Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981
71
Hér eru íslendinxarnir með meistaranum Alexandre de Paris. Frá
hægri: Guðjón Sævar, SÍKriður Finnbjornsdóttir. Alexandre, Elsa
Haraldsdóttir, Bára Kemp og Marteinn R. Guðnason.
fclk í
fréttum
Með Alexandre de Paris
+ Intercoiffure heitir virtur al-
þjóðlegur klúbbur hárgreiðslu-
meistara og er einn af kóngun-
um í faginu, Alexandre í París,
forseti samtakanna. Hann var
einmitt viðstaddur og með hár-
greiðslusýningu á Norðurlanda-
fundi samtakanna í Kaup-
mannahöfn nýlega. Annar at-
burður, sem veður var af gert á
fundinum, var að íslendingar
voru í fyrsta sinn teknir í
Intercoiffure klúbbinn. Og voru
íslenzku hárgreiðslumeistararn-
ir í hópnum í hávegum hafðir af
því tilefni. Að vísu er ekki gengið
í samtökin skyndilega og á
einum degi. Innganga íslend-
inganna hefur verið í undirbún-
ingi síðan 1978 og þeir verða
deild í norsku samtökunum
fyrstu 4 árin, áður en þeir verða
fullgildir aðilar. Fær fólk inn-
göngu samkvæmt boði til ein-
staklings. En klúbburinn hefur
að markmiði að efla vináttu í
þessari stétt milli einstaklinga,
sem vilja fylgjast með og vinna
stöðugt að þróun á hártískunni.
Og ekki ætlast til þess að
meðlimir komi til að sækja
tízkulínuna, heldur til að bera
saman stíl sinn og leggja eigin
hugmyndir fram.
+ Þessi unga Akureyrarmær heitir Inga Bryndís Jónsdóttir og vann
af kappi sl. þriðjudag við málun gatna í miðbæ Akureyrar. í stuttu
spjalli við blm. Mbl. sagði hún að henni líkaði bæjarvinnan ágætlega
og væri þetta annað sumarið hennar í þessu starfi. Málunin tekur
aðeins nokkra daga, síðan tekur við steypuvinna og ýmislegt sem til
fellur.
„Er það ekki það sem við viljum — jafnrétti á báða vegu?“ sagði
hún, er blaðamaður ympraði á því, hvort starfið væri ekki erfitt og
eitt af þeim sem talist hafa til hefðbundinna karlastarfa.
Næsta vetur fer Inga Bryndís í iðnskólann á Akureyri. Ekki þó í
járnsmíði né til að læra múrverk eða húsasmíði. Hún sagði reikna
með að velja uppeldisbraut.
Hið besta sambýli
+ Einar borleifsson hcitir þessi
ungi piltur. Þeir sem hafa á
þessum góðu vordögum verið á
ferðinni upp úr kl. 5 á morgn-
ana kring um tjörnina. hafa
kannski séð hann á ferli. Þá
segir hann að best sé að telja
mófuglana i Vatnsmýrinni, þar
sem nú eru m.a. um 20 stelka-
pör. mikið af þúfutittlingi u.fl.
Auk þess sem endurnar verpa
flestar i Vatnsmýrinni og koma
þaðan með ungana sina á Tjörn-
ina. Þrátt fyrir nokkra truflun
af mannaferðum, hefur varpið
gengið skaplega.
Einar var í vor ráðinn af
garðyrkjustjóra til að fylgjast
með fuglalífinu á Tjörninni, eins
og venjan hefur verið undanfar-
in ár. Hann er menntaskólanemi
og á ekki langt að sækja áhuga
sinn og þekkingu á náttúrufræði,
því hann er sonur Þorleifs Ein-
arssonar jarðfræðings og Stein-
unnar Ólafsdóttur, annálaðrar
ræktunarkonu, og eru býsna
margar tegundir blóma og jurta
í garðinum þeirra við Langholts-
veg.
I vor hefur Einar verið vakinn
og sofinn við að hlynna að
fuglalífinu á Tjörninni. Álftirn-
ar, sem ekki hafa fengist til að
liggja þar á undanfarin ár, eru
nú komnar með 5 egg í hreiður í
stóra Tjarnarhólmanum, Einar
flutti til dyngju þeirra, svo að
þær væru ekki í miðjum hólman-
um, því þá ganga þessir stóru
fuglar á hreiðrum kríunnar og
traðka niður eggin hennar á leið
sinni á vatnið. Stundum hefur
verið reynt að gera þeim hreiður
í litla hólmanum, en það gengið
misjafnlega. Þær fara þá bara á
lón og tjarnir í nágrenni borgar-
innar og koma með ungana
fleyga á tjörnina. En nú sitja
þær hinar ánægðustu utarlega á
Hólmanum stóra. Að öðru leyti
er hann þéttsetinn hreiðrum
kríunnar. Einar taldi þar fyrir
meira en viku 26 hreiður, sem nú
hefur eflaust fjölgað um helm-
ing. í fyrra koma krían ekki upp
nema 14 ungum, en hettumáfur-
inn 55, þótt krían legði undir sig
132 hreiðurstæði en hettumáfur-
inn aðeins 17. Hefur hettumáf-
urinn trúlega séð fyrir því. Nú
hefur Einar reynt með góðum
árangri að fá hann til að flytja,
með því að steypa jafnharðan
undan honum í stóra tjarnar-
hólmanum og hann þá farið með
sitt bú á Vatnsmýrartjörnina.
Með skipulagðri byggð og ötulli
stýringu má sem sagt halda
sambýlinu í sæmilegum friði á
Tjörninni.
Helgi Þorláksson
í Vogaskóla
Ástráður Sigursteindórsson
i Réttarholtsskóla
Arnfinnur Jónsson
i Fellaskóla
Árni Magnússon
i Illíðaskóla
Skólastjórar kveðja og heilsa
+ Grunnskólarnir i Reykjavik
eru orðnir æði margir, 22 tals-
ins eða 24 ef taldir eru með
ísaksskóli og Landakot, auk
þess sem Kvennaskólinn er i ár
að Ijúka sinu grunnskólahlut-
verki. Sumir skólastjóranna í
þessum skólum eru að ljúka
löngu og miklu hlutverki, aðrir
að hefja starfið sem skólastjór-
ar. t ár er kannski óvenju mikil
hreyfing á skólastjórastöðum.
Tveir af elstu skólastjórunum,
sem eiga að baki langt og mikið
starf í skólum — við erfiðar
aðstæður meðan skólar þeirra
voru að springa utan af nem-
endafjöldanum — hafa nú sagt
upp störfum. Það eru þeir Ást-
ráður Sigursteindórsson í Rétt-
arholtsskóla og Helgi Þorláks-
son í Vogaskóla. Ástráður kom
að Réttarholtsskóla 1963, en var
áður skólastjóri gagnfræðaskól-
ans í Vonarstræti. En Helgi varð
skólastjóri Vogaskóla 1960, þeg-
ar hann var stofnaður sem
sérstakur skóli. Báðir kunnir og
gegnir skólamenn.
Tveir nýir ungir skólamenn
eru að hefja sinn skólastjóraferil
við grunnskóla í Reykjavík, þótt
báðir hafi gegnt því starfi í
fjarveru skólastjóranna í fyrra.
Árni Magnússon hefur verið
settur skólastjóri Hlíðaskóla,
þar sem hann var yfirkennari og
stjórnaði skólanum í vetur eftir
að Ásgeir Guðmundsson tók við
hinni nýju Námsgagnamiðstöð
ríkisins. Hinn nýi skólastjórinn
er Arnfinnur Jónsson, sem sett-
ur er skólastjóri í Fellaskóla, þar
sem hann gegndi því starfi í
fyrra í fjarveru Finnboga Jó-
hannssonar, sem hefur nú sagt
skólastjórastarfinu lausu. Arn-
finnur var yfirkennari og hafði
áður í eitt ár gegnt skólastjóra-
starfi í Hólabrekkuskóla í fjar-
veru Sigurjóns Fjeldsted. Hann
er mörgum kunnur sem skáta-
foringi.
3 konur skólastjórar
Loks má geta þess að Kristín
Andrésdóttir, sem sett var
skólastjóri í Vesturbæjarskóla í
fyrra, er nú skipuð í það emb-
ætti, en þangað kom hún úr
Fossvogsskóla. í Reykjavík
verða þá 3 konur skólastjórar við
grunnskóla næsta skólaár. Auk
Kristínar þær Hrefna Sigvalda-
dóttir í Breiðagerðisskóla og
Áslaug Friðriksdóttir í Öldu-
selsskóla.
Hreppsstjórinn
er kona
+ Suðurlandið segir þá frétt
úr sinum landshluta að sýslu-
maður Rangárvallasýslu hafi
sett Guðrúnu Elíasdóttur, Há-
bæ. hreppstjóra Djúpár-
hrepps. Þar segir:
Guðrún hefur starfað mikið
að kvenfélagsmálum innan
SSK, var í stjórn Kvenfélagsins
„Sigurvon" um nærri þrjátíu
ára skeið og í orlofsnefnd fyrir
Rangárvallasýslu frá upphafi.
Jafnréttismál hafa verið
mikið í sviðsljósinu að undan-
förnu og ekki að ástæðulausu.
Gætu Rangæingar verið öðr-
um landsmönnum til fyrir-
myndar í þeim efnum, því víst
er að ekkert annað sveitarfélag
en Djúpárhreppur á konur í
stöðu hreppstjóra og sóknar-
prests.