Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
98. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stjórnarsamvinnunni i Sviþjóð lokið:
Minnihlutastjórn
situr fyrst um sinn
Hægriflokkurinn lýsir stuðningi við vantraust á minnihlutastjóm Fálldins
Stokkhólmi. 1. maí. Frá fréttarit-
ara Mbl.. Cuófinnu Ragnarsdóttur. ok AP.
THORBJÖRN Fálldin, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar. lýsti því yfir
í kvöld. að fyrst um sinn mundi
minnihlutastjórn miðflokkanna
tveggja sitja að völdum. vegna
versnandi ástands i atvinnumál-
um og kjaradeilna i landinu, en
stjórnarsamvinnu Miðflokksins,
Þjóðarflokksins og Hægriflokks-
ins lauk i dag. er Hægriflokkur-
inn. undir forystu Gösta Boh-
mans. sagði sig úr stjórninni, og
krafðist þess, að Fálldin bæðist
lausnar fyrir miðflokkana og
stjórnina alla. Forsætisráðherra
segist vilja hugsa sig um í
nokkra daga, en flest bendir til
þess, að hann muni freista þess
til hins ýtrasta að sitja áfram að
völdum með miðflokkana tvo i
minnihlutastjórn.
Jafnaðarmenn hafa áður lýst því
yfir, að öll stjórnin verði að fara
frá völdum, ef Hægriflokkurinn
segði sig úr stjórn. Gösta Bohman
sagði í gærkvöldi, að Hægriflokk-
urinn mundi styðja vantraustsyf-
irlýsingu Jafnaðarmannaflokksins,
ef hún kæmi fram í þinginu. Hvað
stjórnarskráin segir um gang mála,
eru skiptar skoðanir. Jafnaðar-
menn og hægrimenn telja, að allri
stjórninni beri skylda til að segja
af sér, en það er skoðun miðflokk-
anna, að þeir tveir geti setið áfram
í minnihlutastjórn.
Það var bitur og vonsvikinn
Gösta Bohman, sem boðaði til
blaðamannafundar í gærkvöldi,
eftir að hafa setið á árangurslaus-
um fundi með Thorbjörn Fálldin,
þar sem gerð var úrslitatilraun til
að leysa ágreining í sambandi við
skattamálin.
„Við áttum ekki annarra kosta
völ en segja okkur úr stjórn," sagði
Bohman. „Við gerðum okkar ýtr-
asta, og meira en það, til að
samkomulag næðist, og allar okkar
kröfur voru miðaðar við fyrri
yfirlýsingar stjórnarinnar. Við
kröfðumst þess ekki, að miðflokk-
arnir riftu samkomulaginu við
jafnaðarmenn, heldur þess, að
einnig yrði tekið tillit til okkar. En
þau svör, sem Thorbjörn Fálldin
gaf okkur í dag, voru óljós og óskýr.
Þegar ekki er fyrir hendi vilji til að
leysa vandamálin, er ekki við miklu
að búast. Líf þriggja flokka stjórn-
ar byggist á samvinnu og sam-
Sláturhúsin
aftur af stað?
Kaupmannahofn. i. mai. AP.
DANSKA stjórnin lagði i dag
fram frumvarp í þinginu vegna
kjaradeilu starfsmanna danskra
sláturhúsa.
Samkvæmt frumvarpinu yrði
sáttatillaga, sem starfsfólkið
hafnaði á laugardag, lögfest. Búist
er við að þingið samþykki frum-
varp minnihlutastjórnar Anker
Jörgensens. Útflutningstap vegna
verkfallsins nemur 200 milljónum
króna á viku.
Sjá nánar bls. 46.
komulagi í öllum málum, og þegar
ósamkomulag er um einhverja
málaflokka, eins og nú, er grund-
völlur samstarfs brostinn," sagði
Bohman.
Bohman minnti á, að einmitt í
vor væru liðin tíu ár frá því að
miðflokkarnir tveir og Hægriflokk-
urinn sameinuðust fyrst um fjár-
málatillögur og lögðu hornsteininn
að samvinnu sinni. Bohman var
harðorður í garð forsætisráðherr-
ans, og þegar hann var spurður að
því, hvort skipstjórinn á skútunni
ætti ekki að standa af sér alla
storma, ekki sízt þegar landið ætti
í erfiðleikum, svaraði hann: „Jú,
það er rétt. En það er til lítils,
þegar stýrimaðurinn, sem á að
halda í stýrið, liggur niðri í káetu
og sefur.“.
í annað sinn á fimm árum er
fallin samsteypustjórn miðflokk-
anna tveggja og Hægriflokksins,
undir stjórn Thorbjörn Fálldins.
Árið 1976 kom fyrsta samsteypu-
stjórnin til valda eftir rúmlega 40
ára stjórn jafnaðarmanna. Árið
1979 var það Miðflokkurinn sem
stjórnarstríðinu olli, sökum skoð-
ana sinna í kjarnorkumálum. Þá
tók Þjóðarflokkurinn við stjórn í
nokkra mánuði með Ola Ullsten
sem forsætisráðherra, en eftir
kosningarnar haustið 1979, varð
Thorbjörn Fálldin forsætisráð-
herra að nýju.
Hvað nú gerist í sænskum
stjórnmálum er ekki gott að segja.
Möguleikarnir eru þrír. í fyrsta
lagi, að Fálldin segi af sér og
biðjist lausnar fyrir alla stjórnina.
Ef sú verður raunin á, er mögulegt,
að hann myndi minnihlutastjórn
miðflokkanna tveggja, eða að efnt
verði til nýrra kosninga. í öðru lagi
getur Fálldin reynt að sitja áfram,
með minnihlutastjórn miðflokk-
anna tveggja, en þá má búast við
mikilli gagnrýni frá öðrum flokk-
um, og trúlegt er, að jafnaðarmenn
lýsi þá vantrausti, er hljóta mun
stuðning Hægriflokksins. Þriðji
möguleikinn er, að öll stjórnin fari
frá og til nýrra kosninga komi, en
nýjar kosningar verða ella haustið
1982.
Gösta Bohman
Alexander Haig á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins:
Viöræður um takmörkun
kjamorkuvopna í árslok
RómaborK. I. maf. — AP.
ALEXANDER M. Haig, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna.
skýrði frá því á fundi utanríkis-
ráðherra Atlantshafsbandalags-
ins i dag. að Bandaríkjastjórn
hefði í hyggju að hefja viðraeður
við Sovétmenn seinna á þessu ári
um takmörkun kjarnurkuvopna i
Evrópu. Þá kom það í fyrsta
skipti opinberlega fram, að Ron-
ald Reagan Bandarikjaforseti
hefur sent Leonid Brezhnev, for-
scta Sovétríkjanna, margra síðna
handskrifað bréf, sem svar við
bréfi Brezhnevs í marz. Ekki var
skýrt frá efni bréfs Reagans.
Heimildir af utanríkisráðherra-
fundinum hermdu, að Haig hefði
skýrt ráðherrunum frá því að
hann mundi eiga viðræður um
Reagan og Brezhnev skiptast á bréfum
ársbyrjun 1983. Samkvæmt upp-
þessi mál við Andrei Gromyko,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
þegar Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna kæmi saman í septem-
ber. Einnig kynnu embættismenn
að hittast áður til undirbúnings
fyrirhugaðra viðræðna.
Haig sagði, að viðræðurnar
stæðu og féllu með hegðan Sovét-
ríkjanna á alþjóðavettvangi, og
sagði hann að í því sambandi gæti
aukinn þrýstingur þeirra á Pól-
land stofnað viðræðunum í hættu.
Ennfremur sagði Haig að árangur
viðræðnanna gæti oltið á því hvort
Atlantshafsbandalagið héldi fast
við þá ákvörðun sína að staðsetja
572 bandarískar kjarnorkueld-
flaugar í fimm Evrópuríkjum í
Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra og Alexander M. Ilaig
utanrikisráðherra Bandarikjanna heilsast i bandariska sendiráðinu i
Rómaborg, skömmu fyrir fund utanrikisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins. Simamynd AP.
lýsingum sem dreift var á fundi
utanríkisráðherranna hafa Sovét-
menn komið 1.040 kjarnorkueld-
flaugum fyrir í járntjaldslöndun-
um er beint er að Vestur-Evrópu.
Tilkynningunni um fyrirhugað-
ar viðræður við Sovétmenn var
fagnað á fundinum, þótt sumir
fulltrúar, einkum fulltrúar frá
V-Þýzkalandi, Belgíu, Hollandi og
Ítalíu, hefðu látið í ljós vonir um
að viðræðurnar hæfust fyrr en ráð
er fyrir gert. Á fundinum var gerð
samþykkt þar sem hvatt var til
alþjóðlegrar samvinnu til að
sporna við hryðjuverkum. Jafn-
framt fordæmdu ráðherrarnir
pólitísk hryðjuverk, er farið hafa
stigvaxandi að undanförnu.
Dagar Sands
eru senn taldir
Bolfast. i. mal. AP.
Ilundruð ungmenna brutu
niður vegtálma og vörpuðu benz-
ínsprengjum að svcitum log-
reglumanna og brezkra her-
manna i hvcrfum kaþólskra við
Falls Road i vesturhluta Belfast
í dag og við Short Strand, en í
þessum hverfum nýtur ólöglegi
lýðveldisherinn (IRA) mikillar
samúðar.
Unglingarnir vildu með þessu
votta Bobby Sands. hinum dauð-
vona skæruliða IRA. stuðning
sinn. en i átökum slasaðist lög-
regluþjónn og tjón var unnið á
bifreiðum og mannvirkjum.
Hofðu unglingarnir að vettugi
áskoranir leiðtoga kaþólskra og
mótmælenda. fjölskyldu Sands
og Bernadettu Devlin. um að
sýna stillingu.
Bobby Sands lá enn í dái í
kvöld, en hann færist óðum nær
dauðanum. Er hann meðvitund-
arlaus og verður lífi hans trauðla
bjargað. Ættingjar hans og
prestur stóðu við dánarbeð hans í
sjúkrahúsi Maze-fangelsisins.
„Það er aðeins tímaspursmál
hvenær hann deyr,“ sagði yfir-
maður kosningabaráttu Sands,
sem kosinn var á þing 9. apríl
síðastliðinn, við blaðamenn í
gærkvöldi.
Charles Haughey forsætisráð-
herra írska lýðveldisins lét undan
þrýstingi stuðningsmanna Sands
í dag, og hvatti mannréttinda-
nefnd Evrópu til að skerast í
leikinn, þótt á elleftu stundu
væri, og fá brezk yfirvöld til að
slaka á afstöðu sinni, en brezk
yfirvöld hafa neitað að verða við
kröfum hinna sveltandi hryðju-
verkamanna, sem heimta að vera
skoðaðir sem pólitískir fangar.
Þegar ekki vár orðið við þeim
kröfum fóru þeir í hungurverk-
fall, en ásamt Sands svelta þrír
hryðjuverkamenn IRA til viðbót-
ar, þar á meðal hættulegustu og
eftirlýstustu hryðjuverkamenn
samtakanna, og eru þeir nær
dauða en lífi.