Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
25
" 1 •
*******'
Tottenham
LIÐ Tottenham er eina lidiö
fyrr og síðar sem sigraö hefur
í enska bikarnum og veriö
utan deilda. Þaö var áriö 1901.
Það var jafnframt fyrsti sigur
félagsins í enska bikarnum.
Félagiö sem stofnaö var áriö
1882 var gert aö atvinnu-
mannaliöi áriö 1895. Totten-
ham hefur leikiö fimm sinnum
til úrslita um enska bikarinn
og ávallt sigrað. Það var áriö
1901, 1921, 1961, 1962 og 1967.
Liðið hefur tvívegis sigrað í
ensku deildarkeppninni,
keppnistímabilin 1950—51 og
1960—61.
Lióið hefur einu sinni sigraö
í UEFA-keppninni það var
keppnistímabilið 1971—72.
Stærsti sigur liösins í leik frá
upphafi var gegn utandeildar-
lióinu Crewe Alex. i fjórðu
umferð í ensku bikarkeppn-
inni áriö 1960. Leikurinn end-
aöi 13—2. Stærsta tap Totten-
ham frá upphafi vega var áriö
1978 í 1. deild gegn Liverpool,
7—0.
Sá sem flesta leiki hefur
leikið fyrir félagið er mark-
vörðurinn Pat Jennings. Hann
lék 472 deildarleiki á árunum
1964—1977. Hann er reyndar
enn í fullu fjöri hjá ööru félagi.
Frægasti leikmaöur Totten-
ham fyrr og síðar er án efa
markaskorarinn mikli Jimmy
Greaves. Jimmy skoraöi alls
220 mörk fyrir liö sitt á árunum
1960 til 1970. Þá var hann
markhæsti leikmaöurinn í
ensku deildarkeppninni 1962
til 1963, skoraði 37 mörk.
Lið Tottenham hefur góöum
leikmönnum á að skipa í dag.
Argentínumennirnir Osvaldo
Ardiles og Richardo Villa sem
báðir urðu heimsmeistarar ár-
ió 1978 hafa sett sinn svip á
leik liðsins. Fleiri leikmenn
mætti nefna. Tottenham er nú
í níunda sæti í ensku deildar-
keppninni og hefur leikiö all-
vel aö undanförnu.
- br.
Man. City
Liö Manchester City leikur á
laugardaginn í áttunda sinn til
úrslita um enska bikarinn á
þeim 100 árum sem keppt
hefur veriö um hann. Liö Man.
City var stofnaö áriö 1895 og
lék fyrst í 1. deild árið 1899.
Manchester City sigraöi í
fyrsta sinn í ensku bikar-
keppninni árið 1904, en síöasti
sigur þeirra var áriö 1969. Þá
vann liðið árin 1934 og 1956.
Liðið tapaði svo úrslitaleikjum
árin 1926, 1933 og 1955. Liðió
hefur tvívegis sigraö í deild-
arkeppninni, árin 1936—37 og
1967—68. Árin 1976—77 var
liöið í ööru sæti.
Liðiö hefur einu sinni sigrað
í Evrópukeppni og var það
keppnistímabilið 1970—71 er
liðið náði að sigra í Evrópu-
keppni bikarhafa. Stærsti sig-
ur sem liðið hefur unnið frá
upphafi var áriö 1895 er það
sigraði Lincoln í 2. deild 11—3.
Stærsta tap í sögu félagsins
var í 1. deild á árið 1906 gegn
Everton 9—1.
Sá sem flesta leiki hefur
leikið fyrir félagið í deildar-
keppninni frá upphafi vegar er
Alan Oakes á árunum 1959—
76, 565 alls.
Lið Manchester City byrjaði
keppnistímabiliö að þessu
sinni mjög illa og tapaöi hverj-
um leiknum af öörum. Þá var
framkvæmdastjóri félagsins
Malcolm Allison rekinn og
John Bond ráðinn í hans stað.
Þá fór liðinu strax aö ganga
betur og vann hvern leikinn af
öðrum. Liðið er nú um miðja
deild og tókst að tryggja sér
rétt til úrslitaleiksins á
Wembley með því að slá út
sjálfa Ipswich-kappana.
Stærstu stjörnur Man. City í
dag eru markvörðurinn Joe
Corrigan, miöherjinn Kevin
Reeves, og framherjinn Dennis
Tueart.
- þr.
• Wembley leikvangurinn í London. Hann var fyrst tekinn í notkun árið 1923. Fyrsti atburðurinn sem þar fór fram var úrslitaleikur í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu á milli Bolton Wanderes og West Ham. Nú 58 árum síðar fer fram sögulegur leikur á vellinum. Á laugardag verður 100. úrslitaleikurinn í ensku
bikarkeppninni. Liðin sem mætast á Wembley eru Tottenham og Manchester City. Wembley leikvangurinn tekur eitthundrað þúsund manns, 45.000 í sæti og 55.000 í
stæði. Tveir mjög sögulegir atburðir fóru fram á þessum leikvangi. Ólympíuleikarnir árið 1948 og heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu árið 1966 sem England
sigraði. Leikvangurinn er jafnan fullskipaður þegar stórleikir fara þar fram og þá er þar stemmning sem gleymist engum sem í hefur komist. Og þeir eru orðnir margir
íslendingarnir sem kannast oröið vel viö sig á vellinum fræga.
• Söguleg mynd frá fyrsta úrslitaleiknum á
^------,Wemblev árið 1923 er Bolton og West Ham
^ léku. Þá tók það lögreglu langan tíma að
koma áhorfendum af leikvanginum sjálfum.
Á þessari mynd má sjá þrjá af leikmönnum
Bolton fylgjast með og bíða eftir því að
leikurinn geti hafist.
• Lið Arsenal vann það afrek árið 1971 að
vinna bæði ensku deildarkeppnina og
bikarkeppnina. Fyrirliði liðsins þá var hinn
kunni knattspyrnumaöur Frank McLintock
sem hér sést hampa bikarnum fyrir ensku
deildarkeppnina.
=o
• Frá fyrsta úrslitaleiknum áriö 1923. Lög-
reglan á hestum reynir aö hemja mann-
fjöldann. Talið er að um 200 þúsund
áhorfendur hafi mætt til leiksins og verið
við leikvanginn er leikurinn fór fram. Bolton
sigraöi í þessum fyrsta leik 2—0.
BIKARURSLIT
Á WEMBLEY
Sigrar - Siðir - Sorgir
• David O’Leary, Arsenal, og Steve Coppell, Manchester
United, eigast við í úrslitaleik á Wembley árið 1979. Arsenal
sigraði 3—2.
'i