Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 26

Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 Fiskverðsákvörðun rædd á Alþingi: Hvaðan kemur f jármagnið? Hvernig verður því varið? HVAÐ líður ákvörðun fiskverðs og með hvaða hætti hyggst ríkisstjórnin veita atbeina sinn til fiskverðsákvörðunar og framkvæmdar hennar? Svo spurði Geir Haligrímsson, formaður Sjálfstæðisfiokksins, Steingrím Hermannsson, sjávarútvegsráð- herra í umræðu utan dagskrár í Sameinuðu þingi í gær. Ráðherra vitnaði til nýrrar gengisviðmiðunar, rikisábyrgðar á yfirdrætti Verðjöfnunarsjóðs, til að mæta hugsanlegum halla í frystiiðnaði, ákvörðunar um óbreytt olíuverð til skipa, hækkunar útflutnings- gjalda á skreið en lækkunar sömu gjalda á freðfiski. Málsmeðferð í ríktestjórn Geir Hallgrimsson (S) vitnaði til orða sjávarútvegsráðherra á Alþingi fyrir nokkrum dögum þess efnis, að ekkert skorti á atbeina ríkisstjórnar til fiskverðsákvörðunar. En fjölmiðl- ar segja okkur annað: að málið sé til umfjöllunar á ríkisstjórnarfundum dag eftir dag og fiskverðsákvörðun hafi dregizt úr hömlu vegna þess hve seint gengur að fá niðurstöðu í ríkisstjórninni. Sjávarútvegsráðherra hefur og verið fúsari á upplýsingar við fjöl- miðla en þingheim. Hann hefur í fyrsta lagi látið eftir sér hafa að atbeini stjórnarinnar felist í því að hverfa frá þeim veigamikla þætti efnahagsráðstafananna á gamlárs- dag, að festa gengi íslenzkrar krónu miðað við dollar, og nú skuli tekin upp meðalgengisviðmiðun. í annan stað segir ráðherra fjölmiðlum að breyta eigi útflutningsgjöldum, í stað þess að hafa sama hlutfall á allar sjávarafurðir komi breytilegt hlutfall. Og í þriðja Iagi hefur það heyrst að veita eigi ríkisábyrgð fyrir yfirdrætti Verðjöfnunarsjóðs, þann- ig að unnt verði að ákveða viðmiðun- arverð hærra en markaðsverð. Nú vil ég inna ráðherra nánar eftir þessum yfirlýsingum hans í fjölmiðlum, og tel raunar skylt, að hann gefi Alþingi skýrslu um málið. I umræðum hér á Alþingi hefur komið fram að fiskvinnslan þyldi ekki 15% fiskverðshækkun, hvað þá 20— 24%, eins og forsvarsmenn sjó- manna telja nauðsynlega, svo útgerð verði rekin hallalaus og sjómenn fái samsvarandi kjarabætur og land- menn náðu í nóvember-desember- mánuðum sl. Gert er ráð fyrir 6% hækkun verðbóta á laun 1. marz, þrátt fyrir skerðingu bráðabirgða- laganna. Það er því ljóst að vandi sjávarútvegsins er mikill. Atbeini ríkisstjórnar Geir sagði að það hefði tekizt 1976 að jafna útflutningsgjöld á sjávaraf- urðir í stað þess að mismuna fisk- vinnslugreinum. Árangurinn af þeirri jöfnun hafi m.a. verið sá að áherzla hafi jafnan síðan verið lögð á þá fiskvinnslugrein sem á hverjum tíma hafi verið hagstæðust sjávar- útveginum og þjóðarbúinu. Vara- samt sé að skekkja þann arðsemis- hvata. Geir benti á að skreiðarmarkaður hafi verið mjög ótryggur. Það sé fyrst á sl. ári sem skreiðarverkun gefur verulega í aðra hönd. Ég tel réttara að safna í deild skreiðar hjá Verðjöfnunarsjóði, meðan vel geng- ur, til að standast þær sveiflur sem reynslan sýnir okkur að gjarnan verði á sölumöguleikum skreiðar. Sama má í raun segja um saltfisk- verkun. Allt fram til sl. áramóta var, að ég hygg, greitt úr Verðjöfnun- •arsjóði með saltfiskverkuninni. En jafnvel þótt mismunun á út- flutningsgjöldum verði tekin upp og jafnvel þótt gengislækkun gagnvart dollar styrki stöðu frystiiðnaðar þá duga þessar aðgerðir ekki einar sér til að rétta af rekstur þessarar vinnslugreinar. Ábyrgðaryfirlýsing- in virðist heldur ekki duga nema veruleg hækkun verði á erlendum sölumarkaði, sem enn hefur þó ekki komið í sjónmál. En hvernig á að mæta þeirri fjármagnsútvegun? Formælendur stjórnarinnar benda á þrjár leiðir: 1) Svokallaðan gjaldeyr- ishagnað Seðlabanka, sem er, þegar grannt er gáð, ekki til staðar. 2) Að taka erlent lán til að standa undir rekstri undirstöðuatvinnuvegar okkar og helztu leið til gjaldeyris- tekna. 3) Aukna skattheimtu, en þar er boginn yfirspenntur með því að landsmenn borga nú á föstu verðlagi 70 milljörðum gamalkróna meira í skatta en fyrir þremur árum. Það er því óhjákvæmilegt að ítreka þá spurningu til ráðherra, hvern veg megi afla þessa fjármagns til að standa undir útborgun þeirra við- miðunarverða Verðjöfnunarsjóðs, sem ákveðin hafa verið með hliðsjón af nauðsynlegri tekjuöflun fisk- vinnslunnar. Og þá ekki síður, hvernig á að ráðstafa þeim pening- um. Sannleikurinn er sá, að ríkis- stjórnin hefur komið sér upp snöru um háls með því að segja í fyrsta lagi að verðstöðvun skuli gilda, í annan stað að fast gengi skuli haldast, og í þriðja lagi að hávaxta- stefna skuii ríkja. Ef ríkisstjórnin efndi aila þessa þætti stöðvast hjól atvinnulífsins í 50—60% verðbólgu. Annað mál er að ekkert virðist eftir af efnisatriðum „efnahags- ráðstafananna frá því á gamlárs- degi“ annað en ákvæðið um skerð- ingu verðbóta á laun 1. marz nk. Það ákvæði blífur í anda slagorðsins „samningar í gildi“ fyrir tilverknað forystuflokksins í ríkisstjórninni, Alþýðubandalagsins. Frá því Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn gengu saman í ríkisstjórn í september 1978 með fyrirheitinu „samningana í gildi“, þá hafa aðeins orðið tvisvar sinnum grunnkaupshækkanir: 3% 1979 og 10% á sl. hausti. En skerðing verðbóta á laun hafa verið 8% í desember 1978, 16,6% samkvæmt skerðingarákvæðum Ólafslaga, eftir því sem félagsmálaráðherra, for- maður Alþýðubandalagsins hefur upplýst. Og nú, 1. marz, 9,3%. „Kaupskerðingin" hefur numið 34% þegar grunnkaupshækkanirnar hafa verið um 13%. Fiskverð fyrir helgi Steingrfmur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra, sagðist geta full- yrt að fiskverð yrði ákveðið fyrir helgi. Ýmislegt hefði skýrzt sem gerði þetta kleift: samningar milli sjómanna og útvegsmanna hefðu þokazt í áttina, m.a. um lífeyrismál. Ákveðin tillaga liggur nú fyrir hjá verðlagsráði um fiskverð og ráðinu er auk þess kunnugt um ýmsar ákvarðanir rikisstjórnarinnar, sem þetta mál snerta. Þannig hefði ríkisstjórnin fjallað um lífeyrismál- in í gær og fiskverðið í dag. Hún hefði ákveðið að olíugjald skyldi óbreytt, útflutningsgjöld hækkuð á skreið, tímabundið, en lækkuð á frystum afurðum. Þá hefði ríkis- stjórnin gengið frá orðalagi á yfir- dráttarheimild Verðjöfnunarsjóðs og sjóðsstjórnin tekið afstöðu í því efni, svipaða þeirri sem tekin hafi verið 1975, þ.e. að yfirdrátturinn verði með ríkisábyrgð. Varðandi endurgreiðslu þessa yfirdráttar kemur sitt hvað til greina, t.d. greiðsla með gengisbreytingu. Þá vék ráðherra að breyttri gengisvið- miðun, þ.e. lækkun krónunnar gagn- vart Bandaríkjadal, sem greitt hefði götu fiskverðs, þó þetta breytta gengi væri ekki síður í þágu útflutn- ingsiðnaðar. Þessi gengisbreyting dregur úr þörfinni á yfirdrætti hjá Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins, sagði ráðherra. Ráðleysi ríkis- stjórnarinnar Matthias Bjarnason (S) sagði svör ráðherra bera vott um ráðleysi ríkisstjórnarinnar. Ákvörðun stjórn- arinnar á gamlársdag um fast gengi hefði sett lok á hærra verð í íslenzkum krónum til útflutnings- atvinnuvega. Þetta hefði verið gert í þeirri „trú“ ráðherra að dollarinn héldi áfram að falla. Þessi ákvörðun hefði stórskaðað afkomu útflutn- ingsgreina það sem af væri árinu, enda hefði þessi ákvörðun hækkað gengi krónunnar gagnvart Evrópu- gjaldeyri. Ráðherrar keppast nú við að viðurkenna að þessi ákvörðun hafi verið mistök, sem verið sé að leiðrétta með því að hverfa heldur hressilega frá gamlárskveldsstefn- unni. Matthías sagði ráðherra hafa full- yrt fyrir u.þ.b. viku að engin hemill á fiskverðsákvörðun væri hjá ríkis- stjórninni. Nú tíundaði hann hins- vegar hreystiverk sín við að styðja þessum ríkisstjórnarhemlum úr vegi fiskverðsins. Þá kæmi sér á óvart að ráðherra, sem ítrekað hefði tjáð sig andvigan oliugjaldi i núverandi formi, hygðist nú endurnýja það óbreytt í þriðja sinn á stuttum ráðherraferii sínum. Útgerðin þarf að fá verðhækkun olíu bætta, sagði Matthías, um það er ekki ágreining- ur; en verðþróun olíu er utanaðkom- andi skellur á þjóðarbúskapinn, sem sjómenn og útvegsmenn eiga ekki einir undir að rísa. Syndaflóðið stóð að sögn í 40 daga og 40 nætur. Fiskverðshik stjórn- valda hefur staðið gott betur, eða í 43 daga. Vonandi reynist staðhæfing ráðherra um nýtt fiskverð, sem gilda eigi til 1. marz nk., fyrir vikulokin rétt. En þeir ráðherrar ættu sízt að tala um langtímastefnu, sem eru 43 dögum á eftir almanakinu í ákvarð- anatöku í máli sem varðar undir- stöðuatvinnuveg og afkomu þjóðar- innar. Verðstöðvun og verðhækkun í sama pakkanum Karl Steinar Guðnason (A) sagði ástandið í fiskverðsmálum óþolandi, jafnt fyrir sjómenn og útvegsmenn. Sjómenn vissu í raun ekki, hvert kaup þeirra væri, og sama gilti um beitingamenn, en kaup þeirra tengd- ist fiskverði. Fiskverðsákvörðun hef- ur oft dregizt eitthvað, en aldrei í líkingu við það sem nú hefur gerzt. Karl Steinar gerði verðstöðvun stjórnvalda að umræðuefni, og þá daglegu verðhækkunarskriðu, sem i kjölfar hefði fylgt. Hinn fyrsta þessa mánaðar hækkuðu öll veiðarfæri í verði, en þau eru verulegur útgjalda- liður í því rekstrardæmi sem hér er til umræðu. Ég spyr sjávarútvegs- ráðherra: Varð sú hækkun með heimild ríkisstjórnarinnar — og í anda verðstöðvunar? Eða má búast við að ráðherra dragi þéssa hækkun til baka? Eða er máske ekkert eftir af „áramótaskaupinu" annað en kaupskerðingin, sem ein virðist standa upp úr „efnahagsráðstöfun- um“ bráðabirgðalaganna. Viðmiðun við ísraolska pundið? Kjartan Jóhannsson (A) sagði stutt síðan að ráðherra hefði kunngjört Alþingi að öll atriði varð- andi fiskverð, er tengdust stjórnar- ákvörðunum, væru klár. Það væru sjómenn sem hefðu beðið um frestun á ákvörðun fiskverðs. Nú færi hann hinsvegar mörgum orðum um afrek sin innan ríkisstjórnar til að greiða fyrir fiskverði. En þetta er nú ekki í fyrsta sinn sem orö hans ganga ekki upp. Þá ræddi Kjartan um gengis- viðmiðun, sem nú væri umtöluð. Spurning væri hvort ríkisstjórn af því tagi sem nú sæti ætti ekki að taka upp slíka viðmiðun við ísra- elska pundið! Styrkja- og millifærslukerfið Geir Hallgrimsson (S) sagði skýrt hafa komið fram hjá ráðherra að yfirdráttur Verðjöfnunarsjóðs sjáv- arútvegs, sem taka á til að greiða mismun á framleiðslukostnaði í frystiiðnaði og söluverði afurða er- lendis, yrði með ríkisábyrgð. Þá hafi ráðherra ýjað að þeirri leið að þessi yfirdráttur yrði greiddur með geng- isbreytingu, þ.e. gengislækkun. Beri menn þessi orð ráðherra saman við yfirlýsingar stjórnarinnar á gaml- ársdag um fast og stöðugt gengi nýkrónunnar! Er hér ekki verið að hverfa endanlega frá þeirri efna- hagsstefnu, ef nota má það orð, sem þá var mörkuð? Hér er stefnt í styrkja- og millifærslukerfið sem dæmdist óhæft á áratugnum 1950— 1960 og kostaði stórátak að hverfa frá í upphafi viðreisnar, 1960. Þá vék Geir að þeirri gjörð Alþýðubandalagsins að una við- skiptakjaraáhrifum á verðbætur á laun meðan þau verkuðu lækkandi á kaup, en standa fyrir afnámi þeirra áhrifa þegar sýnt þótti að jákvætt verkuðu, frá sjónarhóli launþega, eins og nú horfði um útreikning 1. marz nk. og 1. júní nk. Karl Steinar Guðnason (A) ítrek- aði fyrirspurn til ráðherra um hækkað verð á veiðarfærum, en svör fengust ekki. Vegaáætlun: Samdráttur í vegaf ramkvæmdum Lárus Jónsson, Matthías Á. Mathiesen og Sverrir Hermanns- son gerðu harða hríð að sam- gönguráðherra á Aiþingi í gær vegna smátækra áætiana og fjár- veitinga til vegamála, er vega- áætlun kom til umræðu. Lárus sagði fjárveitingar og fram- kvæmdaáform samkvæmt vega- áætlun miðast við þær forsendur að verðbólga milli áranna 1980 og 1981 væri aðeins 42%. Hvert mannsbarn vissi að þessar verð- lagsforsendur væru víðs fjarri sanni þann veg að raungildi eða framkvæmdageta þessa fjár- magns, sem hér um ræddi, væri Stórauknir skattar af umferð annað og verulega minna en ráðherra léti í veðri vaka. Með góðum vilja væri hægt að segia að hér væri „hjakkað í sama farinu" og á sl. ári þegar vegafram- kvæmdir vóru óvenju litlar. Matthías Á. Mathiesen tók í sama streng. Verðlagsforsendur vegaáætlunar væru út í biáinn. Forstöðumaður Þjóðhagsstofnun- ar hefði sagt á fundi með fjár- hagsnefndum Alþingis að hraði verðbólgunnar sl. þrjá mánuði hefði verið tæp 80%. Það fram- kvæmdamagn, sem samgönguráð- herra gumaði af 1981, væru orð sem ekki stæöust frekar en svo margt annað sem frá ríkisstjórn- inni kæmi. Sverrir Hermannsson sagði fjármuni til vegaframkvæmda 1981 vera áætlaða 2,10% af þjóð- arframleiðslu. Það væri mun minna en á ráðherraárum Hall- dórs E. Sigurðssonar. Hér væri því um afturför að ræða en ekki framför í einum vanræktasta þætti framkvæmda hér á landi. Hann minnti á þingsályktunartil- lögu 19 sjálfstæðismanna um 15 ára áætlun í vegagerð, þ.á m. varanlegri vegagerð, sem kvæði á um verkáfanga og fjármögnun. Á sl. ári hefði takmörkuðum vega- framkvæmdum verið háldið gang- andi með erlendum lánum, þrátt fyrir að skattar af umferð hafi verið meiri en nokkru sinni. Þeij hefðu hinsvegar runnið í ríkishít- ina en ekki til vegaframkvæmda. Kaupskerðingin ein eftir af ákvæðum gaml- árskveldslaganna, sagði Geir Hallgrímsson. Geir HallKrimsHon Steingrimur IlermannsHon Matthian Bjarnason Kjartan JóhannHHon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.