Morgunblaðið - 17.06.1981, Qupperneq 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
Þegar smáþyrlan Agnið fórst fyrir norðan Mýrdalsjökui fóru Víkverjar ásamt
björgunarsveitum úr Meðallandi, Álftaveri, Klaustri og Skaftártungum til leitar og fundu
flakið, en þessar sömu björgunarsveitir sótti flak þyrlunnar síðar og var þessi mynd
tekin í þeirri ferö. Búið er að setja sórstök snjóbelti undir jeppann.
Félagar í Víkverja lenda í hinum ólíklegustu verkefnum. Þessi mynd var tekin upp á
Mýrdalsjökli, þar sem þeir voru á ferð með jaröfrmðingum fyrir nokkrum árum við
mmlingar.
Árið 1966 strandaði brezki togarinn Weyer
Conqueror skammt frá Vík, en upp úr því
strandi má segja, að Víkverji hafi verið orðin
fullmótuð björgunarsveit, eins og þœr gerast í
dag.
/
Gífurlegur sandbylur
og menn þurftu
að taka vel á
t
Gamlí Bedfordinn er búinn aö gera þaö gott í
gegnum tíöina. Hér er hann í einni œfingaferð
Víkverja.
Okkur berast alltof oft slæmar
fréttir af skipsströndum víðs veg-
ar af landinu, en ástæða þess, að
það er rifjað upp hér, er sú
staðreynd, að síðari hluta vetrar
rak hvert skipsstrandið annað við
Suðurströndina. Það eru hins veg-
ar ekki bara slæmar fréttir, sem
berast af þessum skipsströndum.
Jákvæða hliðina á þessu er hinn
fasti fylgifiskur skipsstranda,
ijölmargir fórnfúsir björgunar-
sveitarmenn úr björgunarsveitum
SVFÍ víðs vega um landið, sem eru
ætíð mættir fyrstir manna á
staðinn. Það eru ófá mannslífin,
sem þessir menn hafa bjargað
með dugnaði og harðfylgi sínu í
gegnum tíðina, eða i þau liðlega
fimmtíu ár, sem félagið hefur
verið starfandi. Eitt skipsstrand-
anna í vetur var við ósa Jökulsár á
Sólheimasandi eða þegar hið
glæsilega veiðiskip Vestmanney-
inga, Sigurbáran strandaði. Þá
mættu félagar úr björgunarsveit-
inni Víkverjar úr Vík strax á
staðinn og björguðu sjö manna
áhöfn í land. Morgunblaðið ræddi
fyrir skömmu við þá Björn Frið-
riksson, formann sveitarinnar, og
Þóri Kjartansson, fyrrverandi
formann, þar eystra, og fyrsta
spurningin var, hvort björgun
mannanna úr Sigurbárunni hefði
verið erfið.
Mikill sandbylur
Þeir félagarnir voru sammála
um, að sú björgun hefði getað
verið mun erfiðari, hins vegar
hefðu menn þurft að taka vel á,
vegna veðursins. Það var gífur-
legur sandbylur þann tíma, sem
björgunin fór fram. — „Þetta
tókst hins vegar mjög giftusam-
lega og allir skipverjar voru
komnir í land á skömmum tírna,"
sögðu þeir félagar.
I björgunaraðgerðum þegar
skipsströnd verða, er það fyrst og
fremst linubyssan og björgunar-
stóllinn af búnaði, sem verður að
vera klárt. Menn verða að fá góða
þjálfun í notkun línubyssunnar, en
að sögn þeirra félaga er henni
ábótavant, hreinlega vegna fjár-
skorts. „Það kostar enga smápen-
inga að skjóta æfingaskotum. Það
hefur hreinlega háð mönnum, að
fá ekki nægilega þjálfun i meðferð
byssunnar," sagði Björn. Hann
sagði ennfremur aðspurður, að
yfirleitt væru það sömu mennirnir
í hverri sveit, sem sæju um að
skjóta úr linubyssum, þegar þess
þyrfti með. — „Það eru auðvitað
fleiri hlutir en byssan og stóllinn,
sem við förum með á strandstað,
þótt þeir hlutir séu mikilvægastir.
Oft er farið með báta, ef strandið
er lagt frá. Þá eru auðvitað
fjölmargir hlutir aðrir eins og
sjúkragögn, teppi, matur og margt
fleira, sem verður að vera með í
ferðinni," sögðu þeir félagar.
Ekki má gleyma
þjálfun mannanna
„Nú ekki má heldur gleyma
þjálfun mannanna, sem er mjög
mikilvæg. Það er alveg nauðsyn-
legt fyrir menn, að halda sér í
Rætt viö
Björn Friöriksson,
formann Víkverja,
björgunarsveitar
SVFÍ í Vík,
og Þóri
Kjartansson,
fyrrverandi
formann, um starf
sveitarinnar
stöðugri þjálfun, bæði líkamlegri
svo og tæknilegri."
Hvernig er þá þjálfun ykkar
háttað og hvernig komið þið ykkur
upp nauðsynlegum búnaði til að
geta staðið undir þeim kröfum,
sem gerðar eru til ykkar?
„Þjálfunin fer fram allt árið um
kring. Við hittumst hér í björgun-
arstöðinni einu sinni í viku yfir
vetrartímann. Þá er ýmist spjall-
að saman, haldnir fyrirlestrar, eða
farið í æfingar. Auk þess er svo
farið í æfingarferð um helgar, eða
þegar tækifæri gefst. Við skiptum
sveitinni niður í þrjá meginþætti.
Það er sjóflokk, sem flestir ef ekki
allir eru í, þá bíiaflokk, sem sér
um viðhald tækja og svo göngu- og
klifurflokk, sem ákveðinn kjarni
er í.“
Ragnar Þorsteinsson
— Reynir Ragnarsson
„Auk þessara hefðbundnu æf-
inga tökum við svo þátt í sameig-
inlegum æfingum björgunarsveita
SVFÍ, sem haldnar eru árlega. Þar
eru haldnar æfingar innan svæð-
anna, en sveitum félagsins er
skipt niður í 10 svæði, og auk þess
allsherjaræfing allra. Við hér í
Vík tilheyrum 10. svæði, og reynd-
ar er gamli formaðurinn okkar
Reynir Ragnarsson formaður
fyrir svæðið. Sveitir í 10. svæði
koma úr Vestur-Skaftafellssýslu,
Rangárvallasýslu og Vestmanna-
eyjum. Úr því við erum farnir að
minnast á Reyni Ragnarsson, er
ekki hægt að komast hjá því, að
minnast á þátt hans og föður hans
Ragnars Þorsteinssonar, í upp-
byggingu og starfsemi sveitarinn-
ar. Starfið byggðist í raun mikið í
kringum þá um árabil. Sveitin er
svo að nafninu til liðlega 40 ára
gömul, en það kemur fyrst alvöru
björgunarsveitarform á hana árið
1966, og hefur hún verið í stöðugri
þróun síðan."
Mjög sjaldgæft
að menn hætti
í björgunarsveitinni Víkverjar
eru í dag starfandi 27 félagar og
sögðu þeir félagar Björn og Þórir,
að mjög sjaldgæft væri, að menn
hættu. Það væri helzt ef menn
flyttu burt úr þorpinu. „Annars
má segja, að hér séu allir i öllu.
Menn eru í björgunarsveitinni,
Lionsklúbbnum, spilafélagi og
ýmsu sem nöfnum tjáir ekki að
nefna.
Hvað varðar búnaðinn, þá er
eins komið hjá okkur eins og
öðrum áhugamannafélögum. Við
verðum að vinna hörðum höndum
fyrir öllu.sem við eignumst, auk
þess sem Lionsklúbburinn og
kvenfélagið á staðnum hafa verið
okkur stoð og stytta. Árlega selj-
um við flugelda hér á staðnum og
hefur það gefið okkur þokkalegar
tekjur i gegnum árin þar til í
fyrra, að salan gekk mjög erfið-
lega vegna veðurs."
Nýr bíll
„Það fara gífurlegir fjármunir
bara í það eitt að halda í horfinu,
hvað þá að auka við birgðirnar. I
dag eigum við gamlan Bedford-bíl,
sem er orðinn frekar þreyttur og
því þótti okkur nauðsynlegt að
reyna að verða okkur úti um nýjan
bíl, sem jafnframt væri eitthvað
liprari í snúningum. Sá draumur
er um það bil að rætast því verið
er að ljúka við að byggja yfir
nýjan Chevrolet Pick-up bíl. Til að
gera okkur kleift að eignast hann