórust a.m.k. átta manns og á annað hundrað slasaðist.
Fleiri gyðingar fá að
fara frá Sovétríki
Moskvu, 11. febrúar. —
AÐ UNDAnFÖRNU hafa sov-
ézk yfirvöld veitt miklu fleiri
sovézkum gyðingum heimildir
til að flytja úr landi en gert
hefur verið í mörg ár, og af
þessum sökum flykkjast sovézk-
ir gyðingar á skrifstofur sem
gefa út vegabréfsáritun.
Heimildamaður úr röðum gyð-
inga sagði við AP-fréttastof' -
að allt að 120 v<v*-' „.uiia,
hefðn - . wgaDréfsáritanir
„ verið gefnar út á dag í
síðustu viku, en það eru tíu
sinnum fleiri áritanir en gefnar
eru út venjulega.
Diplómatar segja, að þessi
„slökun" nái ekki einvörðungu til
gyðinga í Moskvu, heldur einnig
til gyðinga í LeníngraA
Kænugarði. H:-- - -** °K
enp!- -..xis vegar hefði
aukning orðið á útgáfu
vegabréfsáritana til annarra en
gyðinga.
Sumar brottflutningsumsókn-
jUllUllI
ir, sem afgreiddar hafa verið
síðustu daga, voru allt niður i
þriggja mánaða gamlar, sem er
óvenjulegt. Þá fengu sumir, er
neitað hefur verið margsin»':'
um vegabréfsán'*— -
brf)ffc- ...xun, skyndilega
-„viararleyfi. Og ýmsir til við-
bótar, er skyndilega var veitt
áritun, höfðu sótt um brottfar-
arleyfi fyrir allt að þremur árum
án þess að heyra bofs þar til nú,
er þeir fengu allt í einu tilkynn-
ingu um leyfisveitingu.