Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 8

Morgunblaðið - 01.05.1981, Side 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 „Ég hef aldrei fengið lán“ _Ék á alltaf nona peninga. IIvornÍK á það óðruvísi að vera? Ék var alinn upp á tímum þojfar a“ðstu dyKKðjr voru duKnaður ok sparnaður. Ék hef aldrei fenKÍd lán. En nú or vorðbólKan farin að ráða okkur. við hofum onKÍn tok á honni. Allir keppast við að fá lán. sem mest lán en ók tek ekki þátt í hrunadansi verðhólKunnar. Ék or á móti verðbólKunni, hver er það ekki?“ Sá sem þessi orð mælir er Stofán Jónsson en hann starfar í KassaKerð Reykjavíkur. Blaðamaður Mhl. fór í vikunni i KassaKorð Roykjavíkur ok ræddi við nokkra starfsmenn. _Frá því ók flutti á mólina fyrir tólf árum hef ók unnið hér í KassaKorðinni. Ék hof oinkum unnið við bylKjuvélina. Ék tek plótur sem úr henni kuma uk raða á hretti. Ilér er Kott að vinna. skommtiloKt fólk. óruKK vinna. Tokjurnar oru að vísu minni on þoKar ók var við bú- skap. Ék kom hintíað 1969 eftir að hafa hruKðið húi að Heiði í Sléttuhlíð í SkaKafirði. Var þar fæddur ok uppalinn. Á mölina fluttist ók vegna þess að dóttir okkar fór í skóla og er nú hjúkrunarfræðingur. Ég hafði meiri tekjur fyrir norðan. Bjó meðalbúi, var með liðlega 100 ær og 10 kýr en auk þess stundaði ég sjóinn. Hann hefur alltaf staðið mér nærri. Ég gerði út í nokkur ár frá Siglufirði, átti 10 tonna bát, Karl. En ég varð að selja hann 1951 vegna þess, að enginn vildi kaupa þorsk í þá daga í Siglufirði. Þá snérist allt um síldina. Hval- — segir Stefán Jónsson, sem hér áður fyrr gerði út en starfar nú í Kassagerðinni fjarðarsíldin kom og allir voru uppteknir af síld. Ég varð að selja bátinn með nokkru tapi. Hafði keypt hann á 25 þúsund krónur en seldi hann á 15 þúsund. Það var ekkert upp úr útgerðinni að hafa. Eftir að ég seldi bátinn, fór ég á vertíð fyrir sunnan, á Hilmi og Faxaborg. Fór síðan á bændaskól- ann á Hólum og lauk honum á einu ári og hóf búskap. En sem sagt; hingað kom ég 1969 og hóf að vinna í Kassagerð- inni. Keypti mér raunar trillu og veiddi mér til ánægju í Flóanum. Bátnum mínum var svo stolið fyrir tveimur árum og þá lagðist útgerðin sú niður. Nú stend ég á sextugu; hef aldrei fengið lán. Raunar reyndi ég það einu sinni þegar ég stundaði búskapinn. Keypti jeppa og fór suður og ætlaði að fá lán til jarðabóta en mér var sagt að engir peningar væru til í bankanum og því varð ekkert af jarðabótum. Annars held ég, að búskapur hafi ekki átt alls kostar við mig. Það hefur margt breyst síðan ég kom hingað á mölina. Þróun síðustu ára hefur ekki orðið eins og best varð á kosið. Á viðreisnar- árunum var ekki mikil verðbólga og fólk undi betur við sitt. Nú keppast allir við að fá lán. Við höfum eytt*of miklu. Bankarnir hafa lánað of mikið. Það hefur verið of mikið fé í umferð og því er verðbólgan. Nú er verðbólgan far- in að ráða okkur. En ég vil ekki láta hana ráða mér. Ég keypti íbúð þegar hingað kom og ég hefði getað keypt mér aðra íbúð en ég hef aldrei verið mikið gefinn fyrir brask. Ég hef það gott eins og ég lifi lífinu; eyði ekki meiru en ég afla. „Þú spyrð um 1. maí. Hann er nú svipur hjá sjón miðað við það sem var í gamla daga. Hann hefur ekki lengur mikinn tilgang sem áróðursdagur. Hann er orðinn skemmtidagur verkalýðsins. Sem baráttudagur hefur hann orðið sáralítið gildi. En svona í lokin; langar þig ekki til að heyra vísur, sem ég hef ort: Ég skal lofa þér að heyra tvær: Óli Jóh. er einn á bát í sinni frægu pólitík. Herinn hefur á honum gát, hann ekki strandi í Helguvík. Og svo er ég með aðra um Gunnar Thoroddsen: 'Mikið er Gunnar makalaus, mun það gleðja frúna, vinstri Stjórn með hægri haus hefur myndað núna. Ólafur Sigurðsson „Iðjutaxtinn hvorki fugl né fiskur“ Rætt við Ólaf Sigurðsson, afgreiðslumann „Þetta hefst en ekki meir en svo. Maður verður að spara eins og kostur er. Við hjónin eigum sex börn, — tvö eru flogin úr hreiðrinu. Nú vinnur kunan úti svö nokkuð er farið að hægjast um. Þegar börnin voru minni hér á árum áður, lagði maður nótt við dag svo endar nseðu saman," sagði Ólafur SÍKurðs- son, en hann vinnur í afKreiðslu KassaKerðar Reykjavíkur. „Ég hef verið hér í rúm 20 ár og hér er gott að vera. Vinnuað- staðan hér hefur batnað stórlega frá því ég hóf vinnu. Þá var allt unnið með höndunum en nú vinna tækin erfiðustu verkin. Mér finnst launin ósköp svipuð og í gegn um tíðina. Við hér í Kassagerðinni erum yfirborguð enda ekki vanþörf á. Iðjutaxtinn er hvorki fugl né fiskur. Það er augljóst mál, að laun samkvæmt taxta Iðju eru alltof lág en þessi yfirborgun bjargar við málun- um. Nú hafa stjórnvöld eina ferð- ina enn farið ofan í vasa laun- þega í svokölluðum efnahags- ráðstöfunum. „Já — þetta er sami grautur í sömu skál. Það er ávallt ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Ef á að lagfæra laun þeirra lægstlaunuðu, þá hafa þeir hæstu ávallt fengið mun meira. Svo ef laun eru hækkuð hjá fólkinu, þá hafa þau verið tekin til baka, jafnvel áður en þau hafa komið í launaum- slaginu. Stjórnvöld hafa þrá- faldlega iðkað þá iðju að skera af vísitöluhækkunum. Stjórnmála- menn lofa og lofa en þeir geta ekki staðið við loforð sín. Enda höfum við spennt bogann of hátt. Við höfum ekki sniðið okkur stakk eftir vexti og því er ástand mála eins og það er. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og fólk virðist ekki reiðubúið að minnka við sig. Verðbólgan leikur okkur grátt og gerir okkur sífellt erfiðara fyrir. Þó að vísitalan sé að hluta til í gildi og þó launþegar fái fleiri krónutölur, þá hafa þeir ekki náð að halda í við hækkandi verðlag. Þetta sést bezt af því, að fólk hefur farið erlendis, — einkum til Svíþjóðar og þar virðist það blómstra. Fólk fær þar mun betri laun fyrir styttri vinnutíma. Nei, það hefur aldrei freistað mína að fara út; ég held það sé best að halda sig við hólmann. Ég er vanafastur," sagði Ólafur Sigurðsson. Stefán Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.