Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
5
og einkaumhoðsmenn
um land allt
Fréttaritararnir 15 sóttu heim forseta íslands í gær og tók Emilía Björg ljósm. Mbl. þessa mynd af
þeim þar.
15 erlendir fréttaritarar frá Kaupmannahöfn í heimsókn
HÉRLENDIS eru staddir þessa dagana í boði Flugleiða og utanríkisráðuneytisins 15 erlendir
fréttaritarar, sem eiga það sameiginlegt að vera staðsettir í Kaupmannahöfn. Fréttaritarar þessir eru
starfandi fyrir mörg vel þekkt blöð, svo sem Observer í London, Le Monde í Frakklandi og fleiri.
Fréttaritararnir komu til landsins sl. sunnudag og fara aftur á föstudag. Þeir heimsækja m.a. Akureyri
og Vestmannaeyjar í dag, auk þess kynna þeir sér starfsemi fjölmargra stofnana. I gærmorgun heimsóttu
þeir Alþingi og ræddu við forseta sameinaðs þings. Síðdegis sátu þeir boð forseta íslands, frú Vigdísar
Finnbogadóttur.
Styrktarfélag Sogns:
Málverkaupp-
boð í kvöld
MÁLVERKAUPPBOÐ Styrktar
félags meðfcrðarheimilis SÁÁ að
Sogni, Ölfusi. verður haldið i
kvöld klukkan 20.30 i Súlnasal
Hótel Sögu.
Hér um ræðir rúmlega 50 verk
sem Styrktarfélagið hefur fengið
frá Félagi íslenskra myndlistar-
manna. Málverkin öll verða til
sýnis í dag milli klukkan 14 til 19,
sömuleiðis í Súlnasalnum. Mikilla
endurbóta er nú þörf að Sogni, og
einnig er fyrirhuguð helmings-
stækkun heimilisins ef verkast
vill, og vænta Styktarfélagsmenn
sér mikils af uppboði þessu. Upp-
boðshaldari verður Indriði G. Þor-
steinsson.
Styðja Fljóts-
dalsvirkjun
Á FUNDI í Alþýðuflokksfélagi
Seyðisfjarðar. hinn 2. maí sl., var
samþykkt svofelld ályktun:
Fundur í Alþýðuflokksfélagi
Seyðisfjarðar 2. maí 1981 skorar á
Alþingi að taka sem fyrst ákvörð-
un um virkjun í Fljótsdal og
iðjuver á Austurlandi. Fundurinn
bendir á þá hagkvæmni sem felst í
hinni miklu miðlunargetu virkj-
unarinnar og jákvæðum áhrifum
þess á orkubúskap landsins alls.
Jafnframt leggur fundurinn
áherzlu á að hraðað verði athug-
unum á valkostum í stóriðjumál-
um til þess að treysta atvinnu-
þróun á Austurlandi.
Akranosi. 3. mai.
1. Maí-hátíðarhaldið hér á
Akranesi hófst á Akratorgi kl. 14
með því að Lúðrasveit Akraness
lék ýmis þjóðlög o.fl. Þarna
safnaðist fólk saman til kröfu-
göngu niður i Bíóhöllina.
Þar flutti Auður Guðbrands-
dóttir frá Verkalýðsfélagi Hvera-
gerðis aðalræðuna. Þá voru flutt
ávörp frá félögum, lesið upp úr
bókum o.fl. Lúðrasveitin skemmti
einnig gestum Bíóhallarinnar og
voru menn ánægðir með frammi-
stöðu hennar.
Kröfugangan var fámenn og
fáninn rauði var þar í fararbroddi
með þeim íslenzka. Það virðist
ekki mikill áhugi hjá fólkinu fyrir
kröfugöngum. — Er treyst meira
á ríkisforsjá en eigin mátt og
megin?
Júlíux
IlvrraKerði. 4. mai.
Á SKRIFSTOFU Hveragerðis-
hrepps eru nýir starfsmenn að
hefja störf þessa dagana. Þarna
er um að ræða störf gjaldkera.
1. maí-kröfugangan á Akranesi.
1. maí á Akranesi:
Ekki mikill
áhugi fyrir
kröfugöngum
ritara. innheimtumanns og al-
mennt skrifstofustarf.
í starf innheimtumanns er nú
ráðið í fyrsta sinn, en það kemur
til af því, að skrifstofa rafveitunn-
ar er nú sameinuð hreppsskrif-
stofunni og verður innheimtan
færð undir einn hatt.
Starfsstúlkurnar þrjár, sem
unnið hafa árum saman á skrif-
stofunni og reynzt mjög góðir
starfskraftar, sögðu upp störfum
sínum fyrir þremur mánuðum
vegna launadeilna við hrepps-
nefndina.
Þá hefur nýr verkstjóri hafið
störf hjá hreppnum, en sá, sem
gegndi því starfi nokkur síðastlið-
in ár, hyggst flytja héðan.
Tel ég víst, að allir Hvergerð-
ingar óski nýja starfsfólkinu góðs
gengis og þakki fráfarandi fólki
fyrir góð störf á liðnum árum.
— Sigrún.
Nýtt starfefólk hjá
Hveragerðishreppi