Morgunblaðið - 17.06.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
53
Þegar Marzinn frá Vestmannaeyjum starfaöi lentu félagar úr Víkverja í
því aö sigla meö líflínu í átt aö landi og síðan synda síðasta spölinn í
brimgaröinum. Ef myndin prentast vel má sjá tvo fólaganna í
flæöarmálinu.
Félagarnir, Þórir Kjartansson,
fyrrverandi formaöur, og Björn
Friöriksson, formaöur, í birgöa-
stöö Víkverja. Á gólfinu má sjá
kistu meó fjallabúnaði sveitarinn-
ar, sem kvenfélagiö í V(k hefur
gefiö sveitinni.
Ljósmynd Mbl. Sighvitur Blöndahl.
hefur hreppurinn og sýslan hlaup-
ið undir bagga, auk þess sem við
fengum fjármuni úr gamla spari-
sjóðnum, sem hér var starfandi.
Til að minnka kostnaðinn vinna
menn svo töluvert í sjálfboða-
vinnu við ýmis verk í bílnum, en
að öðru leyti fer frágangur á
honum fram á verkstæði hér í
þorpinu."
Nú, það er fleira en bílar, sem
Víkverji á. I húsnæði sveitarinnar,
sem er hið veglegasta, getur að
líta báta, vélsleða, fjallabúnað og
ýmis konar sjúkrahjálparbúnað
svo eitthvað sé nefnt. Þá eiga
nokkrir félagar í sveitinni mjög
vönduð köfunartæki. Aðspurðir
sögðu þeir félagar, Björn og Þórir,
að í samandi við búnað, þá færi
iangmest vinnan í að halda vél-
sleðunum úti. Það þyrfti í raun-
inni að liggja í þeim eftir hverja
einustu ferð. Aðrir hlutir eins og
bátar og ýmislegt þeim tengt væri
mun auðveldara í meðförum.
Veglegt húsnæði
Húsnæði sveitarinnar er eins og
áður sagði hið veglegasta, en smíði
þess var lokið árið 1970. í stjórn-
stöð er góð fjarskiptamiðstöð, sem
komð hefur verið upp síðustu árin
og þar er ágætisaðstaða til að
stjórna aðgerðum og til minni
fundarhalda sveitarfélaga. Þá er í
húsnæði sveitarinnar góð aðstaða
fyrir félaga að gera sig klára í
átökin, þ.e. hver maður hefur sinn
skáp undir persónulegan búnað.
Menn geta bara mætt á staðinn og
hoppað siðan af stað.
Jafnt á landi og sjó
Ég spurði þá félaga Björn og
Þóri hvort þeirra aðalstarf væri í
kringum sjóslys, sem Slysavarn-
arfélagsmenn eru almennt þekkt-
astir fyrir, og ennfremur hvort
útköll væru tíðari á einum tíma en
öðrum. „Það er nú kannski svolitið
skrítið, að þrátt fyrir nálægðina
við hafið eyðum við ekki minni
tíma upp á landi, eða í fjöllum.
Ahugi fyrir ferðum á óbyggðir og
fjöll hefur aukizt mjög mikið hin
siðari ár, þannig að í dag starfa
yfir tíu félagar í fjalla- og klifur-
flokki, sem eru jafnmargir og eru í
hinum harða sjókjarna. Það verð-
ur hins vegar að segjast, að þeir
sem starfa í fjalla og klifurflokki
eru ennfremur vel að sér í sam-
bandi við sjóbjörgun, en sjó-
flokksmenn hins vegar ekki eins
vel inni á hinu sviðinu. Varðandi
útköll, þá koma þau á öllum
tímum ársins og við lendum í
hinum ólíklegustu verkefnum.
Fyrir utan sjóströndin lendum við
í leitum á landi, aðstoð vegna
ófærðar, sjúkraflutningum og við
höfum verið beðnir um aðstoð
kafara svo eitthvað sé nefnt."
Atvinnurekendur liprir
„Varðandi leitir og útköll er
vert að geta þess sérstaklega, að
atvinnurekendur hér í þorpinu
hafa verið með eindæmum liðugir
við menn. Það hefur aldrei verið
neitt mál að fá frí til að hlaupa frá
hálfunnu verki."
Vestmannaeyjagosið
stærsta verkefnið
Hver er stærsta verkefni, sem
þið hafið tekið þátt í? „Það fer
ekkert á milli mála, að þátttaka
okkar í björgunarstarfinu í Vest-
mannaeyjum 1973, er langstærsta
einstaka verkefni sem sveitin hef-
ur tekið þátt í. Það fóru nánast
allir félagar sveitarinnar til Eyja
og voru þar í um vikutíma. Auk
þess að vera langstærsta verkefni
okkar, þá öðluðust menn alveg
gífurlega mikla reynslu þar. Vest-
mannaeyjagosið er eflaust bezti
skóli, sem björgunarsveitarmenn
hafa fengið hér á landi. Það reyndi
á þolrifin í mönnum á svo mörgum
sviðum.
Að Vestmannaeyjagosinu frá-
gengnu, þá höfum við tekið þátt í
björgunaraðgerðum í sambandi
við fjölmörg skipsströnd, sem
hafa sum hver tekið töluvert á
mannskapinn. Þá höfum við tekið
þátt í nokkrum leitum á landi við
erfiðar aðstæður. Árið 1975 komu
nokkrir félagar úr Víkverja fyrst-
ir að tveimur flugmönnum, sem
bortlent höfðu og farizt á tindi
Eyjafjallajökuls, þeir aðstoðuðu
síðan þyrlu við að ná líkunum upp.
Þá vorum við þátttakendur í
leitinni að smáþyrlunni, Agninn,
sem fórst fyrir norðan Mýrdals-
jökul. Við vorum í samfloti með
sveitunum í Meðallandi, Álftaveri,
Klaustri og Skaftártungum og
komum fyrstir á staðinn. Daginn
eftir fóru svo þessir sömu menn og
sóttu flak þyrlunnar. Nú síðan eru
það auðvitað fjölmargar smærri
aðgerðir, sem við höfum tekið þátt
í, sem ekki tjáir nöfnum að nefna."
Með þessum orðum þeirra fé-
laga kvöddum við og óskuðum
þeim góðs gengis í framtíðinni, en
eflaust verður óskað eftir þeirra
aðstoð við hin ólíklegustu og
erfiðustu verkefni í náinni fram-
tíð. Sighvatur Blöndahl
Simamenn:
Mótmæla harðlega riftun stjórn-
valda á gerðum kjarasamningum
AÐALFUNDUR Félags islenskra
símamanna var haldinn 14. mai
sl. Formaður félagsins, Ágúst
Geirsson, flutti skýrslu fram-
kvæmdastjórnar fyrir starfsárið.
Veigamestu þættir í félagsstarf-
inu voru launa- og kjaramál en
gengið var frá sérkjarasamningi
félagsins í kjölfar aðalkjarasamn-
ings BSRB og Fjármálaráðherra.
Þá fór talsvert fyrir sumarbúða-
málum og einnig erlendu sam-
starfi en félagið er aðili bæði að
norrænu og alþjóðlegu sambandi
símamanna. Mikil umræða fór
fram innan félagsins um frjálsan
innflutning á símabúnaði en félag-
ið er eindregið á móti slíkum
hugmyndum.
Þá lagði félagið mikla áherslu á
menntunar- og skólamál síma-
manna og var m.a. unnið að því að
komið verði á fót sérstakri náms-
braut við Póst- og símaskólann
fyrir símaafgreiðslu- og skrif-
stofumenn.
Gjaldkeri FÍS Bjarni Ólafsson
skýrði reikninga félagsins og er
fjárhagur þess góður. Aðalfundir
eru haldnir árlega, en stjórnar-
kjör fer fram annað hvert ár og
verður ný stjórn kjörin næst árið
1982.
Á aðalfundinum voru sam-
þykktar eftirfarandi ályktanir:
Aðalfundur Félags íslenskra
símamanna varar við hvers konar
hugmyndum um að flytja yfir á
almennan markað sölu símtækja
og þjónustu við þau. Fundurinn
telur að framkvæmd slíkra hug-
mynda í höndum fjölmargra
einkaaðila leiði til verri og dýrari
þjónustu en nú er. Þess í stað er
skorað á stjórnvöld að gera Pósti
og síma kleift að bæta þjónustu
sína með auknu framboði á alls
kyns símabúnaði.
Ennfremur mótmælir fundur-
inn harðlega riftun stjórnvalda á
gerðum kjarasamningum og stór-
skertum kjörum símamanna að
undanförnu. Varar fundurinn
jafnframt við grófri mismunun á
röðun starfsmanna í launaflokka
og telur aðkallandi að kerfisbund-
ið starfsmat verði lagt til grund-
vallar röðun í launaflokka til þess
að draga úr því misrétti, sem nú
gildir í þessum efnum. Þá varar
fundurinn við áberandi launamun
eftir því hvort starfsmenn eru
félagar í BSRB eða BHM og krefst
í því sambandi sömu launa fyrir
sömu störf.
Fundurinn skorar á Póst- og
símamálastjóra að koma á fót,
þegar á næsta hausti, námsbraut
fyrir símaafgreiðslu- og skrif-
stofumenn stofnunarinnar á
grundvelli tillagna skólanefndar
Pósts- og símaskólans. Jafnframt
skorar fundurinn á skólanefnd
Pósts- og símaskólans að taka til
endurskoðunar tæknimenntun í
skólanum í samræmi við auknar
kröfur, sem gerðar eru til tækni-
manna stofnunarinnar vegna örr-
ar tækniþróunar.
Gerir
þú kröfur?
E>á velur þú
MEST SELDA LITSJÓNVARPSTÆKIÐ Á MARKAÐNUM
BORGARTÚN118
REYKJAVÍK SÍMI 27099
SJÓNVARPSBÚMN
CM CM Verö: 9.350.- Staögr.: 8.880.-
Útborgurv. 2.500.-