Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 38

Morgunblaðið - 05.05.1981, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1981 t Bróðir okkar, GUDMUNDUR ÞÓRÐARSON, Inknir, frá Sláttubóli A-Landeyjum, DrApuhlíó 44, Reykjavlk, andaðist á Landspítalanum 3. þ.m. Systkini hins lAtna. t Móöir mín, tengdamóölr og amma, GUÐFINNA GRÍMSDÓTTIR, Völvufelli 44, Reykjavfk, veröur jarösungin fimmtudaginn 7. maí kl. 3 frá Fossvogskirkju. Fyrir hönd vandamanna. Sumarlfna Ólafsdóttir. t Eiginmaður minn og faöir okkar, JÓHANNES KRISTJÁNSSON, forstjóri, Kringlumýri 22a, Akureyri, veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju, fimmtudaginn 7. maí kl. 13.30. Ingunn KristjAnadóttir og börn. Sigríður Jeppesen Minningarorð Fædd 10. desember 1908. Dáin 25. apríl 1981. Hún sáði sínu frækorni vel, enda var uppskeran góð. Það sýndi hinn tryggi og góði eiginmaður og hennar einstöku börn. Rúmlega 9 ár er langur tími að liggja sjúk og hjálparvana. Það hefur verið erf- iður tími, og ekki síst erfiður hennar kæru. En hún gaf þeim styrk með sinni léttu lund, aldrei æðruorð, ávallt kát og brosandi. Af henni var hægt að læra margt, ekki síst þolinmæði og góðvild í garð allra manna. Ég ætla ekki að rekja æviferil henn- ar, það gera aðrir. Þetta er aðeins kveðja og þakklæti frá okkur Júlíusi fyrir að hafa kynnst henni. Guð gefi henni góða heimkomu. -Að hryKKjast og xleAjaMt hér um fáa daga. aA hfilsast ok kveðjaat það er lífsins sajfa.“ P.J.Á. Agnes Til moldar verður borin í dag vinkona mín Sigríður Jeppesen, en hún andaðist að morgni 25. apríl síðastliðins. Hún var gift fóstur- bróður mínum Alfonsi Oddssyni bifreiðastjóra sem var sonur Odds Jenssonar sem lengi bjó í Hvarfs- dal á Skarðsströnd, en sá bær er fyrir löngu kominn í eyði. Mikill söknuður fylgir því að standa yfir moldum góðrar vin- konu og rifja upp minningar frá þeim tíma er Sigríður var heil heilsu og hrókur alls fagnaðar, hversdagslega og á hátíðarstund- um fjölskyldunnar. Hún var frá fyrstu samverustundum okkur fóstursystkinum Alfonsar eins og systir getur best verið. Sigríður missti skyndilega heilsuna fyrir rúmum átta árum og síðan hefur hún að mestu dvalist á sjúkrahúsi. Enga fjölskyldu þekki ég sem staðið hefur betur saman í veik- indum, heldur en fjölskylda Sig- ríðar gerði. Allt var gert af fjölskyldu hennar hálfu sem mannleg hönd er fær um að gera, til þess að létta henni sjúkra- leguna. Hvern helgidag var hún sótt á sjúkrahúsið og borin á höndum ýmist inn á sitt eigið + Hjartkær eiginkona mín, móöir okkar oa tengdamóöir, GUÐRÍDUR JÓNSDOTTIR, HAtúni 10b, andaöist á Borgarspítalanum sunnudaginn 3. maí. Halldór Jónsaon, Jón Halldórsson, Margrét Þorsteinsdóttir, Guðmundur Halldórsson, Halldóra Valdimarsdóttir, Elsa Halldórsdóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir. + Faöir minn, LOFTUR JÓNSSON frA Vilborgarstööum, Vestmannaeyjum, andaöist á Landspítalanum 2. maí. Guörún Loftsdóttir, Blöndubakka 12. + Eiginkona min, ÁSTA ÞORGRÍMSDÓTTIR, Kloppsvogi 6, lést á Landspítalanum aö morgni 1. maí. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd vandamanna Erlendur Jóhannsson. + Maöurinn minn, INGIMAR ÓSKARSSON, néttúrufræöingur, Langholtsvegi 3, lést á hjúkrunardeild Landspítalans, Hátúni 10b, laugardaginn 2. maí. Margrót Steinsdóttir. + Eiginmaöur minn, VIGFÚS GESTSSON, Skarphéöinsgötu 10, lést á Borgarspítalnum Reykjavík, aö kvöldi 1. maí. Kristín Árnadóttir. + Konan mi'n, móöir og tengdamóöir, IÐUNN SIGUROARDOTTIR, andaöist 2. þessa mánaöar á Borgarspítalanum. • Þóröur Þóröarson, Edda Þórz, Magnús Valdimarsson, Sif Þórz, Valgarð J. Ólafsson. + Maöurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi, SÓFUS INGVAR BENDER, bifreiðastjóri, Bólstaöarhlíö 46, andaöist í Landakotsspítala 1. maí. Magnhildur Bender, börn, tengdabörn og barnabörn. + SVEINN GUNNLAUGSSON, fyrrverandi skólastjóri A Flateyri, andaöist í Borgarspítalanum 3. maí. + Móðir okkar, tengdamóöir og amma, VIGDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Rauöalœk 42, Reykjavík, lést í Landspítalanum aöfaranótt sunnudagsins 3. maí. Jaröarförin auglýst síöar. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginkona mín og móöir okkar, MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR, fyrrverandi bankaritari, Langholtsvegi 186, lézt 2. maí. Gunnar Björnsson, Rannveig Gunnarsdóttir, Þórarinn B. Gunnarsson. + Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN KRISTINN KRISTJÁNSSON, Erluhrauni 6, Hafnarfiröi, lézt aöfaranótt 2. maí. Rósa Jafetsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Faöir okkar, GUDGEIR JÓNASSON, SmAragötu 5, andaöist á Landspítalanum aöfaranótt sunnudagsins 3. maí. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Geir Guögeirsson, Hreggviöur Guögeirsson. heimili í Mávahlíð 8 eða þá inn á heimili barna sinna og tengda- barna. Aldrei leið svo heimsóknartími á spítaianum að ekki kæmi eigin- maður Sigríðar eða einhver úr fjölskyldu hennar í heimsókn. Sjálf hafði Sigríður óafvitandi lagt grunninn að kærleika og umhyggju fjölskyldu sinnar með takmarkalausri umhyggju og góð- vild. Hjónaband er tæpast til farsælla en það var hjá Sigríði og Alfonsi. Sigríður var fædd í Reykjavík, dóttir Önnu Björnsdóttur Jeppe- sen og Georgs Jeppesen, sem var danskur að uppruna. Þegar Sigríð- ur var ung að árum, slitu foreldrar hennar samvistum. Faðir hennar flutti þá til Bandaríkjanna og reyndi þá mikið á frábæran dugn- að móður hennar, sem sat eftir með þrjú ung börn, Sigríði, Karl óg Max en hann var yngstur. Eftir að faðir Sigríðar flutti til Bandaríkjanna fór Anna móðir hennar að vinna í prentsmiðjunni Gutenberg þar sem hún vann fram á háan aldur, eða þar til hún settist að hjá Sigríði og Alfonsi. Tólf ára að aldri flutti Sigríður, ásamt Karli bróður sínum, vestur um haf til föður þeirra. Farkost- urinn var fraktskip, sem sigldi fyrst til Englands og var meira en mánuð til áfangastaðar. Búið var um þau systkinin ásamt fleira fólki í lest skipsins innan um varninginn og má nærri geta hvernig vistin þar hefur verið. Tuttugu og tveggja ára gömul kom Sigríður aftur heim til ís- Iands til að heimsækja móður sína og aðra ættingja og vini. Meining- in hjá henni var þá að dvölin yrði ekki löng á íslandi. En þá hitti hún dökkhærðan ungan mann, sem móðir hennar kallaði „svarta strákinn", fyrst eftir að Sigríður fór að hafa samfundi við hann. Þetta varð svo maðurinn hennar, svo áform hennar um för aftur vestur um haf varð að engu. Síðar meir kynntist móðir hennar því að unj?i maðurinn var meira en „svartur strákur". Milli Alfonsar og móður Sigríðar mynduðust fljótt traust bönd sem entust meðan hún lifði, enda reyndist Alfons henni sem besti sonur. Eftir að Sigríður var hætt við ferðina vestur hóf hún afgreiðslu- störf í hattabúð Reykjavíkur hjá Gunnlaugu Briem. Sigríður og Alfons giftu sig og hófu búskap í fremur lítilli íbúð hjá kunningjum sínum: hjónum sem hétu Skúli og Klara. Heimilið var fallegt og aðlaðandi. Eftir dvölina í Bandaríkjunum og menntunina sem Sigríður hlaut þar, var hún jafnvíg á þrjú tungumál og gott var það fyrir þá sem höfðu lélegan undirbúning undir skóla að leita tilsagnar hjá henni. Það var menntandi að tala við Sigríði, hún hafði farið víða og séð margt og hafði frá mörgu að segja. Ég var tíður gestur á Hverfis- götuheimilinu og eitt er það frá þeim tíma, sem ég aldrei gleymi. Þegar staðið var upp úr stofu hjá Alfonsi og Sigríði, höfðu þau ævinlega nógan tíma til þess að fylgja gestum til dyra og aldrei var útihurðinni lokað fyrr en gesturinn var horfinn úr augsýn. Meðan Sigríður og Alfons bjuggu á Hverfisgötunni eignuð-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.