Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 23

Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981 23 Kristbjörn formaður KKÍ — Sambandið skilaði hagnaöi þriðja árið í röð Kristbjörn Albertsson var um helgina kjörinn íormaöur KKÍ, en þing sambandsins var haldiö um heÍKÍna. Tekur Kristbjörn stöðu Stefáns Ingólfssonar, sem leysti starfið farsælleita af hendi þrjú siðustu keppnistimabilin. Stefán var eini maðurinn sem Kekk úr stjórninni, en skarðið fyllti Gunnar Valgeirsson úr Kefiavík. Fyrir þingið spáði Stefán því að þingið yrði rólegt og stóðst það fullkomlega. Þingið samþykkti þau tilmæli til stjórnarinnar, að tillögur þær, sem landsliðs- nefndarmennirnir báru fram varðandi breytingar, yrðu sam- þykktar. greyt|nKar þessar Voru að nokkru leyti reifaðar í Mbl. í síðustu viku, en fálust í stórum dráttum í því, að sami maðurinn sæi um öli landsliðin og réði sjálfur aðstoðarmenn eftir þörf- um, föngum og geðþótta. Jafn- framt myndi þessi sami maður vera útbreiðslu- og fræðslustjóri sambandsins. Fram kom einnig, að KKÍ skil- aði hagnaði þriðja árið í röð. Velta sambandsins var 58,8 milljónir gamalla króna og hagnaður varð 3,1 milljónir. Landsliðið var að nokkru leyti með sín fjármál út af fyrir sig. Þar var veltan 33 milljónir gamlar, en tekjurnar um hálf milljón. Loks má geta þess, að ákveðið var að koma á fót öldungadeild í Kristbjörn Albertsson körfuknattleiknum. Aldurstak- mark þar verður 36 ára og eldri. — KK. Enn sigrar Ovett í langhlaupi STEVE OVETT, breski hlaupar- inn frægi, sigraði í þriðja víða- vangshlaupi sinu i röð, er hann kcppti i Nike Grand Prix-hlaup- inu i Osló um helgina. Eins og i hinum hlaupunum tveimur, náði Ovett forystunni strax í hyrjun. Norðmaður nokkur. að nafni Jan Ejarestedt, hékk lengi vel í Ovett, en á lokakaflanum sprakk sá norski og mátti hann siðan þakka fyrir að halda öðru sætinu. Illaupið var 8 kílómetra. Tími Ovetts var 25:42,5 mínútur, en næstu menn, Fjarestedt og Norðmaðurinn Dahl, fengu tím- ana 25:44,7 og 25:47,8. Gréta Waitz frá Noregi, sigraði örugglega í kvennaflokki, en hún er ekki síður heimsfrægur hlaup- ari en Ovett. Kvenfólkið hljóp 4 kílómetra og var tími Grétu 13:40,5 mínútur. Danska stúlkan Dorthe Rasmussen þótti koma nokkuð á óvart er hún nældi í annað sætið og fékk tímann 14:07,4. Chris Benning frá Bret- landi varð þriðja á 14:23,4 mínút- um. Sú austur- þýska var geysisterk AUSTUR þÝSKA stúlkan Maxi Gnauck var i miklum ham á sunnudaginn, er siðari hluti Evr- ópukeppninar i fimleikum kvenna fór fram i Madrid á Spáni. Gnauck gerði sér þá lítið fyrir og sigraði í þremur af fjórum greinum og hreppti silfur í þcirri fjórðu. Daginn áður, fyrri dag keppninnar hafði hún þegar tryggt sér Evrópumeistaratitil- inn með stórkostlegri frammi- stöðu. Stúlkur frá Austur-Evrópu sópuðu tii sin öllum verðlaunun- um á þessu móti, ekki ný bóla það. Teitur skorar enn og Öster hefur eitt liöa fullt hús ÖSTER, SÆNSKA meistaraliðið í knattspyrnu, hefur sannarlega byrjað hið nýja keppnistímabil vel. Um hclgina fór fram þriðja umferðin í sænsku deiidakeppn- inni og sigraöi Öster lið Brage 2—0. Er Öster nú eitt á toppi deildarinnar. eina liðið sem unn- ið hefur alla leiki sína til þessa. Teitur bórðarson hefur einnig hyrjað glæsilega, en hann skor- aði fyrra mark Öster gegn Brage og hefur því skoraö tvö mörk í 3 fyrstu leikjunum. Mattson skor- aði síðara markið. þriðja mark hans, og þeir félagarnir hafa reynst hættulegir saman í fram- línu Öster. Úrslit leikja urðu þessi: Teitur bórðarson vel. hefur byrjað Sundsvall — Örgryte 0—3 Öster — Brage 2—0 Örn Óskarsson og félagar hans hjá Örgryte unnu góðan sigur á útivelli. Um frammistöðu Arnar veit Mbl. lítið, annað en að hann fékk góða dóma fyrir tvo fyrstu leikina. Hjá Gautaborg gengur allt á afturfótunum, einnig hjá AIK, en síðarnefnda félagið hefur aðeins leikið tvo leiki, Gautaborg þrjá. Sem fyrr segir, hefur Öster nú forystuna í deildinni, 6 stig, og markatöluna 5—1. Atvidaberg fylgir fast á eftir með 5 stig, síðan koma Örgryte, Norrköping, Sundsvall og Brage með 4 stig hvert félag. Hammarby — Malmö FF 4—4 Elfsborg — Atvidaberg 0—1 Gautaborg — Djurgarden 0—1 Norrköping — Halmstad 2—0 Vaalerengen er efst í Noregi KRISTINN Björnsson, íyrr- um leikmaður Vals og ÍA. og félagar hans hjá norska 1. deildar - liðinu Vaalérengen, hafa byrjað hið hýbyrjaða keppnistimabil mjög glæsi- lcga. Vaalerengen, sem varð bikarmeistari á siðasta keppnistimabili, hefur unnið tvo fyrstu leiki sína i norsku deildarkeppninni i knatt- spyrnu og er efst með 4 stig eftir tvo ieiki. Úrslit Ieikja urðu sem hér segir: Brann — Moss 0—2 Bryne — Vaalcrengen 0—2 Fredrikstad — llamkam 0— 1 Lillestrom — Haugar 2—2 Lyn — Viking 2—0 Start — Rosenborg 0—1 Rosenborg og Fredrikstad hafa aðcins leikið einn leik hvort félag. Ilamarkamerat- erne, eða Hamkam eins og nafnið er gjarnan stytt, hefur hlotið 3 stig, en næstu lið hafa eitt og tvö stig hvert. Kristjana heiðruð KRISTJANA Aradóttir, hin sterka handknattleikskona úr FH, var útnefnd „Handknatt- Icikskona ársins“ af HSf á uppskeruhátið sambandsins sem haldin var i Sigtúni á fimmtudaginn i siðustu viku. Kristjana var á siðasta vetri sem fyrr lykilmaður í FlI-lið- inu sem var sigursæila en i annan tíma. Vann liðið bæði fslandsmeistaratignina og bikarkeppnina. Portúgalir töpuðu B-kcppnin i körfuknattleik er hafin fyrir nokkru í Tyrklandi, cn þar hefðu ísiendingar verið meðal keppenda ef þá hefði ekki vantað herslumuninn að sigra i C-keppninni i Sviss á dögunum. Mbl. hefur haft spurnir af nokkr- um leikjum i keppninni og má þar kannski fyrst geta Portú- gala. sem voru eina liðið sem sigraði ísland í Sviss. Portúgalir töpuðu fyrir Svium 56—70. Úrslit í öðrum leikjum sem Mbl. hefur fregnað af, voru sem hér segir: Ungverjaland — England 84—83 Tyrkland — Belgía 71—70 Grikkland — Finnland 101—86 Holland — Búlgaría 86—65 Rúmenía — V-Þýskaland 95—84 Keppnin í Tyrklandi fer fram í tveimur 6-liða riðlum og er keppt annars vegar í Istantbul og hins vegar í Izmir. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli vinna sér rétt til þess að taka þátt í hinni alvöru EM- keppni sem fram fer í Tékkóslóv- akíu dagana 26. maí til 5. júní. Sigrar Fylkir? LEIKIÐ var í Reykjavikurmót- inu i knattspyrnu um helgina. Fylkir sigraði Val með einu marki gegn engu og skoraði Anton Jakobsson sigurmarkið. f gærkvöldi léku síðan bróttur og Víkingur og sigraði Vikingur 4:1. Víkingur er efstur með 10 stig en Fylkir hefur 8 stig og á eftir að leika við Armann. Fram hefur 7 stig og mætir Val i kvöld klukk- an 20 á Melavelli. Titillinn loks í höfn hjá llollenska knattspyrnuliðið AZ'67 Alkmaar tryggði sér loks hollensku meistaratignina i knattspyrnu á sunnudaginn, er liðið gersigraði Feyenoord í Rottcrdam. Hefur liðið þar með hlotið 51 stig eftir 28 leiki, 11 stigum meira en FC Utrecht, sem nú er komið í 2. sætið i stað Feyenoord. Sá fræðiiegi mögu- leiki sem var á þvi að Alkmaar myndi klúðra öllu saman. er rokinn út i veður og vind. Feyenoord byrjaði betur gegn Alkmaar og snemma í leiknum skoraði Jupp Kaczor fyrir heima- liðið. Alkmaar-liðið sótti í sig veðrið jafnt og þétt og rétt fyrir leikhlé tókst Jan Peters að minnka muninn. í síðari hálfleik héldu liðinu siðan engin bönd, hvert markið rak annað og loks stóð 5—1 fyrir Alkmaar, niður- lægjandi ósigur fyrir Feyenoord á eigin heimavelli. Kees Kist, Kristian Nygaard, Pier Tol og Jan Alkmaar Peters skoruðu mörkin í síðari hálfleik. Úrslit leikja í hollensku knattspyrnunni urðu annars sem hér segir: Roda JC — PSV Eindhoven 2—3 GAE Deventer — Exceilsior 4—2 FC Utrecht — Groningen 3—0 Willem 2. — Den Haag 2—1 Feyenoord — Alkmaar 1—5 Tvente — Pec Zwolle 2—0 MVV Maastricht — Nec Nijm.0—0 Ajax — Sparta 2—1 Norðurlandabúar voru í sviðs- ljósinu í hollensku deildinni eins og oft áður, danski landsliðsmað- urinn' Sören Lerby skoraði bæði mörk Ajax gegn Spörtu og Norð- maðurinn Hallvar Thoresen skor- aði annað marka Tvente gegn Pec Zwolle. Sem fyrr sagði, hefur AZ’67 51 stig. Utrecht hefur 40 stig og Feyenoord 39 stig. PSV og Ajax hafa nú bæði hlotið 38 stig og sitja um UEFA-sætið sem Feyenoord gæti hæglega misst út úr höndunum úr því sem komið er. Juventus hefur forystu Juventus heldur enn forystu í ítölsku deildarkeppninni i knattspyrnu eftir 1—0 sigur gegn Avellino á sunnudaginn. Það var bakvörðurinn Cabrini sem skoraði markið eftir undirbúning Liam Bra- dys. Úrslit leikja urðu sem hér segir: Bolognia — Torino 1—0 Brescia — IJdinese 1 — 1 Cagliari — Como 1 — 1 Inter — Ascoli 1—2 Juventus — Avellino 1—0 Napoii — Fiorentina 1 — 1 Pistoise — Catanzarro 0—1 Roma — Perugia 5—0 Juventus hefur 39 stig. Roma 38 stig og Napoli 36 stig. Næst er Inter með 31 stig. Kópavogur lagöi Vestmanna- eyjar KÓPAVOGUR sigraði Vest- mannaeyjar i bæjakeppni i knattspyrnu um helgina, en þar var teflt fram 1. deildar liðum UBK og ÍBV. Leikið var i Kópavogi og sigraði hcirnaharinn 3—0. Hákon Gunnarsson, Valdemar Valde- marsson og Jón Einarsson skoruðu mörk Kópavogs. Lið UBK hefur verið i miklum ham í vorleikjum sinum, unn- iö stóra og góða sigra. Eink- um hefur Jón Einarsson verið frískur, skorað mikið aí mörkum. Naumur sigur Dana DANIR NÁÐU að tryggja sér nauman sigur gegn Luxem- borg i riölakcppni IIM um helgina. cn lcikið var í Lux- emborg. ítalia, Júgóslavia og Grikkland eru einnig i sama riðli og hvorki Danmörk eða Luxemborg eru með i topp- haráttunni. Luxemborgararn- ir náðu forystu i fyrri hálfleik með marki Alan Nurnberg, en þeir Preben Elkjær og Frank Arnesen skoruðu fyrir Dani i síðari háifieiknum, lokatölur því2-l. 2 med 11 rétta í 34 LEIKVIKU getrauna komu fram 2 raðir mcð 11 réttum leikjum og var vinn- ingur íyrir hvora röð kr. 40.250.-. Með 10 rétta leiki reyndust vcra 34 raðir og vinningur fvrir hverja röð kr. 1.015.-. Þctta var siðasta getrauna- vikan á þcssum vetri og verð- ur nú gert hlé, unz enska knattspyrnan hefst að nýju. en deildakeppnin heíst óvenju seint i haust. eða laugardag- inn 29. ágúst. Á síðasta vetri voru 34 getraunavikur og heildarsala íþróttafélaganna nam 640 millj. gömlum krónum. sem er þreföld veltan frá árinu áður. Sölulaun til iþróttafé- laganna hafa þá numið um 160 miilj. gkr. og hlutur tveggja Reykjavikurfélaga var um 25% af heildinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.