Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1981
Samband borgfirskra
kvenna 50 ára
50. aðalfundur Sambands borg-
firskra kvenna var haldinn að
Bifröst í Borgarfirði dagana 2. og
3. maí sl. Sambandssvæðið nær
yfir Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
og Akranes. Aðalfundirnir eru
haldnir til skiptis á ýmsum
stöðum í héraðinu.
Þegar SBK varð 40 ára gaf það
út myndarlegt afmælisrit, og gef-
ur þar að líta hve margþætt starf
er unnið innan þess og hve miklu
það hefur komið til leiðar er til
heilla hefur verið fyrir héraðið.
SBK átti t.d. frumkvæði að stofn-
un Hússtjórnarskólans að Varma-
landi, og það átti einnig mikinn
þátt í undirbúningi að byggingu
Dvalarheimilis aldraðra í Borg-
arnesi.
Sambandið hefur ávallt reynt
að hlú að hvers konar framfara-
málum sem á dagskrá hafa verið
hverju sinni, stutt við og styrkt
félögin í starfi og verið þeim hinn
öruggi skjöldur útávið.
SBK var stofnað 30. júní 1931 í
Borgarnesi og fyrsta stjórn þess
var þannig skipuð: Form. Svava
Þórleifsdóttir Akranesi, ritari
Ragnhildur Ólafsdóttir Borgar-
nesi, gjaldk. Sigurbjörg Björns-
dóttir Deildartungu. Þessar konur
voru allar kjörnar heiðursfélagar
á 25. ára afmæli sambandsins, eru
tvær þeirra látnar en Sigurbjörg
er enn á lífi.
Það hefur verið SBK mikil gifta
hversu fjölhæfar og víðsýnar kon-
ur hafa ætíð valist þar til forystu.
Núverandi stjórn þess skipa:
Form. Magdalena Ingimundar-
dóttir Akranesi, varaform. Hildur
Þorsteinsdóttir Borgarnesi, ritari
Guðrún Bergþórsdóttir Varma-
landi, gjaldk. Gréta Gunnarsdótt-
ir Akranesi, meðstjórnandi Dúfa
Stefánsdóttir Ferstiklu.
Fyrst vóru aðeins 4 félög sem
mynduðu sambandið en nú eru 17
félög innan þess með 956 félaga og
er það aðili að Kvenfélagasam-
bandi íslands.
Afmælisfundinn sátu um 60
fulltrúar og nokkrir gestir, þar á
meðal formaður KÍ, María Péturs-
dóttir. Flutti hún mjög fróðlegt og
athyglisvert erindi um starfsemi
KÍ á síðastliðnu starfsári.
í tilefni af alþjóðaári fatlaðra
vinnur SBK að fjáröflun til
styrktar sundlaugarsjóði við
Sjúkrahús Akraness.
Norrænt húsmæðraorlof á veg-
um KÍ verður haldið að Hvanneyri
dagana 1.—7. júlí nk. og mun SBK
sjá um móttökur í héraði og efna
til dagskrár fyrir orlofskonur
laugardagskvöldið 4. júlí. Enn-
fremur mun það sjá um sölubúð,
sem þar verður rekin orlofsvikuna
með íslenskan heimilisiðnað.
Innan SBK starfa margar
fastar nefndir og auk þeirra á það
fulltrúa í ýmsum nefndum í hér-
aðinu, t.d. í stjórn Hússtjórnar-
skólans að Varmalandi, Dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi,
Umhverfisnefnd Borgarfjarðar,
Menningarnefnd Borgarfjarðar,
Minningarsjóði Guðmundar Böðv-
arssonar og Byggðasafni Borgar-
fjarðar.
Miklar og fjörugar umræður
voru á aðalfundinum um hin
margþættu málefni sem þar komu
fram og fyrir lágu.
Samþykkt voru eftirfarandi til-
lögur:
1. „Að fagna því að jafnréttismál
eru tekin til umræðu á Alþingi
og vonar að hún verði til þess
að raunverulegu jafnrétti verði
komið á fyrr en ella. Fundurinn
lýsir stuðningi við frumvarp
Jóhönnu Sigurðardóttur um
tímabundin forréttindi kvenna
til að leiðrétta þá skekkju, sem
átt hefur sér stað í sambandi
Stjórn SBK. Sitjandi frá vinstri: Kristjana Höskuldsdóttir varaform.
Magdalena Ingimundardóttir form. og Hildur borsteinsdóttir gjaldk.
Aftari röð: Guðrún Bergþórsdóttir ritari og Gréta Gunnarsdóttir meðstj.
við stöðuveitingar, og telur það
vera skref í rétta átt, og
nauðsynlegt til að vekja fólk til
umhugsunar og afskipta um
þessi mál. Um leið varar fund-
urinn við breytingartillögu
Guðrúnar Helgadóttur um enn
meiri forréttindi karla um
skeið en þeir nú búa við.“
2. „Að koma á jafnréttisfélagi á
sambandssvæðinu sem hafi það
hlutverk að gera úttekt á stöðu
kvenna í héraðinu, og skapa
umræðu um jafnréttismál og
sinna hverjum öðrum verkefn-
um um jafnréttismál er fram
kunna að koma. Aðalfundurinn
kjósi 3ja kvenna nefnd sem
annist undirbúning að félags-
stofnun."
3. „Að beina þeim tilmælum til
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytis og jafnréttisráðs, að
endurskoða lög um sjúkradag-
peninga til heimavinnandi hús-
mæðra og einnig um örorku-
bætur þeirra, og að þessar
konur njóti til fulls jafnréttis í
þessum málum á við aðra þegna
þjóðfélagsins en að þær séu
ekki taldar hluti af maka sínum
og fái bætur eftir tekjum hans.“
4. „Að beina því til menntamála-
ráðuneytisins, að séð verði til
þess að Hússtjórnarskólinn að
Á myndinni frá vinstri eru Njörður P. Njarðvik formaður rithöfundasambands íslands, Jeremy Franks
aðalritstjóri og útgefandi Northern Lights Review, Sigurður A. Magnússon isienskur ritstjóri timaritsins
og Rannveig G. Ágústsdóttir framkvæmdastjóri Rithöfundasambands íslands. Ljósm. Mbi.: Emiiia.
Nýtt tímarit á ensku um
norrænar bókmenntir
NÚ ER verið að hefja undir-
húning að útgáfu á nýju tíma-
riti á ensku sem fjalla á um
norrænar hókmenntir. Tíma-
ritið mun heita Northern
Lights Review og er ráðgert að
fyrsta eintakið komi út næsta
vor. Á hlaðamannafundi, sem
haldinn var til þess að kynna
hið nýja tímarit, kom fram að
Northern Lights hefði fyrst
komið út fyrir tveimur árum,
en þá cingöngu fjallað um
sænskar bókmenntir. Menn
hefðu þá velt þvi fyrir sér
hvort ekki væri rétt að hin
Norðurlöndin kæmu inn i
myndina og var þá ákveðið að
breyta Northern Lights þannið
að það fjallaði um bókmenntir
allra Norðurlandanna á þoirn 8
tungumálum sem þar eru töi-
uð.
Jeremy Franks, sem búsettur
hefur verið í Svíþjóð um fimm-
tán ára skeið, verður aðalrit-
stjóri og útgefandi Northern
Lights, en auk hans verður
starfandi sérstakur ritstjóri í
hverju Norðurlandanna og mun
Sigurður A. Magnússon gegna
því starfi af íslands hálfu.
Á blaðamannafundi sagði
Jeremy Franks meðal annars að
hann hefði rætt hugmyndina að
baki Northern Lights við ýmsa
aðila, þar á meðal Nordisk
Kulturfond í Kaupmannahöfn.
Undirtektir hefðu hvarvetna
verið mjög góðar, en ráðgert er
að tímaritið komi út ársfjórð-
ungslega eða jafnvel fimm sinn-
um á ári ef vel gengur. Fjallað
verður jafnt um bundið mál sem
óbundið, kynntar verða bækur
sem ekki hafa verið þýddar og
auk þess verða viðtöl við höf-
unda og útgefendur.
Að sögn Njarðar P. Njarðvík
formanns Rithöfundasambands
Islands er ráðgert að lesendur
tímaritsins verði áhugafólk um
bókmenntir allsstaðar í heimin-
um og ætti tímaritið þannig að
geta orðið mikilvægur kynn-
ingarmiðill fyrir norrænar bók-
menntir. Fagnaði Rithöfunda-
sambandið mjög hinu nýja
tímariti því að með tilkomu
Northern Lights væri komið
kærkomið tækifæri til þess að
kynna íslenskar bókmenntir
erlendum þjóðum, en fram til
þessa hefur slík kynning ekki
verið fyrir hendi á reglubund-
inn hátt.
Vélsmiðja 01. Olsen:
Aðstaða starf sf ólks
bætt og endurnýjuð
HJÁ VÉLSMIÐJU 01. Olsen í
Ytri-Njarðvík hefur nýlega verið
lokið við að innrétta nýtt mötu-
neyti fyrir starfsfólk fyrirtækis-
ins.
Þá hefur snyrtiaðstaða verið
endurnýjuð, sett upp steypibað og
23 skápar til afnota fyrir starfs-
menn. Hefur mikið verið lagt í að
gera alla aðstöðu starfsfólks sem
bezt úr garði að sögn Karls Olsen
forstjóra fyrirtækisins. Athafna-
svæðið fyrir framan vélsmiðju-
húsið var sléttað í vor og er nú
unnið þar að smíði yfirbyggingar
á skip fyrir Þorbjörn hf. i Grinda-
vík og einnig að smíði stýrishúss.
Hið nýja mötuneyti I Vélsmiðju Olsens.
Vélsleðaferðir
um Langjökul
FYRIRT/EKIÐ Snjóferðir hf.
hefur nýlega hafið ferðir um
Langjökul með vélsleðum.
Fastar ferðir eru alla laugar-
daga og sunnudaga frá Húsafelli.
Farið með fjallabíl að jöklinum og
þar stigið á sleðana.
Síðan er ferðast vítt og breitt
um jökulinn annan daginn, sumir
aka sleðunum en aðrir geta látið
draga sig á skiðum, en skíðalyfta
er einnig starfrækt á jöklinum. Á
jöklinum er ýmislegt að skoða eins
og til dæmis Þursaborg og Kirkj-
an, fyrir utan það geysilega víð-
sýni sem er af jöklinum í allar
áttir.
Að kvöldi er svo ekið að Húsa-
felli þar sem gisting er fáanleg.
Einstaklingar og fyrirtæki geta
leigt sleðana hvaða daga vikunnar
sem er ef leigðir eru minnst 5
sleðar. Vanur maður frá Snjóferð-
um er með í öllum ferðum, segir í
frétt frá Ferðaskrifstofu ríkisins.