Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 15

Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1981 15 viss. Slíkt gæti eyðilagt frétta- manninn." En hvers vegna, með tilliti til allra grunsemdanna, var þá „Heimur Jimmys" tilnefnd til æðstu verðlauna, sem bandarísk- um blaðamanni getur hlotnast? Benjamin C. Bradlee, ritstjóri The Washington Post, svaraði þessari spurningu þannig: „Með því að mæla ekki með greininni hefðum við verið að viðurkenna það, sem við vildum ekki trúa, það, að við tryðum ekki að frásögnin væri sannleikanum samkvæm." Cole- man bætti því við, að einnig hefði verið um að ræða eðlilegan „starfsmetnað. Við höfðum þegar birt greinina á forsíðu og urðum því að standa og falla með henni." Verðlaunaveitingin Ritstjórarnir mæltu sem sagt með því, að „Heimur Jimmys" yrði metin til verðlauna í þeim flokki þar sem fjallað er um staðbundn- ar frásagnir og þó að dómnefndar- mennirnir væru hrifnir af sögunni ' varð útkoman sú, að blaðið The Longview Daily News bæri verð- launin fyrir fréttaflutning af eld- gosinu í St. Helens. Dómararnir voru samt ákveðnir í að „Heimur Jimmys" væri verðlauna verð og til að koma því í kring fluttu þeir hana yfir í annan flokk, þar sem fjallað er um greinaskrif eða yfirlitsgreinar, og verðlaunuðu hana þar. Þessar aðfarir voru reyndar dálítið skrítnar því að þeir, sem raunverulega áttu að dæma um greinaskrif, sáu aldrei söguna um hann „Jimmy", hvað þá meir. Þeir brugðust enda ókvæða við og halda því nú fram, að koma hefði mátt í veg fyrir þetta hneyksli ef rétt hefði verið að staðið. Skammvinn frægð Janet Cooke baðaði sig ekki lengi í frægðarljóma Pulitzer- verðlaunanna. Fréttamenn, sem vildu fá að vita eitthvað meira um þennan glæsilega verðlaunahafa, komust fljótt að því, að það var maðkur í mysunni og Cooke ekki jafn fjölmenntuð og hún sagði sjálf. Raunar kom í ljós, að hún hafði hætt námi við Vassar-skól- ann eftir aðeins einn vetur og hafði aðeins minniháttar próf- gráðu frá háskólanum í Toledo. Með þessa vitneskju í höndun- um var nú ekki lengur beðið boðanna með að yfirheyra Cooke og fá botn í málið í eitt skipti fyrir öll. Lengi vel neitaði Cooke harð- lega að hafa farið með rangt mál en henni voru engin grið gefin. í tíu klukkustundir samfleytt þjörmuðu ritstjórarnir að henni og þó að hún viðurkenndi að vísu, að þetta með prófgráðurnar væri nokkuð málum blandið, þá vildi hún ekki gefa sig að öðru leyti. „Þér ferst eins og Richard Nixon," sagði Ben Bradlee ritstjóri við Cooke. „Þú ert að reyna að róta yfir skítinn." Síðan lét hann reyna á hina rómuðu málakunnáttu Cookes og bað hana um að segja við sig tvö orð á portúgölsku. Það gat Janet Cooke ekki og nú féll hún saman og játaði allt. „Jimmy" var hvergi til nema í hennar hugarheimi. Beöist afsökunar Benjamin C. Bradlee lét nú hendur standa fram úr ermum. Hann sendi Pulitzer-nefndinni skeyti og sagði þar, að Cooke gæti ekki veitt verðlaununum viðtöku vegna þess einfaldlega, að sagan um „Jimmy" væri tilbúningur og uppspuni frá rótum. Nokkrum stundum síðar var boðað til blaðamannafundar þar sem útgef- andi The Washington Post sagði m.a.: „Við stöndum við okkar skrif þegar við förum með rétt mál, og þegar okkur skjátlast, þá viður- kennum við það.“ Daginn eftir var sagt frá allri svikasögunni á forsíðu blaðsins og leiðarinn hófst á þessum orðum: „Við biðjumst afsökunar." Hver var „Deep Throat“? Þetta mál allt hefur valdið Bob Woodward reyndir blaðamenn létu blekkjast af jafn einföldu bragði án þess að ganga úr skugga um það sjálfir, að rétt væri með farið? Það er rannsóknarblaða- mennskan svokallaða sem hefur þó trúlega beðið mestan hnekki. Hver var „Deep Throat"? er nú spurt. Uppljóstrarinn í Water- gate-málinu, sem lak fréttunum í þá Woodward og Bernstein. Hvers vegna hefur hann aldrei komið fram í dagsljósið? Hann gæti orðið stórauðugur ef hann vildi segja sögu sína. Þannig er spurt og spurt og svarið, sem bandarísk- ir fjölmiðlar virðast ætla að gefa, er að taka sjálfa sig taki og gerast gagnrýnni á það, sem þeir láta framvegis frá sér fara. Því að eins og Michael Gartner, ritstjóri Des Moines Register og Tribune, sagði: „Þegar grafið er undan áreiðan- leik The Washington Post er verið að grafa undan áreiðanleik Des Moines Register og allra annarra blaða í landinu." Ileimildir: Newsweok. Time. Now. NYT. Sv. Benjamín C. Bradlee miklu uppistandi og þykir mörg- um sem risið á bandarískri blaða- mennsku sé nú heldur lægra en áður. Menn minnast nú þess, sem «KaHan 6e3ynpeMHaFi MOHTawHaa cþopMa. BbiTb MOweT, H3M cneflOBano 6bi KonnpoBaTb ee.» „Alveg einstakt kerfi. Við ættum etv. að likja eftir þvi!" Betri ending Reynslan hefursýnt, að pústkerfi úrálvörðustáli endist 20-40% lengur en venjuleg pústkerfi, - bæði kútar og rör. Pústkerfi fyrir alla Fjöðrin h/f framleiðir nú um 50 gerðir af hljóð- kútum og mörg hundruð gerðir af púströrum - allt úrálvörðu stáli. Fjöðrin h/f hefur rúmlega 1000 mismunandi gerðir af pústkerfum á lager og í pöntun. Úrvalið er gífurlega mikið, enda er vandfundinn sú bíltegund, sem Fjöðrin getur ekki „þaggað niður í"! Góð þjónusta Fjöðrin h/f er brautryðjandi í sérþjónustu við íslenska bifreiðaeigendur. Eigin framleiðsla og eigið verkstæði tryggir góða vöru og gæða framleiöslu. Hljóðkútar og púströr eru okkar sérgrein, en vanti þig tjakk, fjaðrir, fjaðrabolta, hosuklemmur, skíðaboga, farangursgrind, eða smáhluti í bílinn borgar sig að ræða við okkur. BfLAyÖRUBUOIN FJOÐRIN Skeifan 2 sími 82944 Við getum þaggað niður í þeim flestum! Milton Coleman fornkveðið er, að ekki sé vert að treysta öllu sem birtist í blöðun- um, og er það enda að vonum. Hvernig má það vera, að gamal-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.