Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 26

Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981 100. úrslitaleikur FA-bikarsins á laugardaginn: Ótrúlegustu atvik eiga til að skjóta upp kolli í úrslitaleiknum - leiknum sem alla drengi í Englandi dreymir um að taka þátt í 9.MAÍ næstkomandi, fer fram úrslitaleikurinn í ensku FA-bikar- keppninni, en þá mætast á Wembley-leikvanjíinum i Lundúnum lið Tottenham ok Manchester City. Urslitaleikir sem bjóóa upp á viðurei«nir norðanliða Ke>cn sunnanliðum vekja yfirleitt mestu athyKlina, enda rÍKur mikill milli þeirra landshluta Kruclands á knattspyrnusviðinu. Úrslitaleikurinn nú, er 100. úrslitaleikurinn frá upphafi. í byrjun var þó ekki leikið á Wemhley ... hreinlega ve«na þess að leikvangurinn var þá ekki til. í upphafi voru úrslitaleikir þessir ekki Kæddir sama aðdráttarafli ok nú. Þannig má Keta þess, að árið 1873, er Oxford University ok Wanderers áttu að leika til úrslita, var leikurinn færður fram þannijc að hæði leikmenn ok áhorfendur Kætu fylKst með hinum árleKa bátakappróðri milli Oxford ok CambridKe. Enn í daK nýtur kappróðurinn KeysileKra vinsælda, en hann strndur nú lanKt að baki úrslitaleiknum. Eins ok leiða má Kctum að. hefur ýmisleKt drifið á daKa „úrslitaleiksins" á 100 árum. í meðfylKjandi Krein er víða drepið niður fæti ok eitt ok annað rifjað upp. Hikarnum stolið Það hefur jafnan verið hlut- skipti þeirra félaga sem bikarinn hafa unnið, að geyma hann fram að næsta úrslitaleik. Aston Villa hefur unnið bikarinn sjö sinnum7 eða oftar en nokkurt annað lið. í sex tilvikum hefur félagið geymt bikarinn á þennan hátt, en árið 1895 kom babb í bátinn. Félagið hafði þá haft bikarinn undir höndum í fjóra mánuði, er gengið var til samninga við íþrótta- vöruframleiðanda nokkurn að nafni William Shillock. Sam- kvæmt samningunum fékk hann bikarinn til útstillingar í búðar- glugga sínum. í auglýsingaskyni að sjálfsögðu. En ekki hafði bikar- inn staðið lengi í gluggakistu Shillocks, er honum var stolið og enn í dag hefur hvorki sést tangur né tetur af honum. Margir töldu leyndardóminn uppljóstraðan, er 83 ára gamall maður að nafni Uarry Burge gaf sig fram mörgum árum síðar, eða árið 1958, og sagðist hafa rænt bikarnum, brætt hann og notað hann til myntsláttu. Ekki voru þó allir sannfærðir, því engin sönnunar- gögn gat Burge lagt fram og eins og allir vita er alltaf nóg til af fólki sem gerir allt til að komast í fréttirnar. Utandeildarliðið sÍKraði Aðeins einu sinni hefur lið utan deilda sigrað í bikarkeppninni, en það var árið 1901 og það var Tottenham, sem þá var lítt frægt félag utan deilda, sem sigraði Sheffield Utd. Leikurinn fór fram á Ieikvelli Crystal Palace og áhugi fyrir íþróttaviðburðinum orðinn mikill, 114.000 áhorfendur. Enginn reiknaði með sigri Tottenham, en er fáeinar mínútur voru til leiks- loka var staðan engu að síður 1—0 fyrir Tottenham. Þá skoraði markvörður liðsins makalaust sjálfsmark, ætlaði að varpa knett- inum fram á völlinn, en kastaði honum þess í stað óvart í markið! Aukaleik þurfti því en Tottenham bætti þá um betur og vann örugglega 3—1. Charlie Wallace komst á spjöld sögunnar Árið 1913 komst Aston Villa í úrslitin og átti að mæta Sunder- land sem þá var nýbúið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn og átti því möguleika á að vinna tvennu. Ungan leikmann í liði Villa, Clem Stephenson, dreymdi nokkru fyrir leikinn, að Villa myndi vinna 1—0 og Tom Barber myndi skora sigurmarkið. Sagði hann skilmerkilega frá draumför- um sínum áður en leikurinn hófst. Og Villa vann 1—0 með marki Barbers! En draumaúrslitin héngu heldur betur á bláþræði, er Villa fékk vítaspyrnu er staðan var enn 0—0. Charlie Wallace fram- kvæmdi spyrnuna, en brenndi af! Enn þann dag í dag, er hann eini leikmaðurinn sem hefur klúðrað víti í úrslitaleik bikarkeppninnar. • Bikarinn eftirsótti Fyrsti leikurinn á Wembley 28. apríl 1923 var loks leikið til úrslita á Wembley-leikvanginum og þá áttust við West Ham og Bolton. Leikurinn átti eftir að vera sögulegur, einkum fyrir þær sakir, að forráðamenn vallarins ofmátu gersamlega hversu margir áhorfendur kæmust fyrir á áhorf- endastæðum vallarins. Völlurinn átti að taka 125.000 manns og breska knattspyrnusambandið gaf út þá yfirlýsingu að nóg pláss væri fyrir alla sem vildu sjá leik West Ham og Bolton. En þar skjátlaðist sambandinu. Þegar búið var að stappa inn á völlinn að því marki að erfitt var um andardrátt meðal gesta voru enn um 100.000 manns utan vallarhliðanna. Skarinn lagðist á veggi og hlið með þeim afleiðingum, að allt lagðist saman og áhorfendum rigndi inn á svæð- ið. Og var þó ekki á bætandi eins og áður hefur komið fram. Ekki tókst að hefja leikinn á réttum tíma vegna þess að hundr- uð áhorfenda flæddu inn á völlinn. Uppi varð fótur og fit, hrossalögg- an var kvödd til og með hjálp hennar tókst að moka skaranum upp í stæðin á ný þrátt fyrir að nú væru mun fleiri komnir en áður. Loks hófst leikurinn og strax á 2. mínútu skoraði David Jack fyrir Bolton og var það fyrsta markið sem skorað var í úrslitaleik FA- keppninnar á Wembley. Bolton skoraði aftur síðar í leiknum og varð fyrsta liðið til að sigra í úrslitaleik þessum á Wembley. Áhorfendatalan sem gefin var upp var 136.047. Það var þó flestra mál, að þeir hafi verið minnst 150.000 talsins, sennilega 200.000 og hugsanlega nálægt 250.000. Voru áhorfendurnir notaðir sem hliðarlínur! Fyrri hálfleikur stóð yfir í rúmar 60 mínútur þar sem að áhorfendur flæddu yfir völlinn fljótlega eftir að leikurinn hófst og tók sinn tíma að ryðja völlinn á ný- Óhappastaður markvarða Það hefur loðað við Wembley, að annað hvort leika markverðir þar eins og snillingar, upptrekktir af andrúmsloftinu sem þar ríkir, eða að þeir bugast á taugum og gera mistök sem kosta lið þeirra sigurinn. Árið 1927 mættust Car- diff og Arsenal í úrslitunum og vann velska liðið óvæntan sigur. Sigurmarkið var það ódýrasta sinnar tegundar, algert útsölu- mark. Hugh Ferguson reyndi langskot að marki Arsenal. Markvörðurinn, Dan Lewis, var vel með á nótunum, kom sér kirfilega fyrir í skotlínuna. En peysa Lewis var ný af nálinni, glansandi og síðast en ekki síst hál. Knötturinn hafði ekki langa viðdvöl í fangi hans af þeim sökum, heldur smaug í netið! Arsenal hefur all oft leikið til úrslita síðan en aldrei klæðast markverðir liðsins nýjum og ónot- uðum peysum. Cardiff braut þarna einnig blað, hvorki fyrr eða síðar hefur lið frá Wales unnið FA-bikarinn. Árið eftir léku Huddersfheld og Blackburn til úrslita og ekki var leikurinn gamall er John Rose- camp markvörður Huddersfield greip inn í leikinn. En einn framherja Blackburn kom aðvíf- andi og sópaði markverðinum inn í markið. Eins og góðum mark- verði sæmdi, sleppti Rosecamp ekki knettinum og á óvart kom er dæmt var mark! Markverðir í þá daga nutu ekki sömu verndar frá hendi dómara og nú til dags. Blackburn byggði síðan á þessari „góðu“ byrjun og sigraði 3—1. Gleymdi sokkunum Oft buðu leikir í fyrri umferðum bikarkeppninnar upp á óvænt úr- slit og atvik. Það þekkja þeir sem fylgjast með ensku knattspyrn- unni, að hún úir og grúir af slíkum leikjum. Arsenal var mikið stór- veldi undir stjórn Herberts Chap- man snemma á fjórða áratugnum. Þá varð félagið enskur meistari þrjú ár í röð og bikarmeistari eitt áranna að auki. 1933 var Arsenal efst í deildinni og dróst liðið gegn 3. deildar liði Walsall. í næsta leik á undan bikarleiknum hafði Ars- enal sigraði Sheffield Utd. 9—2 og náð þar með sex stiga forystu í deildinni, Walsall gekk hins vegar ekkert í haginn í 3. deild, hafði aðeins fengið 3 stig af síðustu 8 mögulegum. Þrír af fastamönnum Arsenal voru meiddir og gátu ekki leikið, en það hefði varla átt að koma að sök, þar sem eftir voru alltjent 7 fastir landsliðsmenn. En varamennirnir þrír voru svo taugaveiklaðir, að þeim tókst að smita félaga sína. Einn þeirra, Charlie Walsh, var svo frá sér af spennu, að hann var búinn að reima knattspyrnuskóna fasta áð- ur en hann uppgötvaði að hann hafði gleymt að fara í sokkana! Framhaldið þarf vart að rekja, Walsall sigraði 1—0 og Chapman varð svo reiður að hann seldi alla varamennina eins fljótt og nokkur kostur var. Það þótti saga til næsta bæjar er Walsall sló Arsen- al út úr keppninni, liðið sem sagt var að borgaði leikmönnum sínum álíka mikið í laun á mánuði og Arsenal greiddi fyrir knatt- spyrnuskó á lið sitt. „Þeir geta ekki skrifað nöfnin sín“ Árið 1939 mættust Portsmouth og Wolverhampton í úrslitum og var fastlega reiknað með öruggum sigri Wolves. Leikmenn liðsins undu hins vegar illa hversu sigur- stranglegir þeir voru taldir og um þverbak keyrði þegar leikmenn voru beðnir að rita nöfn sín í „gestabókina á Wembley" rétt áður en að leikurinn hófst. Þá hrópaði skyndilega fyrirliði Portsmouth; „Strákar, við vinnum þá létt, þeir eru svo taugaóstyrkir að þeir geta ekki einu sinni skrifað nöfnin sín.“ Hvað svo sem var til í þessari fullyrðingu þá sigraði lið Portsmouth með miklum yfir- burðum, 4—1. Og Portsmouth geymdi síðan bikarinn lengur en nokkurt annað félag, því þetta var síðasti úrslitaleikurinn fyrir • Fyrsta mark Portsmouth gegn Wolverhampton árið 1939. • Sammy Mcllroy skorar jöfnunarmarkið fræga Kegn Arsenal árið 1979.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.