Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.02.1981, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981 Endurbyggingu húsanna á Bernhöftstorfu haldið áfram TORFUSAMTÖKIN hafa nú að mestu lokið vð að gera upp Land- læknishúsið svonefnda á Bern- höftstorfunni. t næstu viku hefst undirbúningur að viðgerð á húsi bak við Landlæknishúsið og Banka- stræti 2. Torfusamtökin héldu fund með fréttamönnum þar sem skýrt var frá gangi framkvæmda við endurbygg- ingu húsa á Bernhöftstorfunni. Endurbygging Landlæknishússins hófst í febrúar 1980. Lokið er að mestu við að gera við húsið að innan en enn á eftir að gera upp hluta af útveggjunum. Það mun bíða til vors. í húsinu er nú veitingahúsið Torfan, Galllerí Langbrók, skrifstofur Lista- hátíðar í Reykjavík og Torfusamtak- anna. Kostnaður við viðgerð hússins nemur nú tæpum 700.000 krónum. Þorsteinn Bergsson formaður Torfu- samtakanna sagði á blaðamanna- fundinum að samtökin teldu sig hafa sloppið vel fjárhagslega. Við endur- bygginguna hefði mikið verið unnið í sjálfboðaliðavinnu og vinna margra ekki hátt metin. Hann sagði að samtökin hefðu í upphafi fjármagnað framkvæmdirn- ar með fyrirframgreiðslu húsaleigu, 400.000 krónum. Samtökin hefðu svo tekið á sig greiðslur fram eftir sumri en þá fengu þau styrk frá ríkinu að upphæð 270.000 krónur og frá Reykjavíkurborg fengu þau 60.000 króna styrk. Það kom hins vegar fram á fundinum að samtökin hafa greitt 65.000 krónur í fasteignagjöld til borgarinnar. Upphaflega var þeim gert að greiða 120.000 krónur en samtökin kærðu það mat. Fóru þau fram á það að fasteignagjöld yrðu felld niður, en þeirri beiðni var neitað. Nú liggur hins vegar fyrir að gjöldin verða lækkuð um allt að 60% og því var þessi upphæð, 65.000 krónur, greidd í nóvember sl. Yfirumsjón með vinnu við land- læknishúsið hafði Knútur Jeppesen arkitekt og Halldór Bachman stjórn- aði trésmíðavinnu. Viðræður við ríki og borg um áfram- haldandi framkvæmdir Enn hefur ekki verið ákveðið endanlega hvað verður til húsa í Bankastræti 2 og húsinu bak við Landlæknishúsið. Þó er það nokkuð víst að veitingahúsið Torfan mun taka síðar nefnda húsið á leigu undir starfsemi sína. Þorsteinn sagði að ýmsir aðilar hefðu sýnt áhuga á að fá inni í Bankastræti 2, m.a. bakarí og verslanir. Kostnaðurinn við endurbyggingu Bankastrætis 2 er um 600—700.000 krónur. En kostnaðurinn við að endurbyggja þau hús sem eru brunnin, Gamla bakaríið og Korn- hlöðuna er lauslega áætlað um 4—5 milljónir. Þorsteinn sagði að upp hefði komið sú hugmynd að í þeim tveimur húsum yrði komið fyrir sal sem tæki 2—300 manns í sæti og hægt að nota sem t.d. kvikmynda- hús, leikhús og fundarsal. Þorsteinn sagði að sem fyrr yrðu samtökin að fjármagna næsta Hverjar eru starfsað- ferðir Ananda Marga? Stjórn Ananda Marga á íslandi hefur heðið Morgunblaðið fyrir eftirfarandi grein: í fréttatíma sjónvarpsins 19. nóvember sl. varpaði biskup Is- lands, herra Sigurbjörn Einars- son, fram ofangreindri spurningu. Það er bæði rétt og skylt að biskupinn og allur almenningur fái svar frá þeim, sem málið er skyldast og best þekkja til. Áður en svör eru greidd verður þó ekki komist hjá að víkja nokkrum orðum að því samhengi, sem spurningin var sett fram í og gera í stuttu máli grein fyrir eðli Ananda Marga og markmiðum. Er Ananda Marga sértrúarhópur? Tilefni viðtals við biskupinn var sjónvarpsþáttur um Moon-hreyf- inguna. Biskupinn varaði almennt við þeirri hreyfingu svo og vottum Jehova, og varpaði síðan fram þessum spurningum: „... hverjar eru starfsaðferðir Ananda Marga, og hvert rennur ágóðinn af þeirri matvælasölu, sem þeir hafa, til dæmis að taka Loks vék hann að svokölluðum Guðsbörnum og leiðtoga þeirrar hreyfingar. í fyrrgreindum sjónvarpsþætti var dregin upp vægast sagt óhugn- anleg mynd af Moon og söfnuði hans. Ummæli biskupsins eru því mjög fallin til að vekja þá hug- mynd að Ananda Marga sé ámóta skuggaleg hreyfing og þátturinn gaf tilefni til að álíta að Moon- hreyfingin væri. Þessi samanburð- ur er þó að öllu leyti óréttmætur. Varla er hægt að segja að hreyf- ingarnar eigi annað sameiginlegt en að stofnendur þeirra eru báðir Asíumenn og að hreyfingarnar hafa báðar öðlast útbreiðslu í Evrópu og Norður-Ameríku á und- anförnum árum. Hinsvegar er Moon-hreyfingin, samkvæmt því, sem haldið er fram af hálfu fyrirsvarsmanna hennar, kristileg trúarhreyfing, sem undirbýr endurkomu Krists, en Ananda Marga er andleg hreyfing, sem er ekki tengd neinum trúarbrögðum, hvorki kristnum né öðrum. Með orðinu „andlegur" í þessu sam- bandi er átt við andstæðu efnis- hyggju, en það þýðir ekki að hreyfingin sé trúarlegs eðlis. Hins vegar byggir hún á andlegri heim- speki, sem er sameiginieg Hind- úum og Búddistum, sbr. t.d. þætti, sem sýndir eru um þessar mundir í sjónvarpi um trúarbrögð heims- ins. Kenningar Lao Tse, sem koma fram í Bókinni um veginn, byggj- ast á sömu grundvallarhugmynd- um og jafnvel siðspeki Gyðinga virðist að verulegu leyti runnin af sömu rót, sbr. grein í nýlegri Lesbók blaðsins. Ananda Marga kennir Tantra- yoga, kerfi andlegra (vitrænna og líkamlegra) æfinga, sem miða að alhliða þroska mannsins, ekki sist siðrænum og andlegum. Bænahald er ekki ástundað í Á.M. Meðal þeirra sem leggja stund á Tantra á vegum A.M. eru menn, sem aðhyllast hin fjölbreyttustu trúarbrögð, þar á meðal evangel- isk-lúterska kristni (þótt þeir leiði hjá sér kreddur kirkjunnar). Jafn- vel kaþólskir prestar eru í þessum hópi (geistlegum yfirvöldum til takmarkaðrar gleði). Þó er sá hópur líklega stærstur, sem alls ekki aðhyllist nein trúarbrögð. í A.M. er lögð rík áhersla á að enginn játist undir annað í hug- myndafræði en það, sem samrým- ist bestu samvisku hans og skyn- semi. Markmið Ananda Marga og starfsaðferðir Ananda Marga vinnur að því að allir menn geti átt þess kost, með ögun sjálfsvitundarinnar, að ná einingu við innsta eðli tilverunn- ar. Á Vesturlöndum hefur einhliða sókn eftir efnislegum gæðum leitt ómældar þjáningar yfir fjölda manna og heft andlegan þroska þeirra. I öðrum heimshlutum skortir fjöldann, einkum vegna lífsþægindagræðgi Vesturlanda- manna, brýnustu lífsnauðsynjar svo að langur vegur er frá að fólk eigi kost á fullnægju andlegra þarfa sinna. Þessvegna leggur A.M., auk yogakennslu, megin- áherslu á að koma fram félagsleg- um breytingum til að fátækt verði útrýmt og þeirri eymd og þján- Shrii Shrii Anandamurti. ingu, sem þjáir svo marga í allsnægtasamfélögum. Þessvegna starfar A.M. meðal drykkju- manna, eiturlyfjaneytenda og af- brotamanna. Af sömu sökum styð- ur hreyfingin ýmsar andlega sinn- aðar en félagslega róttækar hreyf- ingar, einkum í vanþróuðum lönd- um. Þess vegna hefur hún stofnað heimili fyrir útigangsbörn víða um heim. En auk þess starfar hreyfingin að almennum líknar- og velferðarmálum og bættu heil- brigði með reglubundnum heim- sóknum á elliheimili, heimili fyrir vangefna og geðsjúka, sjúkrahús o.s.frv. Þá rekur hreyfingin barna- heimili og skóla, matvöruverslanir og matstofur. Á búum hreyfingar- innar eru ræktuð ávextir, græn- meti og korn án notkunar eitur- efna og tilbúins áburðar og í verkstofum hennar eru. unnar hollar matvörur, sem síðan eru seldar nánast á kostnaðarverði í verslunum hreyfingarinnar. Hreyfingin er aðaleigandi Korn- markaðarins i Reykjavík, stendur fyrir útimarkaði með ávexti og , grænmeti á Lækjartorgi og leik- skóla í Skerjafirði auk prent- smiðjureksturs, bóka- og tímarita- útgáfu og hjálparstofnunar. Allir eiga þess kost að læra hugleiðslu og asanas (líkamsæf- ingar) ókeypis á vegum A.M., einnig biskup íslands, en ríkar kröfur eru gerðar um siðgæði, þar sem talið er að efling persónuleik- ans, sem iðkun æfinganna hefur í för með sér, kunni að reynast hættuleg, ef siðferðisþroski helst ekki í hendur við hugrænan þroska. Á vegum A.M. starfar fjöldi munka og nunna, sem ferðast um flest lönd heims (einnig austan járntjalds) og kenna andleg vís- indi. Aleigu sína bera þau með sér, og þarfir þeirra virðast undra- fábrotnar. Þau standa, ásamt fé- lögum hreyfingarinnar, að fyrir- lestrahaldi, námskeiðum og mót- um. Fjáröflun og hjálparstarf Fjár til að standa straum af skólahaldi, ferðakostnaði og uppi- haldi kennara, er aflað með fram- lögum fyrirtækja hreyfingarinn- ar, hagnaði af ávaxtasölu á úti- markaði og með almennum sam- skotum innan hreyfingarinnar og utan. Starfsemin byggist að veru- legu leyti á sjálfboðavinnu. I ýmsum löndum hefur hreyf- ingin með höndum hjálparstarf, bæði að staðaldri og eins þegar stórslys og náttúruhamfarir ber að höndum. Fjár til starfseminnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.