Morgunblaðið - 12.02.1981, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1981
45
. I) V- „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
\Æ UJÍUI g“l u ,r
Dagvistarstofnanir:
Vinnuálagið þar
er gífurlegt
Þessir hringdu . . .
Kvæðið eftir
Sigurð Júlíus
Jóhannesson
InKÍbjörK Guömundsdóttir hafði
samband við Velvakanda ok sagði:
— Ég var í sveit á sumrin á
Heggsstöðum í Hnappadalssýslu,
hjá hjónunum Ingveldi Sigurðar-
dóttur og Guðmundi Hálfdanarsyni,
frá því að ég var fjögurra ára gömul
og fram á fullorðins ár, og kem
þangað enn til afkomenda þeirra.
Hjá þessum hjónum var oftar en
einu sinni í sumardvöl, að vísu ekki
á Heggsstöðum, Sigurður Júlíus
Jóhannesson, sem síðar varð læknir
í Kanada, mikill hugsjónamaður í
bindindismálum og skáld. Alda-
mótaárið, 1900, kom út eftir hann
bók, Sögur og kvæði, útg. í Winne-
peg. Hann sendi Ingveldi eintak af
þessari bók, en hún gaf mér það
síðar. Meðal efnis í þessari bók er
kvæði það sem spurt var um í þætti
þínum, Velvakandi, og heitir það
Dáinn.
Ingibjörg Jónsdóttir. Hafnar-
firði, hringdi í Velvakanda og benti
á að kvæði þetta væri að finna í
ljóðabók eftir Sigurð Júlíus, Kvistir,
útg. í Reykjavík árið 1910, „kostnað-
armaður Jóh. Jóhannesson".
Hartmar Pálsson hafði samband
við Vekvakanda og benti á að
Barnablaðið Æskan hefði árið 1950
gefið út ljóðabók eftir Sigurð Júlíus
Jóhannesson. Ljóð: Steingrímur
Arason valdi.
Athugasemd
Fjölmargir lesendur höfðu sam-
band við Velvakanda vegna fyrir-
spurnar St. Þ. í Velvakanda-dálkum
á þriðjudag. Ýmist var að fólk ætti
bókina Sögur og kvæði frá árinu
1900, Kvisti frá 1910 eða Ljóð frá
1950, en sumir átti kvæðið aðeins í
uppskrift og vantaði jafnvel eina
eða fleiri vísur inn í. Þar sem bækur
þessar munu allar vera ófáanlegar,
fannst Velvakanda rétt að gefa fólki
kost á því að kynnast þessu kvæði,
rifja það upp eða bera saman við
uppskriftir sínar, og birtist það hér
í dálkunum til vinstri.
Móðir skrifar:
„Velvakandi.
Tilefni þessa bréfs er að lýsa
stuðningi mínum við kröfur fóstra
um bætta vinnuaðstöðu og laun.
Ég hef sjálf átt barn á dagvistar-
heimili og veit vel hvers virði það er
að þar starfi menntað starfsfólk,
þar sem ég hef bæði reynsiu af því
að barnið mitt var á deild þar sem
starfaði eingöngu ófaglært fólk og
svo hins vegar fóstrur. Á þessum
tveim deildum var reginmunur. Um-
rætt starfsfólk sem ekki hefur
fósturmenntun getur verið ágætis
manneskjur, en skortir þá verk-
kunnáttu ef ég má nota það orð, sem
til þarf, sem er að sjálfsögðu ekkert
skrýtið, þar sem fóstrur hafa að
baki 3ja ára nám.
Börn og foreldrar
verst úti
Ég tel að líkja megi þessu dæmi
við það þegar kennarar og ófaglærð-
ir kennarar eigi í hlut. Fólki er það
hvorki meðfætt að vera kennarar né
fóstrur. Þetta vita allir og þess
vegna er langrar skólagöngu krafist.
Þeir aðiljar sem eiga eftir að verða
verst úti ef fóstrur leggja niður
störf og nýta menntun sína á öðrum
vettvangi eru börnin og foreldrar
þeirra.
Hvar stæði fólk?
Eiga börn að gjalda þvermóðsku-
háttar og skilningsleysi vinnuveit-
enda fóstra? Fóstrur eru illa laun-
aðar og hafa verið það í mörg ár.
Vinnuálagið á þeim er einnig gífur-
legt, það held ég að allir sem inn á
þessar stofnanir hafa komið séu
sammála um. Ég vildi gjarnan að
fólk ihugaði það hvar það stæði ef
öll dagvistarheimili lokuðu nú á
þessum jafnréttistímum þegar yfir
50% allra mæðra vinna utan heimil-
is (eða eru þær ennþá fleiri?).“
Borgnesingarnir sungu
þetta svo leikandi létt
Röskir við
snjómoksturinn
í Garðabæ
Ánægður Garðbæingur hringdi í
Velvakanda og hafði eftirfarandi að
segja: — Fólk hringir gjarna í þig til
þess að kvarta yfir einhverju. Mig
langar hins vegar til að tjá þér
ánægju mína með frammistöðu yfir-
valda hér í bæ í snjómokstursmál-
um. Þegar ég kom á fætur um
sjöleytið í gærmorgiin — -heyrði
UITi snjóþyngslin í útvarpinu,
þá leist mér hreint ekkert á blikuna.
En þegar ég leit út um gluggann sá
ég að búið var að ryðja götuna þar
sem ég bý, og þegar ég fór í vinnuna
skömmu síðar, var greiðfært orðið
um allan bæinn, þrátt fyrir fann-
fergið um nóttina. Þetta kalia ég
lofsverða frammistöðu, sem engin
ástæða er til að þegja yfir.
Tveir gamlingjar skrifa:
„Velvakandi minn sæll og góður.
Við vorum núna um daginn að
ræða um það, tveir gamlingjar,
hvort þú mundir ekki vilja vera svo
hjálplegur við okkur að orða það við
útvarpið, að bændur þar á bæ kæmu
nú með einn virkilega gamanþátt til
þess að hressa okkur með hækkandi
sól.
Ofsalega skemmtileKt
í því sambandi viljum við benda á
gamanleikinn „Neiið". Þetta er
danskur einb4i*--gur með mjög
skemmtilegum söngvum og til dæm-
is léku Borgnesingar þetta einu sinni
í útvarpið fyrir einum 25—30 árum.
Ég man þó ekki glöggt hvenær það
var, en það var alveg ofsalega
skemmtilegt. Efnið var um hringj-
ara, sem tók sig upp og brá sér í
bónorðsför. Til þess að geta farið
þessa för þurfti hann að fí föi
hjá vini sinum. Þegar hann kp"'iur
til stúlkunnar og hef.- ■ bónortið
viðhana, þá -glr hún a,ltaf neia
-"ú syngur hann:
„Bí, bí og blaka, viltu meft mér aka,
áatar yngismey,
æ, segðu nú j og á,
sem þýAir ...
Hún: Nei.
Svo fór að lokum að hann gafst
upp og fór til vinar síns til að skila
fötunum. Syngur um leið:
Ég brá mér hingaA í bónorAsfðr
og bjó mig sem hoffmanna þjón.
Nú fer ég úr lánsham og kveA þessi kjör,
því klukkan hún stefnir mér mót.
En Amor er gjálífsigrey,
nú stíg ég í turninn, upp stigann sú
hreyfing er holl og fín,
en klukkan mín,
mun síAust svara mér „nei“.
En ÍGour stúikunnar hafði líkað
þetta illa, því að hringjarinn var
álitinn luma á peningum, að mig
minnir. Svo er það ungur stúdent
sem falast eftir jáyrði hennar, en nú
skipar faðir hennar svo fyrir, að hún
svari honum alltaf með neii. Stúd-
entinn hagar þá þannig orðum
sínum við hana, að hún »»■’
honum harðtrúlof”* .oeour
„ ..m með öllum nei-
unum
Þetta er reglutegur gamanleikur
og Borgnesingarnir sungu þetta svo
leikandi lett. Við gamlingjarnir von-
um það besta og þökkum fyrir.“
Hitinn er dýr
— lokið
kuldagjóstinn úti
+ VINDSÚGUR = LÁGMARKSHITATAP
Fallegar útihurðir af mörgum gerðum — öflugar og
viðnámsgóðar — þrautreynd og rannsökuð hurðar-
bygging með tvöfaldri málmvörn og spónalögum
— Þéttar og loka úti súg og raka — Karmur með
gúmmíbéttilista — 2 ára ábyrgð. —
Scadania-hurðir.
■J BÚSTOFN
Aöalstræti 9, Reykjavík,
símar 29977 — 17215.
Skíðaferðir m
Skíðadeild Í.R. ásamt Úlfari Jacobsen Feröaskrif-
stofu auglýsa skíðaferðir í skíðalandi Í.R. í Hamragili.
Almenningskennsla um helgar ásamt æfingum fyrir
keppendur. Breytt áætlun.
Þriöjudaga og fimmtudaga
Bíll I
Frá JL-húsinu kl. 17.30
Noröurströnd
Lindarbraut
Skólabraut
Mýrarhúsaskóli
Esso v/Nesveg
Hofsvallagata
Hringbraut
Biðskýli v/Landspítalann
Miklubraut Shell-stöð
Austurver
Bústaöavegur
Réttarholtsvegur
Garðsapótek
Vogaver
Frá Breiðholtskjöri kl. 18.15.
Árbæjarhverfi viö Bæjarbraut.
Bíll II
Miövangur, Hafnarfirði kl.
17.30
Biðskýli Silfurtún
Biðskýli Karlabraut
Karlabraut Búðir
Víghólaskóli
Verzl. Vöröufell
Essu Smiðjuvegi
Stekkjabakki
Ölduselsskóli
Miöskógar
Seljabraut
Seljaskógar
Kjöt og Fiskur
Fellaskóli
Austurberg
Hólabrekkuskóli
Arahólar
Frá Breiðholtskjöri kl. 18.15.
Árbæjarhverfi við Bæjarbraut
Laugardaga og sunnudaga
Frá JL-húsinu kl. 9.30
Norðurströnd
Liildarbraut
Skólabraut
Mýrarhúsaskóli
Esso v/Nesveg
Hofsvallagata
Hringbraut
Biðskýli v/Landspítalann
Miklabraui Snéii-siöö
Austuver
Bústaðavegur
Réttarholtsvegur
Garðsapótek
Vooa'"'-
Ölduselsskóli
IBreiöholtskjör kl. 10.15
Árbæjarhverfi við Bæjarbraut.
Nánari upplýsingar gefur Úlfar Jacobsen Ferða-
skrifstofa, í síma 13499 — 13491 á skrifstofutíma.
Mætiö tímanlega — Geymiö auglýsinguna.