Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 28

Morgunblaðið - 17.06.1981, Side 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ1981 Ást er... ... að leyfa henni aö tala út. TM Reg U.S. Pal. Oft.—all rijtits reserved • 1981 Lœ Angetw Tlmes Simdlcate Við erum komnir inn á yíir- Er ekki gert við trommur hér? ráðasvæði dverganna! HOGNI HREKKVISI y *-'* © 1W1 McNMffat Syad.. !■< „ AÐDAFNDA&AIEF FRÁ BRJÁL000 B'iM Farvel Reykjavík GP skrifar: Við hjónin erum ungt fólk, og ætluðum að koma okkur vel fyrir í Reykjavík og leggja samfélaginu fremur eitthvað til en hitt. En okkur urðu á þau stóru mistök að kaupa okkur íbúð í sambýlishúsi, þegar við giftum okkur. Og nú þegar við erum sæmilega búin að koma okkur upp heimili þar, þá hugðumst við fara í raðhús með garði, þar sem við gætum unað okkur í framtíð- inni meðan við erum að ala upp væntanleg börn okkar. Þegar við svo förum að sækja um lóð, þá rekumst við á þetta nýja punktakerfi þeirra hjá borginni. í punkt- ana höfum við ekkert annað en búsetu í Reykjavík, þar sem við höfum alist upp, og á sama stað vinnu sem við borgum refjalaust af skatta. En þetta dugar nú skammt — er lítils metið. Ef við hefðum ekki reynt að kaupa okkur íbúð og borga fyrir hana, heldur verið í leiguhúsnæði — ég tala nú ekki um það ef við hefðum flutt í lélegt eða og helst heilsuspillandi — meðan við sækjum um lóð, þá hefðum við fengið nóga punkta til að koma til greina. En hvernig á maður að byrja á því að byggja einbýlishús eða raðhús, ef maður á ekki ódýrari íbúð upp í það? Það þætti mér gaman að vita. Auk þess segir í reglunum þeirra, að tekið sé með í reikninginn hvort líklegt sé að maður hafi efni á að koma upp húsinu. Hvernig hefur fólk sem enn býr í lélegu leiguhúsnæði efni á að byggja einbýlishús? Þegar við fórum að skoða þetta, sýnist okkur við ekki vera sú tegund af fólki, sem borgaryfirvöldum þykir æskilegt að hafa í borg- inni sinni, og munum sækja um lóð í nágrannabæjunum, þótt auðvitað sé dýrara og óhagkvæmara fyrir okkur og þjóðfélagið að verða að aka langar leiðir í vinnu til borg- arinnar. Eftir að hafa talað við fjölmarga borgara eftir að úthlutun fór fram, þá hefur Eitthvað bogið við stimplun mjólkur K.S. skrifar: Alveg var ég hneyksluð, þegar ég opnaði Morgunblaðið mitt í morgun, 16. júní, og las grein um unglingana, sem fengu fullorðna til að kaupa fyrir sig áfengi. Þar hefur blaðamaðurinn rugiast al- gerlega á sögnunum að kaupa og verzla. Þar segir í myndatextum: „Það virðist ekki vera miklum erfiðleikum bundið fyrir ungl- ingana að verzla áfengi i „ríkinu". U „Þegar búið var að verzia fimm flöskur af áfengi var farið með birgðirnar útá tún fyrir framan eina af áfengisverzlununum og þeim hellt niður. Þetta er í báðum myndatextun- um, svo varla er það prentvilla. Þá er annað mál, sem ég vil ræða, fyrst ég er komin í samband við Velvakanda. Ég fór í gær, 15. júní, út í búð og keypti undan- rennu, eins og ég er vön að gera. Hún var stimpluð 16. júní. En svo undarlega bregður við að umbúð- irnar utan um undanrennuna, sem ég keypti á fimmtudaginn í síð- ustu viku, þ.e. 11. júní, voru líka stimplaðar 16. júní. Er ekkert eftirlit með því hvenær og hvernig Mjólkursamsalan stimplar vör- urnar? Það er eitthvað bogið við þeirra aðferð, úr því það kemur fyrir að mjólkin súrnar strax í ísskápnum. Kaffisala í Valhöll Jón Ilelgason i Hafnarfirði hefur gert visu um kaffisöluna i Valhöll: Þegar næst á Þingvöll förum, þá skal stefnt til Valhallar. Til að fá með kostakjörum, keyptan molasopa þar. Þórunn Kristinsdóttir hringdi og bað fyrir mikið og gott þakk- læti til Þóru Jóhannsdóttur á Sauðárkróki, sem rifjaðiupp fyrir henni Ijóðið um Hrefnu á Heiði eftir Jakob Thorarensen. Fleiri hafa hringt og kunnað þetta ljóð. Ilúsmóðir hringdi og ræddi við Velvakanda um húsmæðra- orlofið. Konum er boðið í orlof, sagði hún. Sumar fara, aðrar aldrei. Þetta virðast vera sömu konurnar, sem fara í orlofsferð- irnar ár eftir ár. Aðrar fara aldrei neitt. Mér finnst, að allar húsmæður eigi að fá orlof. Bæði að dreifa eigi orlofsferðunum meira á þær, sem vilja fara í skipulagðar ferðir, eins og þær eru nú. Og ekki síður að leyfa húsmæðrunum að ráða meiru um það, hvert þær fara og í hvers konar ferðir. Ég veit um margar konur, sem eru þreyttar og þurfa orlof, en sem ekki langar til þess

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.