Morgunblaðið - 05.05.1981, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
39
ust þau sitt fyrsta barn, Önnu sem
var látin bera nafn móðurömmu
sinnar og gift er Harrý Sampsted
vélstjóra. Fljótlega á búskaparár-
unum reyndist íbúðin á Hverfis-
götunni of lítil, svo þau festu kaup
á íbúð á Karlagötunni. Þá hafði
þeim líka fæðst önnur stúlka, sem
skírð var Guðrún í höfuðið á
föðurömmu sinni sem andaðist
þegar Alfons var barn. En þá var
Alfons tekinn í fóstur til föður-
systur sinnar Inngibjargar Sigríð-
ar Jensdóttur og manns hennar
Halldórs Guðmundssonar, sem
bjuggu í Magnússkógum í Dölum
þar sem hann ólst upp til fullorð-
insára. Guðrún er gift Hans
Kragh útvarpsvirkjameistara.
Þegar von var á meiri fjölgun í
fjölskyldunni og Bergsveinn
knattspyrnumaður sonur þeirra
fæddist, fluttust þau Sigríður og
Alfons í Mávahlíð 8, sem síðan
hefur verið heimili þeirra. Berg-
sveinn er giftur Þuríði Sölvadótt-
ur bankamanni.
I Mávahlíðinni uxu börnin upp
og döfnuðu vel við mikið hjarta-
rúm Sigríðar móður sinnar, sem
alltaf var til staðar að sinna
þörfum þeirra og félaga þeirra.
Þar ólst líka upp að nokkru leyti
Sigurður dóttursonur þeirra Sig-
ríðar og Alfonsar.
Eftir að börnin giftust og
barnabörnin komu fleiri og fleiri
til sögunnar, stóð Mávahlíðin
þeim opin. í hjartarúmi Sigríðar
Jeppesen var ævinlega nóg pláss.
Góðsemi hennar og ljúfmennska
áttu sér engin takmörk.
Við systkinin frá Magnússkóg-
um, fóstursystkini Alfonsar, vott-
um honum nú samúð okkar og
allri fjölskyldu hans. Við hörmum
að elskulega Sigga okkar, eins og
við kölluðum hana ævinlega, skuli
vera horfin burt úr hópnum, hún
sem alltaf var svo ljúf og hress og
kom öllum í gott skap sem í kring
um hana voru.
Blessuð sé minning hennar.
Jensína llalldórsdóttir.
Ingibjörg Jónsdótt-
ir - Minningarorð
Fædd 10. nóvember 1904.
Dáin 26. apríl 1981.
Þann 26. apríl 1981 andaðist að
Elliheimilinu Grund í Reykjavík
Ingibjörg Jónsdóttir, Alfhólsvegi
80, Kópavogi.
Inga frænka, eins og hún var
alltaf kölluð, fæddist að Breiðholti
Seltjarnarnesi 10. nóvember 1904.
Una S. Sigurðar-
dóttir Minningarorð
Fædd 24. maí 1904.
Dáin 26. 4.1981.
Hinn 26. apríl sl. lést amma mín
Una S. Sigurðardóttir í Borgar-
spítalanum.
Una var fædd 24. maí 1904 í
Selsgarði Alftanesi og voru for-
eldrar hennar frú Sigríður Guð-
mundsdóttir og Sigurður Sigurðs-
son, sjómaður.
A þessum árum voru lífskjörin
mun bágbornari en nú á dögum og
þurftu börnin að fara að vinna
fyrir sér um leið og þau gátu
vettlingi valdið, og gekk það sama
yfir Unu og flesta aðra.
+
Fóstursystir mín,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Alfhólsvegi 80, Kópavogi,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 5. maí, kl. 3.
Ólafía Ingimundardóttir.
+
Bróðir minn og mágur,
KRISTJÁN G. KRISTJÁNSSON,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 6. mai, kl. 3.
eh. Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeir, sem vilja minnast hans láti
Krabbameinsfélagiö njóta þess.
Kristín S. Kriatjánadóttir,
Hafliöi Gíalaaon.
+
Sonur okkar, faöir og bróðir,
RAGNAR SIGURÐUR RAGNARSSON,
vélstjóri, Otrateig 20,
veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju miövikudaginn 6. maí kl.
3.00.
Sigríóur E. Jónadóttir, Ragnar B. Henrýaaon,
Sandra Björk Ragnaradóttir,
Páll Ragnaraaon,
Jón Ingi Ragnaraaon,
Arnheiður Ragnaradóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og bróöir,
JÓHANN GUNNAR ÓLAFSSON,
málarameiatari frá Hafnarfirði,
andaöist 30. apríl í Graasten Danmark. Útför hans fer fram
miðvikudaginn 6. maí frá Garöakirkju kl. 2.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Soffía V. Björnadóttir,
Elíaabet Hanaen,
Bjórn Jóhannsson,
Olafur Jóhannaaon,
Ingveldur Ólafsdóttir,
og barnabörn.
Henry Hansen,
Asta Jóhannsson,
Tove Jóhannason,
Sigurður Ólafsaon
+
Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og sonar,
SNÆBJARNAR BJARNASONAR.
Sérstakar þakkir sendum vlö læknum og hjúkrunarfólki hand-
lækningadeildar 3, Landspítalanum.
Áslaug Magnúadóttir, Árni Snæbjörnsson,
Helga Snæbjörnsdóttir, Gunnsteinn Stefánsson,
Bjarni Snæbjörnsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Magnús Snæbjörnsson, Ásrún Ingólfsdóttir,
Helga Jónasdóttir.
Eftir að Una fullorðnaðist var
hún í vist m.a. hjá Ásthildi og
Pétri Thorsteinsson og síðar starf-
aði hún hjá Mjólkursamsölunni
bar sem hún kynntist eiginmanni
.únurn Böðvari Högnasyni.
Una og Böðvar giftu sig árið
1926 og var það hjónaband mjög
hamingjusamt. Þau eignuðust
þrjú börn, Högna (f. 1927), Hjör-
dísi (f. 1930) og Þórunni (f. 1933). í
fyrstu bjuggu þau að Lindargötu
12, R. þar sem Una helgaði sig
alfarið heimili og börnum. Hún
var einstaklega góð og fórnfús
móðir. Börn og eiginmaður gengu
fyrir öllu.
Þeir sem þekktu Unu á þessum
árum sögðu um hana að hún hefði
verið mjög falleg kona og sérstak-
lega myndarleg og hreinleg, enda
bar heimili hennar þess merki alla
tíð.
Hún var ákaflega sterkur per-
sónuleiki og hafði ákveðnar skoð-
anir á hlutunum. Einr.ig var hún
glaðlynd og gamansöm og skorti
hana aldrei orð þegar á hana var
yrt, enda bráðgreind.
Á seinni árum, þegar heilsan fór
að gefa sig, hélt hún þó alltaf
glaðlyndi sínu en eftir að Böðvar
afi minn dó brá þó skugga á andlit
hennar og mér fannst hún aldrei
ná sér fullkomlega eftir það.
Eg þakka það aldrei nóg að hafa
fengið að kynnast ömmu minni
svo náið og njóta samvista henn-
ar, og ég veit að ég tala fyrir munn
hinna þriggja barnabarnanna.
Minninguna um ömmu geymi ég
um alla framtíð. Guð blessi ömmu
mina.
Una Eyþórsdóttir.
Er hún var á fyrsta ári tóku
hjónin Guðbjörg Magnúsdóttir og
Ingimundur Ólafsson, Knútsborg,
Seitjarnarnesi, hana í fóstur og
var hún með þeim alla tíð síðan,
meðan bæði lifðu. Árið 1907 flutt-
ist Inga ásamt fósturforeldrum
sínum og þeirra börnum að
Bræðraparti við Bræðraborgar-
stíg í Reykjavík, og þar eyddi hún
sínum bernsku- og unglingsárum.
Inga bjó með fósturforeldrum
sinum og hélt heimili með þeim
þar til þau voru bæði látin, og
reyndist hún þeim vel í ellinni og
hugsaði um þau af natni og
umhyggjusemi og launaði þeim
þannig uppeldið. Þegar þau voru
látin fluttist Inga á heimili Ólafíu
fóstursystur sinnar, ömmu minn-
ar, og bjuggu þær saman æ siðan
meðan báðar héldu heilsu, fyrst að
Sólvallagötu 5A, Reykjavík, þá að
Njálsgötu 86, Reykjavík og síðast
bjuggu þær saman að Álfhólsvegi
89 Kópavogi, í nágrenni við Ingi-
björgu Sigurðardóttur, dóttur
Ólafíu, en Ingibjörg og maður
hennar Hinrik Lárusson og börn
þeirra, reyndust þeim mjög vel,
einkum eftir að heilsu þeirra fór
að hraka, og eiga þau þakkir skilið
fyrir það. Ólafía dvelur nú á
Hrafnistu og hefur verið þar í
nokkur ár, en Inga var síðustu
árin vistmaður á Elliheimilinu
Grund.
Inga giftist aldrei og átti ekki
börn, hún var hins vegar sérstak-
lega barngóð og börn löðuðust
ætíð að henni.enda var leitun að
manneskju sem var eins blíð og
þolinmóð við börn og einmitt Inga.
Sá sem þessar línur ritar fór ekki
varhluta af því. Sem barn bjó ég
um tíma með foreldrum mínum og
systur að Sólvallagötu 5A um leið
og Inga, og var hún mér og systur
minni ætíð einstaklega góð. Hún
hafði alltaf tíma til að leika við
mann og kunni marga skemmti-
lega leiki, hún sagði okkur sögur
og margir voru göngutúrarnir sem
hún fór með mig um nágrennið
t.d. uppá Landakotstún, niður í
kirkjugarð eða vestur á róluvöll,
svo eitthvað sé nefnt. Á þessum
gönguferðum fræddi hún mig um
ýmsa hluti og útskýrði fyrir mér
margt sem ég ekki skildi, þannig
kenndi hún mér meira á þessum
árum en flestir aðrir, og er ég
henni þakklátur fyrir það. Þá er
mér og í fersku minni mín fyrsta
leikhúsferð, en það var einmitt
ATHYGLI skal vakin á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagshlaöi. að berast i
siðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréfs-
formi. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni. að frum-
ort ljoð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu linubili.
Inga sem tók mig með sér að sjá
Skuggasvein í Þjóðleikhúsinu, og
var ég þá líklega 5 ára gamall.
Síðar er þær Inga og amma voru
fluttar að Njálsgötu 86 í Reykja-
vík, var það alltaf mikið tilhlökk-
unarefni ef til stóð að heimsækja
þær einkum ef dvalið var hjá þeim
yfir nótt, því þangað var gott að
koma. Það sem hér að framan er
ritað veit ég að á ekki eingöngu
við mig heldur hafa önnur barna-
börn ömmu svipaða sögu að segja,
því Ingu þótti vænt um okkur öll
og reyndist öllum vel, þó hópurinn
væri stór.
Inga var lengst af heilsuhraust,
en fyrir um það bil 10 árum
kenndi hún lasleika sem smám
saman ágerðist þannig að síðustu
mánuðina var hún algjörlega rúm-
föst. Hún vann allan sinn starfs-
aldur hjá Ásgarði h/f og þar hóf
hún störf árið 1924, þá tvítug að
aldri, og hjá því fyrirtæki starfaði
hún samfellt í rúm 50 ár eða til
ársins 1976, en þá hætti hún að
vinna af heilsufarsástæðum. Hún
var alltaf vel liðin jafnt af sam-
starfsmönnum, sem húsbændum,
enda var hún starfskraftur góður,
dugleg, samviskusöm og létt í
lund, og var ein þeirra sem ætíð
gerði meiri kröfur til sjálfrar sín
en annara. Hún lifði alla tíð
kyrrlátu og reglusömu lífi og
aldrei heyrðist hún kvarta þótt
stundum ætti hún erfitt, einkum
hin síðari ár er heilsan var farin
að bila, og í dag kveðjum við með
söknuði og þakklæti þessa góðu
konu, en hún verður jarðsungin í
dag frá Fossvogskapellu í Reykja-
vík.
Blessuð sé minning Ingibjargar
Jónsdóttur.
Guðmundur Pétursson.
Legsteinn er
varanlegt
minnismerki
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
IS.HELGASON HF
STEINSMKMA
SKEMMUVEGl 48 SiMt 76877
Hljóðritunartæki
til sölu
Tæki til hljóöritunar í eigu Tóntækni hf. eru öll til sölu.
Tækin eru flest nýleg og af vandaðri gerö hvert á sínu sviði.
Listi yfir tækin liggur frammi hjá SG-hljómplötum hf., Ármúla
38, sími 84549 og eru þar veittar frekari upplýsingar ef óskaö er.
Tækin seljast öll í einu lagi og er óskaö eftir skriflegum tilboöum
fyrir þriðjud. 13. maí í pósthólf 5207, 105 Reykjavík.
Réttur áskilinn til aö taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.