Morgunblaðið - 05.05.1981, Qupperneq 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
}M«rgunbI<ibid
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JMvrgunblnbib
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1981
Dæmdur í 16 ára
fangelsi fyrir
að bana manni
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í líær
Uráin Illeinar Kristjánsson i 16
ára fanKelsi fyrir að verða Svav-
ari SÍKurðssyni að bana i ibúð i
húsinu að Hverfisgotu 34 í Reykja-
vik hinn 1. april 1979. Til frádrátt-
ar refsinKunni kemur gæzluvarð-
haldsvist Þráins frá 2. apríl 1979.
Hafnarfjörður:
Ung hjón hand-
tekin fyrir
leynivínsölu
UNG IIJÓN í Hafnarfirði
voru um helKÍna handtekin
fyrir umfanKsmikla leyni-
vínsolu.
Að sögn Sveins Björnssonar
yfirlögreKluþjóns í Hafnar-
firði hefur um hrið leikið
grunur á því að leynivínsala
væri rekin i bænum. Undan-
farið hafa 16 ára piltar þar í
bæ verið ískyggilega oft undir
áhrifum áfengis. Voru piltarn-
ir yfirheyrðir og í framhaldi
af því voru hjónin handtekin.
Þau viðurkenndu að hafa á
sl. tveimur árum selt um 600
flöskur af áfengi, aðallega
brennivíni. Fór salan fram á
heimili þeirra og voru ungl-
ingar kaupendur í flestum
tilfelium. Hjónin höfðu vænan
hagnað af fyrirtækinu því
venjulega seldu þau brenni-
vínsflöskuna á helmingi hærra
verð en „í ríkinu". T.d. hafa
þau selt brennivínsflöskuna á
280 krónur að undanförnu en
hún kostar tæpar 140 krónur í
vínbúðum. Við húsleit fundust
4 flöskur.
Hjónin eru um þrítugt og
eiga þau yfir höfði sér háar
sektir.
Hæstiréttur staðfesti dóm saka-
dóms Reykjavíkur, sem kveðinn
var upp af Halldóri Þorbjörnssyni
yfirsakadómara. Fjórir hæstarétt-
ardómarar stóðu að dómsorðinu,
Björn Sveinbjörnsson, Ármann
Snævarr, Logi Einarsson og
Magnús Þ. Torfason. Sigurgeir
Jónsson skilaði sératkvæði og
taldi að Þráni bæri að sæta
fangelsi í 14 ár.
Þráni var ennfremur gert að
greiða allan áfrýjunarkostnað
sakarinnar, þar með talin sak-
sóknarlaun til ríkissjóðs, 5.000,00
krónur og réttargæzlu- og máls-
varnarlaun skipaðs verjanda síns,
Arnar Clausen hrl., 6.000,00 krón-
Sem fyrr sagði varð atburður-
inn 1. apríl 1979. Þráinn, sem nú
er 38 ára gamall, veitti Svavari
mikla áverka með beittum eldhús-
hníf og lézt hann af völdum
áverkanna. Svavar heitinn var 56
ára þegar hann lézt.
Þessi kría
var á flugi
j;fir
Álftanesi
í gærkvöldi.
I.josm. Kmilia.
Krían er komin
KRÍAN er komin. Bjarni
Guðmundsson, Jörfa á Alfta-
nesi, hringdi til okkar á
sjöunda tímanum í gær-
kvöldi og voru fyrstu kríu-
hóparnir þá nýkomnir á nes-
ið. Bjarni hefur fylgst með
komu kríunnar undanfarin
ár og kveður hana óvenju
snemma á ferðinni. I fyrra
komu fyrstu kríurnar á
Alftanesið 8. maí, en venju-
lega er talið að krían komi
11. maí og þann dag kemur
hún oftast í Tjarnarhólm-
ann.
Missti hönd í hausingarvél:
Reynt að
græða hönd
á 16 ára
stúlku
SEXTÁN ára gömul
stúlka lenti með hægri
höndina í hausingarvél í
söltunarstöð Miðness hf. i
Sandgerði í gær og fór
höndin af, ofan við úlnlið.
Stúlkan var flutt á slysa-
deild Borgarspítalans og
var hún enn í aðgerð, þegar
Morgunblaðið fór í prentun
í nótt. Átti að freista þess
að græða höndina á stúlk-
una á ný. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins
var líðan stúlkunnar eftir
atvikum, en ekki var útséð
um hvenær aðgerðinni lyki,
né heldur um árangur af
henni.
Páll Sigurjónsson, formaður VSI:
„Harðasta og afturhaldssamasta
verðlagslöggjöf, sem um getur“
VSI setur fram kröfur um „félagsmálapakka“ í samningum í haust
„FRÁ 1. MAÍ býr atvinnurekst-
urinn við hörðustu og aftur-
haldssömustu verðlaKslöKKjöf,
sem um Ketur,“ sagöi Páll SÍKur-
jónsson. formaður Vinnu-
veitendasambands íslands, i
ræðu sinni á aðalfundi samtak-
anna, scm hófst i gær. Formaður
VSl sagði það staðreynd, að
verðholgan væri minnst i þeim
löndum Vestur-Evrópu, sem búa
við mest frjálsræði en hins veKar
Stórbruni í timburgeymslu
Dvergs hf. í Hafnarfirði
Frá slökkvistarfinu í Kær.
STÓRBRUNI varð i timhur-
Keysmlu timhurverslunarinnar
DverKs hf. í Hafnarfirði um
miðjan dag í Kær. Samkvæmt
upplýsinKum lógreKlunnar i
Hafnarfirði var tilkynnt um
eldinn um klukkan 15.40 ok
tókst að ráða niðurlögum hans
um tveimur klukkustundum
síðar. Allt slökkvilið bæjarins
var kallað á staðinn og gekk
slökkvistarf vel. Talið er að um
ikvcikju hafi verið að ræða.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Trausti Ó. Lárusson, fram-
kvæmdastóri Dvergs, að erfitt
væri að gera sér grein fyrir því
hve mikið tjónið væri, en ljóst
væri að það skipti hundruðum
þúsunda og væri því verulegt.
Trausti sagði að timbrið hefði
verið vátryggt fyrir nókkurn
veginn þá upphæð sem andvirði
þess næmi, þannig að ekki væri
um verulegt tjón að ræða fyrir
fyrirtækið. Trausti sagði að
menn væru nokkuð vissir um að
um íkveikju hafi verið að ræða,
því ekkert rafmagn væri í hús-
Ljósm. Mbl. Arnór.
inu og enginn tæknilegur mögu-
leiki á eldsupptökum. Trausti
kvaðst telja að um þriðjungur
timbursins í húsinu hefði orðið
eldinum að bráð, einnig hefðu
orðið skemmdir af vatni, en ekki
mjög miklar skemmdir á húsinu.
Samkvæmt upplýsingum
slökkviliðsins í Hafnarfirði er
mikið um íkveikjur og sinubruna
í Hafnarfirði og Garðabæ, og
hvetur slökkviliðið foreldra til
að hafa eftirlit með börnunum
og hvort þau hafi eldspýtur í
fórum sínum.
væri verðbólgan mest á Islandi,
þar sem verðlagshöft hafa verið
meiri en annars staðar.
í ræðu sinni sagði Páll Sigur-
jónsson, að nú væri komið að
vinnuveitendum að setja fram
kröfur um „félagsmálapakka",
ekki í formi ölmusu, heldur að-
gerða til þess að bæta rekstrar-
skilyrði atvinnuveganna. Mundu
slíkar kröfur verða settar fram í
tengslum við kjarasamninga í
haust. Páll Sigurjónsson sagði, að
„félagsmálapakkar" hefðu verið
snar þáttur í kjarasamningum
undanfarinna ára, oftast með
ærnum útgjöldum fyrir atvinnu-
vegina, en með viðræðum við
ríkisstjórnina hefði tekizt að
tryggja í síðustu kjarasamning-
um, að þeir hefðu ekki þýtt auknar
álögur fyrir atvinnuvegina.
I ræðu Páls Sigurjónssonar kom
fram, að á árabilinu 1971—1981
hefði einkaneyzla á mann aukizt
um 22% en samneyzla um 58% og
hefði liðinn áratugur því verið
gífurlegt þensluskeið í opinberum
umsvifum. Það hlýtur að vera
hlutverk samtaka atvinnuveganna
að knýja á um breytta stefnu í
þeim efnum, sagði formaður VSÍ.
Sjá ræðu Páls Sigur-
jónssonar i heild á bls.
16.
Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri:
„Grunum Belg-
ana um græsku“
SKIPSTJÓRI á trollbáti frá Sandgerði hélt því fram í samtali við
Morgunblaðið á sunnudag. að Belgar gæfu ekki upp nema hluta þess
afla, sem þeir veiddu hér við land og fengju jafnvel þrisvar sinnum
meira af þorski, en þeir haía gefið upp. „Við grunum þá um græsku,
því er ekki að neita,“ sagði Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri í samtali við
Mbl. í gær.
Hann sagði, að þetta mál hefði
komið upp í vetur og ráðuneytið
hefði fengið ábendingar um, að
Belgarnir færu ekki að settum
reglum. „Undanfarið hefur verið
unnið að rannsókn á þessu máli á
vegum ráðuneytisins. Meðal ann-
ars er unnið að því að fá upplýs-
ingar frá Englandi um afla Belg-
anna og aflasamsetningu, en þar
selja Belgarnir oft afla sem þeir fá
á Islandsmiðum", sagði Jón Arn-
alds. Aðspurður kvað hann starfs-
menn ráðuneytisins ekki hafa
ástæðu til að ætla, að Færeyingar
og Norðmenn léku sama leik.
Belgar hafa heimild til að veiða
5 þúsund lestir af bolfiski hér við
land í ár, þar af 750 lestir af
þorski. Færeyingar mega veiða 17
þúsund lestir af bolfiski hér við
land og þar af 6 þúsund lestir af
þorski. Norðmenn hafa leyfi til að
veiða 2 þúsund lestir og í fyrra
voru 382 lestir af þorski í afla
þeirra hér við land.