Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981
Pulitzer-verðlaunin banda-
rísku eru eftirsóttasta viður-
kenninn. sem nokkur hiaðamað-
ur eða frcttablað þar i landi
Ketur fengið. Áður en kom til
úthiutunarinnar nú i ár hafði
stórblaðið The Washinjíton Post
16 sinnum fenjíið þessi verðlaun
fyrir frábæra fréttamennsku og
því þótti mórKum sem það væri
aðcins árétting á þeim orðstír.
sem hlaðið hefur getið sér, þe>?ar
tilkynnt var um miðjan síðasta
mánuð. að rétt einu sinni enn
hefði því fallið þessi heiður í
skaut. Öllum eru i fersku minni
uppljóstranir hlaðsins ok blaða-
mannanna Bob Woodwards og
Carl Bernsteins, sem leiddu til
þess, að upp komst um Water-
Kate-hn'eykslið, en til þeirra
skrifa cr lönKum vitnað sem
upphafs svokallaðrar rann-
sóknarhlaðamennsku. Fyrir það
fcngu þeir Woodward og Bern-
stein Pulitzer-verðlaunin. Að
þessu sinni voru þau veitt Janet
Cooke. 26 ára Kamalli blaðakonu,
fyrir átakanlega frásöKn um
.lleim Jimmys“. átta ára gamlan
drenK. sem orðinn var heróín-
sjúklinKur ok lifði fyrir það eitt
að fá sinn daKleKa skammt af
eitrinu. Cooke fékk verðlaunin
mánudaKÍnn 13. apríl sl. Tveimur
döKum síðar. miðvikudaKÍnn 15.,
baðst The WashinKton Post af-
sökunar, skilaði verðlaununum
(>K upplýsti, að saKan af Jimmy
væri uppspuni frá rótum. Slikt
reKÍnhneyksli hefur ekki fyrr
orðið í 61 ára söku handarisku
Pulitzer-verðlaunanna.
Janet Cooke, höfundur verð-
launaKreinarinnar um Jimmy, er
26 ára Kömul, svört og glæsileg og
þótti um margt dæmigerð fyrir
þær breytingar, sem orðið hafa á
bandarískri blaðamannastétt á
síðustu árum en hér áður fyrr
voru það eingöngu karlmenn, hvít-
ir karlmenn, sem þóttust fullfærir
fréttaritarar. Þá var ekki vitnis-
burðurinn, sem Cooke bar sjálfri
sér síðri. Eftir því sem henni
sagðist sjálfri frá, hafði hún
útskrifast frá Vassar-skólanum
með láði, öðlast meistaragráðu við
háskólann í Toledo og lagt stund á
nám við Sorbonne i París. Einnig
kvaðst hún vera mælt á fjögur
tungumái.
„Saiían um Jimmy"
komst á kreik
Janet Cooke gerðist blaðamaður
á The Washington Post snemma á
síðasta ári. Á sl. sumri, þegar hún
var að vinna að grein um eitur-
lyfjaneyslu, kom hún einu sinni aí
máli við einn ritstjóranna, Milton
Coleman, og kvaðst hafa frétt af
átta ára gömlum heróínsjúklingi.
„Finndu barnið," sagði Coleman,
„það verður forsíðufrétt.“
Nokkrum vikum seinna kom
Cooke aftur á fund Colemans og
sagðist hafa fundið barnið. Yfir-
boðarar hennar höfðu þá þegar
samþykkt, að hún fengi að skrifa
grein um málið án þess að heim-
ildarmanna væri getið enda al-
siða, að sá háttur sé á hafður
þegar mikið þykir liggja við.
Fréttin eða greinin, sem Janet
Cooke lagði svo á borð ritstjór-
anna, var átakanleg og harmræn
frásögn af ömurleika stórborgar-
lífsins og ritstjórarnir voru í
sjöunda himni. Cooke hafði að
vísu aldrei sagt þeim hverjar
heimildir hennar væru en þeir sáu
enga ástæðu til að ætla, að ekki
væri allt með felldu.
„Hún hafði unnið að þessu í
nokkurn tíma og látið okkur vita
jafnóðum og hún komst að ein-
hverju," sagði Bob Woodward,
aðstoðarritstjóri, sem árið 1973
fékk Pulitzer-verðlaunin ásamt
Carl Bernstein fyrir að koma upp
um Watergate-hneykslið. „Það var
ekki eins og hún hefði komið til
okkar hlaðskeilandi einhvern dag-
inn og sagt sem svo: Það er
fljúgandi furðuhlutur í garðinum
bak við húsið mitt.“
Birting Kreinarinnar
OK leitin að ,.Jimmy“
Greinin um Jimmy birtist í The
TbeWasfaington ftet September 28,1980
■IIMMTS WORLD
8-Year-Old
HeroinAddict
Lives for a Fix
By Janet Cooke
wumntion Pojt suff wnur
Jimmy is 8 years old and a
third-generation heroin addict, a
precocious little boy with sandy
hair, velvety brown eyes and nee-
dle marks freckling the baby-
smooth skin of his thin brown
arms.
He nestles in a large, beige re-
clining chair in the living room of
Verðlauna-
sagan og
Jimmy. héró-
ínsjúklingur-
inn, sem
aldrei var til.
Pulitzer-verðlaun á
fölskum f orsendum
Sagan um
eitthvert mesta
hneyksli í
bandarískri blaðasögu
Washington Post 28. september sl.
og ritstjórarnir áttu von á því, að
hún ylli nokkru uppnámi og það
gerði hún svo sannarlega. Þó að
menn séu ýmsu vanir í stórborg-
unum vestra þótti nú skörin vera
farin að færast nokkuð mikið upp
í bekkinn og borgarstjórinn í
Washington, Marion S. Barry,
skipaði lögreglunni þegar í stað að
hafa uppi á drengnum svo að hægt
væri að koma honum til hjálpar.
Leitin að Jimmy bar hins vegar
engan árangur þrátt fyrir ákafa
eftirgrennslan lögreglumanna og
fjölda félagsmálafulltrúa og Barry
borgarstjóri hótaði þá að lögsækja
blaðið og neyða það þannig til að
segja til drengsins. Barry lét
jafnframt í ljós miklar efasemdir
um, að „Jimmy" hefði yfirleitt
nokkurn tíma verið til og sagðist
ekki trúa því að óreyndu, að móðir
slíks drengs og eiturlyfjasali
leyfðu fréttamanni að horfa á
þegar þau sprautuðu hann.
Ritstjórarnir komu strax Cooke
til varnar og sögðu, að lögsókn á
hendur blaðinu til þess að fá það
til að geta heimildar væri brot á
þeirri grein stjórnarskrárinnar,
sem tryggja ætti frelsi fjölmiðl-
anna.
Efasemdirnar vakna
Þegar hér var komið voru þó
ýmsir blaðamenn á The Washing-
ton Post farnir að velta því fyrir
sér í alvöru, að borgarstjórinn
kynni að hafa rétt fyrir sér, að það
væri enginn „Jimmy" til, og tor-
tryggnastir allra voru kynbræður
Cookes í hópi fréttamannanna.
Þeim þótti sem lýsingar hennar á
fátækrahverfinu þar sem „Jimmy"
átti að eiga heima væru dálítið
Janet Cooke,
Pulitzer-verðlaunahafi.
undarlegar og ekkert líkar því, að
hún væri þar öllum hnútum kunn-
ug eins og hún vildi vera láta.
Það var þó sú staðreynd, að
lögreglunni tókst ekki að finna
drenginn, sem varð til þess, að
Milton Coleman ákvað að fara
sjálfur með Cooke á fund drengs-
ins til að fullvissa sig um, að hann
væri ekki bara hugarfóstur
blaðamannsins. Áður en til þess
kom þó, tilkynnti Cooke Coleman,
að hún hefði sjálf farið til mæðg-
inanna og hefðu þau þá verið á
förum brott úr borginni. Móðir
„Jimmys", sagði Cooke, óttaðist
um líf sitt því að vinur hennar,
eiturlyfjasalinn, hefði haft í hót-
unum við hana.
Grunsemdir Colemans stilltust
lítt við þetta þó að ekkert væri
gert að sinni, og ekki bætti það
heldur úr skák þegar Janet Cooke
afhenti ritstjórunum aðra grein,
að þessu sinni um 14 ára gamla
vændiskonu, án þess að nokkurra
heimilda væri getið. Nú var þess
krafist afdráttarlaust, að hún
segði til sögupersónanna og þegar
hún gat það ekki var greininni
kastað í ruslakörfuna.
Illutur ritstjóranna
Enginn ritstjóranna hafði
nokkru sinni sagt það beinum
orðum við Janet Cooke, að þeir
grunuðu hana um græsku, þó að
þeir ræddu það gjarna í sinn hóp.
„Að láta í ljós efasemdir hefði
verið það sama og að segja, að
blaðamanninum væri ekki treyst,"
sagði Coleman, „og það gerir
maður ekki nema maður sé alveg
_ THKI-JKI
Pn/ITERPRIZE
kUKFKYII KKWKniM;
JANíTCOOKE
5J)c hlasjjington |Jost
TllirillOAV «PRII | • ~
Lil. <
President Pardons
2 Ex*FBI Officials
Guilty in Breakdns
20 Million
e Income
;an’s Plan
PokI Reporter’s Pulitzer Prize Is Wilhdrawn
The Washington Post varði heilli síðu til að segja lesendum frá því, að Pulitzer-verðlaunin hefðu fallið fréttamanni á blaðinu í skaut... en fáum
dögum síðar varð blaðið að viðurkenna, að sagan væri uppspuni. að verðlaunin hefðu verið afþökkuð.
-I