Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 29 Gunnar Bjarnason er áttræður í dag. Arið 1945 þegar Sjómanna- skólahúsið vr tekið í notkun og Vélskólinn flutti þangað hóf Gunnar Gjarnason kennslu við skólann og skólastjóri varð hann tíu árum seinna, árið 1955, þegar Marinus E. Jessen lét af störfum. Gunnar lét sjálfur af störfum fyrir tíu árum fyrir aldurssakir. Undirritaður hóf kennslu við Vélskólann árið 1955 þegar Gunn- ar varð skólastjóri og starfaði mjög náið með Gunnari að mál- efnum skólans. Það fer ekki milli mála að Gunnar Bjarnason hafði mikil áhrif á vélstjóramenntun- ina, í fyrsta lagi vegna þess að Gunnar Bjarnason fyrrum Vélskóla- st jóri - Áttræður hann er mikill áhugamaður og hamhleypa til vinnu og svo hitt að fyrir dyrum stóðu miklar breyt- ingar á vélstjóranámi og öllu framhaldsnámi í landinu. Unnið hafði verið að samein- ingu vélstjóranámsins undir einn hatt en Fiskifélag íslands hafði hluta af því, hin svokölluðu mót- ornámskeið. Iðnfræðslan, þar á meðal járnsmíðanámið, var í endurskoðun en Vélskólinn var um hríð aðeins framhaldsskóli járniðnaðarmanna. Með árunum dró mjög úr aðsókn að skólánum enda var hún algjörlega háð því hve margir lærlingar voru við nám í járnsmíði og útskrifuðust. Árið 1966 voru sett ný lög um vélstjóranám sem Gunnar Bjarna- son átti mikinn þátt í að móta en með lögum þessum og undir stjórn Gunnars óx skólinn og dafnaði ótrúlega ört. Vélskólinn hefur lengstum verið vanbúinn tækjum til verklegrar kennslu en Gunnar fékk því til leiðar komið að vélasalurinn var stækkaður og keyptar nýjar vélar en einnig var hafist handa við nýbyggingu til þess að unnt væri að taka við fleiri nemendum vegna aukinnar að- sóknar að skólanum. Saga Vélskólans og starfsferill Gunnars Bjarnasonar eru tvinnuð saman en hvað má segja um manninn sjálfan? Eins og fram hefur komið þegar er aðdáunar- verður dugnaður Gunnars að koma málefnum í framkvæmd sem eru á dagskrá á hverjum tíma. Nemendur hans segja að hann hafi verið mjög góður kenn- ari og sá nemandi sem ekki gæti lært hjá Gunnar Bjarnasyni gæti alls ekkert lært. Margs er að minnast í sambandi við Gunnar Bjarnason sem skóla- stjóra og yfirmann. Það var ákaf- lega gaman að vinna með honum og Iáta hrífast af eldlegum áhuga hans sem stundum var að okkar dómi heldur mikill. Það bætti úr skák að Gunnar er mikill húmoristi, hefur gaman af félagsskap og er mikill gleði- og samkvæmismaður og er við brugð- ið hans snjöllu og hnitmiðuðu tækifærisráðum á mannamótum. Gunnar hefur létta lund og Ieik- arahæfileika enda stundaði hann leikstörf um tíma hjá Leikfélagi Reykjavíkur, sem margur man, og naut þeirrar skemmtunar í ríkum mæli. Gunnar hefur margsinnum lýst því yfir að hann hafi haft mikla gleði og ánægju af því að vera kennari enda var hann mjög vinsæll og komu hæfileikar hans þar ótvírætt í ljós. Hann kapp- kostaði að sníða skólann eftir íslenskum aðstæðum og að veita nemendum eins hagnýta menntun og frekast var kostur svo að þeir væru vel í stakk búnir að takast á við störf sín í atvinnulífinu. Gunnar Bjarnason hefur haft mörg áhugamál um dagana og meðal annars starfað mikið í Oddfellowreglunni og Stangveiði- félagi Reykjavíkur og var formað- ur Stangaveiðifélagsins um árabil. í skólamálum og tæknimálum hefur hann komið víða við utan Vélskólans, svo sem við stofnun Tækniskóla íslands, saltfisk- þurrkun (en hann hannaði hús til slíks), frystihús og kælitækni (en hann skrifaði m.a. kennslubók um kælitækni), svartolíubrennslu í skipum og hefur hann tekið saman og þýtt bækur í því sambandi. Fyrir hönd Vélskóla íslands óska ég Gunnari Bjarnasyni, frú Önnu og allri fjölskyldu hans til hamingju með daginn. Gunnar ætlar að taka á móti afmælisgestum sínum í húsakynn- um Stangaveiðifélagsins að Háal- eitisbraut 68, milli kl. 16—19 í dag. Andrés Guðjónsson skólastjóri. Thatcher má búast við andróðri ráðherra sinna New York, 9. febrúar. AP. FRÁ ÞVÍ aö Margrét Thatcher komst til valda í Bretlandi fyrir 21 mánuöi, hefur brezkt efnahagslíf versnað í orösins fyllstu merk- ingu, segir í grein bandaríska tímaritsins TIME um forsætisráö- herrann brezka. Segir í forsíðugrein blaðsins aö þrátt fyrir vaxandi óvinsældir sýni frúin engin merki um aö hún hyggist slaka á efna- hagsstefnu þeirri er kosningasigur hennar grundvallaöist á. Tímaritiö segir aö Thatcher hafi leitt íhaldsflokkinn til stórs sigurs meö loforöum um niöurskurö opin- berra útgjalda, lækkun tekjuskatts og heit- strengingum um aö blásiö yröi nýju lífi í iðnaö og annað at- hafnalíf. Kemst tímarit- iö aö þeirri niöurstööu, aö þar sem árangur hafi enn ekki oröiö af efnahagsstefnu henn- ar, séu Bretar nú á barmi mestu kreppu sem þeir hafi oröiö fyrir frá því á fjóröa áratug aldarinnar, þar sem 10% atvinnufærra manna séu atvinnulausir og allt bendi til þess aö atvinnulausum eigi eftir aö fjölga í 22 af hundraöi vinnu- færra manna. TIME segir, aö aöalmarkmiö efnahagsstefnu Thatchers hafi verið aö „kreista lífiö úr verö- bólgunni". Hún hafi, eins og síöar kom á daginn, varaö strax viö því, aö kjörin færu versnandi fyrst um sinn, en síðar kæmi svo bati í Ijós. Blaðið segir: „Verðbólgan var 10% þegar íhaldsflokkurinn tók viö völdum, en er nú 15%. Þjóöartekjur hafa rýrnaö, vöxtur þeirra var 1,5% 1978 til 1979 en þær drógust saman um 3% 1979 til 1980. Um tíu þúsund fyrirtæki fóru á haus- inn, sem er met á svo stuttum tíma. Áriö 1980 fjölgaði atvinnu- — verði efna- hagsbati ekki sjáanlegur á næsta ári Margrét Thatcher lausum um 66% frá því áriö áöur, og frá því Thatcher tók viö embætti um 86%. Á sama tíma hefur ríkisstjórninni hvorki tekist aö hafa taumhald á peninga- magninu né opinberum útgjöld- um, en þessi atriöi voru tveir af hyrningarsteinum efnahags- stefnu stjórnarinnar. Fyrstu spár um jöfnuö ríkis- tekna og ríkisútgjalda bentu til þess að á fjárhagsárinu 1980 til 1981 yrði jafnviröi 20 milljóna dollara halli á ríkisrekstrinum, en samkvæmt síöustu spám sér- fræöinga stjórnarinnar bendir allt til þess aö hallinn veröi yfir 30 milljaröar dollara, eöa a.m.k. sjö milljöröum dollara meiri en gert var ráö fyrir í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar í fyrra." Nú er svo komiö, segir TIME, aö Bretar spyrja sig gjarnan hvort Thatcher sé aö leiöa þá inn í ógöngur eöa út úr þeim. „Menn hafa ekki gert upp hug sinn, en þaö er víst, aö kjósendur eru orönir uggandi". TIME segir í grein sinni, aö í brezkum stjórnmálum séu miklar andstæður ráöandi, annars veg- ar ósveigjanlegir frjálshyggju- menn og hinsvegar vinstri armur Verkamannaflokksins, sem boöi og krefjist „þjóðfélagslegra um- breytinga". Segir tímaritiö aö yröi Verkamannaflokkurinn ofan á gæti stefna hans haft mikil áhrif heimafyrir og á vettvangi alþjóð- legrar samvinnu, t.d. ef Bretar gengju úr Efnahagsbandalagi Evrópu og ef flokkurinn geröi alvöru úr ýmsum atriöum er snertu varnarmál og þá einkum Atlantshafsbandalagiö. Loks veltir TIME framtíö Thatchers fyrir sér, og skýrir frá auknum áhyggjum samstarfs- manna forsætisráöherrans vegna allrar þeirrar gagnrýni sem stefna stjórnarinnar og gjöröir í efnahagsmálum veröur fyrir. í því sambandi veltir ritiö því fyrir sér hvort pólitískur frami frúarinnar kunni aö veröa ( voöa batni ástand efnahagsmálanna ekki á næstu misserum. í þessu sambandi hefur TIME eftir einum velmetnum, en ónafngreindum ráöherra: „Ef efnahagsþróunin tekur ekki kipp upp á við næstu 12 til 15 mánuöina og ef ekki dregur úr atvinnuleysi á sama tíma, mætti búast viö því aö borin yröi upp í stjórninni tiilaga um stefnubreyt- ingu. Yröi Thatcher því mótfallin kæmi óhjákvæmilega til kosn- inga í stjórninni, og yröi hún undir, ætti hún ekki annarra kosta völ en aö taka poka sinn." Ráöherrann spáir því, aö bíöi hún ósigur af þessu tagi, klofnaöi íhaldsflokkurinn og Verka- mannaflokkurinn færi meö sigur af hólmi í kosningum. Nýr formaður Framf arafélags Breiðholts Á AÐALFUNDI Framfarafélags Breiðholts, sem haldinn var í fyrrakvöld, var kosinn nýr for- maður og stjórn. Fráfarandi formaður, Inga Magnúsdóttir, gaf ekki kost á sér, en hún hefur gegnt formannsstöðunni i tvö ár. 1 framboði voru Gunnlaugur B. Daníelsson og Lena Rist og fóru atkvæði þannig að Lena fékk 38 atkvæði en Gunnlaugur 24. Þegar þessi úrslit lágu fyrir ákváðu nokkrir fyrrverandi stjórnarmeðlimir að gefa ekki kost á sér, en þrátt fyrir það buðu sig fram til stjórnarkjörs helm- ingi fleiri en kjósa skyldi. í stjórninni eiga sæti 10 manns, þá sitja fjórir varamenn einnig reglulega stjórnarfundi. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Keflavík Tll sölu mjög vel meö farlö vlölagasjóöshús. Góöir grelöslu- skilmálar. 2ja hæöa elnbýlishús viö Sól- vallagötu. Losnar fljótlega. Sérhæö vlö Vatnsnesveg ásamt nýjum bílskúr. 2ja herb. íbúö viö Mávabraut. Raöhús í smíöum, veröur skilaö tokheldu og fullfrágengnu aö utan í sumar. Teikningar á skrifstofunni. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Kaflavik, aimi 1420. Innflytjendur Get tekiö aö mér aö leysa út vörur. Tilboö merkt: „Vörur — 3333“, sendíst augld. Mbl. Ungan reglusaman námsmann vantar herb. meö aögang aö eldhúsi til leigu fram til 1. júní. Hugsanlega næsta vetur. Uppl í síma 54131 eftir kl. 17 á daginn. húsnæöi í boöi é — i 1114 rt ftá Grindavík Til sölu 4ra herb. íbúö ásamt bílskúr. í parhúsi. Sér inngangur. ibúöin er í góöu ástandi. Laus fljótlega Eignamiölun Suðurnesja, Hafnargötu 57, aimi 3868. IOOF 11 — 16202128% — 9.0 IOOF 5 = 1622128% = SK □ Helgafell 598112027 — VI. D St:St: 598102127 - VII - 7 - Fr. Grensáskirkja Almenn samkoma veröur í safn- aöarhelmilinu í kvöld kl. 20:30. Allir hjartanlega velkomnir. Halldór S. Gröndal. Fri Guöspekí- fólaginu Áakriftarafmi Qartglara ar 39573. í kvöld kl. 21 veröur Sigvaldi Hjálmarsson meö erindi „Hvaö er kyrröin?" (Septíma). Allir vel- komnlr. Hjálpræðisherinn Almenn samkoma í kvöld kl. 20:30. Allir hjartanlega velkomn- Nýja Postulakirkjan Messa í kvöld, fimmtudaginn 12. febr. kl. 20:30 aö Háaleitlsbraut 58. Séra Gene Storer frá Kan- ada talar. Eftir messu veröur kaffi á heimlli Lennart Hedins. Alllr velkomnir. Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20:30. Ræöumenn Ásgrímur Stefánsson og fleiri bræöur utan af landi. Skátafélagiö Landnemar boöar á aöalfund, fimmtudaginn 26. febr. í Austurbæjarskóla, kl. 20:00. Ad. KFUM Fundur í kvöid kl. 20:30 aö Amtmansstíg 2b. Kristniboö — Framtíöarhorfur. Katrín Guö- laugsdóttir og Gisli Arnkeisson sjá um fundlnn. Allir karlmenn velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.