Morgunblaðið - 12.07.1981, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLI1981
53
Sjötugur:
Ingólfur Finnbogason
fv. forseti Landssamb.
iðnaðarmanna
Einn af forustumönnum iðnað-
armanna er sjötugur í dag.
Ingólfur er fæddur að Búðum í
Staðarsveit, 12. júlí 1911. Foreldr-
ar hans voru Björg Bjarnadóttir
frá Garðhúsum í Reykjavík og
Finnbogi Guðmundur Lárusson,
kaupmaður og útvegsbóndi að
Búðum á Snæfellsnesi, Garði og
Ólafsvík.
Úr foreldrahúsum kom Ingólfur
gæddur þeim bestu eiginleikum er
foreldrar hans höfðu til að bera,
athafnaþrá og dugnaði föður síns,
hógværð og hjartahlýju móður
sinnar auk heiðarleika og stað-
festu þeirra beggja. Hann var
alinn upp við að standa með þeim
er minna máttu sín og greiða götu
þeirra í hvívetna.
Eftir barnaskólalærdóm fluttist
Ingólfur til Reykjavíkur 1928 og
nam húsasmíði hjá Guðjóni H.
Sæmundssyni. Hann lauk burtfar-
arprófi í húsasmíði frá Iðnskólan-
um í Reykjavík 1932 og fékk
meistarabréf nokkru síðar. Árið
1940 hóf hann sjálfstæðan at-
vinnurekstur og gat sér þegar orð
fyrir dugnað, vandvirkni og sam-
viskusemi í starfi. Hann byggði
fjölda íbúða og húsa fyrir aðra og
einnig til endursölu.
Þegar Sameinaðir verktakar
voru stofnaðir 1951, var hann einn
af stofnendum og í stjórn frá 1954
og síðan. Þegar Islenskir aðal-
verktakar tóku við verklegum
framkvæmdum af þeim 1957, var
Ingólfur kjörinn í stjórn þeirra og
hefur verið einn af forsvars-
mönnum þar fram á þennan dag.
Það er haft eftir samstarfs-
mönnum hans, að drýgri og far-
sælli stjórnarmann væri vart
hægt að finna og ekki hefi ég enn
mætt neinum sem ekki ber fyllsta
traust og virðingu fyrir honum.
Ingólfur var einn af stofnendum
Meistarafélags húsasmiða, ritari í
4 ár og formaður í 4 ár. Lengi sat
hann í stjórn Meistarasambands
byggingarmanna, Lífeyrissjóðs
húsasmiða, Vinnuveitendasam-
bands íslands, Landssambands
lífeyrissjóða og Landssambands
iðnaðarmanna, en þar var hann
forseti sambandsins um skeið.
Hann hefur verið fulltrúi ríkisins í
Framkvæmdanefnd byggingar-
áætlana frá stofnun hennar.
Á þessu má sjá hversu óhemju
tíma hann hefur verið í félagsmál-
um og hvarvetna hefur hann notið
trausts samferðamanna sinna til
forustu.
Samstarfsnefnd um gíróþjónustu á blaðamannafundi, sem haldinn var
í tilefni 10 ára afmælis gíróþjónustunnar. F.v.: Gunnar Valdimarsson,
Póstgiróstofan, Bragi Kristjánsson, Póst- og simamálastofnun, Þór
Gunnarsson, formaður nefndarinnar, Samband íslenskra sparisjóða,
Olafur Steinar Valdimarsson. Samgöngumálaráðuneytið, Einar B.
Ingvarsson, viðskiptabankar, Sveinbjúrn Hafliðason, Seðlabankinn,
Friðrik Weisshappel, fulltrúi einkabanka, var fjarstaddur.
Gíróþjónustan tíu ára
UM ÞESSAR mundir eru tíu ár liðin frá því gíróþjónusta var
tekin upp hérlendis. Á siðasta ári voru seldar 3,4 milljónir
gíróseðla á íslandi og hefur notkun þeirra sexfaldast á þessum
árum. Gírókerfið byggir hér á landi á samstarfi Póst- og
simamálastofnunar, viðskiptabanka, Sambands íslenskra
sparisjóða og Seðlabanka íslands. Ekki er vitað til þess að
slíkt samstarf hafi tekist annarsstaðar, en erlendis er yfirleitt
um tvö aðskilin kerfi að ræða, póst- og bankagiró. Samstarfs-
nefnd um gíróþjónustu, sem skipuð er fulltrúum frá
áðurnefndum aðilum, efndi til hlaðamannafundar í tilefni
afmælisins og benti Þór Gunnarsson, formaður nefndarinnar,
meðai annars á hversu örugg og hagkvæm giróþjónustan hefði
reynst og sagði hann að margt benti til þess að notkun
gíróseðla ætti eftir að aukast enn í framtíðinni.
Þegar gírókerfið var tekið í
notkun hér var notaður einn seðill,
sem dugði fyrir allar tegundir
greiðslna, en í dag eru í notkun
fjórar tegundir seðla, sem gerðir
eru fyrir mismunandi þarfir
viðskiptalífsins.
Fyrir fjórum árum var tekinn í
notkun tölvulestur í gíróþjónust-
unni, svokölluð OCR-tækni, og
fylgja henni margvíslegir kostir í
vinnslu seðlanna. 011 afgreiðsla
milli banka fer fram samdægurs
og kemur greiðsla inn á reikning
viðkomandi samdægurs, hvar sem
er á landinu. Engir peningar
liggja því bundnir í kerfinu.
Tölvuvæðingin hefur einnig þann
kost í för með sér að stærri
viðskiptavinir geta gefið upplýs-
ingar á segulmiðum um hversu
margir og hverjir hafi greitt
gíróseðilinn.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSING.V
SÍMINN ER:
22480
Ingólfi hlotnaðist mikil gæfa er
hann gekk að eiga Soffíu Ólafs-
dóttur frá Tandraseli í Borgar-
firði, 9. október 1937. Þar eignað-
ist hann ekki einungis verðugan
lífsförunaut, heldur einnig trygga
og glæsilega eiginkonu, sem í blíðu
og stríðu hefur verið honum sterk-
ur bakhjarl. Soffía hefur búið
þeim gott heimili, þar sem gest-
risni, höfðingskapur og góður andi
ríkir. Þau hjón hafa verið sam-
rýnd í því að gera heimilið að
aðlaðandi íverustað, þar sem börn
þeirra og barnabörn eru í háveg-
um höfð auk vina og vandamanna.
Börn þeirra eru: Björg, gift
Haraldi Gíslasyni, viðskiptafræð-
ingi, Ágústa, verslunarmær, Ólaf-
ur, húsasmiður, giftur Bjarghildi
Jósepsdóttur, Hrafnhildur, gift
Magnúsi Magnússyni, viðskipta-
fræðingi og Finnbogi, húsasmiður,
giftur Birnu Jakobsdóttur.
Ingólfur hefur verið heiðraður á
margan hátt fyrir störf sín í þágu
iðnaðarins. Hann vær sæmdur
fálkaorðunni og gullmerki Lands-
sambands iðnaðarmanna, auk
fjölda annarra viðurkenninga.
Við sem þekkjum Ingólf sendum
honum hamingjuóskir á þessum
merkisdegi og biðjum þeim hjón-
um guðs blessunar um ókomin ár.
Megi þjóðin eignast marga slíka
hæfileika- og drengskaparmenn.
Haraldur Gíslason
Börn að leik
Pínumar og
Sjávarbömin:
Þessar gullfallegu
og eftirspurðu styttur
frá Bing & Gröndahl
eru aftur fáanlegar.
Thorvaldsens
plattamir:
Árstíðimar 4 og Dagur og Nótt.
Veggplattar sem Thorvaldsen, einn frægasti
listamaður íslensku þjóðarinnar vann fyrir
Bing & Gröndahl um 1820 og síóan hafa verið
í stööugri en takmarkaðri framleiöslu.
Hátíðarjyafir
frá Bing & Gröndahl
Sendum í póstkröfu
um allt land
RAMMAGERD1N
HAFNARSTRÆTI 19 símar 17910 & 12001