Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 17

Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1981 17 Sigríður Einarsdóttir: Virtur skóli Annað skýrt dæmi um aftur- haidsstefnu stjórnvalda eru nýju lögin um verðlagsaðhald, eins og þau heita opinberlega. Það er staðreynd að minnst verðbólga er í þeim löndum Vestur-Evrópu, sem búa við mest frjálsræði, en mest á Islandi, þar sem verðlagshöft hafa verið meiri en nokkurs staðar. Þrátt fyrir augljósar staðreyndir af þessu tagi ráða afturhaldssjón- armiðin enn ferðinni og færast í aukana. Ég ætla ekki hér að fara mörgum orðum um eðli verðlagshafta eða ræða í smáatriðum um afleiðingar þessara laga. Kjarni málsins er, að þau, eins og öll önnur haftalög, gera rekstur fyrirtækja dýrari og auka því verðbólgu síðar, þau miða að því að koma í veg fyrir hagnað í fyrirtækjum. Það þýðir minni framleiðni, minni verðmæti til skipta. Nyt mjólkurkýrinnar fellur ef fóðrið er skorið við nögl. Sama gerist í atvinnulífinu. Samtök at- vinnuveganna verða því, á grund- velli framfara- og atorkusjónar- miða, að snúast gegn hvers konar höftum. Auðvitað er það svo, að með hægum hagvexti eða engum, og minnkandi þjóðartekjum á mann verða hin sígildu vandamál varð- andi tekjuskiptinguna stöðugt erf- iðari úrlausnar. Það var einmitt við þessar aðstæður, sem kjara- samningar fóru fram á síðasta ári. Og á þessu ári verður svigrúmið enn þrengra. Mið þarf að taka af efnahagsleg- um takmörkunum Kjarasamningarnir á síðasta ári voru um margt athyglisverðir fyrir utan það hversu langan tíma þeir tóku. Frá öndverðu var það stefna Vinnuveitendasambandsins að leggja efnahagslegar forsendur til grundvallar samningsgerðinni. En helsta nýmælið var á hinn bóginn fólgið í því frumkvæði sem Vinnu- veitendasambandið tók, með tillög- um um einn sameiginlegan launa- stiga. Frá öndverðu var ljóst að sú kerfisbreyting myndi leiða til nokkurar launahækkunar. Ríkið setti hins vegar strik í samninga- viðræðurnar á mjög viðkvæmu stigi með samkomulagi við opin- bera starfsmenn, sem gert var á allt öðrum grundvelli. Tillögur sáttanefndar byggðust í framhaldi af samningum við opinbera starfs- menn á því, að leggja útkomu þeirra við þann kerfisbreytingar- grundvöll, sem viðræðurnar við ASÍ byggðust á. Að lokum var það mat framkvæmdastjórnar, að framhald togstreitunnar, sem stað- ið hafði í 10 mánuði, myndi ekki leiða til hófsamari samninga en fólust í tillögum sáttanefndar. Þó að þannig hafi ekki tekist að halda samningunum innan þeirra marka sem efnahagslegar forsend- ur settu, má hiklaust fullyrða, að kerfisbreytingn með einn launa- stiga hafi verið mikið framfara- spor og sú almenna 5—6% launa- hækkun er kom þar til viðbótar hafi verið hófsamari en oft áður. Þegar samningum lauk í október voru liðin meira en þrjú ár frá því að heildarkjarasamningar voru til meðferðar. Niðurstöðuna verður einnig að skoða í því ljósi. Miklu máli skiptir, að á þessu ári verði i ríkari mæli en áður tekið mið af efnahagslegum takmörkun- um við endurnýjun kjarasamninga, sem falla úr gildi 1. nóvember nk. Frá því markmiði verður ekki hvikað átakalaust. VSÍ hefur á undanförnum árum lagt á það ríka áherslu, að það sé reiðubúið til samvinnu við stjórnvöld og samtök launþega, í því skyni að gera kjarasamninga sem ekki magni enn frekar verðbólguna. Að þessu sinni er ástæða til að bjóða enn á ný til samvinnu um endurskoðun launaverðbótakerfisins, í því skyni að draga úr víxlhækkunum kaup- gjalds og verðlags. Ekki í þeim tilgangi að rýra lífskjör launþega heldur til þess að stefna að efna- hagslegu jafnvægi, sem er ein af forsendum aukins hagvaxtar og bættra lífskjara. Á undanförnum árum hafa svo- nefndir félagsmálapakkar frá rík- isstjórn til verkalýðssamtaka verið snar þáttur í kjarasamningum. Oftast nær með ærnum útgjöldum fyrir atvinnuvegina til viðbótar almennum og sérstökum launa- hækkunum í ýmsu formi. Við gerð síðustu kjarasamninga gat Vinnu- veitendasambandið þó tryggt í við- ræðum við ríkisstjórnina, að fé- lagsmálapakkarnir, er þá voru af- hentir, væru ekki greiddir með auknum álögum á atvinnufyrir- tækin. Þetta verður að teljast umtalsverður árangur. En ekki má þar við sitja. I tengslum við næstu kjarasamninga er komið að vinnu- veitendum að setja fram eigin kröfur um félagsmálapakka, ekki í formi ölmusu, heldur aðgerða til þess að bæta rekstrarskilyrði at- vinnufyrirtækja. Frumskilyrði þess að velmegun geti haldist á íslandi er að rekstr- arskilyrði hins frjálsa atvinnu- rekstrar verði bætt og þeim verði gert auðveldara að starfa að þeirri verðmætasköpun sem góð lífskjör hyggjast á. Kröfur til okkar sjálfra Þar sem ljóst virðist, að flestir hafi nú gert sér grein fyrir, að megnið af fjárhagslegum vanda þjóðar okkar er heimatilbúinn, virðist kominn grundvöllur til að taka af hugrekki á málunum. Árangri verður ekki náð með síð- ustu stundar töfrabrögðum á þriggja mánaða fresti. Við íslendingar ættum nú, á fyrrihluta áttunda áratugsins, að geta horft björtum augum til framtíðarinnar, ef okkur auðnast að halda vel á okkar málum, betur en nokkur undanfarin ár. Ég hef hér að framan gert kröfur til þess opinbera m.a. um bættan starfs- grundvöll, en okkur er ekki nægi- legt aðeins að gera kröfur til annarra. Við allir íslendingar, verðum að læra að gera einnig kröfur til okkar sjálfra, hver og einn, ef árangur á að nást. Ég vil því að lokum beina orðum mínum til meðlima Vinnuveitendasam- bandsins og starfsmanna þeirra. í ræðu minni á þessum stað í fyrra brýndi ég fyrir þingmönnum okkar, án sýnilegs árangurs, að skapa fyrirtækjunum starfs- grundvöll. En það er ekki nægjan- legt að mynda starfsgrundvöll, Alþingi getur ekki ákveðið rekstur fyrirtækjanna. Þar kemur að okkur, starfsmönnum fyrirtækj- anna, það er okkar starf sem endanlega ákveður árangurinn, þann árangur, sem á að verða grundvöllur framtíðar velmegunar i þessu landi. Þetta verður best gert með því að starfsskilyrði starfsfólk í einkafyrirtækjunum verði sem best, þannig að það verði eftirsóknarvert að starfa í hinu frjálsa atvinnulífi. Jafnframt verður að tileinka sér jafnóðum alla nýja tækni, sem er forsenda þess að auka og viðhalda samkeppnishæfni fyrirtækjanna. Vart verður við nokkurn ótta, vegna hinnar nýju tækni, það er kannski eðlilegt og það er ekki nýtt í sögunni. Það er því mikilvægt að allri tortryggni í því sambandi verði eytt, því að hver ný tækni mun er til lengdar lætur hafa jákvæð áhrif á allt líf og starf í landinu og bæta hag allra. Við íslendingar erum fámenn þjóð, sem búum í stóru, stundum erfiðu, en auðugu landi. Forfeður okkar hafa með hugrekki og atorku lifað af erfiðari tíma en við, sem nú lifum, getum skilið. Við munum reynast ættlerar ef við eigum ekki fyrir okkur bjarta framtíð, en það eigum við íslendingar, ef við, hver og einn, fáum að njóta hæfileika okkar í frjálsu samfélagi. Þá mun okkur vel farnast og björt framtíð blasa við þar sem engan heimatil- búinn skugga ber á. Vegna skrifa, sem birst hafa í blöðum að undanförnu um Mynd- lista- og handíðaskóla Islands, lang- ar mig sem gamlan nemanda skól- ans að leggja nokkur orð í belg. Við sem vorum nemendur skólans þegar Kurt Zier var skólastjóri minnumst þess oft með þakklæti með hve mikilli festu hann hélt á málum og hversu mikillar ögunar hann krafðist af okkur í starfi og námi. Vissulega komum við inn í skólann sannfærð um það að þar gætum við hagað okkur eins og fullmótaðir listamenn. Við vorum í listaskóla og við vildum sýna að við gætum myndað sjálf okkar eigin stefnu. Kurt Zier lagði ákveðna línu fyrir okkur strax í upphafi. Hann gerði okkur grein fyrir því að á meðan við værum í skólanum, færum við í gegn um grundvallaratriði í námi og starfi. Hann sagði meðal annars að þegar við hefðum útskrifast gætum við mótað okkar eigin stefnu á þeim faglega grunni, sem við hefðum fengið í skólanum. Við áttum erfitt með að sætta okkur við þetta. Mörg okkar höfðu ekki gert sér grein fyrir til hversu mikils var af okkur ætlast. Við héldum að við gætum dundað við það sem okkur dytti í hug og með því móti náð þeim árangri, sem af okkur var vænst. En við höfum, má ég fullyrða, flest komist á aðra skoðun. Með fastmótuðu starfi sínu tókst Kurt Zier að gera skólann að virtri stofnun, bæði erlendis og hér heima. Þetta var afar mikilvægt, því nem- endur skólans, sem hugðu á frekara listnám erlendis, áttu sökum þess mun greiðari aðgang að listaskólum en annars hefði verið. Þessi festa Kurt Zier hafði líka afgerandi áhrif á þá nemendur skólans, sem hurfu til kennslustarfa í skólum landsins. Ég verð að segja það eins og er að með stofnun nýlistadeildar var vikið verulega frá þeim starfsháttum og kröfum, sem Kurt Zier markaði. Af viðtölum mínum við fjölmarga fyrri nemendur skólans varð ég þess greinilega vör að þeir urðu fyrir verulegum vonbrigðum með það hvert mál skólans stefndu. Þegar Einar Hákonarson varð skólastjóri vonuðumst við til að hann myndi koma málum skólans aftur til þess vegar sem nauðsynlegt er svo að hann geti þjónað sínu mikilvæga hlutverki. Þess vegna birti yfir okkur þegar við sáum og heyrðum að Einar ætlaði ekki að bregðast þeim skyldum, sem honum hafa verið lagðar á herðar. Nú hefur Einar hafist handa við að tryggja það að nemendur skólans útskrifist úr honum með trausta faglega menntun. Hann neitar að taka eina listastefnu (nýlistastefnu) fram yfir aðrar. Hann gerir miklar kröfur til ögunar í námi. Því spyr ég: „Ætlar menntamála- ráðherra að brjóta þetta niður? Finnst honum ekki nóg komið af agaleysi í skólum landsins? Finnst honum að skólastjóri, sem gerir kröfur til þess að skóli hans veiti trausta menntun, hverfi frá starfi, af því að nemendum finnist betra að mega gera eins og þeim sýnist?" Það verður verulega fylgst með framvindu þessa máls. í nágranna- löndum okkar er óðum verið að hverfa frá því frjálsræði, sem leitt hefur til stjórnleysis í svo mörgum skólum. Ætlar menntamálaráðherra virki- lega að bregðast þeirri skyldu sinni að styðja við bakið á skólastjóra, sem bæði hefur vilja og getu til að móta faglegan skóla, sem ekki tekur afstöðu til einnar listastefnu fram yfir aðra? Ég dáist að kjarki Einars Hákon- arsonar. Spurningin er hvort yfir- stjórn menntamála reynist kjark- laus. Sigríður Einarsdóttir myndmenntakennari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.