Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
3
Það er næg vinna fyrir unga sem aldna við fiskverkun á Fáskrúðsfirði
Um þessar mundir. Ljóstn. Mbl. Alhrrt Krmp.
Fáskrúðsfjörður:
Góður af li að
undanförnu
19. áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar:
Kjell Bækkelund einleikari
NK. FIMMTUDAG. 7. maí. kl.
20.30 mun Sinfóníuhljómsveit
íslands halda sina 19. áskrift-
artónleika á þessu starfsári.
Efnisskráin á þessum tónleik-
um verður sem hér segir:
Jón Leifs — Minni Islands,
Grieg — Píanókonsert, Cesar
Frank — Sinfónía í d-moll.
Efnisskrá tónleikanna verður
sú sama og hljómsveitin leikur á
tónlistarhátíðinni í Wiesbaden í
Þýskalandi 15. maí nk. en
hljómsveitinni hefur verið boðið
þangað til að halda eina tón-
leika.
Hljómsveitarstjóri er Jean-
Pierre Jacquillat, hann hefur oft
stjórnað Sinfóníuhljómsveit ís-
lands áður, og var nýlega ráðinn
aðalstjórnandi hennar næstu
þrjú árin. Hann hefur stjórnað
fjölda hljómsveita, austan hafs
og vestan, og meðal annars verið
einn af aðalstjórnendum
Orchestre de Paris og við óper-
una í Lyon. Hann fæddist í
Versölum 1935 og er franskur
ríkisborgari.
Einleikari á tónleikunum er
norski píanóleikarinn Kjell
Bækkelund. Hann fæddist í Osló
árið 1930. Fimm ára gamall
byrjaði hann að læra á píanó og
átta ára gamall lék hann einleik
með Philharmóníuhljómsveit-
inni í Osló.
Kjell Bækkelund hefur haldið
tónleika í flestum löndum Evr-
ópu, Ráðstjórnarríkjunum,
Austurlöndum nær og fjær, í
Asíu, Norður- og Suður-Amer-
íku. Hann hefur komið fram í
útvarpi og sjónvarpi víða og
leikið inn á fjölmargar hljóm-
plötur, m.a. fyrir RCA píanók-
onserta eftir Grieg, Liszt, Rach-
maninoff, Schumann og Tschai-
kofsky og Deutsche Gtammo-
phon-píanókonserta eftir Grieg
og Sinding.
Kjell Bækkelund vann 1. verð-
laun í Norrænni keppni hljóð-
færaleikara 1953 og sama ár var
hann kjörinn „Píanóleikari árs-
ins“ í London og var sæmdur
„Paderewski-orðunni" í London
1958. Hann hefur leikið undir
stjórn m.a. Herbert Blomstedt,
Miltiades Caridis, Dean Dixon',
Okko Kamu, Eugene Ormandy,
Wilhelm von Otterloo o.fl.
Auknar niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum:
Þýðir um 0,5% minni
hækkun vísitölunnar
Fáskrúðsfirði. i. mai.
ALLAN aprílmánuð hefur verið
mjög góður afli. bæði hjá togur-
um og bátum. Heildarafli þriggja
netabáta var 1693 tonn um síð-
ustu mánaðamót, en var á sama
tíma í fyrra 1750 lestir hjá jafn
mörgum bátum. en þá var mun
betri aíli í janúar og febrúar.
Aflahæsti báturinn núna er
Sólborg SU 202 með 644 lestir, en
var á sama tíma í fyrra með 732
lestir. Síðan í febrúar hefur afli
togaranna verið mjög góður og eru
Rætt um loðnu-
stofninn í Osló
eftir tvær vikur
FISKIFRÆÐINGAR hafa lagt til,
að í sumar og á næstu vetrarvertíð
verði ekki leyft að veiða meira en
700 þúsund lestir úr íslenzka
loðnustofninum. Fundur í ís-
lenzk-norsku fiskveiðinefndinni
verður haldinn í Osló 19. maí og þá
verður tekin ákvörðun um leyfi-
legan hámarksafla úr loðnustofn-
inum. I nefndinni sitja ráðu-
neytisstjórarnir Jón Arnalds og
Gunnar Gundersen, en auk þeirra
mæta vísindamenn á fund nefnd-
arinnar. Á þessum fundi verður
einnig rætt um síldveiðar við
Noreg og kolmunnaveiðar.
þeir komnir með 2907 lestir frá
áramótum. Hoffell SU 80 er með
1692 lestir, aflaverðmæti 5.902.834
krónur, Ljósafellið er með 1215
lestir, aflaverðmæti 3.590.773
krónur.
Þessum afla hefur að mestu
leyti verið landað hér heima og
farið í vinnslu hjá þremur
vinnslustöðvum. Ýmist er fiskur-
inn frystur, saltaður eða hengdur
og hefur miklu meira verið sett í
herzlu nú en áður.
— Albert
NIÐURGREIÐSLUR á landbún
aðarvörum voru auknar nokkuð
um mánaðamótin, sem hefur í för
með sér 2—14% lækkun á búvöru-
verði, en búvöruverðið mun síðan
væntanlcga hækka verulega á
nýjan leik um næstu mánaðamót.
Mest varð lækkunin nú á kartöfl-
um, cða 14%.
Séu tekin dæmi um lækkunina,
þá lækkar venjulegt súpukjöt úr
32,90 krónum hvert kíló í 32,15
krónur. Lambalæri iækkar úr
39,70 krónum í 38,95 krónur hvert
kíló.
Hvert kíló af kartöflum lækkar
úr 3,73 krónum hvert kíló í fimm
kílógramma umbúðum í 3,28 krón-
ur.
Mjólkurlítrinn lækkar úr 4,60
krónum í 4,45 krónur og kíló
smjörs lækkar úr 51,05 krónum í
49 krónur.
Kostnaðurinn við þessar auknu
niðurgreiðslur ríkissjóðs á land-
búnaðarvörum er um 70 milljónir
króna, sem mun væntanlega þýða
liðlega 05% minni hækkun vísi-
tölunnar.
Enn ekkert sam-
komulag við EBE
FUNDI íslendinga og Efnahags-
bandalags Evrópu um hafsvæðið
milli íslands og Grænlands og
hugsanlegan rammasamning um
fiskveiðar og -verndun á þessu
svæði lauk í Brússel siðastliðinn
fimmtudag. Lítið miðaði i sam-
komulagsátt á fundinum, en
ákveðið var að halda viðræðum
áfram. Visindamenn frá íslandi
og EBE hittast á næstunni og i
júlímánuði er fyrirhugaður ann-
ar fundur embættismanna. Á
fundinum í Brússel voru þeir
Már Elisson. Jón Arnalds, Ilann-
es Ilafstein og Jakob Magnússon
fulltrúar íslands.
Á fundinum í Brússel í síðustu
viku voru kynntar hugmyndir
íslendinga og kröfur um friðunar-
aðgerðir á þessu svæði, m.a. um
sömu möskvastærð og gildir hér
við land, lokun svæða og slíkar
aðgerðir til verndar ungfiski. Þá
er ein aðalkrafa íslendinga, að
ákveðinn verði hámarksafli á
svæðinu og leyfilegum afla verði
síðan skipt í ákveðnu hlutfalli
milli íslands og EBE. Verulegur
ágreiningur er á milli aðila og
engir fiskveiðisamningar eru í
gildi.
Kann það að hafa i för með sér,
að skip frá Efnahagsbandalaginu
stundi loðnuveiðar í stórum stíl
vestan miðlínu milli Islands og
Grænlands í sumar án tillits til
þess samkomulags, sem Islend-
ingar og Norðmenn hafa gert um
hámarksafla úr íslenzka loðnu-
stofninum við ísland og Jan May-
en og skiptingu hans milli þjóð-
Engar viðræður
við lækna ennþá
ÞORSTEINN Geirsson, skrif-
stofustjóri i fjármálaráðu-
neytinu. sagði i samtali við Mhl.,
að engar viðræður hefðu ennþá
farið fram milli fulltrúa rikisins
og lækna á rikisspitUölunum,
scm hyggjast ganga út á hilinu
15,—20. maí nk. verði ekki orðið
við kröfum þeirra um bætt kjör.
Hins vegar myndu væntanlega
fara fram óformlegar viðræður
milli fulltrúa ríkisins og fulltrúa
Læknafélags íslands, þó svo að um
persónubundnar uppsagnir sé að
ræða.
Um tveir þriðju hlutar allra
lækna á ríkisspítölunum hafa sagt
upp starfi sínu. Aðeins yfirlæknar
og aðstoðarlæknar, sem ráðnir
hafa verið til skamms tíma hafa
ekki í hyggju að ganga út.
DAIHATSU CHARADE1981
Japanskur gæðabíll á frábæru verði
Kr. 70.700 -—
Kr. 46.300^ '
meö ryövörn
de luxe gerð. i&bL~ J
Kraftamikill,
sparneytinn,
rúmgódur
og öruggur.
DAIHATSU CHARADE
er bíll 9. áratugsins.
Viöurkennd varahluta- og verkstæöisþjónusta. „
_ .. . __ simar 85870
Daihatsuumboðið Armula 23 39179