Morgunblaðið - 05.05.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
Frankfurt yfirspil-
aði Kaiserslautern
— og varð þýskur bikarmeistari í þriðja sinn
EINTRAKT Frankfurt sijfraði í
vestur-þýsku bikarkeppninni í
knattspyrnu um heÍKÍna, er iiðið
ma tti Kaiserslautern í Stuttgart.
Lokatolur urðu 3—1 fyrir Frank-
ÚRSLIT leikja í 1. deildinni i
knattspyrnu í BeÍKÍu um helgina
urðu þessi:
Molenbeek — CS Brugge 2—2
Beerschot — Beveren 1—0
FH
AÐALFUNDUR FH fer fram í
kvöld og hefst kl. 20.30 í Æsku-
lýðsheimilinu.
Stjórnin
furt. eftir að staðan i hálfleik
hafði verið 2—0. Þetta er í þriðja
skiptið sem Eintrakt Frankfurt
sigrar í þýsku bikarkeppninni.
70.000 áhorfendur tróðu sér inn á
Waterschei — Antwerpen 2—3
FC Brugge — Anderlecht 1—5
FC Liege — Standard Liege 2—2
Courtrai — Berchem 3—0
Beringen — Gent 1—0
Lokeren — Waregem 4—0
Lierse — Winterslag 2—0
Staða efstu liða:
Anderlecht 24 5 3 76 23 53
Lokeren 18 6 8 64 39 42
Standard Liegel7 6 9 62 43 40
Beveren 16 8 8 48 30 40
FC Brugge 15 5 12 71 54 35
Winterslag 14 6 12 42 42 34
Neckar-leikvanginn í Stuttgart
og sáu lið Frankfurt lengst af
yfirspila Kaiserslautern.
Frankfurt hóf þegar stórsókn og
á 39. mínútu bar sóknin árangur,
er Neuberger skoraði fyrsta mark-
ið. Og aðeins mínútu síðar má
segja að Borchers hafi innsiglað
sigurinn er hann bætti öðru marki
við. Síðari hálfleikurinn hafði
aðeins staðið yfir í eina mínútu, er
Kóreumaðurinn Bum Kun Cha
skoraði þriðja markið. Undir lok
leiksins tókst Geye að minnka
muninn með ágætu marki, en allt
kom fyrir ekki, lið Frankfurt var
svo miklu betra að þessu sinni.
Fréttaskeyti frá AP höfðu eftir
þjálfara Frankfurt, að lið hans
hefði lagt óvenjulega mikla vinnu
á sig síðustu 14 daganna fyrir
leikinn og hefði það borið ríku-
legan ávöxt.
Lokeren vann 4-0
Sexton rekinn frá Manch. Utd.!
DAVE Sexton, hinn góðkunni
framkvæmdastjóri Manchester
Utd.. var óvænt rekinn úr stoðu
sinni hjá félaginu um helgina, en
þar hefur hann setið við stjórn-
ina síðustu þrjú keppnistimabil-
in. Ástæðan mun vera sú, að
yfirstjórn félagsins hefur ekki
líkað knattspyrnan sem liðið hef-
ur tileinkað sér undir stjórn
Sextons. Þykir hún fremur þurr
og tilþrifalítil. auk þess sem
varnarleikurinn virðist vera í
fyrirrúmi. s<)knarleikurinn ein-
hæfur og þar fram eftir götun-
um.
Sexton tók við af Tommy Doch-
erty á sínum tíma, en undir stjórn
Skotans þótti liðið bera af öðrum
liðum hvað varðaði skemmtana-
gildi, leikin var sóknarknatt-
spyrna á útopnu og upp á gamla
„móðinn" með tveimur útherjum.
Docherty gerði liðið að bikar-
meistara einu sinni, kom liðinu
upp úr 2. deild og það náði best
þriðja sætinu í 1. deild undir hans
stjórn. Sexton stýrði United einn-
• Dave Sexton t.h. og aðstoðarmaður hans Tommy Cavanagh, sem
einnig var vikið úr starfi.
ig á Wembley, en liðið tapaði þar
gegn Arsenal. Þá varð liðið í 2.
sæti fyrstu deildarinnar keppnis-
tímabilið 1979—80. Ula hefur
gengið á þessu keppnistímabili,
margir leikmenn verið á sjúkra-
lista. Þó hefur liðið haldið sér í
efri hluta deildarinnar og verður
nú líklega í 7.-8. sæti eftir að
hafa lokið vertíðinni óvenjulega
glæsilega, eða með 7 sigrum í röð
og 9 leikjum án taps. Brottrekstur
Sextons kemur því verulega á
óvart og líklegt er að hann hafi
ýmsar hræringar í för með sér,
þar sem margir leikmanna liðsins
eru ekki ánægðir með endalok
þessa máls.
Dularfullir straumar
og æðri skilningarvit
— aðstoða glúrinn kylfing að nafni McCrord
GARRY nokkur McCrord hefur Houston-meistaramótinu í golfi.
vakið mikla athygli á opna McCrord þessi segir sig vera
Fyrsta golfmót ársins
FYRSTA OPNA golfmót ársins
verður haldið laugardaginn 9.
mai hjá Golfklúbbnum Keili,
Ilafnarfirði. Leiknar verða 18
holur með 7/8 forgjöf og gefnir
punktar fyrir hverja holu.
Verðlaun til keppninnar gefur
fyrirtækið Th. Þorsteinsson, sem
er umboðsaðili fyrir Finlux á
Islandi. Veitt verða þrenn verð-
laun sem eru ferða stereóútvarps-
og kassettutæki. Auk þess gefur
fyrirtækið 26“ litsjónvarpstæki
takist einhverjum að fara holu í
höggi á 5. braut.
Ef veður verður gott meðan á
keppni stendur verður sú nýjung
reynd að sýna beint á sjón-
varpsskermi inni í golfskálanum
það sem er að gerast úti á
vellinum. Þá verða einnig sýndar
golfmyndir frá frægum erlendum
keppnum.
Völlurinn hefur komið mjög vel
undan vetri og er óðum að taka á
sig grænan lit. Þar sem búist er
við mikilli þátttöku er væntan-
legum þátttakendum bent á að
tilkynna sig eigi síðar en föstu-
daginn 8. maí fyrir kl. 19.30 í
golfskála Keilismanna, síma
53360.
Ölium er boðið að fylgjast rrieð
spennandi leik.
„furðulegan töframann“, og
ótrúleg hittni hans i „pútti“
þykir renna stoðum undir eitt-
hvað í þá áttina.
Til dæmis hefur
hann sökkt tveimur 40 feta pútt-
um og eitt sinn er kúla hans sat á
bólakafi í sandgryfju, gerði hann
sér lítið fyrir og sló hana þaðan
heint ofan i holuna! Þessi afrek
kallaði hann „trúarlega reynslu“,
og bætti við að hann nyti aðstoð-
ar dularfullra strauma og æðri
skilningarvita.
Eftir fyrstu umferðina á
Houston-mótinu hafði McCrord
forystu í keppninni með 64 högg,
eða 7 undir pari. McCrord, sem er
32 ára gamall, hefur ekki unnið
golfmót í 7 ár. En hann er aðeins
einu höggi á undan Hale Irwin,
Ben Crenshaw og Tom Kite.
• Þeir skipuðu hinar ýmsu sveitir er þátt tóku í Kambaboðhlaupinu á
sunnudag. en hlaupnir voru fjórir 10 kílómetra kaflar frá Kambabrún
til Reykjavíkur, en endað var við ÍR-húsið að venju. Á myndina vantar
sveit HSK, sem hljóp seinna um daginn. Ljósmynd Jónas Egiisson.
Kambaboðhlaupið
lengst af spennandi
ÍR-INGAR unnu tvöfaldan sigur í
Kambaboðhlaupinu um helgina.
Lengst framan af, eða um 28 til
29 kílómetra hafði sveit Ármanns
forystuna, og við siðustu skipt-
ingu munaði aðeins 45 sekúndum
á fyrstu og þriðju sveit, en aldrei
áður hefur verið um að ræða jafn
spennandi keppni í þessu hlaupi,
sem farið hefur fram nú níunda
árið í röð, en fyrst var hlaupið í
janúar 1973.
Sex sveitir tóku þátt í hlaupinu
að þessu sinni, þar af þrjár sveitir
ÍR-inga, sem hefðu sent þá fjórðu
ef forföll hefðu ekki orðið í þeirra
röðum. Ein þessara sveita var
skipuð Bandaríkjamönnum er
starfa á Keflavíkurflugvelli.
Ein þátttökusveitanna hljóp þó
ekki á sama tíma og hinar, það var
sveit HSK, sem fengið hafði boð
um að mæta til leiks kl. 14, en ekki
kl. 10 eins og hinar. Hlupu Skarp-
héðinsmenn því einir síns liðs, en
ákveðið var að tími þeirra skyldi
látinn ráða í heildarúrslitum
hlaupsins. Úrslitin urðu annars
sem hér segir:
1. A-sveit ÍR 2:16,41 klst.
Guðmundur Aðalsteinsson37:53
Úlfar Aðalsteinssor i 37:02
Gunnar P. Jóakimsson 31:08
Mikko Háme 30:38
2. B-sveit ÍR 2:18,50 klst.
Sigurjón Andrésson i 38:39
Stefán Friðgeirsson 34:55
Jóhann H. Jóhannsson 33:13
Ágúst Ásgeirsson 32:03
3. Ármann 2:22,17 klst.
Leiknir Jónsson 36:06
Jóhann Garðarsson 36:20
Guðmundur Gíslason 34:01
Gunnar Kristjánsson 35:50
4. Bl. sveit FH+UBK 2:25,19 klst.
Sigurður Haraldsson 37:05
Viggó Þórisson 41:06
Einar Sigurðsson 33:48
Magnús Haraldsson 33:20
5. C-sveit ÍR 2:29,33 klst.
Turbush 45:00
Milks 33:31
Rossi 36:31
Tiso 34:31
6. HSK 2:39,50 klst.
Ingvi Karl Jónsson 41:35
Eyvindur Jónsson 39:09
Markús Ivarsson 39:09
Ingvar Garðarsson 39:57
Pólverjar náðu
forystunni
PÓLVERJAR sigruðu Austur-
Þjóðverja með einu marki gegn
engu í undankeppni IIM um
helgina. Leikurinn, sem var i 7.
riðli keppninnar, fór fram i
Varsjá. Sigurmarkið var skorað
á síðustu minútu leiksins og voru
úrslitin i samræmi við gang
ieiksins.
Austur-Þjóðverjar höfðu leikið
átta sigurleiki í röð er þeir lögðu
í’ann til Póliands og hlutu því að
vera fullir sjálfstrausts. Liðið lék
agaðan varnarleik frá upphafi til
enda og allt þar til undir lok
leiksins virtist það ætla að færa
liðinu annað stigið. En á síðustu
mínútunni komst Gregorz Lato
upp að endamörkunum, sendi
knöttinn fyrir markið þar sem
Buncol nokkur var réttur maður á
réttum stað og skallaði knöttinn í
netið.
Eftir þessi úrslit hafa Pólverjar
forystu í 7. riðli með 4 stig.
Austur-Þjóðverjar hafa 2 stig og
Malta, þriðja liðið í riðlinum,
hefur ekkert stig. Aðeins eitt lið
úrþessum riðli kemst í lokakeppn-
ina á Spáni 1982.